Fréttamál

kosningar2016

Fréttir

Úslit próf­kjöra helg­ar­innar – allir listar

Prófkjör Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks fóru fram í fimm kjör­dæmum. Mjög hallar á hlut kvenna á listum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Karlar hrepptu fyrsta sætið í öllum próf­kjör­unum. Sam­þykktur fram­boðs­listi Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi var einnig kunn­gjörður um helg­ina. Sam­fylk­ingin hélt þrjú próf­kjör; eitt í Reykja­vík fyrir Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður og suður, annað í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og það þriðja í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn...
Fréttir

Sigurður Ingi sæk­ist ekki eftir vara­for­manns­sæti

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ætlar ekki að gefa kost á sér sem vara­for­maður flokks­ins á ný. Þetta til­kynnti Sigurður Ingi Fram­sókn­ar­mönnum þegar hann kvaddi sér hljóðs á haust­fundi mið­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins sem fram fór á Akureyri í dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Ástæðuna segir hann vera sam­skipta­örð­ug­leikar í for­ystu flokks­ins. Ekki var gert ráð fyrir því að for­sæt­is­ráð­herra myndi...
Fréttir

Ari Trausti leiðir Vinstri græn í Suð­ur­kjör­dæmi

Ari Trausti Guð­munds­son, jarð­fræð­ingur og fjöl­miðla­maður, mun leiða fram­boðs­lista Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs í Suð­ur­kjör­dæmi í alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber. Tillaga upp­still­ing­ar­nefndar flokks­ins var sam­þykkt á félags­fundi í Selinu á Selfossi í dag. Ari Trausti gaf kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands árið 2012 en fékk ekki braut­ar­gengi; hlaut 8,64 pró­sent atkvæða. Hann er einna þekkt­astur fyrir dag­skrár­gerð sína í...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Baráttan um miðj­una og krafan um að „breyta kerf­inu“

Það verða að telj­ast stór­tíð­indi að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ráð­herra, og Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins og ráð­herra, séu gengin til liðs við Viðreisn. Enginn þarf lengur að efast um það að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er klof­inn, þó ýmsir kunni að túlka fram­boð Við­reisnar með öðrum hætti. En flokks­starfið snýst um fólkið sem sinnir því, og það er...
Fréttir

Katrín og Svandís leiða VG í Reykja­vík – Kolbeinn nýr inn

Katrín Jak­obs­dóttir og Svandís Svav­ars­dóttir munu leiða lista Vinstri grænna í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur, sam­kvæmt til­lögu upp­still­ing­ar­nefndar flokks­ins. Þetta kemur fram á Eyjunni. Þá munu Steinunn Þóra Árna­dóttir þing­maður og Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé almanna­teng­ill og pistla­höf­undur skipa annað sæti í sitt­hvoru kjör­dæm­inu, sam­kvæmt Eyjunni. Katrín og Svandís leiddu lista flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum og eru báðar sitj­andi þing­menn. Það er Steinunn...
Fréttir

Sturla Jónsson býður sig fram til Alþingis

Sturla Jónsson, sem bauð sig fram til emb­ættis for­seta Íslands fyrr á þessu ári, ætlar að bjóða sig fram til Alþingis í kom­andi kosn­ingum, sem fyr­ir­hug­aðar eru 29. októ­ber næst­kom­andi. Sturla ætlar að bjóða fram fyrir stjórn­mála­flokk­inn Dögun. Þetta til­kynnti hann á Facebook-síðu sinni. Post by stulli.jons. Sturla lenti í fimmta sæti í for­seta­kosn­ing­unum sem fóru fram í júní. Hann...
Fréttir

Birgitta, Jón Þór og Ásta leiða lista Pírata

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, varð í fyrsta sæti í próf­kjöri Pírata á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Jón Þór Ólafsson, fyrr­ver­andi þing­maður, lenti í öðru sæti og Ásta Guðrún Helga­dóttir þing­maður í því þriðja. Næstu sæti skipa Björn Leví Gunn­ars­son, Gunnar Hrafn Jónsson, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, Viktor Orri Val­garðs­son, Halldóra Mogensen, Andri Þór Sturlu­son og í tíunda sæti varð Sara E. Þórð­ar­dóttir Oskars­son. Þór...
Fréttir

Lilja vill leiða í Reykja­vík suður hjá Framsókn – Smári leiðir hjá Pírötum á Suð­ur­landi

Lilja D. Alfreðs­dóttir, sem verið hefur utan­rík­is­ráð­herra frá því í apríl, ætlar að sækj­ast eftir því að leiða lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í kosn­ing­unum í haust. Nokkuð ljóst var í hvað stefndi þegar Karl Garð­ars­son til­kynnti í gær að hann ætl­aði sér að sækj­ast eftir odd­vita­sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, en hann var í öðru sæti á lista flokks­ins í...

Mest lesið undanfarið ár