Aðili

Útlendingastofnun

Fréttir

Farlama faðir og ellefu ára dóttir send úr landi

Abrahim Maleki og ellefu ára gömul dóttir hans, Hanyie, verða send úr landi á næstu vikum en Útlendinga­stofnun hefur hafnað beiðni þeirra um efnislega meðferð á umsókn um hæli hér. Litla stúlkan hefur þurft að annast föður sinn síðustu ár en hann er bæklaður eftir bílslys. Feðginin, sem eru afganskir flótta­menn, lentu í miklum lífsháska á leið sinni yfir Miðjarðar­hafið og eru heppin að vera á lífi.
ViðtalBörn í leit að alþjóðlegri vernd

Flúðu grimmilegar árásir talibana: Fá ekki vernd á Íslandi

Sjö manna fjöl­skyldu frá Afganistan verður vísað úr landi á grund­velli Dyflinnar­reglu­gerðarinnar á næstu dögum. Þeirra á meðal er stúlka sem var barin til óbóta af talibönum þriggja ára gömul. Fjöl­skyldan flúði ofsóknir og árásir talibana á síðasta ári, en þeir réðust á fjöl­skylduna þegar fjölskyldu­faðirinn, Mir Ahmad Ahmadi, neitaði að ganga til liðs við þá. Mir missti tennur í árásinni og fimm ára sonur hans handleggs­brotnaði illa. Stúlkan er í dag lömuð öðrum megin í andlitinu og á erfitt með að tjá sig, en hefur tekið ótrúlegum framförum eftir að hún kom til Íslands. Fjöl­skyldunni hefur verið gert að yfirgefa eina landið þar sem þau hafa fundið til öryggis.

24 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár