Aðili

Bjarni Benediktsson

FréttirWintris-málið

Leyndarmál Sigmundar Davíðs

Anna Sigurlaug Páls­dóttir stefndi pabba sínum Páli Samúels­syni í desember 2006. Sumarið 2007 samdist um málið utan dómstóla og hún fékk rúman milljarð króna sem endaði í Wintris Inc. í skatta­skjólinu Tortólu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra hefur þagað um peningana á Tortólu síðan sem og uppkaup Wintris Inc. á kröfum í bú föllnu bankanna. Einn þekktasti skatta­skjóls­sérfræðingur Evrópu, Torsten Fensby, segir að mál Sigmundar Davíðs sé einsdæmi í sögu Evrópu en bendir jafnframt að engar sannanir um lögbrot hafi komið fram þó spyrja mega spurninga um siðferði íslenska forsætis­ráðherrans.

20 mín. lestur

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Banka­maður Bjarna í Sviss tjáir sig um skatta­skjóls­málið

Bjarni Markússon sinnti eigna­stýringu fyrir Bjarna Benediktsson í Glitni og hjá Julius Baer í Sviss. Hann segir að sér „vitanlega“ hafi Bjarni Benediktsson ekki stundað viðskipti í gegnum skatta­skjól. Ægir Birgisson og Baldvin Vald­irmarsson voru viðskipta­félagar Bjarna í Dubaí en eignar­haldið á fasteigna­verkefninu lá í gegnum skatta­skjólið Seychells-eyju.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Hafnar­fjarðarbær vill St. Jósefs­spítala og átta önnur tilboð hafa borist

Hafnar­fjarðarbær hefur hafið viðræður við íslenska ríkið um kaup á St. Jósefs­spítala. Fjármála- og efnahags­ráðuneyti Bjarna Benedikts­sonar segir átta tilboð hafa borist í húsið. Teitur Guðmundsson læknir er einn af þeim sem er áhuga­samur um rekstur í húsinu. Hafnar­fjarðarbær hefur gefið það út að hann vilji sjá heilbrigðis­þjónustu í húsinu. Engin starfsemi hefur verið í húsinu frá því í árslok 2011.
Fréttir

Bjarni segist óafvitandi hafa haft félag í skatta­skjóli - Ólöf með umboð fyrir félag á Jómfrúar­eyjum

Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, átti þriðjungs­hlut í félagi á Seychelles-eyjum. „Nei, ég hef ekki verið með neinar eignir í skatta­skjólum eða neitt slíkt,“ sagði hann í fyrra. Ólöf Nordal innan­ríkis­ráðherra var með umboð fyrir félag í Bresku jómfrúar­eyjunum. Hún segir það hafa verið vegna ráðgjafar Lands­bankans.

Mest lesið undanfarið ár