Segist ekki hafa nýtt sér trúnaðarupplýsingar í starfi sínu fyrir Kaupþing

Benedikt Gíslason var lyk­il­maður í fram­kvæmd­ar­hópi um afnám hafta og kom að gerð stöð­ug­leika­samn­inga við kröfu­hafa föllnu bank­anna. Hann starfar nú sem ráð­gjafi Kaup­þings. Benedikt segir að hann hafi ekki nýtt sér trún­að­ar­upp­lýs­ingar í því starfi.

Benedikt Gíslason, ráð­gjafi Kaup­þings við sölu hluta­bréfa félags­ins í Arion banka, segir að hann hafi ekki nýtt sér upp­lýs­ingar sem hann fékk á meðal að hann starf­aði fyrir fram­kvæmda­hóp um afnám hafta og við gerð stöð­ug­leika­skil­yrða í starfi sínu fyrir Kaupþing ehf. Hann hafi und­ir­ritað trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu vegna þeirra starfa og sam­kvæmt henni hafi honum verið óheim­ilt að nýta þær upp­lýs­ingar í núver­andi starfi hans. Benedikt segir enn fremur, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, að hann geti ekki upp­lýst um hversu háar greiðslur hann fái fyrir starf sitt fyrir Kaupþing. Það sé trún­að­ar­mál.

Benedikt starf­aði um tíma sem aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og var síðar efna­hags­ráð­gjafi hans. Þá var Benedikt einn þeirra sér­fræð­inga sem var skip­aður í fram­kvæmda­hóp við losun fjár­magns­hafta á árinu 2014. Vinnu þess hóps lauk með því að sam­komu­lag var gert við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum. Það sam­komu­lag gerði kröfu­höf­unum kleift að klára gerð nauða­samn­inga allra slita­búa föllnu bank­anna þriggja. Í kjöl­farið var búunum breytt í eign­ar­halds­fé­lög utan um eft­ir­stand­andi eignir þeirra. Eitt þeirra félaga er Kaupþing ehf., en nauða­samn­ingur slita­bús þess banka var sam­þykktur 15. des­em­ber 2015. Nokkrum mán­uðum eftir að vinnu Bene­dikts fyrir fram­kvæmda­hóp­inn lauk var hann ráð­inn í ráð­gjafa­starf hjá Kaup­þingi. Helsta eft­ir­stand­andi eign Kaup­þings er stór eign­ar­hluti í Arion banka, stærsta banka lands­ins.

Stjórnmálamenn hafa áhyggjur af stöðu Benedikts

Staða Bene­dikts hefur verið tölu­vert rædd á hinum póli­tíska vett­vangi, bæði opin­ber­lega og óform­lega. Margir stjórn­mála­menn sem Kjarninn hefur rætt við, bæði innan stjórn­ar­liðs­ins og á meðal stjórn­ar­and­stæð­inga, hafa gert miklar athuga­semdir við það að lyk­il­maður í samn­inga­við­ræð­unum við kröfu­hafa sem leiddu til samn­inga um stöð­ug­leika­skil­yrði, sé nú að starfa fyrir sömu kröfu­hafa og hann var áður að semja við. Þá hafa þeir miklar áhyggjur af því að Benedikt hafi mikla per­sónu­lega fjár­hags­lega hags­muni af því að Kaup­þingi tak­ist að hámarka ávinn­ing sinn af sölu eign­ar­hluta í Arion banka.

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, tók málið fyrir í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna í lok mars 2017, þar sem hún beindi fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, sem þá var for­sæt­is­ráð­herra. í ræðu sinni sagði Oddný: „Eitt af því sem fólst í vinnu Bene­dikts var að koma að gerð stöð­ug­leika­skil­yrða, reglna um hvernig kröfu­hafar föllnu bank­anna geta farið með hund­ruð millj­arða króna eignir sínar frá Íslandi. Benedikt vinnur nú fyrir kröfu­hafa Kaup­þings sem eru stærstu eig­endur Arion banka og starfar því núna fyrir þá aðila sem stöð­ug­leika­skil­yrðin voru m.a. sniðin að.[...]Benedikt er bund­inn trún­aði við Kaupþing. En er hann bund­inn trún­aði um þá vit­neskju sem hann afl­aði sér sem ráð­gjafi og aðstoð­ar­maður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra? Ég spyr hæstv. for­sæt­is­ráð­herra um það og við hvern ráðn­ing­ar­sam­band Bene­dikts var þegar hann vann sem ráð­gjafi fyrir rík­is­stjórn­ina í verk­efnum tengdum losun hafta. Var honum ekki gert óheim­ilt í þeim ráðn­ing­ar­samn­ingi að vinna fyrir gagn­að­il­ana nema að ein­hverjum tíma liðnum og hversu langur var þá sá tími? Benedikt hefur sjálfur neitað að svara því hvort hann sé van­hæfur til að starfa fyrir kröfu­haf­ana. Hvert er álit hæstv. for­sæt­is­ráð­herra á því?“

Bjarni svar­aði því til að að hefði ekki nýlega skoðað þá samn­inga sem gerðir höfðu verið við þá ein­stak­linga sem sinntu slíku starfi fyrir hönd stjórn­valda. „En mig rekur ekki minni til þess að þar sé kveðið á um að ein­hverjar tak­mark­anir séu á því hvað menn geti farið að fást við eftir að samn­ings­sam­band­inu lýkur[...]Í sjálfu sér á ég mjög erfitt með að sjá hvernig það er hætta á hags­muna­á­rekstrum vegna þess­arar stöðu í ljósi þess að verk­efn­inu er lokið og það liggur fyrir hver nið­ur­staða máls­ins var.“

Oddný kom aftur í pontu og sagði það eðli­legt að upp vakni spurn­ingar um hvort Benedikt hefði verið ráð­inn til starfa fyrir Kaupþing vegna vinnu hans fyrir stjórn­völd. Hún spurði Bjarna enn fremur hvort Benedikt hefði á þeim tíma sem hann vann fyrir hann haft aðfanga að trún­að­ar­upp­lýs­ingum, t.d. varð­andi samn­ings­mark­mið Íslands, útfærslur og tíma­setn­ingar.

Bjarni sagði að þeir sem voru að vinna við stöð­ug­leika­skil­yrðin hefðu að sjálf­sögðu haft „mikið magn af trún­að­ar­upp­lýs­ingum“.

Taka tvö

Oddný tók málið aftur upp í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á þingi á fimmtu­dag, 22. febr­úar 2018. Þá sagði hún að það væri „hneyksli að þessi sami aðstoð­ar­maður vinni nú fyrir Kaupþing og stærstu eig­endur Arion banka. Þá sem stöð­ug­leika­skil­yrðin voru sniðin að. Það sem meira er, aðstoð­ar­mað­ur­inn hóf störf fyrir þá aðila aðeins nokkrum vikum eftir að hann hætti störfum sem aðstoð­ar­maður hæstv. ráð­herra.“ Hún spurði svo hvort Bjarna þætti það eðli­legt að fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hans geti eina stund­ina unnið með við­kvæmar trún­að­ar­upp­lýs­ingar fyrir hið opin­bera en stuttu seinna farið að vinna fyrir þá aðila sem hafa aug­ljós­lega mikla hags­muni af því að sýsla með þær sömu upp­lýs­ingar. „ Gerði hæstv. ráð­herra enga kröfu um að aðstoð­ar­mað­ur­inn sem starf­aði í umboði hans færi ekki að vinna fyrir sömu kröfu­hafa og hann var að kljást við fyrir hæstv. ráð­herra? Telur hæstv. ráð­herra ekki aug­ljós­lega að starfs­maður sem býr yfir slíkum upp­lýs­ingum sé afskap­lega verð­mætur starfs­maður fyrir Kaupþing? Hvað gerði hæstv. ráð­herra til að koma í veg fyrir að mögu­legir hags­muna­á­rekstrar ættu sér stað?“

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur tvívegis spurt Bjarna Benediktsson út í stöðu Benedikts úr ræðustóli Alþingis.
Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur tví­vegis spurt Bjarna Bene­dikts­son út í stöðu Bene­dikts úr ræðu­stóli Alþingis.

Bjarni svar­aði því til að Oddný væri að dylgja um að farið væri illa með trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem mönnum hefði verið treyst fyrir. Hann bað Oddnýju í kjöl­farið að færa ein­hver rök fyrir máli sínu. „Það sem var verk­efni umrædds starfs­manns eru opin­berar upp­lýs­ingar í dag. Það er ekk­ert sem leiddi af störfum hans eða þeirra sem tóku þátt í þeirri vinnu, og það voru fjöl­margir aðilar — það er allt saman bundið í samn­inga sem m.a. voru lagðir fyrir í efna­hags- og við­skipta­nefnd í vik­unni. En um hvað hv. þing­maður er að dylgja átta ég mig ekki á, hún verður að gera betur grein fyrir því hér.“

Oddný neit­aði því að hún væri að dylgja um nokkurn skap­aðan hlut. „Sú ákvörðun að fara aðra leið með Arion banka en Íslands­banka var tekin að kröfu sjálf­stæð­is­manna, að sögn fyrrum sam­starfs­manns hæstv. ráð­herra í rík­is­stjórn, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Sporin hræða þegar kemur að fjár­mála­kerf­inu og aðkomu Sjálf­stæð­is­manna. Allt ferlið þarf að vera gegn­sætt og opið. En það er það ekki. Sölu­ferli Arion banka er óljóst. Samn­ingar við ríkið hafa ekki allir verið gerðir opin­berir. Við vitum ekki hverjir eiga vog­un­ar­sjóð­ina. Er ekki kom­inn tími til að við hættum þessu pukri og fúski og við­ur­kennum að það vinnur gegn hags­munum almenn­ings? Getur hæstv. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að minnsta kosti ekki verið sam­mála mér um það?“

Bjarni hafn­aði því að um pukur og fúsk væri að ræða. Þegar stöð­ug­leika­samn­ing­arnir séu skoð­aðir sé ekki annað hægt en að segja: „ Bravó, þetta gekk 100 pró­sent upp.“

Segist ekki hafa rætt nýja starfið við stjórnmálamenn

Benedikt segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að honum hafi verið boðið ráð­gjafa­hlut­verk hjá Kaup­þingi í lok ágúst 2016. Hann hafi síðan verið kjör­inn í stjórn félags­ins í nóv­em­ber sama ár. Aðspurður hvort hann hafi rætt það við fyrr­ver­andi yfir­mann sinn, Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hvort við­eig­andi væri að hann tæki slíkt starf að sér svarar Benedikt því neit­andi. Hann seg­ist heldur ekki hafa rætt það við aðra stjórn­mála- eða emb­ætt­is­menn.

Benedikt segir að ráð­gjafa­hlut­verk hans fyrir Kaupþing snúi að sölu hluta­bréfa þess í Arion banka. „Um hlut­verk Kaup­þings við sölu hlut­bréf­anna, afrakstur þeirrar sölu og ráð­stöfun á u.þ.b. 70 pró­sent sölu­and­virð­is­ins til rík­is­sjóðs með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags voru gerðir sér­stakir samn­ingar milli Seðla­banka Íslands, Kaup­þings og Kaup­skila sem samn­ings­að­ilar starfa eftir í dag. Samn­inga­gerð fyrir hönd íslenskra stjórn­valda var á for­ræði Seðla­banka Íslands.“

Benedikt ásamt Sigurði Hannessyni, sem einnig sat í framkvæmdahópnum þegar greinargerð Seðlabanka Íslands um stöðugleikasamninganna var kynnt í lok október 2015. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Benedikt ásamt Sigurði Hann­essyni, sem einnig sat í fram­kvæmda­hópnum þegar grein­ar­gerð Seðla­banka Íslands um stöð­ug­leika­samn­ing­anna var kynnt í lok októ­ber 2015. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Að sögn Bene­dikts hefur hann ekki ekki nýtt sér upp­lýs­ingar sem hann fékk á meðal að hann starf­aði fyrir fram­kvæmda­hóp um afnám hafta og við gerð stöð­ug­leika­skil­yrða í starfi sínu fyrir Kaupþing. Hann, líkt og aðrir í hópnum, und­ir­rit­uðu trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu vegna þeirra starfa og sam­kvæmt henni var þeim óheim­ilt að nýta þær upp­lýs­ingar utan starfa hóps­ins.

Í trún­­að­­ar­yf­­ir­lýs­ing­unni kom fram hversu við­­kvæmar upp­­lýs­ing­­arnar væru og hversu mik­il­vægt það væri fyrir sér­­fræð­ing­anna sem í hópnum sátu að halda trúnað um þær.

Brjóti þeir gegn þeim trún­­aði eða mis­­noti upp­­lýs­ing­­arnar með ein­hverjum hætti gæti það verið talið sak­­næmt athæfi, og við­kom­andi gæti verið ákærður fyrir vik­ið.

Trúnaður um samningssamband við Kaupþing

Hópur lyk­il­starfs­manna Kaup­þings á rétt á bón­us­greiðslu ef mark­mið um hámörkun á virði óseldra eigna þeirra næst. Þær greiðslur eiga að greið­ast út í síð­asta lagi í lok apríl. Benedikt segir að hann sé ekki á meðal þeirra sem fái slíka greiðslu. „Ég er stjórn­ar­maður í Kaup­þingi og ráð­gjafi en ekki starfs­maður Kaup­þings og er því ekki í hópi umræddra starfs­manna. Eins og fram kom í fjöl­miðlum á sínum tíma ná ofan­greindar greiðslur ekki til stjórnar og ann­arra æðstu stjórn­enda Kaup­þings. Þá stað­festi Kaupþing við fjöl­miðla að allir starfs­menn félags­ins geti átt von á sér­stökum greiðslum ef mark­mið um hámörkun á virði óseldra eigna næst en greiðsl­urnar nái ekki til stjórnar og ann­arra æðstu stjórn­enda Kaup­þings. Að auki liggur ekki fyrir hvernig tekst að ná mark­miðum um hámörkun á virði óseldra eigna og því ótíma­bært að segja til um hverjar þessar sér­stöku greiðslur til allra starfs­manna verða.​“

Aðspurður um hversu háar greiðslur hann muni fá vegna ráð­gjafa­starfa sinna vegna sölu hluta­bréfa í Arion banka segir Benedikt að hann geti ekki svarað þeirri spurn­ingu. „Trúnaður gildir um samn­ings­sam­band mitt við Kaupþing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár