Svæði

Bretland

Erlent

Kemst ítrekað undan dróna­árásum: Takið mig af „dauða­listanum“

Pakistani sem starfað hefur með friðar­samtökum í heima­landinu biðlar til bandarískra og breskra yfirvalda um að taka hann af „dauða­listanum“. Segist þegar hafa komist undan fjórum dróna­árásum. Saklausir borgarar og börn eru oftar en ekki á meðal fórnar­lamba slíkra árása. Fyrr­verandi dróna­stýrimenn gagnrýna dróna­hernaðinn og segja hann vatn á myllu öfgamanna.

11 mín. lestur

Afhjúpun

Panama-skjölin: Milljarða­slóð Jóns Ásgeirs og Ingibjargar rakin í skatta­skjól

Panama-skjölin sýna að Jón Ásgeir Jóhannesson á og tengist miklum eignum í skatta­skjólum þrátt fyrir að hann hafi neitað því í gegnum árin. Þau sýna umfangs­mikil viðskipti Ingibjargar Pálma­dóttur, fjár­festis og aðal­eiganda fjölmiðla­fyrir­tækisins 365, og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar í félögum í skatta­skjólum heimsins. Ingibjörg er skráður eigandi félagsins Guru Invest í Panama sem borgaði upp skuldir upp á 2,4 milljarða við Glitni og Jón Ásgeir er eigandi Jovita Inc. í Panama meðal annars.

19 mín. lestur

Erlent

Kakka­lakk­arnir í frum­skóginum

Þúsundir einstaklinga halda til í flóttamanna­búðum við Erma­sundið sem hefur verið lýst sem þeim verstu í heimi. Þrátt fyrir bágbornar aðstæður í „frum­skóginum“ eins og búðirnar eru kallaðar hefur íbúunum tekist að byggja upp samfélag sem þeir tilheyra. Þar til nýlega mátti finna ýmsa þjónustu í þorpinu, svo sem bókasöfn, menningar­miðstöðvar, veitinga­staði, moskur, kaffihús og kirkjur. Frönsk yfirvöld rifu hins vegar niður stóran hluta búðanna og óvissa ríkir um fram­haldið.

15 mín. lestur

Fréttir

Rekinn úr landi með fullan maga af sprengju­brotum

Afganskur flótta­maður hefur, eftir áralangar hrakningar sótt um dvalar­leyfi á Íslandi, og fengið höfnun. Nú á að flytja hann til Frakk­lands, þar sem hann var áður á götunni. Hann þarf á læknis­hjálp að halda vegna áverka sem hann hlaut á unglings­aldri, þegar uppreisnar­menn í Afganistan reyndu að drepa hann. Þráir hann heitast af öllu að fá tækifæri til að lifa friðsömu og eðlilegu lífi hér, en ekkert bendir til þess að stjórn­völd verði við þeirri bón.

Mest lesið undanfarið ár