Mynd: Bára Huld Beck

Ríkir og fátækir kjósa mjög mismunandi á Íslandi

Búseta, menntun og tekjur skipta miklu máli þegar stuðn­ingur við stjórn­mála­flokka er greindur. Tekju­hæstu hópar lands­ins myndu kjósa sér allt ann­ars konar rík­is­stjórn en þeir sem hafa lægstu tekj­urnar.

Ef kjós­endur sem búa á Aust­ur­landi myndu einir ráða því hvaða flokkar fengu atkvæði hér­lendis myndu Mið­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá 70,5 pró­sent allra greiddra atkvæða, í stað 41,1 pró­sent.

Ef ein­ungis þeir sem eru með háskóla­próf fengu að kjósa myndi sam­eig­in­legt fylgi Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Pírata og Við­reisnar vera 61,3 pró­sent í stað 49,2 pró­sent.

Ef ein­ungis fólk sem væri með heim­il­is­tekjur yfir 1,2 milljón króna á mán­uði hefði kosn­inga­rétt væru Sjálf­stæð­is­flokkur og Viðreisn ekki langt frá því að geta myndað tveggja flokka meiri­hluta með 44,3 pró­sent atkvæða, í stað þess að flokk­arnir mæl­ast með 30,7 pró­sent fylgi heilt fyrir þegar allir tekju­hópar eru taldir með. Að sama skapi væri lík­lega hægt að mynda meiri­hluta­stjórn Vinstri grænna, Pírata og Flokks fólks­ins ef ein­ungis þeir sem eru með lægstu tekj­urnar – undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði – fengu að greiða atkvæði. Sam­an­lagt fylgi þeirra þriggja væri 49,6 pró­sent hjá þeim tekju­hópi, en heilt yfir er það 31 pró­sent.

Þetta er meðal þess sem má lesa út úr gögnum sem Kjarninn hefur fengið hjá MMR og sýna stuðn­ing við stjórn­mála­flokka eftir lands­hlutum, menntun og heim­il­is­tekjum. Gögnin eru úr síð­ustu tveimur könn­unum sem MMR hefur gert á fylgi flokka, sem birtar voru í lok maí og um miðjan júní. Sam­an­lagður fjöldi svara í þeim var 1.914 og fjöldi þeirra sem tóku afstöðu var 1.529.

Tekjur ráðandi breyta í stuðningi við Sjálfstæðisflokk

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur afger­andi meira fylgis eftir því sem tekjur kjós­enda eru hærri. Þannig segj­ast 15,3 pró­sent þeirra sem eru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur að þau myndu kjósa flokk­inn. Síðan fer stuðn­ingur við hann stig­hækk­andi og mælist hlut­falls­lega lang­mestur hjá þeim heim­ilum sem eru með 1,2 millj­ónir króna í tekjur eða meira.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir lands­hlutum er þannig að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem ⅔ hluti lands­manna býr nýtur hann stuðn­ings 21,2 pró­sent kjós­enda. Hlut­falls­lega mælist fylgi flokks­ins mest á Suð­ur­landi, þar sem 26 pró­sent kjós­enda styðja hann, en minnst á Norð­ur­landi, þar sem fylgið mælist 20,2 pró­sent.

Menntun virð­ist ekki hafa mikið áhrif á fylgi stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins. Það er nokkuð jafn eftir því hver æðsta menntun við­kom­andi er.

Heilt yfir nýtur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 21,8 pró­sent fylgis sam­kvæmt sam­an­lögðum nið­ur­stöðum síð­ustu tveggja kann­ana MMR á fylgi stjórn­mála­flokka, sem gerðar voru í maí og júní.

Lágtekjufólk styður helst Pírata

Píratar eru flokkur lág­tekju­fólks­ins á Íslandi. Ef ein­ungis þeir sem væru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði í heim­ils­tekjur myndu kjósa þá væru Píratar stærsti flokkur lands­ins með 22,1 pró­sent fylgi. Í öðrum tekju­hópum mælist stuðn­ingur við flokk­inn 11,3 til 14,9 pró­sent.

Stuðn­ingur við Pírata er lang­mestur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (16,3 pró­sent) og á Vest­ur­landi/Vest­fjörðum (14,7 pró­sent). Á móti mælist hann mjög lít­ill á Aust­ur­landi þar sem ein­ungis 4,4 pró­sent kjós­enda segja að þeir myndu kjósa flokk­inn.

Menntun virð­ist ekki skipta máli þegar kjós­enda­hópur Pírata er greindur. Flokk­ur­inn nýtur mest stuðn­ings hjá háskóla­mennt­uðum (14,9 pró­sent) en minnst hjá þeim sem hafa lokið skyldu­námi í grunn­skóla (12,5 pró­sent).

Allt í allt mæld­ist fylgi Pírata í síð­ustu tveimur könn­unum MMR 14,2 pró­sent, sem gerir flokk­inn að næst stærsta stjórn­mála­flokki lands­ins á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum.

Háskólamenntaðir millitekjuhópar kjósa Samfylkingu

Sam­fylk­ingin er flokkur sem sækir helst fylgi sitt til milli­tekju­hópa. Hann nýtur minni stuðn­ings en heild­ar­fylgi segir til um hjá þeim kjós­endum sem eru með heim­il­is­tekjur undir 400 þús­und krónur á mán­uði og þeim sem eru með meira en 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í tekjur.

Hjá þeim heim­ilum sem eru með 400 til 1.199 þús­und krónur í heild­ar­tekjur á mán­uði mælist fylgi flokks­ins hins vegar 14,8 til 16,4 pró­sent.

Flokk­ur­inn er sam­keppn­is­hæfur um fylgi í öllum lands­hlutum en minnst mælist fylgi hans á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, eða 10,1 pró­sent. Mest mælist það hins vegar á Aust­ur­landi, eða 15,4 pró­sent, sem er lítið eitt minna en fylgið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem 14,1 pró­sent kjós­enda styðja Sam­fylk­ing­una.

Menntun er breyta sem skiptir miklu máli þegar fólk ákveður hvort það kjósi Sam­fylk­ing­una eða ekki. Þannig segj­ast 16,5 pró­sent þeirra sem eru með háskóla­nám sem æðstu menntun styðja flokk­inn en 11,2 pró­sent þeirra sem hafa mest lokið skyldu­námi.

Heild­ar­fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sam­kvæmt sam­an­lögðum nið­ur­stöðum síð­ustu tveggja kann­ana MMR á fylgi stjórn­mála­flokka, sem gerðar voru í maí og júní, mæld­ist 13,5 pró­sent.

Vinstri græn vinsælust hjá lægsta tekjuhópnum

Vinstri græn njóta ekki mik­illa vin­sælda hjá þeim hópi kjós­enda sem hefur mestar tekj­urnar. Einungis 8,6 pró­sent ein­stak­linga sem búa á heim­ilum með yfir 1,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­tekjur myndu kjósa flokk­inn í dag. Vinstri græn eru hins vegar sá flokkur sem flestir með tekjur undir 400 þús­und krónur á mán­uði myndu kjósa, en þar mælist fylgi flokks­ins 18,5 pró­sent.

Fylgi Vinstri grænna mælist mest á Norð­ur­landi (16,2 pró­sent) og meira á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Vest­ur­landi/Vest­fjörðum en heild­ar­fylgi segir til um. Flokk­ur­inn á hins vegar í sýni­legum vand­ræðum með að ná til kjós­enda á Aust­ur­landi (8,0 pró­sent fylgi) og á Suð­ur­landi (6,3 pró­sent fylgi).

Vinstri græn eru með minni hlut­falls­legan stuðn­ing hjá þeim sem eru mest með grunn­skóla- eða fram­halds­skóla­menntun en heilt yfir. Hjá þeim sem eru háskóla­mennt­aðir mælist fylgið hins vegar umtals­vert umfram heild­ar­fylgi. Alls segj­ast 15,9 pró­sent þeirra sem eru með slíka að þeir myndu kjósa Vinstri græn ef kosið yrði í dag.

Vinstri græn eru ansi langt frá 16,9 pró­sent kjör­fylgi sínu í könn­unum um þessar mundir. Fylgi flokks­ins sam­kvæmt sam­an­lagðri nið­ur­stöðu úr síð­ustu tveimur könn­unum MMR mælist 12,6 pró­sent.

Miðflokkurinn er stærsti flokkurinn á Austurlandi

Mið­flokk­ur­inn virð­ist ná til allra tekju­hópa nokkuð jafnt. Mestur er stuðn­ing­ur­inn hjá lægri milli­tekju­hópnum (11,6 pró­sent) og minnstur hjá hátekju­hópnum sem hefur yfir 1,2 milljón króna í mán­að­ar­tekjur á heim­ili (8,4 pró­sent).

Hann er þó mjög klár­lega flokkur sem á meira erindi við kjós­endur í hinum dreifð­ari byggðum en í höf­uð­borg­inni og nágranna­sveit­ar­fé­lögum hennar. Á Aust­ur­landi mælist Mið­flokk­ur­inn stærsti flokk­ur­inn með 24,2 pró­sent fylgi, aðeins meira en fylgi bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur mælist með. Stuðn­ingur við hann er einnig mik­ill á Suð­ur­landi þar sem fylgið mælist 17,3 pró­sent. Einungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem er mjög sterkur í þeim lands­hluta, er þar stærri.

Heilt yfir mæld­ist fylgi Mið­flokks­ins í könn­un­unum tveimr 10,7 pró­sent, sem er mjög nálægt kjör­fylgi flokks­ins.

Vel stætt háskólafólk í borginni styður Viðreisn

Viðreisn er mjög aug­ljós­lega val­kostur sem nýtur vin­sælda í hæsta tekju­hópnum, þeim sem hefur yfir 1,2 millj­ónir króna í heim­il­is­tekjur á mán­uði. Þar mælist fylgi flokks­ins 14,6 pró­sent. Að sama skapi er fylgi flokks­ins hjá þeim sem þéna sam­an­lagt undir 400 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur mjög lítið, eða 5,9 pró­sent.

Viðreisn, flokkur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, og Sjálfstæðisflokkur Bjarna Benediktssonar á upp á pallborðið hjá tekjuháum landsmönnum. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Viðreisn, flokkur Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, og Sjálf­stæð­is­flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar á upp á pall­borðið hjá tekju­háum lands­mönnum. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Það blasir líka við að Viðreisn er flokkur sem nær mun betur til háskóla­mennt­aðra en annnarra. Alls segj­ast 14 pró­sent háskóla­mennt­aðra að þeir myndu kjósa flokk­inn en ein­ungis 3,8 pró­sent þeirra sem eru með grunn­skóla­menntun sem æðstu menntun.

Þá er stuðn­ingur við Viðreisn líka afger­andi mestur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það segj­ast 11,4 pró­sent að þeir myndu kjósa flokk­inn. Stuðn­ing­ur­inn er einnig umtals­verður á Vest­ur­landi/Vest­fjörðum þar sem Viðreisn mælist með 9,5 pró­sent fylgi. Á Aust­ur­landi (0,0 pró­sent), Norð­ur­landi (2,5 pró­sent) og Suð­ur­landi (3,4 pró­sent) virð­ist erindi Við­reisnar hins vegar ekki vera mikið.

Alls mæld­ist heild­ar­fylgi Við­reisnar í könn­un­unum tveimur sem birtar voru í maí og júní vera 8,9 pró­sent.

Framsókn er landsbyggðarflokkur

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn yrði minnsti flokk­ur­inn á Alþingi ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt tölum úr könn­unum MMR sem fram­kvæmdar voru í maí og júní. Flokk­ur­inn myndi fá 8,6 pró­sent atkvæða, og því er ekki mark­tækur munur á fylgi hans og Við­reisnar, og yrði sá síð­asti til að fara yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn sem þarf undir nán­ast öllum kring­um­stæðum að kom­ast yfir til að ná inn þing­manni.

Fylgis flokks­ins er nokkuð svipað í milli- og hátekju­hóp­unum en hann nýtur minnst fylgis allra flokka sem mældir eru hjá þeim sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði. Einungis 2,7 pró­sent þeirra sem til­heyra þeim hópi myndu kjósa Framsókn í dag.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er hins vegar sterkur hjá þeim sem hafa lokið skyldu­námi í grunn­skóla og engu öðru námi, og myndi fá 12,3 pró­sent atkvæða ef ein­ungis slíkir væru á kjör­skrá. Að sama skapi segj­ast 7,3 pró­sent þeirra sem eru með háskóla­próf að þeir myndu kjósa Framsókn.

Það kemur varla mikið á óvart að stuðn­ingur við Fram­sókn­ar­flokk­inn er umtals­vert meiri á lands­byggð­inni en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hann er næst stærsti flokk­ur­inn á Suð­ur­landi og Norð­ur­landi, og sá þriðji stærsti á Aust­ur­landi þar sem mun­ur­inn á honum og Sjálf­stæð­is­flokknum, sem er í öðru sæti, er þó vart nokkur. Fylgið þar er á bil­inu 17,5 til 23,1 pró­sent. Framsókn er einnig með meira fylgi en heild­ar­fylgi flokks­ins segir til um á Vest­ur­landi/Vest­fjörðum, þar sem 13,5 pró­sent segja að þeir myndu kjósa flokk­inn.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mælist staðan hins vegar svört. Einungis 4,5 pró­sent allra kjós­enda í þremur risa­stórum kjör­dæmum (Reykja­víkur norður og suður og Suð­vest­ur­kjör­dæmi) segja að þeir myndu kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn ef kosið yrði í dag.

Nær einungis lágtekjufólk kýs Flokk fólksins

Flokkur fólks­ins myndi ekki ná inn á þing ef kosið yrði í dag. Samkvæmt síð­ustu tveimur könn­unum MMR væri fylgi flokks Ingu Sæland 4,2 pró­sent. Það kemur lítið á óvart að stuðn­ingur hennar er mestur hjá tekju­lægstu hóp­unum. Raunar mælist hann nær eng­inn hjá hærri milli­tekju­fólki og hátekju­fólki. Þá er fylgi Flokks fólks­ins nær ein­ungis bundið við fólk sem hefur lokið mest grunn­skóla­prófi. Einungis 0,9 pró­sent háskóla­mennt­aðra segja að þeir myndu kjósa flokk­inn. Athygli vekur að stuðn­ingur við Flokk fólks­ins er mestur á Norð­ur­landi (8,9 pró­sent) en mælist eng­inn á Aust­ur­landi og Vest­ur­landi/Vest­fjörðum.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn er að mæl­ast með svipað fylgi, eða 4,0 pró­sent. Stuðn­ingur við hann er mestur hjá tekju­lægstum og í lægri milli­tekju­hópnum og nán­ast ein­vörð­ungu bund­inn við höf­uð­borg­ar­svæðið (5,4 pró­sent). Menntun virð­ist hins vegar ekki vera mik­il­væg breyta á meðal kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins. Stuðn­ingur við flokk­inn er nokkuð jafn eftir mennt­un­ar­stigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár