Svæði

Reykjanesbær

Fréttir

ASÍ telur eðli­legt að mál verka­manna Icelandair verði skoðað nánar

150 far­and­verka­menn sem fluttir voru til lands­ins frá Póllandi greiða sjö­falda húsa­leigu til atvinnu­rek­anda síns, Icelandair. Halldór Grönvald hjá ASÍ seg­ist ekki geta lagt neinn dóm á málið enn sem komið er þar sem hann skortir allar for­sendur til þess. „En ég tel sjálf­sagt og eðli­legt að málið verði kannað nánar og brugð­ist við eftir því sem til­efni gefur til,“...
Fréttir

„Ótrúlegt hug­ar­far mjög fárra“

Yfir­gefin svæði, sem áður til­heyrðu banda­ríska hernum á Suð­ur­nesjum, eru nú mörg orðin rusla­kista þeirra sem losa sig við rusl í skjóli nætur. Þró­un­ar­fé­lagið Kadeco, sem tók við þessum svæðum árið 2006, hefur hent mörgum tonnum af rusli með það að mark­miði að hreinsa þau en alltaf fyll­ast þau aftur. Menn eru ráð­þrota og íhuga nú að girða svæðin af með gadda­vír.
Menning

Þrí­vídd­ar­bíó dýr­ara fyrir þá sem nota gler­augu

Það hefur færst í vöxt í Hollywood að taka upp og sýna kvik­myndir í þrí­vídd en því fylgir auk­inn kostn­aður fyrir þá bíó­gesti sem sækja slíkar sýn­ingar. Til þess að njóta kvik­myndar í þrí­vídd þarf sér­stök þrí­vídd­ar­gler­augu sem seld eru sér hér á landi. Fyrir þá sem nota gler­augu að stað­aldri getur reynst ansi dýrt að sækja slíkar sýn­ingar.
Fréttir

Reið­hjóli bæj­ar­full­trú­ans stolið: Lög­reglan brýnir fyrir fólki að geyma þau inn­an­dyra

Friðjón Ein­ars­son, bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ, varð fyrir því óláni á föstu­dags­kvöldið að reið­hjóli hans var stolið. Nú þegar nær dregur sumri aukast þjófn­aðir af þessu tagi. Varð­stjóri hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum, Bjarney Ann­els­dóttir segir þessa þjófn­aði nú eiga sér stað allan árs­ins hring en hennar reið­hjóli var stolið þar sem það stóð læst fyrir utan heim­ili hennar í fyrra.
Fréttir

Standa í vegi fyrir gisti­heim­ili á meðan bæj­ar­full­trúi byggir hótel

Í sveit­ar­fé­lag­inu Garði stendur stórt og mikið en tómt hús sem áður hýsti hjúkr­un­ar­heim­ilið Garðvang. Áhugi er fyrir því að breyta hús­inu í gisti­heim­ili en ákvæði í deiliskipu­lagi stendur í veg­inum. Á meðan byggir einn af bæj­ar­full­trúum í meiri­hluta bæj­ar­stjórnar hótel úti við Garð­skaga. Húsið er í eigu fjög­urra sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum og deila þau nú um fram­tíð þess.

Mest lesið undanfarið ár