Svæði

Austurland

GreiningLaxeldi

Stærsta tjónið í íslensku laxeldi: „Þetta eru mikil tíðindi og váleg“

Stærsta tjón vegna sjúkdóma sem hefur komið upp í íslensku sjókvíaeldi leiddi til þess að slátra þurfti tæplega tveimur milljónum laxa hjá Löxum fiskeldi. ISA-veira lagði laxeldi í Færeyjum og Síle í rúst en það var svo byggt upp aftur. Jens Garðar Helgason, framkvæmda­stjóri Laxa fiskeldis, segir að fyrir­tækið muni læra af reynslunni og auka smit­varnir.
ViðskiptiLaxeldi

Fráfar­andi forseti sveitar­stjórnar Múlaþings gefur ekki upp hvort hann ætli að vinna fyrir laxeldis­fyrirtæki

Gauti Jóhannesson, fráfar­andi forseti sveitar­stjórnar Múlaþings á Austur­landi, segir að hann telji að hann þurfi ekki að gefa það upp, þó hann sé kjörinn fulltrúi, hvort hann ætli sér að hefja störf fyrir laxeldis­fyrirtæki á Austur­landi. Gauti var meðal annars í viðtali í Speglinum á RÚV á þriðjudaginn þar sem hann ræddi laxeldi og skipulagsmál og þá kröfu Múlaþings að fá óskorað vald til að skipuleggja sjókvíaeldi í fjörðum sveitar­félagsins.

Mest lesið undanfarið ár