Mynd: Bára Huld Beck

Nýtt met í arðgreiðslum í sjávarútvegi: Alls 14,5 milljarðar í arð í fyrra

Sjáv­ar­út­vegur hefur bætt eig­in­fjár­stöðu sína um 341 millj­arða króna, greitt sér út yfir 80 millj­arða króna í arð, minnkað skulda­stöðu sína um 86 millj­arða króna og fjár­fest fyrir 95 millj­arða króna á örfáum árum.

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki greiddu út hærri arð­greiðslur í fyrra en þau hafa nokkru sinni gert áður. Alls fengu eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja 14,5 millj­arða króna greiddan í arð á árinu 2017 vegna frammi­stöðu árs­ins á undan.

Frá árinu 2010 hafa arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja til eig­enda sinna numið 80,3 millj­örðum króna. Frá hruni hefur eig­in­fjár­staða sömu fyr­ir­tækja batnað um 341 millj­arða króna, og þar af batn­aði hún um 41 millj­arð króna í fyrra. Því hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins vænkast um 421,3 millj­arða króna á tæpum ára­tug. Vert er að taka fram að eig­in­fjár­staða geirans var nei­kvæð í lok árs 2008 en er nú jákvæð um 262 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í tölum úr Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte vegna árs­ins 2017, sem kynntar voru á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum sem hald­inn var í gær.

Nýtt veiðigjaldafrumvarp komið fram

Sjáv­ar­út­vegs­grunn­ur­inn inni­heldur 87 pró­sent af rekstr­ar­upp­lýs­ingum 2017. Þar kemur fram að tekjur geirans í fyrra hafi verið 225 millj­arðar króna og fram­legð 40 millj­arðar. EBITDA-hagn­aður (rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magns­kostn­að, skatta og afskrift­ir) var 18 pró­sent, sem er minna en hann hefur verið und­an­farin ár. Þau ár voru þó á meðal þeirra bestu rekstr­ar­lega séð í sögu íslensks sjáv­ar­út­vegs.

Hagnaður í fyrra var 27 millj­arðar króna sem er rúm­lega helm­ingur þess sem hann var árið áður, þegar sjáv­ar­út­vegur átti sitt besta hagn­að­arár í sög­unni. Mest mun­aði um breyt­ingar á geng­is­hagn­aði, sem hafði verið 16 millj­arðar króna árið 2016 en var eng­inn árið 2017. Sam­an­lagt hafa íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hagn­ast um 369 millj­arða króna eftir hrun.

Bein opin­ber gjöld sem geir­inn greiddi í fyrra voru 15,8 millj­arðar króna og lækk­uðu um 3,3 millj­arða króna á milli ára. Veiði­gjöldin ein og sér voru 6,8 millj­arðar króna á síð­asta ári og hækk­uðu um 400 millj­ónir króna frá árinu á undan. Sjáv­ar­út­vegur hefur ekki greitt lægri opin­ber gjöld á einu alm­an­aks­ári frá árinu 2011.

Sam­kvæmt nýfram­lögðu frum­varpi til laga um breyt­ingar á veiði­gjöldum í sjáv­ar­út­vegi er lagt upp með að afkomu­teng­ingin í gjald­heimt­unni verði færð nær í tíma heldur en nú er. Þannig verða rekstr­ar­gögnin sem liggja til grund­vallar gjald­heimt­unni eins árs gömul í stað tveggja ára eins og verið hefur und­an­farin ár.

Með þessu er stefnt að því að gjald­heimtan verði skyn­sam­legri bæði fyrir atvinnu­veg­inn sem heild, sem og stjórn­völd og almenn­ing. Með fyrr­nefndum breyt­ingum verður gjald­heimtan tengd­ari því sveiflu­kennda umhverfi sem oft ein­kennir íslenskt efna­hags­líf.

Eiginfjárstaða batnað, skuldir lækkað og fjárfesting aukist

Skuldir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem til­heyra grunn­inum hækka í 362 millj­arða króna. Það er umtals­verð hækkun á milli ára, eða úr 319 millj­örðum króna. Skuldir eru samt minni nú en þær voru árið 2014.

Geirinn hefur þó lagað skulda­stöðu sína gríð­ar­lega á árunum 2009-2017, eða um 86 millj­arða króna umfram nýjar lang­tíma­skuldir. Einungis tví­vegis á því tíma­bili hefur verið stofnað til skulda umfram afborg­anir, árið 2015 þegar ný lán voru 18 millj­arða fram yfir afborg­anir, og í fyrra þegar þau voru 15 millj­arða fram yfir afborg­anir.

Ástæðan er aukin fjár­fest­ing í geir­anum, meðal ann­ars við end­ur­nýjun skipa­flota. Fjár­fest­ingar í var­an­legum rekstr­ar­fjár­munum frá 2014 og til síð­ustu ára­móta nam 95 millj­örðum króna. Í fyrra var hlut­fall slíkrar fjár­fest­ingar af EBITDA hærri en nokkru sinni fyrr á tíma­bil­inu, eða 48 pró­sent.

Því hefur sjáv­ar­út­vegur aukið eig­in­fjár­stöðu sína um mörg hund­ruð millj­arða króna, greitt sér út yfir 80 millj­arða króna í arð, minnkað skulda­stöðu sína um 86 millj­arða króna og fjár­fest fyrir 95 millj­arða króna á örfáum árum.

Gríðarleg fjárfestingargeta stærstu fyrirtækjanna

Þessi gíf­ur­lega bætti hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins lendir að mestu hjá stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins. Þannig hefur til að mynda Samherji, sam­stæða félaga sem starfa á sviði sjáv­ar­út­vegs hér­lendis og erlendis, hagn­ast um 100 millj­arða króna á und­an­förnum sjö árum. Hagnaður Samherja í fyrra var 14,4 millj­arðar króna og eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins var 94,4 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Um helm­ingur af starf­semi Samherja er erlendis. Helstu eig­endur Sam­herja eru frænd­urn­ir, for­stjór­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son og útgerð­ar­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­son. Fyr­ir­tækið keypti nýverið 25,3 pró­sent hlut í Eim­skipa­fé­lagi Íslands á 11,1 millj­arða króna.

Mikil við­skipti hafa líka verið með hluti í stórum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum að und­an­förnu og ljóst að fjár­fest­inga­geta eig­enda þeirra er gríð­ar­leg. Guð­mundur Krist­jáns­son, lengi kenndur við Brim, keypti um 35 pró­sent hlut í HB Granda fyrr á árinu. Mark­aðsvirði þess hluta er í dag um 20 millj­arðar króna. Í kjöl­farið seldi Brim, sem nú heitir Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, hlut sinn í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum á 9,4 millj­arða króna til FISK, sjáv­ar­út­vegs­arms Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, og HB Grandi keypti hlut Brim í útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Ögurvík á 12,3 millj­arða króna. Í kynn­ingu á Ögur­vík sem birt var á vef kaup­hallar Íslands í vik­unni kom fram að kvóti þess væri met­inn á 14,5 millj­arða króna.

Þrátt fyrir ofan­greinda stöðu lýsti Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, því yfir í gær að frum­varp sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra um veiði­gjöld væru von­brigði. Veiði­gjöld væru enn of há að hennar mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár