Flokkur

Lögreglumál

Fréttir

Kona lést eftir árás í Vest­ur­bænum og tveir hafa verið hand­teknir

Lög­reglan í Reykja­vík rann­sakar and­lát konu við Hagamel í Vest­ur­bænum fyrr í kvöld.  Tveir menn eru í haldi grun­aðir vegna máls­ins. Tækni­deild lög­regl­unnar hefur verið að störfum inni á heim­il­inu fram á nótt.  Nánari fréttir verða sagðar þegar þær ber­ast. Nærri vett­vangiLög­reglan er að störfum fram á nótt á vett­vangi árás­ar­innar. Mynd: Pressphotos  
Fréttir

Borg­ar­full­trúi stígur fram sem ger­andi í kyn­ferð­is­brota­málum til að kenna ábyrgð

„Ég er ekki bara kyn­ferð­is­brota­þoli heldur er ég líka ger­andi,“ segir Halldór Auðar Svansson, borg­ar­full­trúi Pírata, sem stígur fram með það að marki að sýna hvernig eigi að axla ábyrgð. Hann seg­ist til­bú­inn til þess að gera allt sem í hans valdi stendur til að lina þján­ingar þeirra sem hann skað­aði með gjörðum sínum.
Spurt & svaraðPanamaskjölin

Júlíus Vífill svarar fyrir sig: Fjár­kúgun og fals­anir – leyni­pen­ing­arnir eiga sig sjálfir

Júlíus Vífill Ingv­ars­son svar­aði spurn­ingum Stund­ar­innar um fund sem hann átti, þar sem var lýst hvernig forð­ast ætti skatt­greiðslur. Hann lýsti því að pen­ing­arnir í sjóði hans á aflands­svæði ættu sig sjálfir. Hér­aðs­sak­sókn­ari rann­sakar nú þessi við­skipti vegna gruns um skatt­svik og pen­inga­þvætti. Upptaka af fund­inum hefur verið birt og er hún hluti rök­stuðn­ings hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir því að Sigurði G. Guð­jóns­syni er meinað að vera lög­maður Júlíusar Vífils, vegna gruns um aðild hans. Júlíus Vífill sagði upp­tök­una vera fals­aða.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár