Flokkur

Sjávarútvegur

GreiningSamherjaskjölin

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu: Sam­herj­a­málið ástæðan fyrir að upp­boð á kvóta frestað­ist

Skip­stjóri Samherja, Páll Stein­gríms­son, segir að Rík­is­út­varpið beri ábyrgð á því að vel­ferð­ar­þjón­usta í Namibíu er fjársvelt. Ástæðan er umfjöllun um mútu­greiðslur Samherja í land­inu sem leitt hafi til nýs fyr­ir­komu­lags í úthlutun afla­heim­ilda sem ekki hafi gengið vel. Albert Kawana sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segir að hann vilji forð­ast spill­ingu eins og þá í Sam­herj­a­mál­inu í lengstu lög.
GreiningSamherjaskjölin

Samherji lýsir við­skiptum, þar sem grunur er um sam­særi, eins og eðli­legri kvóta­leigu

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji reynir nú að þvo hendur sínar af mútu­greiðslum í Namibíu með því að segja í Youtube-mynd­böndum og í fréttum að fyr­ir­tækið hafi greitt mark­aðs­verð fyrir kvót­ann. Alls 75 pró­sent af mark­aðs­verð­inu sem Samherji seg­ist hafa greitt fyrir kvóta í Namgomar-við­skipt­unum rann hins vegar til félags ráð­gjafa Samherja í skatta­skjóli. Þessi við­skipti eru nú rann­sökuð sem sam­særi.
GreiningSamherjaskjölin

Samherji stillir Namib­íu­mál­inu upp sem „ásök­unum“ Jóhann­esar

Samherji segir í árs­reikn­ingi sínum að Namib­íu­málið byggi á „ásök­unum“ Jóhann­esar Stef­áns­sonar. Fjölþætt gögn eru hins vegar undir í mál­inu og byggja rann­sóknir ákæru­valds­ins í Namibíu og á Íslandi á þeim. Samherji segir ekki í árs­reikn­ingi sínum að Wikborg Rein hafi hreinsað félagið af þessum „ásök­unum“.

Mest lesið undanfarið ár