Raddir margbreytileikans

Að mynda banda­lög hér og þar

Gestur hlaðvarpsins er Stella Samúelsdóttir. Stella er fædd 27. febrúar 1975 í Reykjavík en hefur auk þess búið í Ísrael, Ítalíu, Malaví og í New York og New Orleans í Bandaríkjunum. Hún lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 1999. Árið 2003 útskrifaðist hún með Post Graduate Diploma í alþjóðasamskiptum frá The Johns Hopkins Unversity og 2004 með Post Graduate Diploma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Einnig hefur hún D-vottun í verkefnastjórnun Endurmenntun HÍ (verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun) sem hún lauk 2010. Áhugasvið Stellu snúa að ferðalögum, mannréttindum og alþjóðamálum. Í gegnum tíðna hefur hún meðal annars starfað á verkfræðistofu, sem sérfræðingur á skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví og haft yfirumsjón með ýmsum verkefnum þar, sem sérfræðingur hjá fastanefnd Íslands til Sameinuðu þjóðanna í New York, sjálfstætt starfandi ráðgjafi í þróunarmálum og rekið eigið fyrirtæki. Í dag starfar Stella sem framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
Hlustaðu · brot55:43 ·

Handrit

6.496 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Stella kynnist mannfræðinni

Sæl og verið velkomin í Raddir margbreytileikans. Gestur hlaðvarpsins er Stella Samúelsdóttir. Stella er fædd 27. febrúar 1975 í Reykjavík en hefur auk þess búið í Ísrael, Ítalíu, Malaví og í New York og New Orleans í Bandaríkjunum. Hún lauk BA-prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 1999. Árið 2003 útskrifaðist hún með Post Graduate Diploma í alþjóðasamskiptum frá Johns Hopkins University og árið 2004 með Post Graduate Diploma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Einnig hefur hún D-vottun í verkefnastjórnun frá Endurmenntun HÍ, sem hún lauk árið 2010. Áhugasvið Stellu snúa að ferðalögum, mannréttindum og alþjóðamálum. Í gegnum tíðina hefur hún meðal annars starfað á verkfræðistofu, sem sérfræðingur á skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví og haft yfirumsjón með ýmsum verkefnum þar, unnið sem sérfræðingur hjá fastanefnd Íslands til Sameinuðu þjóðanna í New York, starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi í þróunarmálum og rekið eigið fyrirtæki. Í dag starfar Stella sem framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Komdu sæl og vertu velkomin í Raddir margbreytileikans.

Takk fyrir.

Takk fyrir að koma. Það er bara til í þetta spjall, mér langar bara að byrja á að forvitnast: Hvernig rataðir þú inn í mannfræðina?

Já, það er góð spurning og svona smá aðdragandi að því að ég byrjaði í mannfræðinni. Ég var í MH og útskrifaðist þaðan 1995, seint á síðustu öld. Tók mér ársleyfi eftir menntaskóla og þá ætlaði ég svona að leita að sjálfri mér og finna hvað ég vildi gera. Ég vissi alveg að ég hafði áhuga á ýmsu. Það var helst sagnfræði, lögfræði, eitthvað því tengt.

Ég endaði á því að fara til Ísraels í þessu hléi og starfaði þar á samyrkjubúi í einhverja mánuði með vinkonu minni. Ég ferðaðist um löndin í kring, til Egyptalands og Jórdaníu og svo til Grikklands. Þessi mánuður hafði mikil áhrif á mig og opnaði augun mín fyrir mjög mörgu. Ég var í Ísrael á þessum tíma, þar sem Yitzhak Rabin hafði nýlega verið myrtur. Það voru að koma ný stjórnvöld og kosningar.

Það var áhugavert að upplifa svona land sem ég hafði alltaf tengt við stríð og átök í sjónvarpi og fréttum, en vera þarna á samyrkjubúi Ísraelsmegin og upplifa að þarna voru gyðingar sem voru að berjast fyrir friði. Að sjá þá hlið, þó að ég styðji alfarið Palestínu, var mjög áhugavert. Kannski að sjá að hlutirnir eru ekki alveg svartir og hvítir.

Þessi dvöl hafði bara vakið margar spurningar hjá mér. Ég kom heim þarna í ágúst og foreldrar mínir lögðu alltaf mikla áherslu á menntun okkar systkinanna. Pabbi minn segir að hann sé búinn að skrá mig í Háskóla Íslands. Ég veit ekki alveg hvernig hann fékk það gegn, að skrá mig upp í Háskóla Íslands án þess að skrá mig. Þetta var þykka bókin sem hann fletti í gegn til þess að fara yfir allar námsleiðir Háskóla Íslands, sem eru fjölmargar. Þess vegna tók þetta smástund.

Svo fékk ég líka lánaða bók sem var nýútkomin og fjallaði svona um námsleiðir í Háskóla Íslands. Þannig að ég var fljót að geta útilokað það sem ég vildi ekki fara í. Það var fullt af námi sem hafði bara ekki heillað mig. Við fórum þarna hvort í sínu lagi, ég og pabbi minn, að skoða þetta. Svo fór ég eitthvað út og hann skoðaði þetta líka á meðan. Svo kem ég heim og segi: „Já, ég held ég sé búin að finna námið sem ég hef verið að leita að. Ég bara datt niður á það.“ Og hann segir: „Já, ég held ég sé líka búinn að finna eitthvað sem gæti heillað þig.“

Við bara segjum á sama tíma: „Mannfræði.“

Já, og það var alveg ótrúlegt að ég einhvern veginn hafði bara ekki vitað um mannfræði, að hún væri til. En mér fannst hún einhvern veginn tengja allt það saman sem ég hefði áhuga á. Þannig að við komumst að sömu niðurstöðu og ég skráði mig í mannfræði og byrjaði haustið 1996 í mannfræði.

Já, hann gerði það mjög, og kannski tengdist það líka hans áhugasviðum, þótt ég sé alveg nýpa heimili þar sem ég hef svona mikinn áhuga á kannski framandi menningu og ferðalögum, mikið af sögu og listum.

Matarmenningu. Þannig að þú ólst upp við að vera með svona skrýtna lykt í eldhúsinu heima þegar aðrir voru að fá svona, já, soðna ýsu. Það var jafnvel: „Hvað er þetta? Þetta er kínverskur matur.“ Þannig að þetta var svo sem ekkert ólíkt því sem ég ólst upp við.

Og svolítið í kringum mig líka, aðrar fjölskyldur í mínu umhverfi sem tengdust svona einhverjum framandleika, foreldrar vinkvenna minna sem þá höfðu starfað eða starfa í þannig geira. Þannig að þetta var einhvern veginn nám svolítið í kringum mig.

En foreldrarnir, störfuðu þau við eitthvað sem tengdist því? Nei, en pabbi minn var mjög ungur þegar hann fer einn úr sveit til Svíþjóðar að læra frá lýðháskóla og fer svo í nám og er svona á eigin fótum bara um 17 ára aldur. Og mamma mín, þau kynnast í Svíþjóð þegar hún fer í Íslendingapartý.

Þannig að þetta er svona upphafið hjá þér. Þannig að það hafi alltaf verið svona að skoða í kringum sig og áhugi og þekking á því að fræðast um heiminn.

Ég myndi segja það, bara að þú skalt vera svona eðlisfarið kannski forvitinn og alinn upp við það að vera forvitinn og spyrja spurninga og fylgjast með heiminum, hvað var að gerast. Þú varst víðsýnn, þú varst hvattur til að ferðast til þess að upplifa að hlutirnir eru ekki kannski alltaf eins og þeir virðast vera, að maður þurfi svona að spyrja sér spurninga.

Þannig að ég held að það hafi alveg opnað það fyrir því sem ég starfa við í dag og stend fyrir. Og þú veist, bara frá unga aldri, forvitni á jákvæðan hátt, ekki forvitni um náungann heldur forvitni um að læra meira og fræðast. Og það hafa aðrir talað um þetta í þessu hlaðvarpi, mannfræðina og forvitni, og að vera forvitinn á mjög jákvæðan hátt.

Og hvað, eruð þið að skrá þig í mannfræði eða háskólann? Og hvernig var svo, hvernig reyndist mannfræðin? Hvernig byrjaði þetta?

Að læra mannfræði og réttlæti

Jú, bara byrjaði vel og mér fannst, ég var með marga ágæta kennara í þessu námi. En mér fannst svolítið erfitt að byrja. Mér fannst ég ekki alveg kunna á þetta í upphafi. Auðvitað var allt orðið á ensku, allir textar á ensku, og ég hafði alltaf verið svo samviskusöm að þurfa að skilja allt línu til línu.

Þannig að ég byrjaði á því að þýða allt. Hvernig ætlar maður að komast yfir texta í þessu magni eins og í mannfræðinni? Þú ert kominn í háskóla, þannig að ég hefði þurft að fá svona smá lærdóm í upphafi um það hvernig ég ætti að læra. Þetta reyndist mér svolítið snúið í upphafi, ég ætlaði að gera þetta svona.

En auðvitað breyttist það kannski eftir því sem á leið námið og maður lærði meira. Ég hefði viljað vera betur undirbúin fyrirfram, hvernig maður ætti í rauninni að læra í háskóla. Og þegar maður kemur með annað tungumál, á að læra nýjan orðaforða sem er fjarlægur og þetta tungutak sem tengist mannfræðinni, eins og bara á öðrum sviðum, þá gerði ég þetta kannski erfiðara fyrir mig í upphafi með þessu.

En auðvitað, eins og ég segi, eftir því sem á leið lærði maður það. Mér fannst þetta strax mjög áhugavert og stundum fannst mér þetta erfitt, að ég bara var ekki alveg að skilja þessar pælingar.

Og hérna, en ég fann það samt fljótt, sko, það sem heillaði mig voru kúrsar, til dæmis um þróunarlönd. Ég var hjá Unni Dís og svo var ég hjá auðvitað Haraldi, já.

Ég er rétt nýhætt, held ég, bara stuttu eftir að ég er... Og ég var hjá Gísla Pálssyni og Sigríði Dúnu. Þetta voru svona... Þú kemur, Sveinn Eggerts, þannig í lokin.

Þetta eru svona helstu, allt frábærir kennarar sem skildu mikið eftir sig á hverju sviði sem þau standa fyrir, sko. Þannig að það var bara mjög skemmtilegt.

Ég man eftir þessu. Það tók mig alveg eitt og hálft ár að læra að læra, eða svona varðandi skrif og slíkt. Já, hugsa sem ég get breytt núna.

En hérna, þetta er mjög góður punktur. Þetta er stökk að fara í háskóla og þú hefur verið að læra nýtt tungumál, nýtt fagmál, mannfræði, fagmálið algerlega. Þó maður teldi sér kannski sleipan á ensku og alveg ágætlega vel settan, þá varstu komin í orð sem bara þér fannst þú ekki skilja, setningar sem þú skildir ekki. Og þú veist, sumt fræðafólk skrifar ekki mjög einfaldan texta; þar fyrir utan nær það ekkert svona til manns heldur.

En þið mynduðust líka auðvitað bara góðir hópar og maður eignaðist vini þar sem við vorum bara að læra saman og skipta með okkur verkefnum, svolítið bara til að ná utan um námsefnið þarna. Það var líka skemmtilegt.

Og hvað, fórstu þá að átta þig á því hvað væri þitt áhugasvið innan mannfræðinnar?

Já, einmitt. Á tímabili fannst mér mjög áhugaverð líffræðileg mannfræði. Það var mikið talað um það á þessum tíma, til dæmis réttarmannfræði út af Bosníustríðinu. Mér fannst það strax einhvern veginn áhugavert. Það var mannfræðingur hér, en ég er búin að gleyma hvað hún heitir. Eva heitir hún, manstu?

Ég man ekki eftirnafnið hennar, en hún var einmitt réttarmannfræðingur og var mikið að grafa upp í Bosníu. Mér fannst þetta strax einhvern veginn áhugavert, en þróunarlöndin fannst mér alltaf spennandi. Kannski hafði það svona verið áður, bara frá því að ég var krakki, sko. Einhvern veginn frá því að bækurnar voru frá Rauða krossinum og maður var að safna, og það var einhver réttlætiskennd í mér og svona samkennd.

Mér fannst þetta svona óréttlæti, og ég man það bara í samræðum mörgum sinnum oft heima, sko, bara um það að þetta væri nú bara ekki rétt. En það er kannski eins og ég hef alltaf verið; þú stundum svo bara um jafnréttismál annað, þú hefur tekið þetta svona sterkt til þín og hérna eitthvað sem mér finnst vera ósanngjarnt.

Þetta hefur verið umræða. Svona man ég að ég las, þegar ég var í mannfræðinni, þetta með muninn á fræðilegri mannfræði og svo einhvers konar hagnýtri mannfræði. Nancy Scheper-Hughes talaði um militant anthropology eða barefoot anthropology, og að við eigum að berjast fyrir réttindum viðmælenda okkar, sérstaklega þegar við erum að tala við einhverja.

Og ég man að ég las að hún lenti í alls konar ritdeilum við einhverja eldri mannfræðinga sem vildu hafa þetta bara fræðilegt, og að við værum hlutlaus mælitæki, sem við getum ekki verið. En mér finnst hún hafa verið í þessa átt.

Ég held að ég hafi alveg getað tengt við það að sjá þetta sem tækifæri til þess að nota okkar rödd í baráttu og tengja mig við það.

Þó ég hafi gert lokaverkefnið mitt um hagsmunaárekstra umhverfisverndar og verksmiðjureksturs, þá var það hjá Gísla Pálssyni.

Þetta var mjög stórt verkefni. Við fengum að gera sérstaka eigindlega rannsókn, en þetta var mjög viðamikið verkefni. Ég myndi segja að þetta sé það sem kenndi mér mest í náminu, bara að fá að gera rannsókn.

Og líka um svona málefni sem hafði alltaf verið svona deilumál í íslensku samfélagi. Þetta var samt árið 1999, svona áður en öll umhverfismál fóru hérna á flug, þannig að þetta var svolítið áhugavert að koma við þetta þá.

Við fórum í Mývatnssveit og tókum djúp viðtöl við fullt af viðmælendum. Við vorum í vettvangsrannsókn, að fylgjast með fólki. Þetta var bara alvara, sko. Við vorum þarna í eina tvær vikur, bara yfir páska. En þetta kenndi mér rosalega mikið, bara að gera rannsókn frá A til Ö og svo líka heimildaritgerð með, þannig að þetta var mjög skemmtilegt og lærdómsríkt verkefni.

Gísli er frábær að leiðbeina okkur í þessu, að taka einhverja BA-nema að sér í svona mikilli vinnu, sko. Ég veit að þetta er ekki lengur hægt, að ekki bíða á mig, og hvort að eini möguleikinn sé að það megi taka eitthvað eitt eða við til að nota sem eitthvað svona auka til að styðja við eitthvað annað. En þau, já, ég held að kennararnir mæli ekki með því. Nei, þetta er mikil vinna.

Frá verkfræðistofu til Malaví

Þá var ég ekki alveg viss um hvað ég ætti að gera í framhaldinu. Ég vissi að ég ætti að halda áfram í námi, en ekki alveg hvað. En þá fer ég að vinna á verkfræðistofu í tvö ár.

Fyrir mig á þeim tíma var ég á verkfræðistofu, nú er ég bara algjörlega komin út á tún, sko. Ég, mannfræðingurinn, þú veist, og hún ætlar alltaf með spurningar: „Hvað gera mannfræðingar?“ Og: „Hvað ætlar þú að gera?“ Þú ert með vinnumenn sem voru kannski að klára líffræði eitthvað og fóru inn í einhver ákveðin störf og enginn efaðist um það. Þá voru allir við mig, mannfræðinginn: „Hvað ætlarðu að gera?“ Já, ég vann á verkfræðistofu.

Mér fannst þetta svona, já, já, ég hugsaði þetta sem starf.

Þetta var tímabundið starf á meðan ég mundi átta mig á því í hvaða nám ég vildi í framhaldinu, því ég vissi að ég vildi fara út í nám, helst til Bandaríkjanna. Ég var svona að skoða hvað það gæti verið. En í þessari vinnu á verkfræðistofunni átti ég eftir að sjá seinna hvað sú reynsla reyndist mér ótrúlega vel. Þar lærði ég bara mjög mikið. Í fyrsta lagi ætlaði ég að vinna með verkfræðingum sem eru næstum allt öðruvísi en mannfræðingar: að vinna með fólki sem var mjög kassalegt, einn plús einn eru bara tveir, á meðan ég var að hugsa: „Við gætum nú gert þetta svona“ eða „séð svona nýjar leiðir“.

Að ætla stundum að breyta skoðunum verkfræðinga sem höfðu starfað þarna lengi var svolítið erfitt, en það held ég hafi kennt þeim ýmislegt og mér líka. Ég fékk fullt af tækifærum þarna. Ég var aðstoðarmaður yfirverkfræðinga, þannig að ég hélt utan um alls konar verkefni. Svo fór ég í bókhald, lærði bókhald og það hefur heldur betur komið sér vel.

Ég var með alls konar útboðum og þess háttar. Þetta var bara mjög góð reynsla. Þeir voru ánægðir með mannfræðinginn, þannig að ég veit að það voru margir mannfræðingar sem komu eftir mig og voru ráðnir í þetta fyrirtæki.

Það var bara mjög jákvætt. Hún er með útibú í Bologna á Ítalíu og í Kína líka. Ástæðan fyrir vali hennar á skóla var að hann var í fyrsta sæti yfir bestu skóla í ... og mér fannst

Mér fannst spennandi að þegar við værum með útibú á Ítalíu þá fengi ég það besta úr, eins og ég sagði, bæði því semst vera í Evrópu, á Ítalíu, en í bandarísku kerfi. Og það var bara ótrúlega skemmtilegt og frábært nám, og mjög lærdómsríkt.

Ég flutti til Bologna þarna 2002 og var þarna til 2003 og lærði mjög mikið þar. En þú varst fókuseraður á mannréttindi og alþjóðalög og alþjóðasamskipti, þannig að ég var ekki beint svona fókusuð. Ég fór ekki langt niður þetta; þetta var svolítið opið hjá mér af því að ég var ekki ennþá viss hvaða starf ég vildi fara í og vildi ekki þrengja mig einhvern veginn of mikið. En námið gaf mér bara mjög mikið, og ég lærði líka um þróunarmál.

Það var bara að vera í þessum hópi fólks. Þetta voru um 100 nemendur alls staðar úr heiminum og skemmtileg samtöl. Þetta er fólk sem ég er ennþá í sambandi við í dag. Það var líka skemmtilegt að við vorum allavega ekkert margir með mannfræði í grunninn, þannig að ég kom með svolítið öðruvísi grunn kannski en margir aðrir.

Þá er maður svona: „Já, hvað á ég að gera núna?“ En ég enda aftur eiginlega á verkfræðistofunni tímabundið í eitt ár, en fer þá í opinbera stjórnsýslu í Háskólanum með vinnunni. Tók diplóma í því bara til þess að ég ætlaði ekki að missa þennan tíma. En vissi alltaf að mig langaði eitthvað tengt annaðhvort utanríkisþjónustu eða þróunarmálum; ég var alveg komin með það.

Á þessum tíma bauðst starf, til dæmis að fara til Taílands að vinna fyrir UN eitt. Það voru einhver tækifæri þarna, en þetta var allt bara sjálfboðaliðavinna og þú varst jafnvel búinn að vera í dýru námi og áttir þá bara að fljúga út og sjá um uppihald og annað. Það var bara ekki í boði.

En svo þarna um sumarið 2004, þegar ég útskrifaðist með diplómu í opinberri stjórnsýslu, sem var frábært nám líka og gaf mér svona innsýn í opinbera kerfið, þá fékk ég vinnu hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Það var bara sumarstarf, þannig að ég hætti á verkfræðistofunni til þess að fara sem sumarstarfsmaður. Ég var ekkert með neitt vilyrði fyrir neinu meiru.

Ég vildi bara: „Ókei, núna er tækifæri fyrir mig að komast með fótinn inn fyrir dyrnar.“ Þannig að ég var í alls konar verkefnum um sumarið, en var svo beðin um haustið, eða í ágúst, hvort ég væri tilbúin að fara sem fyrsti starfsnemi Þróunarsamvinnustofnunar til Malaví og vera þar í fjóra mánuði. Og ég var heldur betur tilbúin í það. Sú dvöl endaði með því að vera ekki fjórir mánuðir heldur fimm ár í Malaví.

Þar byrjaði ég sem starfsnemi og var svo sérfræðingur og svo verkefnastjóri félagslegra verkefna. Það var mjög lærdómsríkur og spennandi tími. Þarna átti mannfræðimenntunin svo sannarlega eftir að koma sér vel.

Hún hefur svo sem alltaf komið mér vel í öllu sem ég geri. Það er bara að vera þessi manneskja sem er opin fyrir verkefnunum, án fyrirfram mótaðra hugmynda, og skoða hluti frá ólíkum sjónarhornum. Auðvitað getur það stundum verið svolítið erfitt. Stundum hef ég hugsað: „Af hverju þarf ég að vera með allar þessar pælingar? Get ég ekki bara ákveðið að þetta sé svona og tekið ákvörðun?“

Já, nákvæmlega. Við þurfum alltaf að flækja þetta. En þú veist, eins og ég segi, þetta nýttist mér mjög vel í öllu þessu, að koma á stað sem er eitt fátækasta land í heimi. Það gaf mér líka þessa meðvitund um hvaðan ég kæmi, með hvaða gleraugum ég sæi hlutina, og að passa mig á því.

Séð meðvitaður um forréttindi sín og hérna, já, hafa það alltaf í huga. Þannig að já, bara frábært að þú varst í fimm ár þarna og það soldið svona vann sig áfram frá því að vera eitthvað starfsnemi og sérfræðingur og svo í verkefnisstjórastöðu. Þar kom þú slíkum jafnréttismálum inn í, þú veist, þetta voru verkefni sem tengdust líka alltaf með fókus á jafnrétti.

Eins og stjórnvöld vinna, og þar fékk ég líka svona útrás fyrir þeirri ástríðu minni. Hvernig gekk að hérna, að vera ung kona með svona sterkar skoðanir á jafnréttismálum og vera svo að vinna innan svona bandarísins, innan kerfis auðvitað? Eru svona líka á þessum tíma, þá eru hlutirnir svolítið að breytast, áherslur í þróunarsamvinnu, og það er að fjölga konum sem eru að fara á vettvang, og við erum ekki einungis í fiskiverkst...

Það er mjög skemmtilegt, og minna, ef ég á að segja sko, þá er þetta einhver skemmtilegasti tími sem ég hef upplifað, því að þú veist, ég var ekkert eini mannfræðingurinn. Við vorum margir mannfræðingar að vinna bæði fyrir íslensk stjórnvöld og svo fyrir Rauða krossinn. Þarna var ein fyrir Sameinuðu þjóðirnar, þannig að þú veist, samræðurnar sem við áttum frá morgni til kvölds, þú getur ímyndað þér: við vorum öll bara í okkar element, sko, að tala um það sem við höfum passion og ástríðu fyrir, en rökræðurnar...

Hvort sem það var um stjórnmál eða þróunarmál eða hvað sem er. Þetta er kannski svona eini staðurinn sem ég hef upplifað að vera þar sem bara liggur við að mannfræðingar voru í meirihluta, og þú veist, það var mjög sérstakt eftir að hafa verið alltaf samferða ... já, mannfræðingar, við gerum ýmislegt. Og en það ...

Og fara svo í það að vera á vettvangi þar sem er mikið að gerast og mikil aukning og fleira starfsfólk, og stór hluti þeirra eru mannfræðingar, og það var bara ótrúlega skemmtilegt. Engin spurningarmerki, heldur bara, þú veist, vaðið í málefnið. Þetta var mjög skemmtilegt og hérna oft tekist á. Það er annars ekkert mikið um að vera á svona stöðum, en þá höfðum við svo sannarlega gaman af hvort öðru, að hérna ræða málin fram á nætur um hérna, þar sem mannfræðingur var mjög skemmtilegur. Það var hérna, horfa í...

Menningarsjokk og New York

Það var bara frábært, sko. Og hvernig lauk því tímabili? Já, sko, eins og svo var líka sérstakt svona, ég kom þarna út og búin að læra allt, sko, um þetta, um þróunarmál, og hérna, en þegar þú kemur á vettvang, það er svo allt öðruvísi. Þú nærð aldrei heildarmyndinni fyrr en þú ert kominn á vettvang, þannig líka að upplifa það var svona merkilegt.

Bara ég var alltaf einmitt að tala um þetta og hérna út frá því sem ég var búin að læra og kenningum alls konar, en þetta meikar ekkert sens fyrr en þú ert kominn, og þá bara: „Já, nú skil ég. Já, einmitt, þetta er út af ... já, já, nú skil ég tengslin.“ Og þannig að mér finnst það mjög mikilvægt. Og þú veist, ég fékk ekki menningarsjokk að fara út, en ég fékk menningarsjokk að koma heim alltaf.

Þá fannst mér skrýtið að upplifa það að Ísland var líka bara að breytast. Þetta eru á árunum 2004 til 2009, hann ætlaði í einhverri mestu efnahagsuppbyggingu, og ég kom heim og ég þekkti ekki samfélagið mitt. Og allir bara, það voru allir komnir á ameríska pallbíla hérna og svona einhverja stóra dreka, og þetta var eitthvað svo mikið klikk, þannig að þú veist...

Eins og ég fékk alltaf meira menningarsjokk að koma hingað heldur en að fara út, þá var hann bara kominn aftur bara í hérna, já, þar sem fólk er bara að njóta dagsins og auðvitað í fullt af erfiðleikum. En hérna, en samt einhvern veginn var upplifunin á annan hátt. Og hérna, já, þannig að þegar ég kom hingað heim aftur til baka 2009, þá var þannig alltaf mjög...

Þetta var erfiður tími, þannig að ég vissi að ég myndi ekkert fá neitt starf. Það var eiginlega ljóst, þetta var bara samningsbundið. Þannig að ég kem bara heim og ákvað að nýta tímann líka og fer þá í verkefnastjórnun í Endurmenntun og tek það.

Ég er sem sagt bara hér í hálft ár þegar ég fékk svo starf hjá Fastanefnd Íslands til Sameinuðu þjóðanna í New York. Eftir hálft ár hérna heima flyt ég til New York. Þetta var svolítið svona að flytja sveitastelpuna í stórborgina, því ég fékk líka menningarsjokk að flytja þangað. Það var rosaleg breyting frá því að vera í Malaví.

Það var svona um það að Malaví hafði verið svo mikið samneyti við fólk og bara skemmtilegt fólk, og við þurftum að skapa okkur eigin tengsl og tengingar. Á meðan þú kemur svo til New York og þar hefurðu allt sem þig gæti dreymt um, og mig kannski hafði dreymt um, þú veist, á meðan ég var úti bara að það væri gaman í New York og hægt að gera allt. En svo kemurðu þangað og þá einhvern veginn gleypir borgin þig og þú ert að vinna svo mikið að þú hefur ekki tíma til að sinna því.

Það eru langir vinnudagar frá morgni til kvölds, og þá um helgar ertu bara að fara á þvottahús og þvo þvottinn og kaupa matinn. Þannig að það er lítill tími, en allt annar rytmi, þó maður hafi unnið mikið í Malaví. Það er öðruvísi, sko, einhvern veginn þarna í stórborg og allt á fullu, samningaviðræður oft fram á nætur. En þetta var nú samt bara magnað, bara magnað að vera í New York.

Og starfa þarna hjá Fastanefndinni og vera sem sagt að taka þátt í því að tala fyrir þeim málaflokki sem ég samsama mig hvað mest við. Ég var sem sagt þá, mínar áherslur voru að halda utan um þróunarmálin og mannréttindamálin og jafnréttismálin. Þarna er varla fámennt hjá Fastanefndinni, eins og Ísland er með mörg verkefni, en þetta var allt svo spennandi og ég tók þetta allt inn.

Nú veit ég ekki, svona starf, ég vil það fyrir mér hvernig þetta er í samanburði við, eins og þú sagðir áður, þegar þú ert í Malaví, til dæmis, mætir fólki þar sem það er og sér hlutina frá ýmsum áttum, sér til spors annarra. Varstu að gera eitthvað svona þarna í New York?

Einmitt, þú ert að segja að alþjóðastarf er nákvæmlega svona, og þetta er það sem þú ert að gera alltaf: að reyna að fá fólk með þér og mynda bandalög. Þegar fólk talar um: „Já, það eru allir þessir diplómatar alltaf í einhverjum móttökum.“ Móttökurnar eru til þess að mynda netverk. Þú þarft alltaf að vera með puttann á púlsinum: hvernig tryggjum við það að Ísland myndi sér bandalög, og þú veist, að við getum leitað til fólks og annarra landa?

Það skiptir bara gríðarlega miklu máli. Þarna gat ég kannski nýtt mín tengsl við þróunarlönd, þegar það er ekkert gott að við séum alltaf að tala saman bara sem Vesturlönd og svo Afríkuríki. Hvernig getum við blandað hópnum saman þannig að við séum að blanda saman norðri og suðri? Við þurfum að horfa til margbreytileika, sem við vorum alltaf að tala um í dag.

Þetta er bara það sem diplómatar gera: að hugsa um hag Íslands og hvernig við myndum bandalög með öðrum þjóðum. Sameinuðu þjóðirnar eru svo sannarlega eini vettvangurinn þar sem þetta er gert, þar sem við tölum saman og reynum að komast að einhverri sameiginlegri niðurstöðu, þó það sé oft erfitt. Mér finnst það svo mikilvægt, og þetta er bara það sem maður er alltaf að gera: að hitta fólk á fundum, hvort sem það voru Norðurlöndin, önnur ríki eða þróunarríki.

Í samningaviðræðum þarftu að hafa bandamenn með þér: „Eruð þið tilbúin að taka þetta? Þá kannski getum við sett þetta saman að sameiginlegum lausnum.“ Ég held að það hafi aldrei verið jafn mikilvægt og akkúrat í dag, bara miðað við hvernig heimsmyndin er í dag. Það skiptir gríðarlega miklu máli. Þannig að þetta er stór hluti starfsins og hann er mjög skemmtilegur ef fólk hefur gaman af fólki og kynnist nýju fólki.

Og læra nýtt og vera forvitin. Og þú veist, eins og margir segja, Bandaríkjamenn eru alltaf í einhverju „small talk“. Maður þarf að vera svolítið þannig til þess að hafa gaman af því, til þess að mynda þessar brýr á milli, þú veist. Það er fleira sem tengir okkur en hitt og við þurfum að finna það og vinna með það.

Þarna ertu bara komin inn á þetta grunnaðatriði í mannfræði, þú veist, hvað er sameiginlegt með okkur og hvað ekki. Þannig að mér verður þetta alltaf ljósara og ljósara, þú veist, bara hvað starf mitt er mikið þessu tengt og hefur verið.

New Orleans og kynþáttaaðskilnaður

Já, það er bara þannig. Maður er nefnilega að fara að hugsa þetta stundum; keyrir maður bara áfram og spáir ekki í þetta. En já, það er bara þannig. Já, svo hérna var ég þarna í tvö ár og þarna var ég nú orðin gift. Maðurinn minn fékk starf í New Orleans. Hann er háskólakennari í frönskum bókmenntum, þannig að við fluttum til New Orleans.

Og vorum þar í sex ár. Þá þurfti ég svona að endurskapa mig, því að það var ekkert auðvelt að fá starf þar. Þannig að ég var svona ráðgjafi í þróunarmálum og tók að mér ýmis verkefni þar, en það var ekki alveg nóg. Þannig að ég fór líka í það að flytja út íslenskt salt til Bandaríkjanna. Þannig breyttum við svolítið um kúrs, sko.

Hérna, það var bara mjög skemmtilegt og það er líka að mynda þessar brýr og vera sölumaður líka og markaðssetja. Þú ert þar alltaf að mynda bandalög. Þú getur ekki verið án þessa salts, þið þurfið bara að kaupa það, þú veist. Þannig að ég var í því og það var bara mjög áhugavert. Ég eignaðist líka börnin mín tvö þarna.

Þannig að það fór líka tími í það. Þetta var bara mjög skemmtilegur tími. En þegar ég hugsa til baka þá hef ég oftast búið á svona stöðum sem eru kannski oft efnaminni. Bólonía á Ítalíu, þú veist. Mamma talar oft um Ítalíu sem þróunarland, svona miðað við margt og margt, þó að maður vilji ekki nota það orð, þróunarland.

En það er bara oft aftarlega á mér þegar við berum það saman við okkur. Malaví og New Orleans, það er bara mjög mikil fátækt þar. Og upplifði þessa mismunun þar þegar ég bjó þarna. Ég varð mjög þung, þú veist, alltaf að spá í hlutina. Og hafði nægan aðgang þarna að Tulane-háskóla, Tulane University, sem er mjög framarlega einmitt í mannfræði líka og þróunarmálum, með góða deild þar. Þau voru að fá alls konar kennara og aðra til að koma á námskeið.

Þannig að ég fór mjög mikið að skoða kynþáttaaðskilnaðinn og sögu hans, í samhengi við þennan stað. Mér fannst það mjög áhugavert að vera svona í hringiðunni. Það voru líka á þessum tíma kosningarnar milli Hillary og Trump. Það var árið 2016 og mikið að gerast á þessum tíma.

Ég fór að lesa mjög mikið um það. Þú veist, þetta var eins og þegar ég bjó í Malaví, þá sökkti ég mér ofan í allt sem kom við sögu Afríku og sá af hverju hlutirnir eru eins þarna. Og það hafði líka nokkuð gerst þegar ég var í Sameinuðu þjóðunum, vekið áhuga minn á stöðu Bandaríkjanna. Þú veist, hvar standa þau? Þessi mikla fátækt og hátt hlutfall ungra kvenna sem deyja vegna ólöglegra fóstureyðinga, sem nú er búið að banna.

Þá sérstaklega svartar konur í New Orleans. Staða þeirra — þetta var rosalega margt sem ég fór að spá í þarna. Þannig að það var líka mjög áhugavert að skoða þessa sögu.

Ég starfaði í sex ár.

Já, eftir það, árið 2017, sótti ég um þessa stöðu hérna sem framkvæmdastýra UN Women á Íslandi og fékk hana.

Þannig að við fluttum heim sumarið 2017, fyrir rúmum fimm árum síðan, og síðan þá hef ég verið hér.

Það er Ingadóra sem ég tek við af.

Það eru ekki mörg störf á Íslandi sem eru svona akkúrat spesifísk ef þú hefur áhuga á jafnréttismálum og þróunarmálum og svona, já.

Hvernig líkaðist þetta? Hvernig byrjaði þetta? Þetta byrjaði þannig að ég sökkti mér ofan í allt þetta.

UN Women og jafnréttisbarátta

En ég var auðvitað svo heppin að þegar ég starfaði hjá fastanefndinni í New York þá var verið að stofna UN Women, þannig að ég var að taka þátt fyrir Íslands hönd.

Í samningaviðræðum um stofnun nýju stofnunarinnar, sem var mjög eldfim umræða. Allt sem viðkemur konum og jafnrétti er ekki auðvelt til umræðu í Sameinuðu þjóðunum. Það eru mörg aðildarríki sem vinna gegn jafnréttismálum og vilja ekkert með konur upp á dekk.

Þannig að það var mjög áhugavert að sjá það bara svart á hvítu. Þá var einmitt mjög mikilvægt að vera búin að binda sig bandalög til þess að ná því fram að þessi stofnun yrði að raunveruleika.

Hún varð að raunveruleika árið 2010, en eins og staðan er í dag, ef það ætti að stofna UN Women í dag, þá myndi hún ekki fá brautargengi. Bakslagið í jafnréttismálum er mikið; þetta var nógu erfitt þá.

Hún myndi ekki komast á koppinn í dag. Þannig er bara staðan. En þegar ég byrjaði þarna árið 2012, þá var hún komin að því að stækka UN Women og gera okkur meira gildandi í íslensku samfélagi og vekja meiri athygli á jafnréttismálum, og þá sérstaklega stöðu kvenna

í þróunarlöndum og í neyð. Það er okkar aðalfókus að vera talskona þeirra og vekja athygli á því, því það er ekki oft sem við tölum um þessi mál, um stöðu í þróunarlöndum.

Við erum meira að huga að því sem gerist hér hjá okkur, en okkur ber líka skylda sem þjóð, sem er framarlega í jafnréttismálum, að hafa áhrif út á við.

Þannig að við erum að reyna að þrýsta á það að auka framlög til jafnréttismála í þróunarmálum og neyð. Stjórnvöld hafa auðvitað staðið sig mjög vel í að styðja verkefni tengd jafnréttismálum og okkar stofnun.

Þetta er áherslustofnun íslenskra stjórnvalda sem við erum mjög stolt af, og gott samstarf. Þannig að þetta eru næstum því bara forréttindi að fá að starfa við það sem mér finnst auðvitað ekki vera starf, því þetta er svo mikil ástríða, áhugamál og allt þannig.

Að mæta í vinnu og finnast alltaf gaman, með frábæru starfsfólki sem leggur sig allt fram við að verkefni verði að veruleika, oft með litla fjármuni til þess að láta þau verða að veruleika, en alltaf með fullt af hugmyndum og tækifærum. Við finnum velvilja í garð Íslendinga.

Og já, það eru bara ótrúleg forréttindi. Stundum getur maður verið þannig að þetta er svo mikil ástríða að maður losnar aldrei úr vinnunni. Ég er innan tuttugu og fjögurra tíma sólarhringsins og líka, þegar mikið er rætt um jafnréttismál á Íslandi, þarf maður alltaf að hugsa og fylgjast með: Hver er umræðan? Hvað er að gerast? Ég sé svo mörg tækifæri, mig vantar fjármuni til að láta þau verða að veruleika.

Að láta allar hugmyndir verða að veruleika. Þannig að þú veist, þetta er líka mikil barátta. Allt sem við gerum er barátta fyrir fjármagni, fyrir málefninu, þannig að stundum getur það líka verið lýjandi.

Þótt þetta sé mín ástríða og annað, þá tekur það líka toll.

Nú heyrir maður í umræðunni að rosalega mikið af fólki hafi ástríðu fyrir vinnu sinni, sem er gæsluglas á vegg.

Já, maður þarf að passa sig á því að setja sér einhverjar varnir, en það er oft erfitt ef maður brennur fyrir efninu og vill gera meira.

Við erum auðvitað mjög stolt af því hvernig hefur gengið. Við höfum í sex ár í röð verið með hæsta fjárframlag allra landsnefnda á heimsvísu, og það er ekki miðað við höfðatölu, það er bara í rauntölum. Árið 2021 vorum við í þriðja sæti yfir hæstu framlög frá frjálsum félagasamtökum, stofnunum og fyrirtækjum. Við erum rétt á eftir Bill & Melinda Gates Foundation, sem er frábært, en segir líka ákveðna sögu um hvað við erum lítil og hvað fjármunirnir í þessu eru litlir.

Bandalög og gagnsemi mannfræðinnar

Einmitt. Hanna, er þetta þá svona þema svolítið í gegnum þína starfsævi, að mynda bandalög?

Já, veistu, ég held það. Ég held það skipti rosalega miklu máli. Þegar maður horfir á þetta svona, þá er það það sem skiptir máli í lífinu: að hafa net í kringum sig. Við getum ekkert ein. Það virkar ekki að vera einn í einhverri baráttu. Þó hefur maður fólkið með sér og ólíka hópa, sem breiðasta fylkingu, hvaðan sem hún kemur. Það skiptir öllu máli. Þá gerast hlutirnir, að tengja fólk saman. Það er bara mjög mikilvægt.

Ekki spurning. Mannfræðin hefur nýst mér óendanlega vel í mínu starfi og námi og öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Ég hef oft hugsað til þess að þótt ég hafi oft efast í upphafi, þegar allir voru að spyrja mann að því hvað maður ætlaði að gera sem mannfræðingur og hvað mannfræðingar gerðu, þá hef ég líka fengið að heyra: „Ég vildi að ég hefði gert eitthvað eins og þú. Ég vildi að ég hefði þorað að gera eitthvað svona.“ Ég vissi ekki alveg hvert mig langaði, en ekki alveg hvað það héti. Þetta er ekki eitthvað eitt fag. Þegar maður er ekki með eitthvað svona á bak við sig — verkfræðingur, lögfræðingur, læknir — þessi heiti, heldur getur skapað þetta svolítið sjálfur, þá þarf maður að vera sniðugur. Ég held að maður fái svo miklu meira út úr því.

Ég er bara að púsla saman minni menntun úr ólíkum áttum, en allt tengt því sem ég hef áhuga á. Það hefur gefið mér svo rosalega góða innsýn inn í ólíka hluti sem allir hafa nýst mér í mínum störfum. Bókhaldið lærði ég á verkfræðistofunni. Hagfræði var auðvitað hluti af námi mínu, alþjóðamál og hagfræði. Núna í mínu starfi þarf ég að hugsa um fjármál. Ég þarf að geta skilið bókhald. Það skipti miklu máli þegar ég var að gera útboðsgögn á verkfræðistofunni. Ég var að byggja barnaskóla og bjóða út byggingu skóla. Ég þurfti að skilja hvað væri að gerast. Þá var ég búin að gera þetta allt annað.

Maður á heldur ekki að dæma sig of hart þótt það komi ekki strax. Það er engin reynsla vond reynsla. Hún bara stækkar þig, þó að maður sjái það ekki akkúrat þá. Maður á bara að gleyma því ekki að hún bætir í bunkann okkar af því sem við höfum lært og nýtist okkur. Það er öll mín reynsla, ekkert af því sem ég hef gert.

Þú veist, að það hefur allt nýst mér, allt þetta sem ég hef lært. Og hérna, ég held að það skipti bara miklu máli að hugsa um það þannig, og sérstaklega fyrir okkur sem erum að fara svona óhefðbundnar leiðir.

Og hérna, erum ekki með fyrirfram skráðan titil beinan. Þú veist, að þú getur farið margar áttir. Að hugsa það svolítið þannig og vera bara svona örugg í sínu, að jú, þetta skilar okkur þangað sem við förum ef við bara erum hörð á því og vitum hvert við viljum fara.

Auðvitað skiptir þetta máli. Ég er ekkert að velta fyrir mér með þetta svona hagnýtagildi mannfræðinámsins, sem er svona kannski ekki augljóst í upphafi fólki utan við, sko, og finnst bara, já, sjá kannski ekki mikla hagnýtingu. En nú er ég, þegar ég spjalla við mannfræðinga í alls konar störfum, mér finnst ég alltaf heyra lýsingar við hvað þetta sé hagnýtt, námið, þjálfunin, svo reynslan á vettvangi og störfunum eftir það hefur nýst svo vel í störfum og undirbúningur fyrir seinni störf.

Þannig að hérna, einn viðmælandi nokkrum vikum síðan, Pétur Valdór, hann talaði um að sko, jú, mannfræðin er víð, en hvað það er mikill kostur að geta fært henni vítt og nota það til þess að búa til starfsferil út frá áhugasviði, einmitt að þrengja sig einmitt svolítið niður á það sem maður tengir við mann. En hérna, já, ég held bara þú ert, og þessi faglegu góðu vinnubrögð sem eru kennd, ég meina, þetta bara skiptir miklu máli.

Já, siðfræðin og aðferðafræði, og að fara í frumheimildir, og þú veist, allt þetta, öll þessi vinnubrögð, algjörlega. Og það er mikið sem við skrifuðum, og það er eitthvað sem var alltaf að gera trúð því að skipta miklu máli, að kunna að senda frá sér texta. Þó manni sé ekki ætlað að skrifa einhverjar rosa ritrýndar heimildir, þá þarf maður að vera með eða kunna handtökin. Og ég held klárlega að mannfræðin hafi hjálpað mér þar.

Þannig að hérna, hvers vegna þú vaknar á morgnana og ferð glöð í vinnuna. Já, þannig að maður getur gjarnan verið þakklátur fyrir það. Ég veit svo í því, hérna, ég er bara að fræðast heilmikið um störf þín og reynslu þína.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við að lokum? Ekkert sem ég man eftir, sko.

Sameinuðu þjóðirnar, Bandaríkin og svo júlík lemingar. Já, vel sumrað upp bara.

Já, heyrðu, bara takk kærlega fyrir að koma í hljóðleitið. Takk fyrir að fá mig, gaman að koma til þín.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar