Skattfrelsi fyrir húsnæðiseigendur en skattlagning á aðra

Þeir sem hafa tekið út sér­eign­ar­sparnað und­an­farið ár hafa greitt yfir níu millj­arða króna í skatta af honum. Þeir sem hafa nýtt sér­eign­ar­sparnað til að borga niður hús­næð­is­lánið sitt und­an­farin tæp sjö ár hafa fengið 21 millj­arð króna í skatta­af­slátt.

Í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, sem kynntur var 21. mars 2020, var ein af aðgerð­unum sem kynnt var til leiks sú að lands­mönnum gert kleift að taka út sér­eigna­sparnað til að takast á við skamm­tíma­fjár­hags­vanda. Þeir sem nýttu sér þetta úrræði þurftu þó að greiða skatt af sparn­að­inum þegar hann var tek­inn út. Því var líka um tekju­skap­andi aðgerð að ræða fyrir rík­is­sjóð.

Upp­haf­lega reikn­aði rík­is­stjórnin með því að teknir yrðu út um tíu millj­arðar króna af þessum sparn­aði, sem var upp­haf­lega hugs­aður til að auka ráð­stöf­un­arfé fólks þegar það fer á eft­ir­laun. Eft­ir­spurnin eftir nýt­ingu á úrræð­inu reynd­ist hins vegar miklu meiri en búist var við og nú áætlað stjórn­völd að útgreiðslur verði 28,6 millj­arðar króna fram í mars á næsta ári, þegar heim­ild til útgreiðslu lýkur. Það þýðir að lands­menn tóku út tæp­lega þrisvar sinnum meira af sparn­aði sínum til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar COVID-19 en upp­haf­lega var reiknað með.

Þann 11. febr­úar síð­ast­lið­inn var búið að greiða þorra þeirrar upp­hæðar út, eða alls 25,6 millj­arða króna. Ætla má að skatt­greiðslur til ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna þessa hafi verið um níu millj­arðar króna. Þegar upp verður staðið munu skatt­greiðsl­urnar fara yfir tíu millj­arða króna.

Ekki hefur verið birt neitt nið­ur­brot á þeim hópi sem hefur nýtt sér þetta úrræði en ætla má að þar sé, að minnsta kosti að hluta, um að ræða fólk sem hefur átt í greiðslu­erf­ið­leikum vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19. Þeir sem fóru úr vel laun­uðum störfum á atvinnu­leys­is­bætur eru lík­legri til að til­heyra þessum hópi en aðrir, þar sem tekju­hærri hafa almennt verið lík­legri til að spara sér­eign en tekju­lægri.

Sú ályktun fær stoð í fjöl­mörgum sam­tölum sem Kjarninn hefur átt við fólk sem hefur misst vinnu eða tekjur und­an­farna mán­uði og í könnun sem Varða, rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins, gerði og var lögð var fyrir félaga í aðild­ar­fé­lögum Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) og BSRB í nóv­em­ber og des­em­ber 2020 þar sem staða launa­fólks var könn­uð. Í nið­ur­stöðum hennar kom fram að um fjórð­ungur launa­fólks átti erfitt með að láta enda ná saman og fimmt­ungur þess gat ekki mætt óvæntum útgjöld­um. Um helm­ingur atvinnu­lausra átti erfitt með að láta enda ná saman og um 40 pró­sent þeirra gat ekki mætt óvæntum útgjöldum.

Þar er um að ræða þá hópa sem verða fyrir mestum nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum af yfir­stand­andi heims­far­aldri.

Skattfrelsi til að greiða niður húsnæðislán

Þetta er ekki eini hóp­ur­inn sem fær að nota sér­eigna­sparn­að­inn sinn áður en hann fer á eft­ir­laun. Frá miðju ári 2014 hafa þeir lands­menn sem eru með hús­næð­is­lán getað nýtt sér­eigna­sparn­að­inn sinn til að greiða þau lán niður. Sú nið­ur­greiðsla er hins vegar ann­ars eðlis en sú sem býðst sem hluti af COVID-19 aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar. Hún er nefni­lega skatt­frjáls. Ríki og sveit­ar­fé­lög gefa þessum hópi fast­eigna­eig­enda eftir tekjur til að hús­næð­is­lán þeirra geti lækkað.

Leiðréttingin var kynnt með pompi og prakt árið 2014 á sama stað og fyrsti efnahagsaðgerðarpakki sitjandi ríkisstjórnar vegna COVID-19, í Hörpu.
Leið­rétt­ingin var kynnt með pompi og prakt árið 2014 á sama stað og fyrsti efna­hags­að­gerð­ar­pakki sitj­andi rík­is­stjórnar vegna COVID-19, í Hörpu.

Frá þeim tíma sem úrræðið byrj­aði fyrst hafa alls 62.952 ein­stak­lingar, um 17 pró­sent allra lands­manna og um 30 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði, nýtt sér hið skatt­frjálsa úrræði. Þar er um að ræða bæði þá sem hafa nýtt sér almenna úrræðið, sem á að renna út í sumar, og úrræðið „Fyrsta fast­eign“, sem kynnt var til sög­unnar sum­arið 2016.

Samkvæmt tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarnann nemur umfang nýt­ingar Íslend­inga á úrræð­unum tveimur frá miðju árið 2014 og fram til loka jan­úar 2021 alls 92 millj­örðum króna. Í þeim tölum kemur einnig fram að áætluð lækkun tekju­skatts og útsvars frá því að úrræðin buð­ust fyrst og fram til síð­ustu ára­móta sé 21,1 millj­arður króna.

Því hefur þessi hópur fengið 21,1 millj­arða króna í með­gjöf úr rík­is­sjóði sem öðrum hefur ekki boð­ist á umræddu tíma­bili. Um er að ræða tekju­tap sem ríki og sveit­ar­fé­lög þurfa ekki að takast á við nú, þar sem skattur af sér­eign­ar­sparn­aði er vana­lega borg­aður þegar fólk fer á eft­ir­laun. Þegar stærsti hluti þess hóps sem nýtir skatt­frjálsa úrræðið kemst á þann aldur verða stjórn­mála­menn nútím­ans lík­ast til flestir löngu hættir og aðrir teknir við ábyrgð á rík­is­fjár­mál­unum. Pen­inga­gjöf þeirra til hluta lands­manna síð­ustu ár verður því tekju­sam­dráttur sem öðrum verður gert að takast á við.

Markmiðinu sem átti að nást 2017 loks náð í fyrra

Nýting á sér­eign­ar­sparn­aði til að greiða niður hús­næð­is­lán var upp­haf­lega hluti af hinni svoköll­uðu Leið­rétt­ingu, sem kynnt var til leiks í mars 2014. Upp­haf­lega átti heild­ar­um­fang hennar að vera 150 millj­arðar króna.

Um 80 millj­arðar króna áttu að vera greiðsla úr rík­is­sjóði inn á höf­uð­stól þess hóps sem hafði verið með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009, óháð efna­hag. Á end­anum nam Leið­rétt­inga­greiðslan 72,2 millj­örðum króna. Hún fór að mestu til tekju­hærri og eign­ar­meiri hópa sam­fé­lags­ins.

Um 70 millj­arðar króna áttu síðan að koma til vegna þess að lands­mönnum yrði gert kleift að nota sér­eigna­sparnað sinn skatt­frjálst til að borga niður hús­næð­is­lán sín í þrjú ár, frá miðju ári 2014 og fram til 30. júní 2017.

Búið er að fram­lengja nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aður til að greiða inn á hús­næð­is­lán tví­vegis síðan þá, fyrst fram á sum­arið 2019 og svo aftur, í tengslum við gerð lífs­kjara­samn­ing­anna, fram á mitt ár 2021.

Sér­eigna­sparn­að­ar­úr­ræðið eitt og sér, ef frá eru taldir þeir sem nýttu sér Fyrstu fast­eign, hafði í lok síð­asta árs gert lands­mönnum kleift að nota 81,5 millj­arða króna af sínum eigin sparn­aði til að greiða inn á hús­næð­is­lánið. þremur og hálfu ári eftir að upp­haf­lega nýt­ing­ar­tíma­bil­inu lauk hafði upp­gefið 70 millj­arða króna mark­mið Leið­rétt­ing­ar­innar, sem áttu að klár­ast sum­arið 2017, loks náðst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár