Flokkur

Kynbundið ofbeldi

Viðtal

Systur lýsa ofbeldi móður sinnar

„Ég var ekki orðin tíu ára þegar ég var farin að fara út með systur mína á sleða seinni partinn og segja henni að horfa til stjarnanna, því við gætum alltaf óskað okkur betri tíðar,“ segir Linda María Guðmunds­dóttir. Hún og systir hennar, Sveindís Guðmunds­dóttir, segja að móðir þeirra hafi beitt ofbeldi en hún hafnar ásökunum og segir dætur sínar ljúga. Faðir þeirra vildi ekki tjá sig í samtali við Stundina.

15 mín. lestur

Fréttir

„Ekkert réttlæti í réttar­kerfinu“

„Hvað er að mér að taka fokking videoið,“ sagði maður sem Júlía Birgis­dóttir kærði fyrir að taka upp kynlífs­myndband af þeim og dreifa á netinu. Hann lýsir sig saklausan en á milli þeirra hafa gengið skilaboð þar sem hann segist ekki muna eftir þessu, en viðurkennir að hafa tekið upp mynd­bandið og biðst afsökunar á því. Júlía höfðaði jafnframt einkamál á hendur honum en því var vísað frá fyrir héraðs­dómi. Hún hefur kært þá niður­stöðu. Nú vill hún að hefndar­klám verði skilgreint í hegningar­lögum en fyrir liggur frumvarp á Alþingi þess eðlis.

21 mín. lestur

Viðtal

Konan mín beitti mig ofbeldi

„Þegar talað er um heimilis­ofbeldi er yfirleitt verið að lýsa svo svakalega ljótum hlutum þar sem sterkir menn berja litlar konur í buff. Þetta var ekkert í líkingu við það. En þetta var samt hræðilegt,“ segir Dofri Hermannsson. Hann segist hafa búið í sextán ár með konu sem hafi beitt andlegu og líkamlegu ofbeldi. Eftir skilnað hafi hann viljað leggja það að baki sér, en nú sé hann að missa sambandið við eldri börnin og það geti hann ekki sætt sig við.

30 mín. lestur

Fréttir

Líf mitt í vændi

„Það er einkenni­lega æsandi að vera nafnlaus kynlífs­dúkka sem aðrir girnast. Það veitir völd og auðvitað nóg af peningum,“ sagði Arna í viðtali við Frétta­blaðið 2004, þar sem hún dásamaði vændi út í eitt. Skömmu síðar fékk hún tauga­áfall, sökk í hyldjúpt þunglyndi en brast kjarkur til að fyrirfara sér. Á örskömmum tíma hafði henni tekist að rústa lífi sínu. Hún segir frá lífi í vændi, þar sem hún mætti stundum mönnum sem hún þekkti vel fyrir, afleiðingum þess og voninni um breytt viðhorf.

22 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár