Mynd: Aðsend

Samkomubannið afhjúpaði aðstöðumun nemenda

„Krakkar í dag eru frá­bærir, þeir eru miklu opn­ari en við vorum,“ segir Haukur Eiríks­son, kenn­ari við Verk­mennta­skól­ann á Akureyri. „Þó að þeir viti kannski ekki hvað skaf­renn­ingur er þá vita þeir svo margt annað. Ég er frekar bjart­sýnn fyrir þeirra hönd.

Ég er inni á heim­il­inu mínu, á skrif­stofu sem ég er með þar,“ segir Haukur Eiríks­son, kenn­ari við raf­deild Verk­mennta­skól­ans á Akureyri. Haukur, líkt og allir fram­halds­skóla­kenn­arar lands­ins, hefur frá því að sam­komu­bann hófst um miðjan mars þurft að kenna nem­endum sínum í fjar­námi. Þeir höfðu ákveðið for­skot því að Haukur brennur fyrir því að nýta upp­lýs­inga­tækni meira í skóla­kerf­inu og hafði til­einkað sér ýmsar raf­rænar kennslu­að­ferðir.

Að auki hafði hann flýtt verk­legum þáttum náms­ins þegar hann grun­aði í hvað stefndi. En fjar­námið byrj­aði þó fyrr en hann hafði getað ímyndað sér og því var það „pínu skellur“ þegar sam­komu­bannið var sett á og allir fram­halds­skóla­nem­endur og kenn­arar þurftu að færa sig úr skóla­bygg­ing­unum og koma sér upp aðstöðu heima.

„Hausinn fór strax á fullt,“ rifjar Haukur upp. Hann eins og svo margir aðrir kenn­arar hafi fyrstu vik­urnar unnið fram á nótt við skipu­lag fjar­náms­ins. Nemendur tóku lang­flestir hinu breytta fyr­ir­komu­lagi vel en í ljós kom að aðstaða þeirra til fjar­náms er mis­jöfn sem og félags­legur stuðn­ingur. Sumir hafi átt erfitt. „Það verður að athuga að þessir nem­endur skráðu sig í stað­nám en ekki fjar­nám,“ bendir hann á.

Til að halda sem best utan um hóp­inn marg­ít­rek­aði Haukur við nem­endur sína að hann væri alltaf til taks og segir þá hafa verið dug­lega að bera sig eftir hjálp­inni við úrlausn verk­efna. „Það var einmitt það sem ég vildi.“

Þó að hlut­unum hafi verið snúið á hvolf á einu auga­bragði og kenn­arar þurft að bregð­ast hratt við hafi flest gengið ágæt­lega. „Það eru allir að hugsa, velta hlutum fyrir sér og pæla,“ segir Haukur um kenn­ara­stétt­ina. „Það hefur í raun margt gott gerst í skóla­starf­inu og því er þetta jákvætt að ýmsu leyti þó að þetta hafi vissu­lega nei­kvæðar afleið­ingar líka.“

Haukur er frá Akureyri en fór suður til náms og bjó þar í sautján ár. Hann flutti aftur norður fyrir um fimmtán árum og hefur nú kennt við VMA í fimm ár. Hann er lærður raf­einda­virki og tækni­fræð­ingur og bætti svo við sig meistara­gráðu í kennslu­fræði fyrir nokkrum árum. Áður en hann snéri sér að kennslu var hann í upp­lýs­inga­tækni­geir­anum. „Fyrir fimm árum fannst mér ég þurfa að þró­ast betur, sem mann­eskja hrein­lega. Þá ákvað ég að breyta til og fór að kenna.“

Kennslan gefur Hauki mikið og hann hefur ánægju af því að umgang­ast nem­endur sem eru allt frá því að hafa nýlokið grunn­skóla í það að vera ráð­sett fjöl­skyldu­fólk á fer­tugs­aldri.

Kennslan færð heim. Hér gefur að líta þá aðstöðu sem Haukur hefur komið upp heima hjá sér til að sinna kennslunni nú á vorönn.
Kennslan færð heim. Hér gefur að líta þá aðstöðu sem Haukur hefur komið upp heima hjá sér til að sinna kennsl­unni nú á vor­önn.

„Skóla­árið byrj­aði nokkuð vel,“ segir hann. „Ég var frekar bjart­sýnn og hafði engar sér­stakar áhyggjur.“ Í upp­hafi vor­annar voru heldur engar vís­bend­ingar um annað en að kennslan myndi hafa sinn vana­gang. En fljót­lega fóru að ber­ast fregnir utan úr heimi af veiru­far­aldr­inum og í byrjun mars voru kenn­arar í VMA farnir að velta fyrir sér mögu­legu raski á skóla­starf­inu. „Ég var búinn að ímynda mér að eftir páska myndi þetta breyt­ast. Og ég veit að það voru fleiri kenn­arar farnir að und­ir­búa sig fyrir það.“

En tím­inn sem var til stefnu í kennslu­stof­unum varð skemmri.

Föstu­dag­inn 13. mars var til­kynnt að sam­komu­bann yrði sett á eftir helg­ina og að fram­halds­skólum og háskólum yrði lokað. Kennarar við VMA höfðu skipu­lags­dag á mánu­deg­inum „en á þriðju­deg­inum byrj­aði allt í fjar­kennslu,“ segir Haukur.

Sjálfur hefur hann notað upp­lýs­inga­tækni mikið í sinni kennslu. Nemendur í raf­deild­inni fá allt frá fyrstu önn þjálfun í að skila verk­efnum raf­rænt. Þeir læra til dæmis að setja myndir inn í skjöl, búa til mynd­bönd og vef­síður. „Þetta er eitt af því sem ég tek eftir núna að kemur sér afskap­lega vel.“

Ekki hægt að sitja tímunum saman við tölvuna

Haukur ákvað að nem­endur myndu ekki mæta eftir stunda­töflu. „Ég sá fyrir mér að það gæti orðið of mikið. Sumir nem­endur eru með fjöru­tíu tíma stunda­töflu á viku. Þú situr ekk­ert fyrir framan tölvu í fjöru­tíu tíma á viku og fylgist með ein­hverjum kenna. Það er bara úti­lokað. Ég setti þetta því þannig upp að nem­endur gætu unnið verk­efnin þegar þeim hent­aði.“

Hann bendir einnig á að sumir nem­endur séu í vinnu og með fjöl­skyldu. „Þannig að mörgum hentar að kíkja á þetta á kvöldin þegar það er komið logn á heim­il­inu.“

Í nokkur ár hefur hann notað gagn­virkt kennslu­kerfi sem kall­ast Nearpod. Í því getur hann blandað saman ýmsum kennslu­að­ferðum. Nemendur skrá sig inn í kerfið, hlusta á fyr­ir­lestra og vinna verk­efni á tölv­urnar sínar þeim sam­hliða. Hægt er að keyra kennslu­stund­ina í beinni og þannig getur Haukur séð hvernig nem­endum miðar í sínum verk­efnum. „Ég get séð hverjir eru óvirkir og þá hnippt í menn.“

En í sam­komu­bann­inu hefur Haukur haft þann hátt­inn á að und­ir­búa kennslu­stund­ina fyr­ir­fram og senda nem­endum slóð á hana þar sem þeir geta, þegar þeir hafa tíma, hlustað á fyr­ir­lestur, séð glærur með dæmum og útskýr­ingum og svo fram­vegis. Hann getur fylgst með hvort nem­endur komi inn og hvað þeir hafa gert í þeim verk­efnum sem sett eru fyrir. „Þetta hefur virkað mjög vel.“

Und­ir­bún­ing­ur­inn fyrir hverja kennslu­stund er þó meiri en áður. Sumt efni á hann til en annað þurfti hann að vinna frá grunni. Hann tekur upp mörg mynd­bönd fyrir kennsl­una og síð­ustu vikur hefur hann útbúið um fjöru­tíu mynd­bönd fyrir nem­endur sína. Stundum hefur hann þurft að byrja upp á nýtt svo hann giskar á að hann hafi tekið upp yfir sex­tíu mynd­bönd.

Spurning um úthald

Í kennslu Hauks í skól­anum er skóla­taflan mik­il­vægt verk­færi. Hann keypti sér því lítið teikni­borð sem hann tengir við tölv­una og getur þannig „hermt“ eftir skóla­töfl­unni, teiknað á borðið og tekið það upp.

Og þar sem Haukur fór þá leið að kenna ekki eftir stunda­töflu stofn­aði hann „kennslu­stofur“ í for­rit­inu Google Meet þar sem hver nem­enda­hópur getur átt í sam­skiptum sín á milli og spurt hann ef á þarf að halda. „Kennslu­stof­urnar“ eru opnar allan sól­ar­hring­inn og stundum hefur Haukur farið þangað inn seint á kvöldin til að aðstoða nem­endur við úrlausn verk­efna.

Flestir nem­endur eru að sögn Hauks almennt iðnir og áhuga­samir, bæði í skóla­stof­unni og fjar­nám­inu. En við námið nú þarf ákveð­inn sjálf­saga „og svo er þetta allt spurn­ing um úthald“.

Meiri­hluti þeirra tók fjar­nám­inu vel en aðrir við­ur­kenna að þeim hafi aldrei gengið vel að læra heima hjá sér. Haukur seg­ist fyr­ir­fram hafa ótt­ast að þeir nem­endur sem stóðu höllum fæti við upp­haf sam­komu­banns myndu helt­ast úr lest­inni. „En þetta virð­ist ekki henta þeim neitt sér­stak­lega illa. Ég held að þessi sveigj­an­leiki sem fjar­kennslu­formið býður upp á geti haft þar sitt að segja.“

Svona birtist Haukur nemendum sínum við kennsluna á netinu.
Svona birt­ist Haukur nem­endum sínum við kennsl­una á net­inu.

Hvað Hauk sjálfan varðar segir hann að skilin milli heim­ilis og vinnu hafi vissu­lega dofnað við fjar­kennsl­una. Þannig geti teygst úr vinnu­deg­inum fram á kvöld. „En það er svo sem ekk­ert mikið öðru­vísi en var áður,“ segir hann. „Ég hef alltaf unnið tölu­vert á kvöldin. Ég hef þurft að gera það til að hafa allt á hreinu. En jú, þetta er meira. Svo er ég sjálfur með ung­linga á heim­il­inu. Einn af þeim er í fram­halds­skóla og það fylgir því ákveðin vinna fyrir alla eins og gengur og ger­ist. Á tíma­bili vorum við öll fjöl­skyldan heima að vinna.“

Þegar hann stóð í þeim sporum og átti svo sam­skipti við sína nem­endur sem voru að reyna að læra við sömu aðstæður rann upp fyrir honum hversu gríð­ar­legu miklu máli aðstaða til náms og félags­leg staða nem­enda skiptir. Og að hún er langt frá því að vera sú sama hjá öllum. „Félags­leg staða nem­enda hefur alveg hrika­lega mikið að segja um það hvernig þeim gengur í nám­inu. Erfiðast eiga þeir sem hafa ekki aðstöð­una heima við.“

Af vistinni og heim

Margir nem­endur við VMA eru alla jafna á heima­vist. Þar gera þeir sitt heima­nám eða heima hjá vinum sínum. En svo var heima­vist­inni lokað og þá þurftu allir að fara heim til sín að læra. „Eru til tvær, þrjár eða fjórar vinnu­stöðvar á hverju heim­ili? Það er nú ekki voða­lega algengt. Þarna kemur í ljós aðstöðu­munur nem­enda. Það eru dæmi um það að nem­endur hafi ein­fald­lega ekki haft neina aðstöðu eða þurft að flytja út af heim­il­inu vegna sótt­kvíar eða öðru.“

Hann bendir á að fram­halds­skóla­kerfið jafni nokkuð aðstöðu allra. Í skóla­bygg­ingum eða á heima­vistum sé að finna aðstöðu sem allir geta nýtt sér jafnt. Heima fyrir sé ekki endi­lega það sama uppi á ten­ingnum. „Þú getur ekk­ert verið lengi í ein­hverjum sófa að læra. Þú þarft að hafa skrif­borð, stól og næði.“

Allir nemendur og kennarar framhaldsskóla landisns þurftu að færa sig heim þegar samkomubannið var sett á um miðjan mars.
Allir nem­endur og kenn­arar fram­halds­skóla land­isns þurftu að færa sig heim þegar sam­komu­bannið var sett á um miðjan mars.

Þeim sem best hefur vegnað við þessar óvenju­legu aðstæður eru þeir sem hafa bestu aðstöð­una heima fyrir, hafa stuðn­ing frá fjöl­skyldu sinni og líka frá sam­nem­endum sínum. „Það hefur komið alveg klár­lega í ljós að það að standa sterkt félags­lega skiptir líka máli í fjar­námi.“

Haukur hefur síð­ustu vikur átt mörg sím­töl við nem­endur sína sem og að ræða við þá á net­inu. Hann segir að flestir þeirra beri sig vel. En á því eru þó und­an­tekn­ingar. Stundum hefur Hauki gengið illa að ná í nem­endur og halda þeim við efnið. „Þá fæ ég stundum þær skýr­ingar að fjar­námið henti þeim illa.“

Hann sér þess þó ekki bein­línis merki að náms­ár­angur sé almennt að breyt­ast. Nemendur sem standa sig vel í kennslu­stof­unni standa sig yfir­leitt líka vel í fjar­nám­inu. Hann veit ekki til þess að ein­hver úr nem­enda­hópnum hafi hætt námi. „En eftir páska hefur mér ekki tek­ist að ná í nokkra nem­endur svo ég veit ekki alveg hvernig þetta fer.“

Gerði einstaklingsmiðuð próf

Alltaf þarf þó að halda ákveðnum fjölda nem­enda meira við efnið en öðrum. Það hefur ekki endi­lega breyst síð­ustu vik­urnar. Hann hefur meiri áhyggjur af því að með því að færa námið út úr kennslu­stof­unni vanti upp á ýmsa mik­il­væga þætti. Í hans huga skipti það miklu máli að styðja nem­endur í því að eiga góð sam­skipti sín á milli og ýta undir að þeir nálgist verk­efni með jákvæðni. „Við kenn­arar þurfum að vera fyr­ir­myndir og það kemur ekki eins vel í gegn við þessar aðstæður. Við náum heldur ekki umræðu um mál­efni dags­ins. Náms­efnið er ekki allt. Nándin skiptir máli.“

Haukur hefur þegar haldið raf­ræn próf í flestum nem­enda­hóp­unum sínum. Það er ekki nýtt fyrir honum en núna vildi hann vera með margar útgáfur af hverju prófi og það kost­aði því tölu­vert meiri vinnu en venju­lega. „Þetta vildi ég gera til að tryggja að ég fengi ein­stak­lings­vinn­una fram,“ útskýrir hann. „Ég verð ekki var við annað en að nem­endur séu að vinna þetta allt saman af heil­indum.“

Oft heyr­ist að „ungt fólk í dag“ sé svona eða hinsegin. „Krakkar í dag eru frá­bærir, þeir eru miklu betri en þegar ég var krakki,“ segir hann með áherslu. „Þau eru miklu opn­ari en við vorum. Þó að þau viti kannski ekki hvað skaf­renn­ingur er þá vita þau svo margt annað. Ég er frekar bjart­sýnn fyrir þeirra hönd.“

Hann seg­ist vona að ástandið núna eigi ekki eftir að hafa lang­tíma­á­hrif á þeirra líðan eða menntun. „Það er þó ekki hægt að full­yrða neitt um það. Það fer svo­lítið eftir því hvernig okkur öllum tekst að greiða úr þessu. Eins og staðan er núna þá ætti skóla­starf að geta byrjað með eðli­legum hætti í haust og þá ætti þetta ekki að hafa stór áhrif. En ef það teyg­ist meira úr þessu þá færi maður að hafa áhyggjur.“

Þó að Haukur ætli að til­einka sér áfram ýmsar kennslu­að­ferðir sem hann beitti í sam­komu­banni þá seg­ist hann sakna þess að hitta nem­endur sína ekki í kennslu­stof­unni. „Það er eitt af því sem gefur manni mjög mikið þegar maður er að kenna, sam­skiptin við nem­end­urna.“

Þar til í haust ...

Sumir nem­enda Hauks hafa þegar lokið prófum og skilað öllum verk­efnum ann­ar­innar. Aðrir eiga stutt í land. Búið er að opna skóla­bygg­ing­arnar á ný en með ákveðnum tak­mörk­unum. Sum fög í VMA eru þess eðlis að ekki er hægt að klára verk­lega hluta þeirra í fjar­námi og eru þeir nem­endur því að mæta í skól­ann þessa dag­ana.

Skóla­ár­inu hjá Hauki mun þó ljúka án þess að hann hitti sína nem­endur. „Ég vona og trúi á að við munum hitt­ast aftur á næstu önn. Það skiptir mjög miklu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár