Mynd: Bára Huld Beck

Stuðningur við ríkisstjórnina mestur hjá kjósendum Sjálfstæðisflokks

Fleiri vænt­an­legir kjós­endur Vinstri grænna styðja rík­is­stjórn­ina en þeir sem segj­ast ætla að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn. Stuðn­ingur við hana á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur auk­ist síð­ustu vikur.

Fleiri vænt­an­legir kjós­endur Vinstri grænna styðja rík­is­stjórn­ina en þeir sem segj­ast ætla að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn. Stuðn­ingur við hana á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur auk­ist síð­ustu vikur. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst eftir því sem fólk verður eldra og tekjur þeirra hækka. Einungis rúm­lega 30 pró­sent tekju­lægstu lands­manna styðja hana.

Alls segj­ast 94,4 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins styðja sitj­andi rík­is­stjórn undir for­sætis Katrínar Jak­obs­dóttur. Stuðn­ingur kjós­enda hans hefur auk­ist síð­ustu vikur, á sama tíma og átök vegna þriðja orku­pakk­ans á meðal flokks­manna Sjálf­stæð­is­flokks hafa orðið harka­legri.

Þetta kemur fram í gögnum sem Kjarninn hefur fengið hjá MMR um hvernig stuðn­ingur við rík­is­stjórn skipt­ist á milli flokka og hópa. Gögnin ná yfir tvær síð­ustu fylgiskann­anir sem MMR hefur gert, sem birtar voru 14. júní og 29. maí.

Í gær birti MMR könnun sem sýndi að 48 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru and­vígir því að þriðji orku­pakki Evr­ópu­sam­bands­ins taki gildi á Íslandi. Þing­flokkur og for­ysta flokks­ins styður hins vegar inn­leið­ing­una, líkt og hinir stjórn­ar­flokk­arnir og mik­ill meiri­hluti stjórn­ar­and­stöð­unnar, og til stendur að afgreiða hana í lög í byrjun sept­em­ber. Andstaða kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins við orku­pakka­málið virð­ist hvorki minnka stuðn­ing þeirra við rík­is­stjórn­ina né hafa nein áhrif á fylgi flokks­ins. Það hefur vart hagg­ast frá því í apríl.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist þó umtals­vert minna en það sem hann fékk upp úr kjör­köss­unum í októ­ber 2017. Þá kusu 25,2 pró­sent kjós­enda flokk­inn en fylgi hans í síð­ustu tveimur fylgiskönn­unum MMR mælist 21,8 pró­sent.

Minni stuðningur hjá kjósendum VG og Framsóknar

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist minni hjá kjós­endum hinna stjórn­ar­flokk­anna tveggja, Vinstri grænna og Fram­sóknar, en hjá Sjálf­stæð­is­flokknum. Á meðal stuðn­ings­manna Vinstri grænna mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn undir for­sæti for­manns flokks­ins 85,2 pró­sent. Þess má þó geta að fylgi Vinstri grænna heilt yfir hefur dalað umtals­vert frá síð­ustu kosn­ingum, þegar flokk­ur­inn fékk 16,9 pró­sent atkvæða. Fylgi flokks­ins sam­kvæmt sam­an­lögðum nið­ur­stöðum síð­ustu tveggja kann­ana MMR mælist 12,6 pró­sent. Því hefur flokk­ur­inn tapað um fjórð­ungi kjós­enda sinna frá því í októ­ber 2017, miðað við nið­ur­stöðu kann­ana.

Kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru ólík­leg­astir allra kjós­enda stjórn­ar­flokka til að styðja rík­is­stjórn­ina. Alls segj­ast 80,2 pró­sent þeirra gera slíkt sem þýðir að fimmt­ungur kjós­enda flokks­ins eru henni mót­fallnir. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur einnig glatað umtals­verðum fjölda kjós­enda frá síð­ustu kosn­ing­unum, þegar flokk­ur­inn fékk 10,7 pró­sent atkvæða. Samkvæmt gögnum úr síð­ustu tveimur könn­unum MMR er fylgi flokks­ins nú 8,6 pró­sent, eða um fimmt­ungi minna en í kosn­ing­unum 2017.

Vart þarf að koma á óvart að meg­in­þorri kjós­enda stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fimm styðja ekki rík­is­stjórn­ina. Það eru helst kjós­endur Við­reisnar sem virð­ast sumir hverjir ánægðir með hana, en 30 pró­sent þeirra segj­ast styðja rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur.

Ríkisstjórn eldra fólksins

Alls mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 42,7 pró­sent sam­kvæmt könn­un­unum tveimur og hann kemur, líkt og áður sagði, að lang­mestu leyti frá vænt­an­legum kjós­endum stjórn­ar­flokk­anna þriggja.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er hins vegar mjög breyti­legur eftir aldri, búsetu, tekjum og menntun.

Hjá lands­mönnum yngri en þrí­tugum nýtur rík­is­stjórnin ein­ungis stuðn­ings 29,3 pró­sent kjós­enda. Stuðn­ing­ur­inn eykst síðan jafnt og þétt eftir því sem að kjós­endur verða eldri og mælist mestur hjá 68 ára og eldri. Alls segj­ast 51,6 pró­sent lands­manna í þeim ald­urs­hópi styðja rík­is­stjórn­ina.

Hún nýtur líka yfir­burð­ar­stuðn­ings á Aust­ur­landi, þar sem 56 pró­sent aðspurðra segj­ast styðja hana. Minnstur er stuðn­ing­ur­inn hins vegar á Norð­ur­landi þar sem hann mælist 37,2 pró­sent.

Þeir sem eru með háskóla­menntun eru lík­leg­astir til að vera ánægðir með rík­is­stjórn­ina. Alls segj­ast 52,3 pró­sent þeirra styðja hana. Stuðn­ing­ur­inn eykst eftir því sem menntun er meiri.

Þá eru rík­is­stjórnin mun vin­sælli hjá tekju­hærri hópum lands­ins en þeim sem minna hafa á milli hand­anna. Þegar tekju­lægsti hóp­ur­inn er skoð­aður, sá sem hefur undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði, kemur í ljós að ein­ungis 30,9 pró­sent þeirra sem til­heyra þeim hópi styðja rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Stuðn­ing­ur­inn hækkar svo eftir því sem tekjur aukast og nær hámarki hjá þeim sem eru með yfir 1,2 millj­ónir króna í heim­il­is­tekjur á mán­uði. Alls segj­ast 55,2 pró­sent þess hóps styðja rík­is­stjórn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár