Flokkur

Sjávarútvegur

FréttirSamherjamálið

Gögn sýna útsend­ara Samherja ræða við mútu­þega um að hylja pen­inga­slóð­ina

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, ásak­aði upp­ljóstr­ar­ann í Namibíu og ávítti fjöl­miðla fyrir umfjöllun um mútu­mál félags­ins í Namibíu. Nú sýna ný gögn að rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn Jón Óttar Ólafsson sem Þor­steinn kvaðst hafa sent til Namibíu átti í sam­skiptum við mútu­þeg­ann James Hatuikulipi sum­arið 2019 um hvernig tek­ist hefði að hylja slóð pen­inga­greiðsln­anna.
Úttekt

Kristján í Samherja reyndi að láta taka Eddu­verð­launin af Helga Seljan

Kristján Vil­helms­son, einn af stof­endum og eig­endum Samherja, sendi tölvu­póst til Íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unnar og spurði hvort ekki væri við hæfi að svipta Helga Seljan Eddu­verð­launum. Málið er enn eitt dæmið um það að for­svars­menn Samherja hafi reynt að leggja stein í götu fólks sem hefur gagn­rýnt fyr­ir­tækið eða íslenska kvóta­kerfið.

16 mín. lestur

GreiningSamherjaskjölin

Stóra spurn­ingin í rann­sókn Seðla­banka­máls Samherja og Namib­íu­máls­ins er sú sama

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra rann­saka nú útgerð­ar­fé­lagið Samherja vegna starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namiibíu. Það sem liggur undir í rann­sókn­inni er meðal ann­ars sú spurn­ing hvort Þor­steinn Már Bald­vins­son hafi stýrt rekstr­inum frá Íslandi og beri ábyrgð á mútu­greiðslum og því að skatt­greiðslur skil­uðu sér ekki til Íslands.

Mest lesið undanfarið ár