Mynd: 123rf.com

Brotalamir í peningaþvættisvörnum allra íslensku bankanna

Hjá öllum fjórum við­skipta­bönk­unum voru brotala­mir í pen­inga­þvætt­is­vörnum þeirra, þótt þær séu mis­mun­andi miklar. Innan þeirri allra skorti á að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur félaga eða fjár­muna hafi almennt verið metnar með sjálf­stæðum hætti.

Fjár­mála­eft­ir­litið gerði athuga­semdir við mat allra íslensku við­skipta­bank­anna á upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur fjár­muna eða félaga sem eru, eða hafa verið, í við­skiptum við þá. Í nið­ur­stöðum eft­ir­lits­ins á athugun eft­ir­lits­ins á pen­inga­þvætt­is­vörnum þeirra eru gerðar athuga­semdir við þeir hafi ekki metið upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur með sjálf­stæðum hætti.

Nið­ur­staða athug­unar eft­ir­lits­ins á Arion banka var birt í maí en nið­ur­stöður vegna athug­unar á hinum þremur bönk­unum ekki birt fyrr en seint síð­ast­lið­inn föstu­dag, 20. des­em­ber.

Í til­felli Lands­bank­ans, sem er í rík­i­s­eigu, lauk athugun í októ­ber en nið­ur­staðan þrátt fyrir það ekki birt fyrr en tveimur mán­uðum síðar. Athugun á Kviku banka og Íslands­banka lauk núna í des­em­ber.

Athuganir eftir falleinkunn

Alþjóð­legur vinnu­hópur um um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, Financial Action Task Force (FATF), skil­aði kol­svartri úttekt á frammi­stöðu Íslands í mála­flokknum í apríl í fyrra. Í kjöl­farið var gripið til mik­ils átaks sem í fólst að upp­færa lög, reglu­verk og fram­fylgni eft­ir­lits með pen­inga­þvættis hér­lendis.

Allt kom fyrir ekki og á end­anum reynd­ust aðgerð­irnar ekki nægj­an­legar. Ísland var sett á gráan lista fyrir að bregð­ast ekki nægi­lega vel við fjöl­mörgum athuga­semdum sam­tak­anna um brotala­mir í vörnum gegn pen­inga­þvætti á Íslandi í októ­ber síð­ast­liðnum. Auk Íslands bætt­ust Mongólía og Simbabve á list­ann. Á meðal ann­arra ríkja sem þar er að finna, og talin eru að séu með alvar­lega ann­marka á sviði varna gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, eru Kam­bó­día, Jem­en, Sýr­land og Panama.

Ein af athuga­semd­unum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raun­veru­legum eig­endum félaga á Íslandi. Enda felst í því að þekkja ekki við­skipta­vin­inn, að þekkja ekki hvaðan pen­ing­arnir hans koma.

Í kjöl­far þess að FATF gerði úttekt á Íslandi þá hóf Fjár­mála­eft­ir­litið að gera nýjar athug­anir á íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum og getu þeirra til að verj­ast pen­inga­þvætti. Nú hafa nið­ur­stöður athug­ana á öllum stóru við­skipta­bönk­unum fjórum verið birtar.

Birting tveimur mánuðum eftir niðurstöðu

Fjár­mála­eft­ir­litið hóf athugun á pen­inga­þvætt­is­vörnum Lands­bank­ans í jan­úar 2019. Þeirri athugun lauk í októ­ber sama ár en nið­ur­staðan var ekki birt á vef eft­ir­lits­ins fyrr en 20. des­em­ber, tveimur mán­uðum síðar. Engar skýr­ingar eru gefnar á því af hverju nið­ur­staðan var ekki birt fyrr í þeirri til­kynn­ingu sem þá var birt.

Í nið­ur­stöðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eru gerðar nokkrar athuga­semdir við pen­inga­þvætt­is­varnir Lands­bank­ans. Þar segir að skortur hafi verið á skjal­fest­ingu á mati á áreið­an­leika upp­lýs­inga og því var ekki sýnt fram á að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur hafi almennt verið metnar með sjálf­stæðum hætti.

Þá var könnun á áreið­an­leika upp­lýs­inga um raun­veru­lega eig­endur erlendra lög­að­ila almennt ábóta­vant. Skjal­festum verk­ferlum vegna fram­kvæmdar áreið­an­leikakann­ana var líka ábóta­vant en ein­ungis var um að ræða upp­taln­ingu á þeim upp­lýs­ingum og gögnum sem afla á, en ekki fjallað um þá könnun sem þarf að fara fram á þeim upp­lýs­ingum.

Að teknu til­liti til þeirra gagna og upp­lýs­inga sem Fjár­mála­eft­ir­litið afl­aði við athugun sína á Lands­bank­anum taldi Fjár­mála­eft­ir­litið ekki til­efni til að gera athuga­semdir við eft­ir­lits­kerfi vegna reglu­bund­ins eft­ir­lits með samn­ings­sam­böndum við við­skipta­menn, alþjóð­legra þving­un­ar­að­gerða og ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla.

Þá þótti ekki, miðað við valið úrtak, til­efni til að gera athuga­semd við fram­kvæmd áreið­an­leikakann­ana hjá ein­stak­lingum.

Margar athugasemdir hjá Kviku

Fjár­mála­eft­ir­litið hóf athugun á Kviku banka, fjórða stærsta banka lands­ins og öðrum af tveimur sem eru skráðir á markað, í maí 2019 og henni lauk í des­em­ber sama ár. Samkvæmt nið­ur­stöðu hennar telur Fjár­mála­eft­ir­litið að skortur hafi verið á skjal­fest­ingu á mati á áreið­an­leika upp­lýs­inga og að innan bank­ans hafi ekki verið sýnt fram á að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur hafi almennt verið metnar með sjálf­stæðum hætti. Þá segir í nið­ur­stöðu eft­ir­lits­ins að öflun upp­lýs­inga um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina sem komu upp­haf­lega í við­skipti við Virðingu hf., sem síðan rann saman við önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki til að mynda Kviku, hafi verið ófull­nægj­andi. „Í tveimur til­vikum sönn­uðu við­skipta­menn ekki á sér deili við upp­haf samn­ings­sam­bands,“ segir í nið­ur­stöð­unni.

Kerfi Kviku vegna reglu­bund­ins eft­ir­lits með samn­ings­sam­bandi við við­skipta­menn var ófull­nægj­andi en þess er getið í nið­ur­stöðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að bank­inn hafði hafið inn­leið­ingu á nýju kerfi þegar athug­unin fór fram. Að end­ingu var það einnig nið­ur­staða eft­ir­lits­ins að skortur væri á að upp­lýs­ingar um við­skipta­menn bank­ans væru upp­færðar reglu­lega.

Fjár­mála­eft­ir­litið taldi hins vegar ekki til­efni til að gera athuga­semdir við innri reglur og ferla, eft­ir­lits­kerfi vegna alþjóð­legra þving­un­ar­að­gerða og ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla eða úrtak á skýrslum vegna rann­sókna á grun­sam­legum við­skiptum og til­kynn­ingum til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu.

Mat ekki raunverulega eigendur með sjálfstæðum hætti

Vett­vangs­at­hugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á Íslands­banka, þar sem kann­aðar voru pen­inga­þvætt­is­varnir bank­ans, hófst í mars 2019. Nið­ur­staða lá fyrir í des­em­ber og nið­ur­staðan var birt á vef eft­ir­lits­ins seint á föstu­dag.

Í henni kemur fram að eft­ir­litið taldi til­efni til að gera athuga­semdir við að í tveimur til­vikum hafi ekki verið skjal­fest mat bank­ans á áreið­an­leika upp­lýs­inga og því var ekki sýnt fram á að upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur hafi verið metnar með sjálf­stæðum hætti. Þá gerði eft­ir­litið athuga­semd við að skortur var á að upp­lýs­ingar um við­skipta­menn bank­ans væru upp­færðar reglu­lega.

Fjár­mála­eft­ir­litið gerði ekki kröfu um úrbætur þar sem Íslands­banki var þegar búinn að grípa til þeirra eftir að athug­unin hófst, en áður en að nið­ur­staðan lá fyrir.

Fjár­mála­eft­ir­litið taldi hins vegar ekki til­efni til að gera athuga­semdir við innri reglur og ferla, eft­ir­lits­kerfi vegna reglu­bund­ins eft­ir­lits með samn­ings­sam­böndum við við­skipta­menn, alþjóð­legra þving­un­ar­að­gerða og ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla. Þá þótti ekki, miðað við valið úrtak, til­efni til að gera athuga­semdir við fram­kvæmd áreið­an­leikakann­ana hjá ein­stak­lingum eða úrtak á skýrslum vegna rann­sókna á grun­sam­legum við­skiptum og til­kynn­ingum til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu.

Arion var fyrstur

Þangað til á föstu­dag hafði Fjár­mála­eft­ir­litið ein­ungis birt nið­ur­stöðu úr einni athugun á íslenskum við­skipta­banka sem ráð­ist hafði verið í eftir að FATF hafði gefið Íslandi fall­ein­kunn í apríl 2018. Sú athugun var á Arion banka.

Nið­ur­staðan var birt 29. maí síð­ast­lið­inn, rúmum fjórum mán­uðum eftir að nið­ur­staða athug­un­ar­innar lá fyrir. Það var gert að beiðni Arion banka sem vildi fá að bregð­ast við úrbóta­kröfum áður en nið­ur­staðan yrði gerð opin­ber. Bankinn seg­ist hafa brugð­ist við öllum úrbóta­kröfum.

Í athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á Arion banka kom meðal ann­ars fram að bank­inn hefði hefði ekki metið með sjálf­stæðum hætti hvort upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur við­skipta­vina væru réttar og full­nægj­andi og að þær upp­lýs­ingar hafi ekki verið upp­færðar með reglu­legum hætti, líkt og lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka gerðu ráð fyr­ir. Eft­ir­litið gerði einnig athuga­semd um að Arion banki hefði ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni í til­viki erlends við­skipta­vin­ar, það taldi að reglu­bundið eft­ir­lit bank­ans með við­skipta­vinum hafi ekki full­nægt kröfum laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka né að verk­lag í tengslum við upp­færslu á upp­lýs­ingum um við­skipta­vini hafi ekki verið full­nægt. Þá taldi Fjár­mála­eft­ir­litið að skýrslur Arion banka um grun­sam­legar og óvenju­legar færslur hefðu ekki verið full­nægj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár