Mynd: EPA

Mona Lisa frímerkjaheimsins og frægasta frímerki Bandaríkjanna saman á uppboði

Á dög­unum var mesta fágæti frí­merkja­heims­ins boðið upp, 165 ára gam­alt ein­stakt frí­merki frá Bresku Gvæjana sem seld­ist á millj­arð króna. Á upp­boð­inu mátti einnig finna þekktasta prentgalla banda­rískrar frí­merkja­sögu – flug­vél­ina Jenny á hvolfi.

Verð­mætasta frí­merki í heimi, 165 ára gam­alt eins senta frí­merki frá Bresku Gvæjana, var selt á upp­boði Sotheby’s á dög­unum fyrir 8,3 millj­ónir Banda­ríkja­dala eða rétt rúm­lega millj­arð króna. End­an­legt sölu­verð var að vísu nokkuð undir upp­haf­legu verð­mati Sotheby’s en matið stóð í 10 til 15 millj­ónum dala fyrir upp­boðið sem sam­svarar 1,2 til 1,8 millj­örðum króna. Sölu­verðið er einnig lægra heldur en það verð sem skó­kaup­mað­ur­inn og -hönn­uð­ur­inn Stuart Weitzmann greiddi fyrir frí­merkið þegar hann keypti það árið 2014, en þá nam kaup­verðið 9,5 millj­ónum dala.

Þessi litli rauði og svarti papp­írs­snep­ill hefur stundum verið nefndur Mona Lisa frí­merkja­heims­ins og ekki að ástæðu­lausu. Því hefur verið hampað meðal frí­merkja­safn­ara síðan á ofan­verðri nítj­ándu öld þegar það var útnefnt fágætasta frí­merki heims af frí­merkja­söfn­urum í París.

Í rit­gerð um frí­merkið sem birt­ist á vef Sotheby’s segir að ferð frí­merk­is­ins frá hita­belt­is­lofts­lagi Suður-Ameríku til Evrópu sé stór­merki­leg og að það sé nán­ast fyrir til­vli­jun að enn finn­ist eitt stakt frí­merki úr þess­ari seríu. Frí­merkið sat á sínum stað, límt á dag­blað í sautján ár allt þar til að ungur ætt­ingi við­tak­and­ans fékk að hirða blað­iði. Ætt­ing­inn ungi sá þarna tæki­færi, hann leysti frí­merkið djúp­rauða frá föln­uðum dag­blaða­papp­írnum sem það hafði verið límt á til þess að selja það fyrir nokkra skild­inga og kaupa fjölda nýrra frí­merkja fyrir ágóð­ann.

Sá sem keypti frí­merkið, hinn rúm­lega tví­tugi Neil Ross McKinnon, átt­aði sig hins vegar á því að það væri eitt­hvað merki­legt við þennan grip sem hann hafði keypt fyrir smá­pen­inga. Á þeim fimm árum sem hann átti frí­merkið fóru augu frí­merkja­heims­ins að snú­ast að Bresku Gvæjana og áhugi evr­ópskra safn­ara á frí­merkjum þaðan fór vax­andi. Verð gam­alla frí­merkja frá nýlend­unni óx hratt, frí­merki sem örfáum árum fyrr hafði verið hægt að kaupa fyrir nokkra skild­inga kost­uðu nú nokkur pund. McKinnon lét á end­anum undan freist­ing­unni til að selja og sendi allt safnið sitt til Englands.

Í Liverpool festi frí­merkja­kaup­maður kaup á eins senta frí­merk­inu. Þaðan ferð­að­ist merkið yfir Ermar­sundið og rataði í safn hins sér­vitra Philipp von Ferrary en frí­merkja­safn hans er talið vera það merki­leg­asta sem til hefur verið. Það var eftir að frí­merkið komst í safn hans sem að helstu frí­merkja­safn­arar urðu sam­mála um að þetta til­tekna frí­merki væri það sjald­gæfasta í heimi. Eftir and­lát hans var frí­merkið selt á upp­boði árið 1922 fyrir 32,500 Banda­ríkja­dali. Sú sala rataði í heims­press­una og frægð frí­merk­is­ins náði því út fyrir heim frí­merkja­safn­ara og grúskara.

Núverandi eigandi vill dreift eignarhald

Frí­merkið gekk nokkrum sinnum kaupum og sölum það sem eftir lifði tutt­ug­ustu ald­ar­innar fyrir sífellt hærri fjár­hæðir. Árið 2014 upp­fyllti skó­hönn­uð­ur­inn Stuart Weitzmann æsku­draum þegar hann eign­að­ist frí­merkið fyrir 9,5 millj­ónir dala á upp­boði Sotheby’s. Síðan hann keypti frí­merkið hefur það lengst af verið til sýnis á póstsafni Smith­son­ian, Smith­son­ian National Postal Museum, sem stað­sett er í Washington D.C.

Dýrasta frímerki í heimi, eins senta frímerki frá Bresku Gvæjana, gefið út árið 1856. Eigendur frímerkisins hafa í gegnum tíðina sett mark sitt á frímerkið. Vel má greina merkingu síðasta eiganda, fangamarkið SW og hælaskó.
Dýrasta frí­merki í heimi, eins senta frí­merki frá Bresku Gvæjana, gefið út árið 1856. Eigendur frí­merk­is­ins hafa í gegnum tíð­ina sett mark sitt á frí­merkið. Vel má greina merk­ingu síð­asta eig­anda, fanga­markið SW og hæla­skó.

Í fyrsta sinn í 165 ár er frí­merkið ekki í eigu ein­stak­lings. Það var breska frí­merkja­salan Stanley Gibbons sem festi kaup á frí­merk­inu á upp­boð­inu sem haldið var síð­asta þriðju­dag. Fyr­ir­tækið ætlar að dreifa eign­ar­hald­inu og selja hlut­deild­ar­skír­teini í frí­merk­inu í gegnum netið og bjóða söfn­urum þar með hlut­deild í gróð­anum sem skap­ast verði frí­merkið selt síðar fyrir hærra verð.

Í umfjöllun Reuters segir að það geti reynst fyr­ir­tæk­inu erfitt að fanga hylli safn­ara sem sækj­ast eftir hagn­aði úr við­skiptum með safn­gripi. Sú stað­reynd að sölu­verðið hafi lækkað frá því að Weitzmann festi kaup á því sé ekki heill­andi í augum safn­ara. Grip­ur­inn sé því einn af fáum fágætum munum sem lækkað hafi í verði að und­an­förnu, rán­dýrir fágætir safn­gripir hafa að jafn­aði tvö­fald­ast í verði und­an­far­inn ára­tug. Frí­merkja­safn­arar hafi auk þess mestan áhuga á frí­merkjum sem kom­ist hafa í dreif­ingu þrátt fyrir að mis­tök hafi verið gerð við prentun þeirra.

Weitzman skrifar hér aftan á bakhlið frímerksins dýra.
Weitzman skrifar hér aftan á bak­hlið frí­merks­ins dýra.

800-faldaðist í verði á einni viku

Einn þeirra þriggja muna sem seldir voru á upp­boð­inu, sam­hliða eins senta frí­merk­inu, er einmitt einn slíkur galla­gripur. Fjögurra frí­merkja blokk sem sýnir flug­vél af gerð­inni Curtiss JN-4H sem iðu­lega er kölluð Jenny. Það sem gerir þessi til­teknu frí­merki svona eft­ir­sótt er að mynd flug­vél­ar­innar er á hvolfi vegna mis­taka sem gerð voru við prentun frí­merkj­anna.

Frímerki með þessum galla urðu á örskömmum tíma afar eft­ir­sótt meðal safn­ara. Frí­merkin voru sér­stak­lega gerð fyrir flug­póst milli Washington borgar, Fíla­delfíu og New York og var útgefið verð þeirra 24 sent. Til stóð að hefja póst­send­ingar milli borg­anna með flugi þann 15. maí 1918 en prentun frí­merkj­anna hófst fimm dögum fyrr. Tveimur dögum fyrir áætlað upp­haf póst­send­inga með flugi komust frí­merkin til skila á nokkur póst­hús í höf­uð­borg­inni.

Degi síðar festi William T. Robey kaup á örk með 100 frí­merkjum á póst­húsi fyrir 24 Banda­ríkja­dali. Hann veitti frí­merkj­unum ekki mikla athygli enda hafði hann ein­fald­lega séð fyrir sér að líma þau á umslög sem hann myndi síðan senda frá sér. Örkin sem hann keypti fór þó í sitt fyr­ir­séða ferða­lag, þó með óhefð­bundnu sniði. Innan við viku eftir að Robey gekk út úr póst­hús­inu með frí­merkin seld­ist örkin á 20 þús­und Banda­ríkja­dali í New York, en hún hafði þá þegar haft við­komu í Fíla­delfíu þar sem frí­merkin skiptu um hendur fyrir 15 þús­und dali. Verð­mætið hafði því átta­hund­ruð­fald­ast á örfáum dögum.

Þar komust frí­merkin í hend­urnar á Edward Green en sá var sonur kaup­sýslu­konu að nafni Hetty Green. Hetty var gjarnan kölluð rík­asta kona Banda­ríkj­anna á þeim upp­gangs­tíma 19. ald­ar­innar í Banda­ríkj­unum sem kall­aður hefur verið The Gilded Age. Hún var ann­ál­aður nísku­púki og gjarnan upp­nefnd nornin á Wall Street. Edward Green hóf að búta örk­ina niður og seldi hluta frí­merkj­anna. Hann hélt þó eftir mik­il­væg­ustu hlutum ark­ar­innar, til að mynda frí­merkj­unum fjórum sem hér eru í aðal­hlut­verki en þau voru hluti átta frí­merkja blokkar í safni Green. Sú blokk var seld eftir and­lát Green á 27 þús­und dali árið 1944. Tíu árum síðar birt­ist hluti þeirrar blokkar að nýju, nú sem fjór­blokkin sem seld var í vik­unni.

Frímerkin handleikin af Homer Simpson

Síðan þá hefur fjór­blokkin gengið kaupum og sölum nokkrum sinnum. Í októ­ber árið 2014 festi Stuart Weitzman kaup á frí­merkj­unum fyrir rúmar 4,8 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Hann hafði fyrr það sama ár keypt eins senta frí­merkið frá Bresku Gvæjana, svo með kaup­unum á fjór­blokk­inni gat Weitzman státað sig af því að eiga eft­ir­sótt­ustu frí­merki í heimi í flokki bæði not­aðra og ónot­aðra.

Á upp­boði Sotheby’s á þriðju­dag seld­ist fjór­blokkin á svip­uðu verði og árið 2014, fyrir tæpar 4,9 millj­ónir dala með öllum gjöldum sem falla á kaup­and­ann, það gera rétt tæpar 600 millj­ónir. Það er ögn undir því mati sem Sotheby’s setti á frí­merkin en verð­matið stóð í fimm til sjö millj­ónum dala, sem eru um 610 til 850 millj­ónir króna.

Óhætt er að segja að þessi frí­merki séu þekkt­ustu frí­merki banda­rískrar frí­merkja­sögu. Til að mynda hafa frí­merki úr þess­ari seríu ratað í sjón­varps­þátt­inn The Simpsons en í einum þætt­inum er hald­inn flóa­mark­aður. Úr kassa í einum básnum dregur Homer Simpson hvern dýr­grip­inn á fætur öðrum sem honum líst þó ekki mikið á, til að mynda Stra­di­varius fiðlu, fyrstu útgáfu mynda­sögu­blaðs­ins Action Comics, sjálf­stæð­is­yf­ir­lýs­ingu Banda­ríkj­anna og frí­merkja­blokk með flug­vél­inni Jenny á hvolfi. Með vand­læt­ingu vekur Homer athygli á því að mynd flug­vél­ar­innar á frí­merkj­unum sé á hvolfi áður en hann kastar þeim frá sér líkt og hverju öðru rusli.

Síðasti gullpeningurinn

Þá er enn ótal­inn verð­mæt­asti mun­ur­inn úr fórum Stuart Weitzman sem seldur var hjá Sotheby’s á þriðju­dag og sá eini sem seld­ist yfir mats­verði. Það var gull­pen­ingur, svo­kall­aður tvö­faldur örn, frá árinu 1933 en saga pen­ings­ins er um margt áhuga­verð og sam­ofin hag­sögu Banda­ríkj­anna.

Á fjórða ára­tug síð­ustu aldar var gull­fót­ur­inn afnum­inn í Banda­ríkj­unum. Nánar má lesa um gull­fót á Vís­inda­vefnum en í stuttu máli, þá er gjald­mið­ill sagður vera á gull­fæti ef að baki hans er gull­forði, þannig að hver seð­ill eða mynt er í raun ávísun á til­tekið magn gulls. Á þeim tíma þegar gull­fót­ur­inn var við lýði var algengt að gull væri notað við mynt­sláttu og árið 1933 voru tæp­lega 450 þús­und tvö­faldir ernir slegnir í mynt­slátt­unni í Fíla­delfíu. Virði nýsleg­ins pen­ings af þess­ari gerð var á sínum 20 Banda­ríkja­dalir en í hverri mynt var tæp­lega únsa af gulli.

Vegna afnáms gull­fót­ar­ins var tekin sú ákvörðun að stöðva útgáfu mynt­ar­innar og hún fór því aldrei í umferð. Nýslegna myntin, auk allra ann­arra gull­pen­inga í eigu alrík­is­ins, skyldi brædd í gull­stykki sem síðan færu í Fort Knox. Það varð því ólög­legt að eiga tvö­falda örn­inn sem sleg­inn var 1933. Ekki rataði öll myntin frá 1933 í bræðslu­pott­inn þegar kom loks að því að bræða mynt­ina og komust því nokkrir pen­ingar í hendur safn­ara.

Svona lítur dýrasta mynt í heimi út.
Svona lítur dýrasta mynt í heimi út.

Árið 1944 átti að bjóða upp einn slíkan pen­ing hjá upp­boðs­húsi sem ber heitið Stack’s. Banda­ríska leyni­þjón­ustan brá sér á stað­inn áður en upp­boðið va haldið og gerði pen­ing­inn upp­tækan vegna þess að um þýfi var að ræða. Í kjöl­farið fengu allir eig­endur mynt­ar­innar frá 1933 bréf þar sem óskað var eftir því að pen­ing­unum yrði skilað. Alls voru átta pen­ingar sem skil­uðu sér aftur til yfir­valda með þessum hætti.

Vottorð sem segir myntina vera löglega

Með pen­ingnum sem seldur var á þriðju­dag fylgir eins konar vott­orð frá banda­rísku mynt­slátt­unni þar sem fram kemur að ekki sé ólög­legt að eiga þennan til­tekna pen­ing, öll önnur ein­tök frá 1933 séu hins vegar eign banda­rískra yfir­valda. Þetta er því eini pen­ing­ur­inn úr síð­ustu mynt­slátt­unni árið 1933 sem ein­stak­lingur má eiga. Þetta vott­orð var gefið út eftir að mynt­sali hafði verið hand­tek­inn á Waldorf Astoria hót­el­inu árið 1996, þegar hann var að reyna að selja pen­ing­inn.

Eftir mik­inn mála­rekstur var ákveðið að gefa út þetta til­tekna leyfi og pen­ing­ur­inn var seldur með skil­málum. Helm­ingur sölu­and­virð­is­ins rann í vasa mynt­sal­ans en hinn helm­ing­ur­inn fór til yfir­valda.

Stuart Weitzman keypti tvö­falda örn­inn frá 1933 fyrir metfé árið 2002. Þá var pen­ing­ur­inn boð­inn upp á sam­eig­in­legu upp­boði Sotheby’s og Stack’s og nam kaup­verðið tæp­lega 7,6 millj­ónum dala. Á upp­boð­inu á þriðju­dag seld­ist myntin fyrir tæpar 18,9 millj­ónir dala, það er um 2,3 millj­arðar króna. Upp­haf­legt verð­mat hljóð­aði upp á 10 til 15 millj­ónir dala, sem sam­svara um 1,2 til 1,8 millj­örðum króna.

Börnin vildu ekki erfa munina

Í sam­tali við New York Times sagði Weitzman að æsku­draumar hans hefðu verið upp­fylltir þegar hann eign­að­ist þá hluti sem hann seldi aftur frá sér í vik­unni. Hann hefði byrjað að safna frí­merkjum og myntum af áhuga sem ungur strákur en sem full­orð­inn maður hefði hann ein­beitt sér af fágæt­ari munum í fag­inu.

Með söl­unni væri hann aftur á móti að búa í hag­inn, því ekki hefðu börnin hans áhuga á að erfa þessa safn­gripi. „Það tekur eng­inn flutn­inga­bíl með sér í kirkju­garð­inn,“ sagði hinn 79 ára gamli Weitzman við New York Times, „við þurfum að finna út úr því hvað við viljum gera við allt þetta dót.“

Sölu­and­virðið fyrir þessa þrjá muni, alls um 3,9 millj­arðar króna mun fara í góð­gerða­starf, meðal ann­ars í góð­gerða­sam­tök fjöl­skyld­unnar, The Weitzman Family Foundation.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár