Flokkur fólksins eyðir mest í Facebook-auglýsingar

Á einu ári vörðu Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir meiru til kaupa á Facebook-aug­lýs­ingum heldur en stjórn­mála­flokk­arnir Mið­flokk­ur­inn, Vinstri græn og Viðreisn. Mið­flokkur keypti aug­lýs­ingar til að vara við „erlendum glæpa­gengjum“.

Flokkur fólks­ins eyddi mest af þeim sem kaupa póli­tískar aug­lýs­ingar á Facebook og Instagram á tæp­lega árs tíma­bili frá ágúst í fyrra þangað til í júní á þessu ári. Samtals eyddi flokk­ur­inn rúmum þremur millj­ónum króna í þessar aug­lýs­ingar. Flokkur fólks­ins er með frekar lítið fylgi á þessum sam­fé­lags­miðlum miðað við þá tíu aðila sem eyddu mestum pen­ing yfir tíma­bilið, eða 4.906 fylgj­endur á Facebook og ein­ungis 107 fylgj­endur á Instagram. Samkvæmt aug­lýs­inga­safni Facebook heldur for­maður Flokks fólks­ins, Inga Sæland, ekki úti Facebook-síðu sem stjórn­mála­kona.

Á eftir Flokki fólks­ins kemur Sam­fylk­ingin sem eyddi rúmum tveimur millj­ónum í aug­lýs­ingar. Sá flokkur er þó með ívið meira fylgi á miðl­unum, eða 7.349 fylgj­endur á Facebook og 761 fylgj­anda á Instagram. Í þriðja sæti er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem eytt hefur um það bil 1,2 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þó með flesta fylgj­endur stjórn­mála­flokk­anna sem náðu á þennan lista, eða 15.337 fylgj­endur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár