Svæði

Reykjanesbær

Fréttir

Kaupa fjöl­býl­is­hús undir erlenda starfs­menn

Fjöl­margir einka­að­ilar standa nú í við­ræðum við Kadeco, þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar, um kaup á fjöl­býl­is­húsum á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu í Reykja­nesbæ. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er um að ræða mörg hund­ruð íbúðir, flest ein­stak­lings­í­búðir en þó eitt­hvað af fjöl­skyldu­í­búðum líka, sem nota á undir erlenda starfs­menn íslenskra fyr­ir­tækja sem vænt­an­legir eru til lands­ins á næstu mán­uðum. Fyr­ir­tækin sem um ræðir eru meðal ann­ars...
Fréttir

Neyð­ar­á­stand í hús­næð­is­málum hæl­is­leit­enda

Útlend­inga­stofnun hefur ekki yfir nægu hús­næði að ráða til að mæta fjölgun hæl­is­leit­enda hér á landi. Stjórn­völd verða að gera við­eig­andi ráð­staf­anir, segir sviðs­stjóri hjá Rauða kross­inum. Kópa­vogs­bær hefur ekki svarað erindi Útlend­inga­stofn­unar um fjölda­hjálp­ar­stöð í Kópavogi og inn­an­rík­is­ráðu­neytið svarar engu um mót­töku­mið­stöð sem búið er að lofa á þessu ári.
Viðtal

„Ég þoli ekki órétt­læti“

Margir kann­ast vafa­lítið við nafn Hermanns Ragn­ars­sonar, vel­gjörð­ar­manns albönsku fjöl­skyld­unnar sem var vísað úr landi en fékk síðan rík­is­borg­ara­rétt. Mörgum brá í brún þegar fréttir bár­ust af því að tveimur lang­veikum börnum hefði verið vísað úr landi ásamt fjöl­skyldum og aftur til heima­lands­ins þar sem þau höfðu ekki aðgengi að við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu. Hermann, vinnu­veit­andi ann­arrar fjöl­skyld­unnar, tók málið í sínar hendur, barð­ist fyrir rík­is­borg­ara­rétti þeirra og stóð fyrir söfnun sem fjár­magn­aði meðal ann­ars flugið aftur heim til Íslands. Stundin varði degi með Hermanni Ragn­ars­syni og fékk að kynn­ast mann­inum á bak við góð­verkið.

12 mín. lestur

FréttirThorsil-málið

Thorsil seg­ist hafa tryggt sér orku fyrir kís­il­málm­verk­smiðj­una

Eyþór Arnalds vill ekki gefa upp stöð­una á raf­orku­samn­ingi Thorsil. Fram­kvæmda­stjór­inn segir ork­una tryggða. Lands­virkjun segir samn­inga ekki í höfn en að við­ræður hafi staðið yfir. Thorsil er nátengt Sjálf­stæð­is­flokknum og hefur rík­inu verið stefnt vegna íviln­ana til fyr­ir­tæk­is­ins sem nema um 800 millj­ónum króna.
Viðtal

„Ég trúði því ekki að við fengjum að búa þarna“

Íslend­ingar hafa tekið á móti 549 flótta­mönnum frá því fyrstu flótta­menn­irnir komu hingað til lands frá Ung­verja­landi árið 1956. Flestir hafa komið frá Balkanskag­anum. Að auki hafa 700 manns sótt um hæli hér á landi frá árinu 2008 og búist er við að met­fjöldi hæl­is­leit­enda komi hingað til lands á þessu ári, eða á bil­inu 200 til 250. Á síð­ast­liðnum fjórum árum hefur hins vegar ein­ungis 49 verið veitt hæli. Að baki hverri tölu eru mann­eskja. Hér er saga Biljönu Boloban.
FréttirTjarnarverk

Íbúða­lána­sjóður neitar stað­fast­lega að veita upp­lýs­ing­arnar

Rík­is­stofn­unin gefur ekki upp kaup­verð tæp­lega 90 íbúða í Reykja­nesbæ sem fast­eigna­fé­lagið Tjarn­ar­verk keypti. Stofn­unin segir upp­lýs­ing­arnar snú­ast um fjár­hags­mál­efni kaup­anda og því megi ekki opin­bera þær. Tjarn­ar­verk hefur verið til umræðu í fjöl­miðlum vegna hækk­unar leigu­fé­lags­ins á leigu­verði íbúð­anna.

Mest lesið undanfarið ár