Flokkur

Fréttaskýringar

Skýring

Búið að semja við kröfu­haf­ana um frá­bæra nið­ur­stöðu

For­dæma­lausar aðgerðir íslenskra stjórn­valda til að losa um fjár­magns­höft voru kynntar í dag. Þjóð sem hefur verið föst í á sjö­unda ár í mjög hörðum höftum getur bráðum átt í eðli­legum gjald­eyr­is­við­skiptum milli landa. Hún getur átt erlendan gjald­eyri, keypt sér bíla eða fast­eignir erlendis, lánað pen­inga til útlend­inga og fjár­fest í hluta- eða skulda­bréfum í erlendri mynt. Sömu sögu...
Skýring

Rannsókn á spill­ingu truflar ekki und­ir­bún­ing Rússa fyrir næsta heims­meist­ara­mót

Hvorki skyndi­leg afsögn Sepp Blatter, for­seta alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, né fregnir þess efnis að bæði sviss­nesk yfir­völd og banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI séu nú að rann­saka hvort heið­ar­lega hafi verið staðið að kosn­ing­unni um rétt­inn til að halda heims­meist­ara­mótið árið 2018 - virð­ast hafa hreyft mikið við gest­gjöf­unum til­von­andi, Rússum. "Við gerum ráð fyrir því að herra Blatter muni sinna skyldum sínum...
Skýring

Er öryggi Banda­ríkj­anna ógnað meira en áður - eða kunna þau bara ekki fótum sínum for­ráð?

For­stjóri CIA lét nýlega orð falla sem stjórn­mála­skýrendur telja tíma­mótaum­mæli um banda­ríska utan­rík­is­stefnu – sem hefur auð­vitað verið nefnt í almennri umræðu lengi vel – að íhlutun Banda­ríkja­manna í mál­efni ann­arra ríkja auki á ógn við þjóðar­ör­yggi Banda­ríkj­anna. Eftir árás­irnar á Tví­bura­t­urn­ana árið 2001 héldu Banda­ríkja­menn í tvær her­farir. Fyrst inn í Afganistan – með víð­tækum stuðn­ingi alþjóða­sam­fé­lags­ins – þar...
Skýring

Nýtt sjúkra­hús í Stokk­hólmi fram úr nán­ast öllum áætl­unum

Nýja Karol­inska sjúkra­húsið (NKS) er eitt stærsta og metn­að­ar­fyllsta bygg­ing­ar­verk­efni Sví­þjóðar og lík­lega Norð­ur­land­anna allra. Fyr­ir­mynd­irnar eru bestu sjúkra­hús í heimi sem sam­eina allt í senn öfl­ugt vís­inda­starf, færasta starfs­fólkið og erf­ið­ustu til­fellin. Á heima­síðu verk­efn­is­ins er löng lýs­ing á því hvernig hags­munir sjúk­ling­anna eru hafðir að leið­ar­ljósi við alla hönnun og skipu­lag. Til dæmis verða allar sjúkra­stofur ein­stak­lings­her­bergi þar...
Skýring

Þriðji stærsti flokk­ur­inn í Danmörku vill ekki í rík­is­stjórn

Kristian Thulesen Dahl for­maður Dansk Fol­ke­parti, Danska Þjóð­ar­flokks­ins er í dönskum fjöl­miðlum stundum kall­aður þriðji mað­ur­inn. Nafn­giftin á þó ekk­ert skylt við heims­fræga kvik­mynd Orson Welles heldur er nafnið dregið af því að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn er þriðji stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins. Samkvæmt nýj­ustu spám fær flokk­ur­inn 33 þing­menn í þing­kosn­ing­unum 18. júní næst­kom­andi, fékk 22 full­trúa í kosn­ing­unum 2011. Gangi þessar...
Skýring

Fylgi Pírata eins­dæmi

Frá ára­mótum hefur fylgi Pírata auk­ist hratt og í síð­ustu könn­unum mæld­ist það vel yfir 30 pró­sentum. Það þýðir að Píratar mæl­ast með meira fylgi en báðir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir til sam­ans. Fylgið hefur vakið mikla athygli, og jafn­vel undrun, en er það eins­dæmi? Hvernig hefur fylgi nýrra flokka þró­ast í sögu­legu sam­hengi? Kjarninn kann­aði hvernig nokkrum öðrum flokkum hefur vegnað í...
Skýring

Brýnt fyrir ráða­mönnum að tjá sig ekki um tekjur vegna hafta­los­unar

Brýnt hefur verið fyrir ráða­mönnum að tjá sig ekk­ert opin­ber­lega um þær tekjur sem frum­vörp um losun hafta geti skilað. Slíkt tal er talið geta styrkt mál­flutn­ing kröfu­hafa fyrir dómi, en fast­lega er búist við að málið endi þar. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. Til að hægt verði að ganga frá nauða­samn­ingum föllnu bank­anna Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans...
Skýring

Ný leyniskjöl úr TISA-við­ræð­unum birt í heild sinni í sam­starfi við Wikileaks

Wikileaks, í sam­starfi við Kjarnann og níu aðra fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn, birtir í dag 17 ný leyniskjöl úr TISA-við­ræð­unum svoköll­uðu. Við­ræð­urnar, sem er ætlað að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum, hafa staðið yfir frá vor­mán­uðum árs­ins 2013 og von­ast þau ríki sem taka þátt í þeim að við­ræð­unum ljúki á næsta ári. Alls taka 23 aðilar þátt í þeim (Evr­ópu­sam­bandið,...
Skýring

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan ætlar á eftir Sepp Blatter - bréf birt sem sannar greiðslur

Banda­rískir sak­sókn­arar og banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI eru að rann­saka Sepp Blatter, for­seta alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, og aðild hans að ara­grúa spill­ing­ar­mála sem upp­lýst hefur verið um að hafi átt sér stað innan sam­bands­ins. Þetta hefur Reuters-frétta­stofan eftir ónafn­greindum heim­ild­ar­manni. Tals­maður FBI hefur neitað að tjá sig opin­ber­lega um málið. Sviss­nesk yfir­völd höfðu áður sagt að Blatter væri ekki til rann­sóknar. Blatter,...
Skýring

Reyfara­kennd saga um fjár­kúgun, ástir og eign­ar­hald á fjöl­miðli nálg­ast enda­lok

Systur á fer­tugs­aldri eru hand­teknar í úthverfi Hafn­ar­fjarðar fyrir að reyna að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra þjóðar. Önnur þeirra er fyrrum ást­kona umsvifa­mik­ils fjöl­miðla­eig­enda sem á sér langa póli­tíska for­sögu. Svo virð­ist sem­þær hafi ætlað að not­færa sér upp­lýs­ingar sem þær höfðu undir höndum, og þær töldu að sýndu fram á að for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði tekið þátt í fjár­mögnun á...
Skýring

Aðal­með­ferð hafin í SPRON-mál­inu - spari­sjóð­ur­inn sem varð fjár­fest­inga­fé­lag

Aðal­með­ferð hófst í dag í máli sér­staks sam­sókn­ara gegn fjórum fyrrum stjórn­ar­mönnum og fyrrum for­stjóra SPRON sem voru í októ­ber síð­ast­liðnum ákærð fyrir umboðs­svik vegna tveggja millj­arða króna láns sem SPRON veitti Exista þann 30. sept­em­ber 2008, deg­inum eftir að Glitnir var þjóð­nýttur og íslenska banka­kerfið allt var á helj­ar­þröm. Hinir ákærðu eru Guð­mundur Örn Hauksson, fyrrum spari­sjóðs­stjóri og síðar...

Mest lesið undanfarið ár