Mynd: EPA

Tæknirisinn sem Bandaríkin vilja stöðva

Banda­ríkin saka Huawei um njósnir en þeim ásök­unum hefur fyr­ir­tækið hafnað. Yfirvöld í Banda­ríkj­unum hafa hvatt banda­menn sína til að meina Huawei aðkomu að upp­bygg­ingu fjar­skipta­kerfa og nú í vik­unni bætt­ist Bretland á lista þeirra landa sem gera það.

Bretar bætt­ust á dög­unum í hóp nokk­urra ríkja sem bannað hafa aðkomu Huawei að upp­bygg­ingu 5G kerfa sinna en ákvörð­unin gæti tafið fyrir upp­bygg­ingu kerf­is­ins þar í landi. Banda­ríkin saka fyr­ir­tækið um að sinna njósnum fyrir yfir­fvöld í Peking og hvetja banda­menn sína til að snið­ganga fyr­ir­tækið.

Huawei var stofnað árið 1987 í Shenzen í suð­ur­hluta Kína af Ren Zhenfei sem enn gegnir starfi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Fyr­ir­tækið hefur frá upp­hafi fram­leitt búnað fyrir fjar­skipta­kerfi og er nú orðið eitt af stærstu tækni­fyr­ir­tækjum í heim­inum. Til marks um stærð þess nægir að nefna starfs­manna­fjöldan; um 180 þús­und manns. Fyr­ir­tækið fram­leiðir einnig far­síma en mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins í far­síma­sölu á heims­vísu er um 18 pró­sent. Einungis Samsung hefur meiri hlut­deild á þeim mark­aði.

Banda­rísk yfir­völd full­yrða að vörur Huawei geti verið not­aðar til njósna af hálfu kín­verskra yfir­valda. Í því sam­bandi hafa þau reynt að gera stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins, áður­nefndan Ren Zhenfei, tor­tryggi­legan með því að benda á að hann hafi þjónað um ára­bil í kín­verska hernum og sé félagi í Komm­ún­ista­flokknum þar í landi. Þá halda banda­rík yfir­völd því fram að sam­kvæmt kín­verskum upp­lýs­inga­lögum sé kín­verskum fyr­ir­tækjum bein­línis skylt að aðstoða þar­lend yfir­völd við að afla upp­lýs­inga fyrir leyni­þjón­ust­una. Þar af leið­andi geti yfir­völd í Peking farið fram á að Huawei njósni fyrir sig.

Segjast aldrei hafa sinnt njósnum

Huawei segir þennan bak­grunn Ren ekki skipta máli. Hann sé öllu heldur rök­réttur, enda hafi Ren sem ungur maður þurft að vera félagi í Komm­ún­ista­flokknum til þess að eiga mögu­leika á því að gegna ábyrgða­stöðu. Varðandi njósn­irnar segir fyr­ir­tækið að það hafi aldrei tekið þátt í slíku og muni ekki gera.

Í maí var komið á nýjum við­skipta­þving­unum sem eru afar íþyngj­andi fyrir Huawei. Banda­rísk yfir­völd hafa meinað fyr­ir­tækjum sem frem­leiða íhluti sem Huawei notar í sinni fram­leiðslu að nota banda­ríska tækni, bæði hug­búnað og vél­búnað. Þessar þving­anir taka gildi í sept­em­ber og munu bitna helst á fyr­ir­tækjum sem fram­leiða tölvuflögur fyrir Huawei.

Í frétt New York Times er haft eftir John Neuffer, en hann fer fyrir sam­tökum fyr­ir­tækja sem fram­leiða hálf­leið­ara, að bann­inu fylgi mikil óvissa. Það geti sett fram­leiðslu hálf­leið­ara úr skorðum og haft veru­leg áhrif á fram­boð hálf­leið­ara á heims­vísu enda Huawei stór aðili á mark­aði.

Hófu framleiðslu á sínum eigin tölvuflögum

Bannið er enn ein aðgerð banda­rískra yfir­valda sem bein­ast sér­stak­lega að Huawei. Í maí í fyrra var sams konar við­skipta­bann sett á Huawei og dótt­ur­fyr­ir­tæki þess. Í kjöl­farið þurfti Huawei að hætta kaupum á tölvuflögum frá banda­rískum fyr­ir­tækjum á borð við Qualcomm og hefja sína eigin fram­leiðslu. Við tók upp­bygg­ing á dótt­ur­fyr­ir­tæk­inu HiSilicon sem fram­leiðir slíkar flögur.

En HiSilicon reiðir sig á önnur fyr­ir­tæki í hálf­leið­ara­brans­anum, svo sem S.M.I.C sem stað­sett er í Shanghæ og T.S.M.C frá Tævan. Þau fyr­ir­tæki reiða sig svo á tækni frá Banda­ríkj­unum í sinni fram­leiðslu. Nýja bannið kemur þar af leið­andi í veg fyrir að S.M.I.C og T.S.M.C geti fram­leitt tölvuflögur fyrir Huawei.

Þving­anir Banda­ríkj­anna virð­ast vera að skila til­ætl­uðum árangri, að minnsta kosti í Bret­landi. Í frétt BBC frá því fyrr í mán­uð­inum segir að vegna við­skipta­þving­ana gæti sú staða komið upp að Huawei þurfi því að leita til fyr­ir­tækja eftir íhlutum sem ekki fái grænt ljós hjá breskum stofn­unum sem hafa umsjón yfir net­ör­ygg­is­málum.

BT er eitt þeirra fjarskiptafyrirtækja í Bretlandi sem er með búnað frá Huawei í kerfum sínum. Þeim búnaði þarf að skipta út fyrir árið 2027
BT er eitt þeirra fjar­skipta­fyr­ir­tækja í Bret­landi sem er með búnað frá Huawei í kerfum sínum. Þeim bún­aði þarf að skipta út fyrir árið 2027

Fjarlægja þarf allan búnað Huawei úr breska kerfinu

Bretar hafa í ár verið mjög tví­stíg­andi í mál­efnum Huawei. Upp­haf­lega var tekin sú ákvörðun að bún­aður Huawei yrði leyfður í 5G kerf­inu, en hlutur Huawei mætti þó ekki fara yfir ákveðið hámark. Sú ákvörðun var end­ur­skoðuð í kjöl­far frek­ari þving­ana Banda­ríkj­anna og nú er svo komið að bún­aður Huawei verður með öllu bann­aður í fjar­skipta­kerf­inu.

Það þýðir að allur bún­aður frá Huawei sem nú þegar er í breska kerf­inu verður að vera fjar­lægður fyrir árið 2027. Nú þegar er bún­aður Huawei í kerfum BT og Vodafone, svo dæmi séu tekin, en þau eru stór fyr­ir­tæki á breskum fjar­skipta­mark­aði. Samkvæmt frétt BBC er kostn­að­ur­inn vegna þessa tal­inn geta numið allt að tveimur millj­örðum punda, sem sam­svarar um 350 millj­örðum króna. Þar að auki gæti ákvörðun Breta tafið fyrir 5G upp­bygg­ingu þar í landi um tvö til þrjú ár.

Bretar eru fjarri því að vera fyrsta þjóðin til að banna aðkomu Huawei að upp­bygg­ingu 5G kerf­is­ins. Auk Bret­lands og Banda­ríkj­anna er búið að banna aðkomu Huawei að upp­bygg­ingu 5G kerf­is­ins í Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Kanada og Japan.

Telur ólíklegt að Huawei hafi komið að njósnum

„Þessi ákvörðun Bretanna kom mörgum á óvart,“ segir Hrafn­kell V. Gíslason, for­stjóri Póst- og fjar­skipta­stofn­unar, í sam­tali við Kjarnann. Hann segir Breta hingað til hafa verið á sömu línu og lönd Evr­ópu­sam­bands­ins hvað varðar aðkomu Huawei. Stofn­unin sem fer með net­ör­ygg­is­mál innan Evr­ópu­sam­bands­ins er European Union Agency for Cybersecurity (Enisa) en hún hefur gefið út svkoll­aða verk­færakistu (e. toolbox) um ýmsar aðgerðir til að efla öryggi fjar­skipta­kerfa.

„Í þessu „toolboxi“ sem liggur fyrir á net­inu eru alls konar ráð­staf­anir og ein af þeim snýr að birgja­keðj­unni og lýtur að því að vera ekki um of háður einum til­teknum birgja,“ segir Hrafn­kell. Þessari nálgun hafi Bretar upp­haf­lega fylgt, sam­an­ber upp­haf­leg ákvörðun um að leyfa búnað Huawei í fjar­skipta­kerf­inu upp að vissu hámarki. En nú hefur orðið stefnu­breyt­ing og Bretar fylgt harð­ari afstöðu Banda­ríkj­anna til Huawei.

Hrafn­kell segir að enn sem komið er sé ólík­legt að Huawei hafi stundað njósnir. „Mér er ekki kunn­ugt um það að nokkrum ein­asta manni hafi tek­ist að sýna fram á það að það er eða hafi verið ein­hver njósn­a­bún­aður eða óeðli­leg virkni í kerfum frá Huawei,“ segir hann. Mögu­leik­inn sé hins vegar til staðar.

Takmörkuð geta til að greina kóðann í uppfærslum

„Umræðan snýst um tvennt. Það snýst ann­ars vegar um ákveðið „potential“. Um að það sé hægt að setja þennan búnað inn, til þess að gera með litlum fyr­ir­vara og lít­illi fyr­ir­höfn vegna þess að þetta er allt saman meira og minna hug­bún­aður. Og hins vegar er það að þessi kerfi, er þú ætlar að fara að greina kóð­ann í þeim og kef­is­upp­bygg­ingu kerf­anna þá gætu kannski Svíar gert það af því að þeir hafa þessa miklu þekk­ingu á fjar­skiptum. Kannski geta njósn­a­stofn­anir í Bret­landi gert það. En þar með held ég að það séu upp­taldir evr­ópskir aðilar sem gætu ráðið við það.“

Hrafn­kell líkir þessu við upp­færslur á stýri­kerfum. „Það er nú ekki með nákvæm­lega sama hætti, en það er með sams­konar hætti. Þegar verið er að upp­færa þessi tækni­kerfi, þessi flóknu tækni­kerfi, þá koma bara upp­færslur frá fram­leið­anda,“ segir hann. Um kóð­ann í upp­færslum kerf­anna gildi það sama og um kóð­ann í tölvu­upp­færslum, í raun og veru viti not­and­inn lítið um inni­hald hans.

„Þá fer inn ein­hver virkni sem á að bæta kerfið eða auka öryggið en þú veist í raun og veru ekk­ert hvað ger­ist. Og það er þessi mögu­leiki, að það komi bara ein­hver virkni, hún er sett inn og á vondum degi þegar að ástandið er orðið verra en það er í dag þá getur þessi virkni verið óheppi­leg út frá ein­hverjum sjón­ar­miðum,“ segir Hrafn­kell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár