„Ég veit alveg hvað bíður mín“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir ætlar í fram­boð fyrir Viðreisn. Hún segir gagn­rýn­ina á sig skilj­an­lega en von­ast til að fá annað tæki­færi. Viðreisn mun ekki geta unnið með Sjálf­stæð­is­flokknum að óbreyttu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í 14 ár. Hún var ráð­herra í hrun­stjórn­inni og vara­for­maður flokks­ins. Hún kall­aði eftir því að gagn­rýn­is­raddir á íslenska efna­hagsund­rið sæktu sér end­ur­menntun, var kölluð kúlu­lána­drottn­ing vegna lána sem eig­in­maður hennar fékk hjá bank­anum sem hann starf­aði hjá og ákvað um síðir að stíga út úr stjórn­málum fyrir kosn­ing­arnar 2013, eftir að hafa hætt sem vara­for­maður og farið í tíma­bundið leyfi eftir útkomu Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis.

Nú er Þor­gerður snúin aftur á hið póli­tíska svið og ætlar í fram­boð fyrir nýjan flokk, Viðreisn. Hún seg­ist skilja gagn­rýn­ina sem hún fékk á sínum tíma, að hún hafi lært heil­mikið á því að stíga til hliðar úr stjórn­mál­unum og vonar að fólk gefi henni annað tæki­færi.

Fleira fólk vill breytingar

Það er ekki á hverjum degi sem fyrr­ver­andi for­maður og vara­for­maður stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins ákveða að segja skilið við hann og færa stuðn­ing sinn yfir til ann­ars flokks. Það gerð­ist þó í gær þegar Þor­gerður greindi frá því að bæði hún og Þor­steinn Pálsson hefðu gengið til liðs við Viðreisn, frjáls­lynt stjórn­mála­afl sem var stofn­sett í sumar eftir um tveggja ára und­ir­bún­ing. Það var reyndar verst geymda leynd­ar­mál íslenskra stjórn­mála að Þor­gerður væri lík­lega að fara að leiða lista Við­reisnar í sínu gamla Suð­vest­ur­kjör­dæmi – og DV var meira að segja búið að slá því upp á for­síðu að svo yrði. Sjálf seg­ist hún þó ekki hafa end­an­lega ákveðið sig fyrr en í gær. Og í kjöl­farið gengu þau Þor­steinn á fund Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og náins sam­starfs­manns Þor­gerðar til margra ára, og til­kynntu honum um ákvörðun þeirra. Næstu vik­urnar munu þessir fyrr­ver­andi banda­menn berj­ast gegn hvoru öðru um hylli kjós­enda í Kraganum, í stað þess að standa hlið við hlið.

Þor­gerður segir að hún hafi valið að fara fram fyrir Viðreisn vegna þess að hún telji að þar sé tæki­færi til að breyta ákveðnum lyk­il­þáttum í sam­fé­lagi okkar. „Í Viðreisn er þetta frjáls­lyndi sem ég tel mik­il­vægt að fái far­veg, mark­vissar en áður. Þar eru tæki­færi til að breyta. Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins er ekki verið að vinna að þessum breyt­ingum sem ég vill leggja áherslu á. Áherslur eins og á alþjóða­stjórn­mál vest­ræna sam­vinnu, þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið og meiri fókus á heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mál. Ég vil aukið frelsi og breyt­ingar í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi. Þetta eru mál sem menn hafa ekki verið sam­mála um innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins að breyta og engar vís­bend­ingar að menn ætli í slíkar breyt­ingar á næsta kjör­tíma­bili.“

Það þarf ekki að ræða lengi við Þorgerði til að átta sig á að hana þyrstir í að kom­ast aftur inn á svið stjórn­mála. Hún segir vett­vang­inn heill­andi og gefi tæki­færi til að hafa áhrif á sam­fé­lagið. Og hún seg­ist skynja að fleira og fleira fólk vilji þessar breyt­ingar. „Mér finnst þessi vett­vangur sér­stak­lega spenn­andi núna. Það eru nýir straumar og stjórn­mála­öfl á borð við Pírata eru að hreyfa við og breyta þanka­gangi fólks. Þótt ég sé ekki endi­lega sam­mála þeim í stefnu þá er þetta mjög mik­il­vægt. Fólk er í rík­ara mæli að gera ákveðnar sam­fé­lags­legar kröfur um hvernig kerfin eru upp­byggð. Hvernig við sjáum vaxt­ar­mögu­leika innan atvinnu­greina en líka hvernig það verði að vera ákveðið rétt­læti í skipt­ingu á arð­semi og í aðgengi.“

Hefur lært margt

Síðustu þrjú árin hefur Þor­gerður starfað innan Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA), en fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri þeirra sam­taka, Þor­steinn Víglunds­son, verður einnig í fram­boði fyrir Viðreisn í næsta mán­uði. Hún seg­ist hafa lært margt af því að vinna hjá hags­muna­sam­tökum fyr­ir­tækj­anna í land­inu, og sér­stak­lega af sam­skiptum þeirra við laun­þega­hreyf­ing­arnar.

„Ég hef lært að það skipti miklu máli að fyr­ir­tækin í land­inu hafi öfl­ugan málsvara sem komi sjón­ar­miðum þeirra á fram­færi og leið­rétti á tíðum brengluð við­horf sem eru uppi gagn­vart þeim og atvinnu­líf­inu. Mér þótti líka heill­andi að eftir langa og erf­iða báráttu við verka­lýðs­hreyf­ing­una í ýmsum deilum þá klár­uðu menn málin. Í stjórn­mál­unum hefur þetta alltaf verið þannig að stjórn­ar­and­staðan þarf alltaf að vera á móti og meiri­hlut­inn þarf alltaf að nota meiri­hlutaræðið. Fólk í ólíkum röðum þarf hins vegar ekki að vera and­stæð­ingar heldur getur það verið sam­herjar á ákveðnum sviðum. Það er hægt að ná saman um til­tekin mál þótt að heild­ar­stefnan sé ólík.“

Þorgerður Katrín og Bjarni Benediktsson á landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 2009 þegar Bjarni var kjörinn formaður flokksins.
Þor­gerður Katrín og Bjarni Bene­dikts­son á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2009 þegar Bjarni var kjör­inn for­maður flokks­ins.

Gerði mistök

Þor­gerður var mennta­mála­ráð­herra þegar hrunið skall á haustið 2008 og Kristján Arason, eig­in­maður hennar, starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri í stærsta banka lands­ins. Þau komu bæði fyrir í Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis og mikil fjöl­miðlaum­fjöllun var um mál þeirra næstu árin. Þegar fyrir lá að Kristján þyrfti ekki að greiða skuld sem hann stofn­aði til vegna kaupa á hluta­bréfum í Kaup­þingi fyrir hrun birti DV til að mynda for­síðu með mynd af þeim hjónum og fyr­ir­sögn­inni „Sloppin“.

Hún segir að gagn­rýnin á sig hafi verið hörð og á tímum óvægin, en að mörgu leyti skilj­an­leg. „Ég fór af þingi þegar rann­sókn­ar­skýrslan kom út og sagði af mér vara­for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum. Þegar ég hlust­aði á fólkið í sam­fé­lag­inu fyrir kosn­ing­arnar 2013 þá taldi ég rétt að stíga til hliðar. Ég er ekki að segja að mig hafi langað það, því ég elska póli­tík og er í henni út af hug­sjónum. En ég taldi það rétt.

Maður hefur lært mikið á þessum tíma og rétt­ar­vörslu­kerfið hefur á meðan farið í gegnum mál manns­ins míns. Þannig eru leik­reglur lýð­ræð­is­ins. Þær geta verið erf­iðar en maður verður að virða þær. Maður gerði mis­tök en í því felst ákveð­inn lær­dómur sem von­andi þroska mann einnig. Og núna vona ég að ég fái annað tæki­færi.“

Þor­gerður telur að það geti að vissu leyti hjálpað henni nú að hafa stigið sjálf út úr stjórn­mál­unum fyrir tæpum fjórum árum. „Það verða alltaf ein­hverjir sem munu ekki skilja að ég sé að snúa aftur á þetta svið og eru ekki búnir að taka mann aftur í sátt. Ég verð bara að lifa með því.“

Viðreisn verður ekki þriðja hjól

Þótt Viðreisn sé nýtt stjórn­mála­afl sem var ein­ungis form­lega stofnað fyrir nokkrum vikum er ljóst að til­vera þess ógnar ýmsum. Mikil ágjöf er frá vinstri á hinum póli­tíska skala þar sem flokknum er stillt upp sem hækju fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn til að halda völdum, svipað og talað var um Bjarta fram­tíð og Sam­fylk­ing­una í síð­ustu kosn­ingum. Frá hægri er reynt að afskrifa Viðreisn sem flótta­fólk úr Sjálf­stæð­is­flokknum sem geti ekki sætt sig við að Ísland sé ekki að ganga í Evr­ópu­sam­bandið.

Það er kannski ekki skrýtið að það fari um marga hefð­bundnu flokk­anna. Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mælist Viðreisn með 9,7 pró­sent fylgi, meira en bæði Sam­fylk­ingin og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, og er sam­kvæmt því þriðji stærsti flokkur lands­ins.

Þegar hún er spurð í hvora átt­ina hún vilji að Viðreisn starfi að loknum kosn­ingum – með núver­andi stjórn­ar­flokkum eða þeim sem mynda stjórn­ar­and­stöð­una – kom­ist Viðreisn í slíka stöðu vill hún ekki svara afger­andi. „Viðreisn er ekki og verður ekki þriðja hjól, hvorki fyrir hægri né vinstri stjórn,“ segir hún. Það sem skipti máli sé stefnan. Og sú stefna er um breyt­ingar á kerf­unum.

Viðreisn er ekki og verður ekki þriðja hjól, hvorki fyrir hægri né vinstri stjórn.

En Bjarni Bene­dikts­son sagði í við­tali á Bylgj­unni 8. maí síð­ast­lið­inn að helstu kosn­inga­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi kosn­ingum verði að standa gegn kerf­is­breyt­ingum og nýrri stjórn­ar­skrá. Og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur sýnt það í verki að hann ver sum lyk­il­kerfin, til dæmis land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­kerfin, af mik­illi hörku. Þá er það yfir­lýst stefna beggja rík­is­stjórn­ar­flokk­anna að ganga ekki í Evr­ópu­sam­bandið og þeir stóðu saman að því að draga umsókn Íslands að því til baka án þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Aðspurð hvort að sitj­andi rík­is­stjórn­ar­flokkar geti þá verið sam­starfs­mögu­leiki, í ljósi þeirra lyk­il­mála Við­reisnar sem hún nefndi fyrr í við­tal­inu segir Þor­gerður: „ekki að óbreyttri stefnu.“

Markvissar aðgerðir snemma á kjörtímabilinu

En hvað þarf þá að ná saman við Viðreisn um ef mynda ætti rík­is­stjórn með flokknum að loknum kosn­ing­unum síðla í októ­ber? Þor­gerður segir nokkur stór atriði í stefnu­skrá Við­reisnar leika þar aðal­hlut­verk. „Það þarf að klára þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Það þarf að fara í mark­vissar breyt­ingar á land­bún­að­ar­kerf­inu, sem taka bæði mið af hags­munum bænda og neyt­enda. Við eigum áfram að reka verð­mæta­skap­andi sjáv­ar­út­veg en þetta kerfi sem við höfum utan um hann mun springa framan í okkur ef það kemur ekki eitt­hvað rétt­læti þar inn. Stöð­ug­leiki í sjáv­ar­út­vegi er mik­il­vægur fyrir grein­ina en til þess þarf aukna sátt um kerfið. Það felst í því að menn verða að borga sann­gjarnt gjald fyrir aðgang að auð­lind­inni, hvort sem það er í gegnum mark­aðs­leið eða auð­linda­gjald. Það þarf líka að liggja fyrir mark­viss stefna varð­andi aðgerðir í heil­brigð­is­málum. Allt þetta þarf að ger­ast snemma á kjör­tíma­bil­inu, ekki seint á því. Ef menn eru til í að tala við okkur um þessi atriði, þá erum við með.“

Ljóst má vera að sum önnur stjórn­mála­öfl munu setja breyt­ingar á stjórn­ar­skránni ofar­lega á kröf­u­list­ann sinn kom­ist þau í aðstöðu til að semja um aðild að rík­is­stjórn. Þor­gerður er hlynnt ákveðnum breyt­ingum á stjórn­ar­skránni en telur hana ekki vera stærsta gall­ann á stjórn­kerf­inu. „Ég er frekar treg í rót­tækar breyt­ingar á henni. En það er ýmsu sem þarf að breyta. Það þarf að jafna atkvæða­vægi og það þarf að end­ur­nýja kafl­ann um for­seta Íslands. Það þarf líka að setja inn auð­linda­á­kvæði og ákvæði um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur. Svo er ég sjálf skotin í per­sónu­kjöri.“

Fór í gegnum svipugöng og getur það aftur

Líkt og áður sagði þá til­kynnti Þor­gerður Bjarna Bene­dikts­syni um ákvörðun sína í gær. Hún segir að við­brögð sjálf­stæð­is­manna við fram­boði hennar fyrir Viðreisn hafa verið mis­jöfn. „Sumir hafa tekið þessu mjög illa. Vin­sam­lega illa og óskyn­sam­lega illa. Svo eru aðrir sem eru mjög ánægðir með þennan val­kost sem Viðreisn veitir og hvetja mann áfram. Ég veit alveg hvað bíður mín. Það er hluti af þess­ari ákvörðun og það verður bara svo að vera. Ég fór í gegnum svipu­göng á sínum tíma og ég get gert það aftur. Eftir stendur að ég ætla að tala fyrir ákveðnum breyt­ingum á íslensku sam­fé­lagi og þess vegna er ég komin aftur í stjórn­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár