Flokkur

Kynbundið ofbeldi

Fréttir

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“

Lögregla taldi ekki tilefni til að hefja rannsókn á meintri nauðgun þegar maður sagðist hafa sett lim í endaþarm sofandi 17 ára stúlku sem vildi ekki endaþarmsmök. Þingkona Pírata og formaður Laga- og mann­réttinda­nefndar Evrópu­ráðs­þingsins segir að afstaða ákæru­valdsins og málið allt valdi henni verulegum áhyggjum af stöðu kynferðis­brotamála í íslensku réttar­vörslu­kerfi.
Fréttir

Hafði „enda­þarms­mök“ við sofandi stúlku – Ekki nauðgun, segir lögregla

Lögregla og ríkis­saksóknari töldu ekki tilefni til að rannsaka hvort nauðgun hefði átt sér stað þegar maður þröngvaði lim sínum í endaþarm 17 ára stúlku meðan hún svaf. Maðurinn, faðirinn í Hafnar­fjarðar­málinu svokallaða, viðurkenndi verknaðinn í yfirheyrslu vegna annars máls og sagðist hafa vitað að stúlkan væri mótfallin endaþarms­mökum.

11 mín. lestur

Fréttir

Óglatt eftir lestur Moggans og segir að Davíð og Halldór séu „ógeðs­legir gamlir karlar“

Í Staksteinum Morgun­blaðsins er birt frásögn Halldór Jónssonar verk­fræðings af því hvernig hann „reyndi allt“ til að vanga, „trukka“ og komast í „sleik“ á mennta­skólaárunum án „mikillar mótspyrnu“. Halldór og ritstjórar Morgun­blaðsins hæðast að Demó­krötum í Banda­ríkjunum fyrir að taka nauðg­unará­sak­anir gegn dómara­efni Donalds Trump alvarlega.
Fréttir

Þolandi rís upp gegn Óttari: Í tvö ár hefur lífið verið undirlagt af ofbeldinu og afleiðingum þess

Júlía Birgis­dóttir gagnrýnir harðlega ummæli sem Óttar Guðmundsson geðlæknir lét falla í Síðdegis­útvarpi Rásar 2 í gær, um að fólk sem sendi nektar­myndir af sér á netinu bæri sjálft ábyrgð á því ef myndirnar færu í dreifingu. Júlía bendir á að enginn ber ábyrgð á ofbeldi nema sá sem beitir því. Um leið þakkar hún honum að færa kraft í umræðuna.

Mest lesið undanfarið ár