Aðili

Útlendingastofnun

Fréttir

Útlendinga­stofnun kom í veg fyrir að Alþingi gæti veitt ríkis­borgararétt

Útlendinga­stofnun skilaði þingnefnd ekki umsóknum fólks sem sótti um veitingu ríkis­borgara­réttar með lögum. Umsóknar­frestur þar um rann út 1. október og stofnunin hefur því haft hátt í þrjá mánuði til að sinna skyldum sínum. Arndís Anna Kristínar­dóttir Gunnars­dóttir, þingmaður Pírata, segir stofnunina brjóta lög. Óboðlegt sé að undir­stofnun komi í veg fyrir að Alþingi sinni lagalegri skyldu sinni.
Fréttir

Engar ráðstafanir gerðar fyrir fylgdar­laus börn á jólunum

Engar sérstakar ráðstafanir eru gerðar fyrir þau fylgdar­lausu börn sem dvelja í búsetu­úrræði Útlendinga­stofnunnar fyrir jólin. Þetta stað­festir upplýsinga­fulltrúi stofn­un­ar­innar. Í svörum frá stofnuninni segir að börnin fái desember­uppbót upp á 5 þúsund krónur. Flest þessara barna þurfa að undir­gangast aldurs­greiningu og sá sem framkvæmir hana fær 260 þúsund krónur fyrir hverja greiningu.
Fréttir

„Ómann­eskju­legt“ ferli að verða ríkis­borgari eftir að hafa búið sextán ár á Íslandi

Afgreiðsla Útlendinga­stofnunar á umsókn Robyn Mitchell um ríkis­borgararétt tók 20 mánuði. Stofnunin krafðist þess meðal annars að hún legði fram yfirlit yfir banka­færslur sínar, fram­vísaði flugmiðum og sendi samfélags­miðla­færslur síðustu fimm ára til að færa sönnur á að hún hefði verið hér á landi. „Þessi stofnun er eins ómann­eskjuleg og hægt er að hugsa sér,“ segir hún.

11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár