Svæði

Ísland

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­reksturinn í heilsu­gæslunni: Heilsu­gæslan verði að „fyrsta viðkomu­staðnum“ í heilbrigðis­kerfinu

Velferðar­ráðuneyti Kristjáns Þórs Júlíussonar svarar spurningum um einka­rekstur innan heilsu­gæslunnar á höfuð­borgar­svæðinu. Segjast hafa kynnt sér vel þær breytingar sem gerðar hafa verið á heilsu­gæslunni í Svíþjóð. Markmið er meðal annars að gera heilsu­gæsluna að álitlegri vinnustað fyrir heilbrigðis­starfsfólk.
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Útboðið umdeilda í Leifsstöð: Rekstur fyrir­tækis tengdu Kaup­félagi Skagfirðinga gengur „ágætlega“

Framkvæmda­stjóri Lagardére Travel Retail ehf. sem rekur sex veitingahús og verslanir í Leifsstöð segist vera ánægður með reksturinn á fyrsta árinu. Fyrir­tækið er að hluta til í eigu eiginkonu aðstoðar­kaup­félags­stjóra Kaup­félags Skagfirðinga. Fyrir­tækið var tekið fram yfir Kaffitár sem verið hafði í Leifsstöð í tíu en Kaffitár bíður enn eftir að fá gögn um útboðið sem það átti að fá.
Fréttir

Af 56 milljarða tekjum álversins í Straumsvík renna aðeins 2 milljarðar til hins opinbera

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir telur að afleið­ing­arnar af lokun álversins í Straumsvík yrðu slæmar fyrir Hafnar­fjörð og orðspor Íslands. Sjö stór­notendur á Íslandi nota 80 prósent þess rafmagns sem framleitt er á Íslandi. Útflutnings­verðmæti áls nemur 226 milljörðum á ári en einungis örfá prósent af þeim tekjum skila sér til hins opinbera, eða 3,6 prósent í tilfelli álversins í Straumsvík.

Mest lesið undanfarið ár