Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eldri kjósendur yfirgefa Sjálfstæðisflokk – Yngri kjósendum Pírata fækkar

Sam­fylk­ingin sækir lang­mest af fylgi sínu til elstu kjós­enda lands­ins en á í vand­ræðum með að heilla fólk undir þrí­tugu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur lagað stöðu sína hjá ungu fólki en misst mikið fylgi hjá eldri Íslend­ingum.

Þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var langstærsti flokkur lands­ins ára­tugum saman, og fékk oft­ast nær 35 til 40 pró­sent atkvæða, hafði flokk­ur­inn yfir­burða­stöðu á meðal ungs fólks. Það breytt­ist eftir hrunið og í könnun MMR sem gerð var í októ­ber 2016, nokkrum dögum fyrir kosn­ingar það árið, kom fram að fylgi hans hjá fólki undir þrí­tugu væri ein­ungis 18 pró­sent. Ungt fólk var á þeim tíma sá ald­urs­hópur sem Sjálf­stæð­is­flokknum gekk verst að sann­færa að kjósa sig. Eftir því sem fólk varð eldra, því lík­legra var það til að setja X við D. Og mestur var stuðn­ing­ur­inn hjá eldri en 68 ára.

Í áður­nefndri könnun MMR frá því í októ­ber 2016 kom fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem þá mæld­ist með 25 pró­sent fylgi, fengi 34 pró­sent af fylgi sínu frá kjós­endum sem voru 68 ára og eldri.

Í gögnum sem Kjarninn hefur fengið frá MMR, og sýna ald­urs­dreif­ingu fylgis sam­kvæmt síð­ustu tveimur könnun fyr­ir­tæk­is­ins, er stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í þeim ald­urs­flokki búinn að helm­ing­ast frá 2016. Alls segj­ast 17,1 pró­sent aðspurðra í honum ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn í dag. Því má tala um hrun í fylgi flokks­ins í elsta ald­urs­hópnum.

Heild­ar­fylgi flokks­ins er mælist þó minna í dag en það gerði 2016, og nokkuð undir kjör­fylgi í kosn­ing­unum 2017. Alls sögð­ust að með­al­tali 21,8 pró­sent þátt­tak­enda í könn­unum MMR sem birtar voru í lok maí og miðjan júní að þeir myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann er samt sem áður stærsti flokkur lands­ins, líkt og hann hefur nær alltaf verið. Sam­an­lagður fjöldi svara í könn­un­unum tveimur var 1.914 og fjöldi þeirra sem tóku afstöðu var 1.529.

Samfylkingin væri stærst ef kjósendur væru allir á eftirlaunaaldri

Alls eru fjórir flokkar sem mæl­ast með hlut­falls­legt fylgi sem er mun hærra í þessum ald­urs­hópi, eldri en 68 ára, en heild­ar­fylgi þeirra segir til um. Lang­mestur er mun­ur­inn hjá Sam­fylk­ing­unni, sem væri stærsti flokkur lands­ins ef ein­ungis fólk á eft­ir­launa­aldri myndi kjósa, með 24,9 pró­sent fylgi. Til sam­an­burðar er mælist fylgi flokks­ins heilt yfir í síð­ustu tveimur könn­unum 13,5 pró­sent.

Árið 2016 var stuðn­ingur við Sam­fylk­ing­una líka mestur hjá elsta ald­urs­hópnum og óx eftir því sem kjós­endur voru eldri. Þá var flokk­ur­inn hins vegar að glíma við það að detta nán­ast út af þingi og heild­ar­fylgi hans mæld­ist 6,1 pró­sent, eða tæp­lega helm­ingur þess sem fylgis sem flokk­ur­inn mælist með í dag. Nokkrum vikum fyrir kosn­ing­arnar 2016 sögð­ust eitt pró­sent lands­manna undir þrí­tugu ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una.

Aðrir flokkar sem njóta vin­sælda hjá elstu Íslend­ing­unum umfram vænt heild­ar­fylgi eru Vinstri græn (18,6 pró­sent í þeim ald­urs­hópi en 12,6 pró­sent heilt yfir), Fram­sókn­ar­flokkur (10,5 pró­sent í þeim ald­urs­hópi en 8,6 pró­sent heilt yfir) og Flokkur fólks­ins (7,3 pró­sent í þeim ald­urs­hópi en 4,2 pró­sent heilt yfir).

Fylgi Pírata hjá ungu fólk dregst verulega saman

Jákvæð­ustu frétt­irnar fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn eru þær að staða hans hjá fólki undir þrí­tugu hefur lag­ast lít­il­lega. Nú segj­ast 18,5 pró­sent þeirra sem til­heyra þeim ald­urs­hópi að þeir myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn ef kosið yrði í dag. Flokk­ur­inn hefur aukið hlut­deild sína í ungum kjós­endum þrátt fyrir að heild­ar­fylgi hans mælist nú lægra en 2016.

Píratar eru sá flokkur sem nýtur mestrar hylli kjós­enda undir þrí­tugu, þótt for­skot flokks­ins á Sjálf­stæð­is­flokk sé innan skekkju­marka. Alls segj­ast 18,7 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 18 til 29 ára að þeir myndu kjósa Pírata ef kosið yrði í dag, miðað við útkomu síð­ustu tveggja fylgiskann­ana.

Stuðn­ingur þeirra hjá ald­urs­hópnum hefur dreg­ist veru­lega saman á und­an­förnum tveimur árum. Í októ­ber 2016 sagð­ist þriðji hver kjós­andi undir þrí­tugu að hann ætl­aði að kjósa Pírata.

Fyrir þess­ari breyt­ingu eru tvær ástæður: mun færri segj­ast ætla að kjósa Pírata í dag en ætl­uðu að gera það í októ­ber 2016 og stuðn­ings­menn flokks­ins eru nú aðeins norm­al­dreifð­ari en þá.

Alls eru fjórir flokkar sem njóta meiri stuðn­ings hjá fólki undir þrí­tugu en heild­ar­fylgi þeirra segir til um. Auk Pírata eru það Vinstri græn (með 14,4 pró­sent fylgi í þeim ald­urs­hóp en 12,6 pró­sent heilt yfir), Viðreisn (10,9 pró­sent í þeim ald­urs­hópi en 8,9 pró­sent heilt yfir) og Sós­í­alista­flokkur Íslands (6,1 pró­sent í þeim ald­urs­hópi en 4,0 pró­sent heilt yfir).

Þeir flokkar sem eru með umtals­vert minni stuðn­ing hjá fólki undir þrí­tugu en heilt yfir er, auk Sjálf­stæð­is­flokks, Sam­fylk­ingin (11,0 pró­sent í þeim ald­urs­hópi en 13,5 pró­sent heilt yfir) Mið­flokk­ur­inn (7,0 pró­sent í þeim ald­urs­hópi en 10,7 pró­sent heilt yfir) og Flokkur fólks­ins (3,5 pró­sent í þeim ald­urs­hópi en 4,2 pró­sent heilt yfir).

Flokkar miðaldra fólksins

Sá ald­urs­hópur sem tekst að vera næst heild­ar­fylgi flokka í sinni afstöðu eru lands­menn á fer­tugs- og fimm­tugs­aldri. Þar standa Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin aðeins verr en heilt yfir og Viðreisn Píratar aðeins betur en aðrir flokkar eru að mestu á mjög svip­uðum slóðum hvað varðar fylgi hjá hópnum og heild­ar­fylgið segir til um.

Þegar kemur að því að skoða ald­urs­hóp­inn 50 til 67 ára er þó uppi önnur staða. Þar vekur mesta athygli hvað Mið­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokkur skera sig úr hvað varðar styrk­leika. Um er að ræða sterkasta ald­urs­hóp­inn hjá báðum þeim flokkum. Flestir frá fimm­tugu og fram á eft­ir­launa­ald­ur­inn segja að þau myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn, eða 25,6 pró­sent, en heil 17,5 pró­sent segja að þau myndu kjósa Mið­flokk­inn. Þetta er eini ald­urs­hóp­ur­inn þar sem Mið­flokk­ur­inn mælist með hlut­falls­lega meiri stuðn­ing en heild­ar­fylgi hans, 10,7 pró­sent, mælist.

Sam­fylk­ingin og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru líka með meira hlut­falls­legt fylgi hjá þessum ald­urs­hópi en heild­ar­fylgi segir til um en þar munar mun minna en hjá tveimur áður­nefndu flokk­unum.

Vinstri græn (6,8 pró­sent) og Viðreisn (5,9 pró­sent) virð­ast hins vegar eiga lítið upp á pall­borðið hjá kjós­endum frá fimm­tugu og fram á eft­ir­launa­aldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár