Fjórðungur þingmanna ætlar að hætta

Einn af hverjum fjórum sitj­andi þing­mönnum ætlar að hætta á þingi í haust. Þar af eru tveir ráð­herrar, for­seti Alþingis, tveir nefnd­ar­for­menn, tveir þing­flokks­for­menn og fjórir fyrr­ver­andi ráð­herrar. Allir þing­menn hafa nú gefið út ákvörðun sína.

Af þeim 16 þingmönnum sem ætla að róa á önnur mið í haust eru tveir ráðherrar og fjórir fyrrverandi ráðherrar.
Af þeim 16 þing­mönnum sem ætla að róa á önnur mið í haust eru tveir ráð­herrar og fjórir fyrr­ver­andi ráð­herrar.

Sextán þing­menn af 63 ætla að róa á önnur mið eftir Alþing­is­kosn­ing­arnar 29. októ­ber næst­kom­andi. Þar af eru tveir núver­andi ráð­herrar, þau Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Fjórir fyrr­ver­andi ráð­herrar ætla að hætta; Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og inn­an­rík­is­ráð­herra, Katrín Júl­í­us­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fjár­mála­ráð­herra, Kristján L. Möller, þing­maður Sam­fylk­ingar og fyrr­ver­andi sam­göngu­ráð­herra, og Ögmundur Jónasson, þing­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra.

Helm­ingur þing­manna Bjartrar fram­tíðar ætlar að hætta, þrír af sex. Tveir af níu þing­mönnum Sam­fylk­ingar hættir, Píratar og VG missa einn hvor og fjórir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks ætla að hætta. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir líka fjóra; þing­flokks­for­mann­inn, for­seta Alþingis, mennta­mála­ráð­herr­ann og fyrr­ver­andi vara­for­mann­inn. Jóhanna María Sig­munds­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, er eini þing­mað­ur­inn sem á eftir að gefa út ákvörðun sína um fram­haldið.

  1. Ásmundur Friðriksson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  2. Birgir Ármannsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  3. Bjarni Benediktsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  4. Brynjar Níelsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  5. Einar K. Guðfinnsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Nei

  6. Elín Hirst

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  7. Guðlaugur Þór Þórðarson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  8. Hanna Birna Kristjánsdóttir

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Nei

  9. Haraldur Benediktsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  10. Illugi Gunnarsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Nei

  11. Jón Gunnarsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  12. Kristján Þór Júlíusson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  13. Ragnheiður Elín Árnadóttir

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  14. Ragnheiður Ríkharðsdóttir

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Nei

  15. Sigríður Á. Andersen

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  16. Unnur Brá Konráðsdóttir

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  17. Valgerður Gunnarsdóttir

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  18. Vilhjálmur Árnason

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  19. Vilhjálmur Bjarnason

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Já

  20. Ásmundur Einar Daðason

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  21. Elsa Lára Arnardóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  22. Eygló Harðardóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  23. Frosti Sigurjónsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Nei

  24. Gunnar Bragi Sveinsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  25. Haraldur Einarsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Nei

  26. Höskuldur Þórhallsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  27. Jóhanna María Sigmundsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Svarar ekki

  28. Karl Garðarsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  29. Líkeik Anna Sævarsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  30. Páll Jóhann Pálsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Nei

  31. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  32. Sigrún Magnúsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Nei

  33. Sigurður Ingi Jóhannsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  34. Silja Dögg Gunnarsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  35. Vigdís Hauksdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Nei

  36. Willum Þór Þórsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  37. Þorsteinn Sæmundsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  38. Þórunn Egilsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Já

  39. Ásta Guðrún Helgadóttir

    Píratar

    Já

  40. Birgitta Jónsdóttir

    Píratar

    Já

  41. Helgi Hrafn Gunnarsson

    Píratar

    Nei

  42. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

    Vinstri græn

    Já

  43. Katrín Jakobsdóttir

    Vinstri græn

    Já

  44. Lilja Rafney Magnúsdóttir

    Vinstri græn

    Já

  45. Steingrímur J. Sigfússon

    Vinstri græn

    Já

  46. Steinunn Þóra Árnadóttir

    Vinstri græn

    Já

  47. Svandís Svavarsdóttir

    Vinstri græn

    Já

  48. Ögmundur Jónasson

    Vinstri græn

    Nei

  49. Árni Páll Árnason

    Sam­fylk­ingin

    Já

  50. Helgi Hjörvar

    Sam­fylk­ingin

    Já

  51. Katrín Júlíusdóttir

    Sam­fylk­ingin

    Nei

  52. Kristján L. Möller

    Sam­fylk­ingin

    Nei

  53. Oddný G. Harðardóttir

    Sam­fylk­ingin

    Já

  54. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

    Sam­fylk­ingin

    Já

  55. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

    Sam­fylk­ingin

    Já

  56. Valgerður Bjarnadóttir

    Sam­fylk­ingin

    Já

  57. Össur Skarphéðinsson

    Sam­fylk­ingin

    Já

  58. Björt Ólafsdóttir

    Björt fram­tíð

    Já

  59. Brynhildur Pétursdóttir

    Björt fram­tíð

    Nei

  60. Guðmundur Steingrímsson

    Björt fram­tíð

    Nei

  61. Óttarr Proppé

    Björt fram­tíð

    Já

  62. Páll Valur Björnsson

    Björt fram­tíð

    Já

  63. Róbert Marshall

    Björt fram­tíð

    Nei

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár