Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­stefnu, og Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Seðlabankinn gleymdi að telja séreignarsparnaðinn með í minnisblaði um greiðslubyrði

Í nóv­em­ber sagði Seðla­banki Íslands fjár­laga­nefnd að greiðslu­byrði allt að fjórð­ungs íbúða­lána hefði lækkað frá byrjun árs 2020. Stærsta ástæða þess reynd­ist vera notkun fólks á eigin sparn­aði í að greiða niður lán sín.

Í minn­is­blaði sem Seðla­banki Íslands skil­aði inn til fjár­laga­nefndar 9. nóv­em­ber 2022 var því haldið fram að greiðslu­byrði 20-25 pró­sent lands­manna vegna íbúða­lána hefði lækkað frá byrjun árs 2020. Þar var sér­stak­lega til­tekið að það væri vegna þess að hóp­ur­inn, að uppi­stöðu þeir sem til­heyra þeim helm­ingi lands­manna sem hefur hæstu tekj­urnar, greiddi jafnar afborg­anir af lánum sínum. Frá þessu var greint víða í fjöl­miðlum.

Í öðru minn­is­blaði, sem Seðla­bank­inn skil­aði inn til fjár­laga­nefndar 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn, og Kjarninn hefur undir höndum, kom fram að þetta var ekki að öllu leyti rétt. Seðla­bank­anum láð­ist að minn­ast á hlut­verk sér­eign­ar­sparn­aðar sem lán­taki getur valið að ráð­stafa inn á höf­uð­stól lána sinna í þess­ari þróun. „Velji lán­taki að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða inn á höf­uð­stól lána sinna hefur það vita­skuld áhrif á greiðslu­byrði láns­ins og er að lík­indum önnur helsta ástæða þess að greiðslu­byrði lán­taka hefur minnkað. Seðla­bank­inn býr þó ekki yfir gögnum til að leggja mat á hversu mikil áhrif þessi ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar hefur á greiðslu­byrði stakra lán­taka.“

Rúmlega fimmt­ungur þjóð­ar­innar – tæp­lega 40 pró­sent vinnu­mark­að­ar­ins – hefur nýtt sér það úrræði stjórn­valda að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði sínum skatt­frjálst inn á íbúða­lán. Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins hafði sá hópur alls ráð­stafað 126 millj­örðum króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn á höf­uð­stól íbúða­lána sinna, sam­kvæmt hag­vísum Seðla­bank­ans. Frá því í byrjun árs 2020 hefur sú upp­hæð hækkað um 52,3 millj­arða króna. Þar af voru 19,1 millj­arður króna greiddur inn á höf­uð­stól lána með sér­eign­ar­sparn­aði í fyrra og 15,8 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum þessa árs.

Þetta er sú upp­hæð sem Seðla­bank­anum láð­ist að taka til­lit til þegar hann reikn­aði út hækkun á greiðslu­byrði íbúða­lána. Þ.e. þau áhrif sem ráð­stöfun eigin sparn­aðar fólks inn á lánin hafði á hana.

Til að setja þessa tölu í sam­hengi þá voru heild­ar­út­lán lána­stofn­ana á Íslandi til heim­ila um 1.766 millj­arðar króna í lok októ­ber síð­ast­lið­ins.

Skattafsláttur aðallega fyrir tekjuhærri hópa

Um er að ræða tvö úrræði. Ann­ars vegar það sem felur í sér að hver sem er geti ráð­stafað sér­eign­ar­sparn­aði sínum skatt­frjálst inn hús­næð­is­lánið sitt og hins vegar það sem kall­ast „Fyrsta fast­eign“.

Fyrra úrræðið var hluti af „Leið­rétt­ing­unni“ svoköll­uðu, en hluti hennar fólst í því að að rík­is­sjóður greiddi 72,2 millj­arða króna inn á verð­tryggð hús­næð­is­lán hóps lands­manna sem hafði verið með slík lán á árunum 2008 og 2009. Sam­tals voru greiddir 72,2 millj­arðar króna inn á lánin og greiðsl­urnar fóru að mestu til tekju­hærri og eign­­­ar­­­meiri hópa sam­­­fé­lags­ins.

Leiðréttingin var eitt stærsta mál ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem sat frá 2013 og fram á árið 2016.
Leið­rétt­ingin var eitt stærsta mál rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem sat frá 2013 og fram á árið 2016.

Hin hliðin á „Leið­rétt­ing­unni“ fól síðan í sér að lands­mönnum áttu að vera gert kleift að nota sér­­­eigna­­sparnað sinn skatt­frjálst til að borga niður hús­næð­is­lán sín í þrjú ár, frá miðju ári 2014 og fram til 30. júní 2017. Búið er að fram­lengja þessa nýt­ingu þrí­vegis síð­an: fyrst fram á sum­arið 2019, svo, í tengslum við gerð lífs­kjara­samn­ing­anna, fram á mitt ár 2021 og loks var hún fram­lengd í tvö ár í við­bót í fyrra. Úrræðið er því í boði út júní 2023 sem stend­ur.

Fyrir liggur að tekju­hærri hópar eru mun lík­legri en tekju­lægri að leggja fyrir í sér­eign­ar­sparnað. Það lá fyrir áður en úrræðið var lög­fest. Í skýrslu sér­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækk­anir hús­næð­is­lána, sem skil­aði skýrslu til for­sæt­is­ráðu­neytis Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar síðla árs 2013, sagði ein­fald­lega: „Al­­mennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­­­eigna­líf­eyr­is­­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það.“

Þeir fá því skatt­afslátt sem aðrir geta ekki nýtt. Heild­ar­um­fang þessa skatt­afsláttar frá því að úrræðin voru sett á lagg­irnar 2014 og til loka sept­em­ber síð­ast­lið­ins var tæp­lega 31 millj­arður króna. Því hafa íbúða­lán þess hóps sem nýtir sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­ina verið nið­ur­greidd af hinu opin­bera, ríki og sveit­ar­fé­lögum, um þá upp­hæð.

Til við­bótar virkar sér­eign­ar­sparn­aður þannig að vinnu­veit­andi greiðir mót­fram­lag. Þar er um að ræða launa­hækkun sem er lög­fest og stendur ein­ungis þeim til boða sem velja að safna í sér­eign með þessum hætti.

Verðhækkun, verðbólga og vaxtahækkanir

Greiðslu­byrði heim­ila lands­ins hefur verið mikið í umræð­unni und­an­farna mán­uði í kjöl­far þess að verð­bólga tók að hækka skarpt og stýri­vextir Seðla­banka Íslands sömu­leiðis. Verð­bólgan stendur nú í 9,6 pró­sentum og stýri­vext­irnir hafa verið hækk­aðir tíu sinnum í röð, úr 0,75 í sex pró­sent frá því í maí í fyrra.

Skulda­­staða heim­ila í hús­næði er afar mis­­mun­andi. Því lægri sem lánin eru því minni áhrif hafa vaxta­hækk­­­anir á afborg­an­­ir. Nýting á skatt­frjálsum sér­eign­ar­sparn­aði hjálpar því til við að lág­marka áhrif á greiðslu­byrði. Auk þess eru 56 pró­sent allra íbúða­lána verð­tryggð. Í mik­illi verð­bólgu hækkar höf­uð­stóll þess hóps þegar verð­bætur leggj­ast á hann, en greiðslu­byrði á mán­uði verður fyrir minni áhrifum.

Frá upp­­hafi árs 2020 hefur íbúða­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu, þar sem flestir lands­­menn búa, hækkað um 50 pró­­sent. Þeir eru að koma inn á íbúða­­mark­að­inn á þessum tíma hafa því þurft að taka mun hærri lán en áður og verða því fyrir meiri áhrifum af verð­­bólgu. Flestir þeirra hafa tekið óverð­tryggö lán.

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) kemur fram að frá miðju ári 2020 hafi greiðslu­byrði fast­eigna­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 34,7 pró­sent ef miðað er við verð­tryggð lán og heil 105,1 pró­sent ef miðað er við óverð­tryggð lán.

Um fjórð­ungur allra íbúða­lána eru óverð­tryggð og á breyti­legum vöxt­um. Sá hópur tekur því á sig þessar vaxta­hækk­­­anir af fullum þunga.

Greiðslubyrði aukist um 130 þúsund á einu ári

Í skýrslu HMS kemur fram að greiðslu­­byrði óverð­­tryggðra lána sé nú 63.600 krónur fyrir hverjar tíu millj­­ónir króna sem teknar eru að láni. Það þýðir að fyrir þann sem er með 50 milljón króna lán er greiðslu­­byrðin á mán­uði 318.000 krón­­ur. Í maí í fyrra, þegar stýri­vextir voru í sög­u­­legu lág­­marki, var greiðslu­­byrði af láni upp á sömu upp­­hæð 188.500 krón­­ur. Hún hefur því hækkað um 129.500 krónur á einu og hálfu ári, eða um 69 pró­­sent. Það er aukin greiðslu­­byrði upp á rúm­­lega 1,5 millj­­ónir króna á ári.

Ef horft er styttra aftur í tím­ann, til maí 2022, hefur greiðslu­­byrðin af ofan­­greindu láni hækkað um 89.500 krónur á mán­uði, eða um 39 pró­­sent.

Ofan á þetta eru 4.451 heim­ila með óverð­­tryggð lán á föstum vöxtum sem komi til end­­ur­­skoð­unar næsta árið. Fjöldi heim­ila lýkur líka fast­­vaxta­­tíma­bili sínu á árinu 2024 en alls koma 340 millj­­arðar króna í óverð­­tryggðum íbúða­lánum til vaxta­end­­ur­­skoð­unar á þessum tveimur árum. Á árinu 2025 koma svo lán upp á 250 millj­­arða króna í við­­bót til end­­ur­­skoð­un­­ar, en þorri þeirra lána eru óverð­­tryggð.

Því er ljóst að stór hluti heim­ila í land­inu annað hvort býr við veru­­­lega auk­inn hús­næð­is­­­kostnað eða sér fram á veru­­­lega aukn­ing­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár