Á vettvangi

Spritt­gát á göng­unum

Stundum þarf starfsfólk bráðamóttökunnar að fjarlægja sprittbrúsa af göngum bráðamóttökunnar svo sjúklingar komist ekki í alkóhólið. Oft eru vandamál við komu þessara sjúklinga - andleg vanlíðan. Í þættinum er kafað ofan í erfið tilfelli sem tengjast andlegri vanlíðan og alvarlegum afleiðingum áfengisdrykkju og vímuefnaneyslu. Þá koma fram ráð til fólks sem líður illa og hvað við sem samfélag getum gert til að hjálpa þeim. Í lok þáttarins fáum við fréttir um líðan móður þáttastjórnanda. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
Hlustaðu · brot1:06:56 ·
· Umsjón: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Handrit

7.362 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Sykurbrúðkaup og kynning

Þegar einhver elskar einhvern í sex ár heitir það sykurbrúðkaup. Ég veit þessa hluti. Ánægðustu viðskiptavinirnir sjötta árið í röð eru hjá Hringdu.

Hér heyrðum við bráðaliða á vettvangi sjálfsvígs ræða við vakthafandi sérfræðing á bráðamóttökunni um hvort hann sé sammála því að hætta endurlífgun. Þetta er ískaldur raunveruleikinn og í þessum þætti fjöllum við um dökka hlið mannlífsins sem við viljum sjaldnast vita af en er svo sannarlega sýnileg á bráðamóttökunni. Við fáum ráð um hvað við getum gert til að aðstoða fólk sem líður illa og við heyrum ráð fyrir fólkið þarna úti sem líður illa og á við andlega vanlíðan að stríða. Bráðamóttakan er svarið.

Þetta er heimilisábyrgði lagað með belti. Mikill leikari kom til hennar eftir nóvember.

Mikil vanlíðan og mikil drykkja sem sjálfsaukshótel.

Efnið í þessum þætti gæti vakið upp erfiða reynslu eða krefjandi tilfinningar og þá skiptir máli að ræða við einhvern sem þú treystir. Gott er að muna að hjálparsími Rauða krossins, 1717, er alltaf opinn, eða netspjallið 1717.is.

Ég heiti Jóhannes Kr. Kristjánsson og þetta er þátturinn Á vettvangi, sem er unninn í samstarfi við Heimildina.

Sigrún og endurlífgunin

Ég ætla að byrja á að fara með ykkur til baka á eina af fyrstu vöktunum sem ég var við upptökur á bráðamóttökunni, þegar þessi melding barst frá sjúkrabíl.

Sjúklingurinn var ung kona og mér varð hugsað til dóttur minnar, Sigrúnar Mjallar, sem lést fyrir tæpum 15 árum vegna inntöku morfíns. Það var eins og ég væri kýldur í magann þegar ég var inn á neyðarstæði með teyminu sem tók á móti sjúklingnum og sá í hversu slæmu ástandi sjúklingurinn var. Hún var meðvitundarlaus og ástandið alvarlegt. Ég óttaðist að sjúklingurinn myndi deyja og varð hræddur. Ég hugsaði mikið til skýrslu sjúkraflutningamannanna, sem reyndu endurlífgun fyrir tæpum 15 árum.

Þá voru þrír sjúkrabílar sendir á staðinn og sex sjúkraflutningamenn reyndu endurlífgun á staðnum. Í frumskýrslu lögreglunnar segir að lögreglumenn á vettvangi hafi aðstoðað sjúkraflutningamenn við endurlífgunina. Endurlífgun á vettvangi stóð í um 40 mínútur áður en Sigrún var flutt á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Skömmu eftir komuna á bráðamóttökuna var Sigrún úrskurðuð látin.

Að sögn sjúkraflutningamanna á vettvangi sýndi Sigrún aldrei nein lífsmörk. Í skýrslu sjúkraflutningamannanna kemur fram að Sigrún hafi verið flutt á hjartagátt Landspítalans við Hringbraut en ekki á bráðamóttökuna í Fossvogi. Það staðfestir enn frekar fyrir mér hversu rannsókn lögreglu á andláti Sissu minnar var ábótavant, enda gagnrýndi ég hana harðlega á sínum tíma. Ég þurfti sjálfur að rannsaka andlát hennar og sendi niðurstöður mínar til ríkissaksóknara, sem fyrirskipaði lögreglu að rannsaka andlátið aftur.

Niðurstaða saksóknara eftir síðari rannsóknina varð sú að ekki yrði ákært í málinu, þar sem líkur á sakfellingu væru minni en meiri. Ég var ekki sáttur við þá niðurstöðu en varð að sættast við hana til að geta haldið lífinu áfram. Ég hafði reynt allt sem í mínu valdi stóð og nú var ég staddur á neyðarstæði A, þar sem ung kona var meðvitundarlaus og hætt komin vegna ofneyslu fíkniefna. Hjartað hamaðist í brjósti mér því ég óttaðist svo mikið að hún myndi deyja.

Það leit ekki út fyrir að endurlífgunartilraunir hefðu verið reyndar fyrir komu sjúkraflutningamanna. Það stóð í skýrslu sjúkraflutningamannanna um endurlífgunartilraunirnar á Sigrúnu Mjöll, enda var ástand mannsins, sem ég tel að hafi sprautað dóttur mína með morfíni, þannig að hann gat enga aðstoð veitt. Það heyrðist greinilega í símtalinu við Neyðarlínuna, sem kom fram í Kastljósi árið 2011.

Eftir veru mína á bráðamóttökunni, þar sem ég hef verið viðstaddur fjölmargar endurlífgunartilraunir sem sumar hafa tekist, flögraði ósjálfrátt sú hugsun í huga mér hvort hægt hefði verið að bjarga henni í dag, til dæmis með naloxóni. Og hvort fólkið sem var á staðnum þegar hún hætti að anda hefði getað hafið hjartahnoð strax. Við þessum spurningum fæ ég aldrei svar. Ég veit hins vegar að þegar ég fjallaði um aukna neyslu morfíns í fréttaskýringarþættinum Kompási fyrir tæpum tuttugu árum voru þrír til fimm að deyja á ári vegna ofneyslu morfíns.

Sigrún mín lést árið 2010 og Sigmar Guðmundsson, þáverandi ritstjóri Kastljóss, fjallaði um andlát Sissu og endaði þá umfjöllun á þessum orðum: „Sigrún lést af völdum of stórs skammts af morfíni, sennilegast á milli klukkan átta og níu um morguninn. Bráðaliðar reyndu endurlífgun í rúmar 40 mínútur á staðnum og tilraunum til endurlífgunar var haldið áfram á Landspítala Háskóla Íslands.“

Þegar ég sá að unga konan, sem var á neyðarstæði A, myndi lifa fór ég inn á salerni starfsfólksins og grét, því ég var svo þakklátur fyrir að unga konan myndi lifa. En ég var líka svo reiður yfir því að ekki hafði verið hægt að bjarga litlu stelpunni.

Þegar ég jafnaði mig fór ég fram og þá var búið að fara. Hún var aðeins byrjuð að vakna, aðeins að koma til. Unga konan var útskrifuð daginn eftir, en þessi upplifun mun alltaf sitja í mér. Þegar ég horfi í áttina að neyðarstæði A hugsa ég um ungu konuna og Sissu mína. Þá tengingu verður ekki hægt að rjúfa.

Heimilisofbeldi á bráðamóttöku

En hér er annað erfitt mál sem tengist ungri konu sem kom á bráðamóttökuna vegna heimilisofbeldis. Hér er Hrafnhildur hjúkrunarfræðingur, sem sinnti sjúklingnum: „Nær að koma konunni hérna inn í fyrsta skipti, leita til okkar, sem er bara í rosalega mikilli krísu. Og svo bara kemur í ljós í samtali við hana: Þetta er bara stelpa sem er verið að beita andlegu, fjárhagslegu, kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi.“

„Og hún er ofboðslega mikið hrædd við að vera hérna hjá okkur. Hún langar að fara, en það er raunverulega lítið sem við getum gert til þess að halda henni hérna. En hún er samt alveg að gera rétt. Við erum búin að vera að reyna að segja henni að þegar hún er örugg hér hjá okkur, þá er þetta rétti staðurinn sem einstaklingar eins og hún eiga að koma til, því við getum hjálpað með alla þessa hluti og okkur langar svo mikið til þess að hjálpa þessu fólki.“

„Ég vona svo innilega að hún geti fundið þetta traust til þess að vera hérna hjá okkur og leyfa okkur að hjálpa sér.“ „Já, maður ætlar að gera það, að sjálfsögðu. Þetta er náttúrlega bara líf sem maður er síðan að fara hérna út fyrir veggi spítalans, og við vitum ekkert í rauninni hvað tekur við þar.“

„Áhættan með ungar konur í þessari stöðu er í rauninni sú að þegar þær fara inn á spítala þá eru þær í rauninni að setja sig í meiri hættu, því oft er ofbeldismaðurinn virkilega á móti því að þær leiti sér hjálpar og láti einhvern vita af því sem er að koma fyrir þær.“

„Ég er ansi hrædd um að hún vilji vera, en hún getur það ekki vegna þess að hún veit að ef hún fer út eða kemur ekki út, þá mun hún lenda í einhverju hrikalegu. Hún skelfur inni á herberginu sem hún er í, er stressuð, alltaf að kíkja á símann og út um gluggana. Þetta eru allt merki um að hún sé ekki að fara af því að hún vilji ekki vera hérna. Hún er að fara af því að henni finnst hún þurfa að fara, því það er eitthvað hræðilegt að fara að koma fyrir hana.“

„Þetta hlýtur að vera erfitt, að vera svona. Þú ert einhvern veginn hjálparlaus, af því að ég sé bara að þetta tekur á þig að vera í svona málum.“ „Auðvitað tekur þetta alltaf á mann þegar maður reynir að mynda þetta meðferðarsamband sem við eigum við fólk hérna inni. Og ekki bara við þessa einstaklinga, heldur alla sjúklinga sem koma inn. Það er verið að mynda meðferðarsamband þar sem þau treysta manni og vita að þau geta leitað til manns.“

„Auðvitað taka svona mál alltaf meira á mann þegar manneskjan er undir gríðarlegu álagi, búin að vera að ganga í gegnum ótrúlega mikið af erfiðum hlutum. Maður reynir einhvern veginn að gefa 110 prósent alltaf.“

Þórður, sérnámslæknir í bráðalækningum, er á vaktinni og sinnir konunni með Hrafnhildi. „Daman sem Hrafnhildur var að tala við, hún er staðráðin í því að fara núna. Það er engin læknisfræðileg ástæða til þess að við getum haldið henni hérna gegn hennar vilja. Ég ætla að reyna að tala hana til og fá hana til þess að vera hérna í hálftíma jafnvel, að minnsta kosti, til viðbótar.“

„Við vorum einmitt að tala um hvað þetta væri erfitt, hvað þetta tekur á Hrafnhildi. Finnst þér þetta erfitt líka?“ „Maður vill hjálpa henni. Það er vont og erfitt að hún vill ekki þiggja þessa hjálp, mögulega eða líklegast af ótta við einstaklinginn sem er að gera þetta. Ég var nefnilega með kynferðisbrotadeildinni í þrjá mánuði og er bundin þagnarskyldu þar, sem ég verð uppvís að hér og líka þar. En sögurnar sem ég heyrði um heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum í viðkvæmri stöðu, það er bara það hræðilegasta sem ég hef heyrt. Og ég er ein ekki svona tilbúin að hlaupa núna og passa umhverfið.“

Hér er Þórður aftur stuttu síðar: „Ég fór að tala við dömuna sem við ræddum um áðan. Það tókst að tala hana til. Hún ætlar að vera hérna aðeins lengur, bíða.“

Eftir að fá svörin úr blóðprufunum. Og hérna, ég er mjög glaður, því að feginn því. Er þetta eitthvað mál sem þú tekur með þér úr vinnunni eftir vaktina? Þetta er fyrsta svona málið mitt, þannig að ég reikna fastlega með því.

Hér kemur melding frá sjúkrabíl sem berst í gegnum talstöðina.

Heimilisofbeldismál eru erfið mál og taka á alla sem koma að málum. Hér eru sjúkraflutningamennirnir sem komu með ungu konuna og syni hennar á bráðamóttökuna. Farið þið oft í svona mál? Já, þetta kemur mikið undanfarið, en þetta kemur alveg fyrir, já, því miður.

Hvernig er það sem manneskja? Er ekki erfitt að fara inn í þessar kringumstæður og upplifa svona? Mér finnst alveg ömurlegt, sko. Þú myndir ræða á leiðinni í þetta útkall, sko? Aldur, kyn, svona, já, þetta er svo. Og það eru böllarnir í spilinu. Og auðvitað er spurning bara, sem þú ert nú stór og stæðilegur, er ekkert erfitt að vera bara, eins og þið eigið alltaf að vera, bara svona rólegir?

Vala hjúkrunarfræðingur er vaktstjóri. Vala, ég var að tala við sjúkraflutningamennina sem fóru í þetta heimilisofbeldismál. Auðvitað finnst mér þetta persónulega svo ljót mál og bara stöðugt óhugnanleg. En hvernig takið þið á þessu hérna og hvernig líður þér bara sem manneskju?

Ég fæ sting hérna. Þetta er ofboðslega erfitt að horfa upp á svona hluti, sérstaklega þegar það eru börn undir lögaldri sem tengjast málinu. Það er svolítið óvanalegt að við fáum þau hingað með brotaþola, en við þurfum bara að veita þeim gott utanumhald.

Við erum með gott prótókoll og ég er mjög fegin að þetta gerðist fyrir miðnætti, á meðan bakvakt félagsráðgjafans er ennþá í liði. Viðbragðið er gott, lögreglan er komin, félagsráðgjafi á leiðinni og það er bara vel haldið utan um brotaþola og barnaverndaryfirvöld. Þetta snýst alltaf allt um að tryggja hennar öryggi og veita henni andlegan stuðning. Gera líkast mat, þetta er bara mikið áfall.

Ráðast á þennan herbergi og ætla að geta henni ekki gert eitthvað svona akút gagn í raun og veru? Og þetta er líka svolítið erfitt að takast á við ofbeldismál hér inni á bráðamóttökunni. Og hér er önnur melding.

Hér er sjúkraflutningamaðurinn sem kom með sjúklinginn á bráðamóttökuna. Við komum mjög oft að heimilisofbeldismálum, og það getur allt verið frá því að við erum kallaðir út af heimilisofbeldi, eða þá einhverjir skrýtnir áverkar, eða það næst ekki á einhverri konu eða hún sendir einhverri vinkonu sinni einhver skilaboð, eða maður þannig að við komumst að því.

Er það þannig stundum, eða kemur það fyrir að þið finnið alveg að manneskjan vill losna úr aðstæðunum og þetta er kannski leiðin út af heimilinu, að kalla á ykkur? Já, en svo eru líka margir sem eru bara fastir í þessum aðstæðum og eru svo meðvirkir sjálfir að þau vilja ekki kannski, það er skömm eða eitthvað, þau vilja ekki komast upp um þetta. En við lendum líka í málinu í húsum þar sem fólk vill bara komast í burtu úr aðstæðunum og bendir á það strax og við komum, að þau vilja komast í burtu.

Já. Sem manneskja, langar þig ekki að grípa manneskjuna, þessa konu sem er þarna, og taka hana með þér? Algjörlega. Var maður líka oft reiður við hinn aðilann, en það má ekki sýna það, maður verður að vera faglegur. En það eru margir sem eru ekki góðir einstaklingar.

En nú erum við stödd hérna á bráðamóttökunni og þú varst að koma með þolanda í heimilisofbeldismáli.

Þeir enda iðulega hér. Bæði eru það rannsóknarhagsmunir, því þeir vilja fá að vita héðan og vilja fá uppáskrifað frá lækni, áverkavottorð og fleira. Þannig að þeir lenda flestir alltaf hér, annaðhvort koma með okkur eða þannig, og sumir koma bara beint með lögreglunni áður en við komum að.

Stuðningur við þolendur ofbeldis

Þessi sjúklingur sem þú varst að koma með núna, var hún með mikla áverka? Hún var sem sagt með áverka sem hún hafði fengið undanfarna daga eftir mann sinn. Jóhanna er félagsráðgjafi á bráðamóttökunni og hefur komið að fjölmörgum heimilisofbeldismálum. Þegar það kemur hérna þolandi heimilisofbeldis án ákvörðunar lögreglu eða sjúkrabíls, hvað gerir þú þá?

Þegar við erum kölluð til, eða félagsráðgjafarnir hér eru kallaðir til, þá förum við og ræðum við þolandann, tökum sögu. Svo fer allt eftir áverkanum, við skoðum það. Fyrst þegar við tökum söguna, þá könnum við öryggi. Þegar við förum svo á spítalanum gerum við öryggisplan. Við bjóðum alltaf viðtöl hérna á áfallateyminu hjá okkur, komum konunni þangað og reynum bara svona að tryggja öryggið á spítalanum.

Svo fylgjum við málunum eftir þegar viðkomandi útskrifast af spítalanum. Þá veitum við eftirfylgni í formi símtala og bara eins lengi og þú þarft, raunverulega þangað til að nærþjónustan hefur gripið utan um þig.

Þetta eru bæði mjög viðkvæm, flókin og erfið mál. En hvernig er þín reynsla? Erum við að standa okkur vel í þessum málum í dag?

Já, mér finnst líka bara svona reynslan, þetta verklega, alltaf vera að þróast. Það þarf að bæta. Við erum aldrei yfir gagnrýni hafin, þannig að við þurfum alltaf gagnrýni til þess að laga og breyta. Heilt yfir hefur þetta reynst vel. Við fáum gott feedback frá þolendum. Við höfum fengið feedback frá þolendum sem hafa komið áður á bráðamóttöku eða leitað á heilsugæslustofnanir hérna áður fyrr, þannig að við erum alveg að sjá að við erum að gera eitthvað vel. Við megum alltaf gera betur.

Getum við sem samfélag, þá er ég ekki að tala um kerfin eða einhverjar stofnanir, heldur bara við sem einstaklingar, hvað getum við gert í þessum málum til þess að bæta þetta?

Tölum við um ofbeldi, tölum um spurningarnar. Þú þarft að gera það á varfærinn og nærgætinn hátt, en það skiptir máli að nota bara orðið ofbeldi ef við sjáum merki eða eitthvað slíkt. Þá reynum við, eins og við getum, að nálgast viðkomandi þannig að við fælum hann ekki frá eða hann loki ekki á og segi ekki neinum. En við megum alveg tala um ofbeldi. Þetta er ekki skömm, þú veist. Það er ekkert skömm að tala um heimilisofbeldi.

Það er ekkert skömm að tala um einstaklinga sem beita ofbeldi. Ef við sem samfélag þurfum hins vegar að fara að beina sjónum meira að gerendunum, hvað getum við þá öll gert? Þolendur fá ókeypis þjónustu, og til þess að uppræta ofbeldi þá þurfum við að einbeita okkur að rótinni. Geturðu lýst þessum heimi sem þú færð einu sinni í þessum málaflokki? Þú getur ekki farið í einstök mál.

Já, sko, það sem er, er að heimurinn er svartur og hann er kannski svartari en margir halda. Það eru mjög ljót ofbeldismál úti í samfélaginu og við erum alveg með gerendur sem eru þekktir og eru ítrekað að beita ofbeldi.

… gegn bara mismunandi … vandræðamálum kom ekki hingað inn, en tilraunir að gera hins vegar, og það eru vissulega erfiðustu málin.

Kristín Erla er hjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri bráðamóttökunnar. Hvernig fer þetta með starfsfólkið? Eru þetta svona mál sem fólkið tekur með sér heim?

Já, algjörlega. Af því að þyngstu málin eru þannig gerð að þau enda jafnvel sem sakamál og það þýðir þá mögulega að þú þarft að bera vitni fyrir dómi. Það er ekkert eitthvað sem við lærum kannski að gera, eða já, að læra í hjúkrun. Þetta er ekki kannski það sem maður býst við að maður þurfi að gera þegar maður fer í hjúkrun. Það er bara erfitt og þungt.

Dómur eða upptaka fyrir dómi er kannski mikið seinna eftir máli og það líður tími. Þá situr þetta náttúrlega á manni allan þann tíma, sko. Já, þú veist, ég til dæmis er búin að vera hérna mjög lengi, en ég er með svona eitt mál sem fylgir mér og mun örugglega fylgja mér.

Það er hægt að hafa samband við neyðarnúmerið 112 og tilkynna um heimilisofbeldi. Það er líka hægt að fara á bráðamóttöku Landspítalans eða leita til þjónustumiðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, sem eru þrjár: Bjarkarhlíð í Reykjavík.

Bjarmahlíð á Akureyri og Sigurhæðir á Selfossi. En Hrafnhildur, hjúkrunarfræðingurinn sem sinnti heimilisofbeldismálinu sem við heyrðum um í fyrri þættinum, er að ljúka.

Er þetta svona mál sem þú tekur með þér heim í kvöld?

Já, þetta er alltaf eitthvað sem situr hjá manni í einhverja stund. Það er ótrúlega mikilvægt samt, þegar maður reynir svona mál, að maður viðri það og tali við samstarfsaðila, einhvern sem maður má tala við um málið. Maður má ekki tala um það sem maður er bundinn þagnarskyldu um, þannig að þetta þarf í rauninni að vera einhver sem maður má tala við um málið. En það eru margir sem taka þetta með sér heim. Mamma þín er á leiðinni heim, Júlíana.

Júlíana er hjúkrunarfræðingur og vaktstjóri á bráðamóttökunni og mamma hennar Hrafnhildar. Við erum mæðgur, svo er víst. Og hvernig, ef ég byrjaði að spyrja dótturina: Var það mamman og starfið hennar sem kveikti áhugann á að fara að stefna á að verða hjúkrunarfræðingur?

Ég var á spítalanum nokkurn veginn.

Sem vaktstjóri, og maður bara svona: „Vá, þetta er mamma mín.“ Það var bara geggjað. Ég er mjög stolt af henni.

Það var þá bara búið þegar hún kom heim. En hvað með, hefur þú aldrei ósætt á milli ykkar? Það varðar það svona í denn, en ekki lengur. Við búum ekki saman og það hefur breytt öllu. En nei, nei, ekki eins og er. Sjáum til. En sérðu fyrir þér að þú verðir vaktstjóri eins og mamma þín?

Já, þetta er stór spurning. Þegar maður er svona nýbyrjaður að taka þessi skref þá virðist þetta starf vera ótrúlega mikið og stórt, og það felst mikil reynsla í því að þurfa að stjórna öllu hérna inni. Þetta er alveg svona brekka sem maður hefur ekki séð toppinn á, en maður veit að á einhverjum tímapunkti endar maður þar. Þannig að það verður bara spennandi að sjá hvort maður nái upp. Já, ég ætla ekkert að vera vaktstjóri. Ég sagðist vilja fara á námskeið, en þarf ekkert endilega að vilja verða vaktstjóri.

Áfengi og alvarleg útköll

En hérna, þú veist, við erum komin á vaktina og Jón Ragnar er sérfræðingurinn á B-vaktinni. Hann er að fara að ræða við pólskan karlmann sem á við áfengisvandamál að stríða. Jón Ragnar nýtur aðstoðar túlks til að ræða við manninn.

Nú ætla ég bara að spyrja þig margra spurninga. Já, nei, spurninga. Ertu með sjóntruflanir? Er eitthvað erfitt fyrir þig að tala, þolinmæði eða eitthvað slíkt? Brjóstverkur, bakverkur eða kviðverkur? Einhver þvageinkenni, sviði við þvaglát eða annað slíkt?

Ég var bara einu sinni fyrir þremur eða fjórum dögum síðan.

Hvenær fékkstu þér síðast sopa af áfengi? Horfðu á nefið á mér og bentu á hendina sem hreyfist, þótt þú horfir á nefið á mér. Máttu lyfta augabrúnunum eins og þú sért hissa og svo niður eins og þú sért reiður? Sýndu tennurnar, út með tunguna. Segðu svo „a“. Er þetta eins hægra megin og vinstra megin? Er heyrnin eins hægri megin og vinstra megin? Þá ætlum við að fá hendurnar hérna upp og loka augunum.

Opnaðu augun og svo vísifingur á nef, eins og ég er að gera. Hendur út á milli. Geturðu gert svona eins og þú sért að skrúfa ljós? Og svo máttu gera svona og mátt toga mig að þér þangað, og svo máttu ýta frá.

Núna er eins tilfinning hægra og vinstra megin? Ýtti ég á móti mér? Flott. Ýttu svo á móti mér hérna og svo til baka. Standa á fætur. Geturðu labbað án þess að þetta hafi skolfið? Og hérna, svo tölum við betur saman á eftir.

Sjúklingurinn hans Jóns Ragnars mældist með 92 í etanóli, en eitrunarmörkin eru 65. Áfengi er stór orsakavaldur hjá sjúklingum sem leita til bráðamóttökunnar. Hér kemur melting frá sjúkrabíl, sem er mjög alvarleg og er afleiðing áfengisneyslu.

Benedikt Kristjánsson er sérfræðingurinn á vaktinni og ábyrgur fyrir komu sjúklingsins. Myndarteymi hefði verið. Mikið blæði þá getum við gefið kalsíum, en það ýtir undir æðasamdráttinn. Blæðir mikið á það?

Já, hún var bara brenný og sýklókaprún á kalsíum og hefði prófað æðaleiki. Nú er hann búinn í seti.

Þessi maður sem stökk fram af svölum, hverjir eru hans áverkar? Hann er með mjaðmabrot, hann er með ólitsbrot og hann er með hælbeinsbrot. Hann hefur lent á síst öðrum hælnum og væntanlega á vinstri til mjaðmaleiðinni. Þetta eru alveg miklir áverkar, en hann er samt heppinn að hann hefði getað verið með heilablæðingu eða einhvers konar blæðingu. Og hvað verður um hann núna?

Ég veit það ekki, en þetta er alveg að hugsa í einhverjum vikum, jafnvel mánuðum kannski, ef þetta gengur vel með mjöðmina. Kannski einhverjir mánuðir. Ég er líka bara að hugsa um kostnaðinn, sko, raunkostnaðinn við það þegar þessi sjúklingur kemur bara með sjúkraflutningamönnum hingað inn, að fjöldi manns er hérna í góðan hálftíma skoðun og hann fær alls kyns lyf og svo fjörðanir. Það er fullt af fólki þar, sko. Raunkostnaður bara spítalakerfisins við að sinna svona sjúklingi, við erum að tala um háar upphæðir.

Og þetta gerist í öðru lagi. Annar kostnaður samfélags vegna áfengis, þú sérð hann á hverju lífi. Algengt vandamál sjúklinga við komu á bráðamóttökuna er andleg vanlíðan sem tengist oft áfengisdrykkju. Sjúklingar eru metnir af læknum og það kemur í hlut sérhæfðra starfsmanna bráðamóttökunnar að passa upp á sjúklinginn ef hann er metinn sem hættulegur fyrir sjálfan sig, og ekki síður

Sprittgát á göngunum

Aðra. Hér hljóma fyrirmæli vaktstjóra á einni vaktinni, Þórdísar Eddu.

Þórdís Edda, hjúkrunarfræðingur og vaktstjóri, þarf stundum að láta passa sprittbrúsana á deildinni þegar við erum með yfirsetur. Þar sem ykkur þarf að horfa á, þá eru stigar í það: grænt, gult, rautt. En stundum snýst yfirsetan bara um að passa að sjúklingur komist ekki í sprittið, áfengið okkar, og drekki það. Það er alltaf bara hættulegt fyrir fólk að drekka hreint spritt. Þá líka liggja þau inn á leguna hjá okkur ef þau eru bara undir áhrifum og eru alltaf bara að drekka sig full og hérna...

Og þá er dálítill svona vítahringur að þau koma til okkar kannski út af einhverju, komast í fullt af spritti, sofa svo bara úr sér og svo vakna þau og drekka upp á meira og fara svo aftur og sofa úr sér. Þannig köllum við þetta sprittgát, að þá erum við að passa að þessi einstaklingur komist ekki í alkóhólið.

Eyvindur Ágúst er sérhæfður starfsmaður á bráðamóttökunni og í hjúkrunarnámi. Hann fær oft það hlutverk að vera með sjúklingum í yfirsetu. Hvernig gengur þetta fyrir sig? Sko, ætli hver og einn sé mismunandi? Kemur inn af mismunandi ástæðu, en þú...

Þarft svolítið að fá aðstæðurnar fyrst á hreint. Svo er bara best að byrja því að ég er með sæng og kodda. Spyrja hvort viðkomandi hafi fengið slíka yfirsetu, hvort hann hafi borðað eitthvað upp á síðkastið. Svo sér maður voðafljótt og finnur voðafljótt hvort fólk vill tala við mann eða ekki, hvort maður eigi að brjóta múrinn.

Og þá er best að sitja í þögn og bíða.

Og þetta getur verið erfitt, þetta fólk í sinni verstu aðstöðu, líður illa. Er þetta kannski fólk sem vantar ykkur til að tala við?

Þjónusta við jaðarsetta hópa

Flóran af sjúklingum sem koma á bráðamóttökuna spannar allt litrófið og rúmlega það. Heimilislaust fólk og vímuefnaneytendur þurfa oft á þjónustu bráðamóttökunnar að halda. Elín Tryggvadóttir er aðstoðardeildarstjóri bráðamóttökunnar og hefur meðal annars einbeitt sér að þessum hópi, þar sem vandamál við komu eru andleg vanlíðan, geðræn vandamál og útrýming. Þá þessa jaðarsettu hópa, hvernig gengur ykkur að vinna með þá einstaklinga?

Heyrðu, okkur gengur svo sem alveg ágætlega. Þetta er náttúrlega hópur sem á bara hvergi heima og virðist hvergi alveg velkominn. Úrræðin eru fá, en við höfum verið að taka okkur á í skaðaminnkandi starfi og reyna að sinna fólki fordómalaust og eins og öllum öðrum borgurum. Þannig að okkur gengur svo sem ágætlega, en svo er það bara hvað tekur við, það er flókið.

Ég veit, þú veist, það er sama í hvaða ástandi fólk kemur inn eða hvernig það er klætt eða hvernig lyktin er af því. Fólki er vel sinnt hérna. Er það bara það sem þið leggið áherslu á?

Já, það er í rauninni bara, þú veist, fræðsla til starfsfólks um að allir skipti jafn miklu máli, að við sinnum öllum eins. Þetta er í rauninni bara ákvörðun sem þú tekur sem manneskja, að sinna öðru fólki eins og öllum öðrum. Það er ekkert erfitt.

Fyrir ykkur að til dæmis útskrifa manneskju sem þið vitið kannski að hefur ekkert heimili, en þið þurfið að útskrifa hana og kannski er ekkert sem tekur við?

Já, við reynum samt að búa þannig um hnútana að við getum hringt í gistiskýlin, til dæmis, og beðið um að leyfa fólki að dvelja allan sólarhringinn. Það er oftast, eins og ég kalla skýlin, alltaf einhver starfsmaður í húsi, þannig að ef einhver er að koma úr sjúkrahúsi getum við samið við þau um að fólk fái að vera inni.

Í þessu vísu á dyr þegar skýlinu er lokað. Við getum líka beðið skaðaminnkunarþjónustuna um að fylgja einhverjum eftir.

Hvernig eigum við sem störfum ekki í þessum geira að horfa á hana?

Já, það er bara þetta, að minna sjálfan sig á og hnippa í aðra, minna á að þetta eru bara synir einhverra og dætur, mæður og frænkur og vinir. Bara muna það: hvernig myndi ég vilja láta koma fram við mig ef ég yrði svo óheppin að lenda í þessari stöðu? Og þannig ætla ég að vinna, að eyða þessum fordómum.

Tvær vikur og horfðum á þær, og þá vorum við með yfir 100 komur á tveimur vikum. Sumir einstaklingar hafa fleiri en eina komu, þannig að verkefnið er líka mjög fjölbreytt innan þessa hóps, því að andleg vanlíðan getur tengst mörgum mismunandi þáttum.

Hvort sem það er kvíði eða álag, áfengisneysla, fíknivandi eða svefnleysi. Það er svo margt sem þarf að ná utan um, svo erfitt að setja einn stimpil á þetta.

Manni finnst þetta líka vera, miðað við öll þessi stóru verkefni sem koma hérna, sem eru líkamleg einkenni eða áverkar á sjúklingunum, einhvern veginn svo miklu opnara og kannski erfiðara við að eiga.

Það er það, því að vandinn er svolítið fjölþættur og þessir einstaklingar eru fárveikir og þurfa að komast í réttan farveg til þess að úrvinnslan á þeirra vanda, þeirra veikindum, sé sem best, út af því að vandamálið getur verið svo fjölþætt.

Þú veist, þetta eru einstaklingar á öllum aldri. Við erum með börn í þessum vanda. Þetta er allt spektrúmið, því að andleg vanlíðan leggst líka ofan á líkamlegu kvillana. Auðvitað þurfum við, og það er okkar sérgrein, að útiloka að það sé eitthvað líkamlegt. Svo tökum við næsta skref og það er að vinna með andlega vandann sem við getum, með þeim teymum sem koma þar að.

Fólk sem er að hlusta og líður ekki vel, hvert getum við leiðbeint því að leita?

Svo náttúrulega líka að fara inn í sitt innra stuðningsnet. Það er það sterkasta í kringum okkur þegar við höfum það til staðar. En hvað getum við sem samfélag gert, ef við vitum að einhver í okkar nánasta umhverfi, eða kannski rétt fyrir utan það, líður illa?

Hvað getum við gert? Ég held bara í þessu, eins og svo mörgu öðru sem tengist einmanaleika eða andlegri vanlíðan, að gera heiminn bara svolítið betri í kringum okkur, okkar nánasta fólk og þá sem eru í kringum okkur. Eigum við, vitum við raunverulega að einhverjum líður illa, eigum við ekki að hafa samband við þá?

Andleg vanlíðan og bráðaþjónusta

Mikael Mikaelsson er sérfræðingur á bráðamóttökunni og annar af tveimur yfirlæknum bráðamóttökunnar.

Andleg vanlíðan, eins og þú getur vel skilið, er mjög stórt hugtak. Þetta getur verið allt frá því að fólk sé að leita til okkar í bráðri sjálfshættu, frá því að það geti ekki sofið eða sé með mikinn kvíða, vanlíðan eða félagslegan vanda.

Þá komi ástæðan skráð sem andleg vanlíðan. Það getur auðvitað verið mjög margt sem liggur þar undir. En ef við tökum bara þann hluta sem við og geðdeildin sem slík deilum.

Þá er okkar hluti í þessu, eins og í mjög mörgu öðru á bráðamóttökunni, áhættuflokkun. Þetta er einfaldlega svo stór hluti af þeirri þjónustu sem sjúklingar sem koma vegna andlegrar vanlíðanar þurfa.

Það þarf meira en bara nokkrar mínútur eða klukkutíma með okkur. Við erum kannski ekki að geta leyst þetta neitt mjög vel, og þó að við séum lausnamiðuð þá er stundum lausnin að vísa þeim til þeirra sem kunna þetta betur eða hafa þann tíma eða svigrúm sem þarf til að sinna þessu.

Að minnsta kosti hérna á læknanemilinu hefur mér fundist mjög gott að eiga við geðdeildina. En auðvitað, eins og ég sagði áðan, fara væntingar einstaklingsins og það sem við getum boðið raunverulega ekki vel saman.

Þetta veldur auðvitað mikilli streitu hjá öllum. Stærsti vandinn er að þeir sem koma til okkar með andlega vanlíðan, af öllum þeim undirflokkum sem þetta gæti verið, eru að koma inn í mjög erfitt umhverfi fyrir þau. Eins og oft hefur verið nefnt erum við mjög hávær og kaótísk. Það er mikið að gera, lítið rými og þetta er ekki umhverfi sem hentar fólki sem líður illa.

Það getur liðið ógnandi, það er ýmislegt þarna. Og svo biðin, skulum ekki gleyma henni. Þegar þér líður illa og þú ert nánast eins og þú sért að missa stjórn, þá er það ekki góð tilfinning að sitja í einhverja klukkutíma í bið eftir einum af okkur.

Þannig að ég er alls ekki að hrósa eða segja að aðstæður séu bestar. Ég er alls ekki að segja að við séum að bjóða upp á eins góða þjónustu og við viljum.

En við erum þessum takmörkum sett, við höfum bara ekki rýmið.

Á þessum vöktum hef ég þú snærri upplifað það að það eru rauðar yfirsetur, stundum fjórar í einu. Það er læknir frá ykkur sem þarf að fara í gegnum það, ferlega sjálfræðissvipta manneskju af því að hún á við erfiðleika að stríða og mögulega er í sjálfsvígshættu. Þannig að þið verðið að grípa fólkið á þessum erfiðu punktum allan daginn, en svo er spurningin: er það sem tekur við hvítahvítahvað?

Ég veit það ekki, það er erfitt að segja. Þetta er mjög erfiður málaflokkur. Mér hefur ekki fundist geðdeildin neita að taka við. Við erum auðvitað, eins og alltaf, með núningspunkta. Það er nóg að gera hjá þeim, mikil vinna og stundum erum við að þrýsta og þau eru svona að draga í. En ég hef aldrei skynjað þannig að þau vilji ekki gera gott verk.

En það er rétt sem manni finnst líklegt almennt hjá okkur, að þau eru í svipaðri stöðu, geta ekki alltaf gert það sem þau vilja, segir Mikael. Og hér heyrum við í hinum yfirlækninum, Hjalta Má Björnssyni. Hjalti, hvað getur fólk sem á við mikla andlega vanlíðan að stríða og bara líður mjög illa, hvað á það að gera?

Það þarf ekki að tefja það að leita sér heilbrigðisþjónustu. Hér á bráðamóttökunni veitum við bráðaþjónustu við öllum bráðum vandamálum, hvort heldur sem það eru beinbrot eða sjálfsvígshætta eða geðrof eða hvað sem er í gangi. Og ef fólk heldur að það sé virk sjálfsvígshætta, að það sé að fara að skaða sig, eða einhver bráð, alvarleg krísa í gangi, þá getur það alltaf komið til okkar og við gerum fyrsta mat á öllum slíkum tilfellum.

Ef þörf krefur vísum við fólki til innlagnar eða sérhæfðrar þjónustu annarra deilda, alveg sama hvort um er að ræða sjálfsvígshættu eða beinbrot eða hjartaáfall eða hvert vandamálið er.

En svona kannski er líka önnur spurning: hvað getum við sem samfélag, borgarar í þessu landi, gert? Oft á þetta fólk við einmanaleika að stríða. Hvað getum við gert?

Já, þetta eru stórar samfélagslegar spurningar, en félagsleg einangrun er ákveðinn faraldur í nútímasamfélagi. En það er líka óhollt mataræði og hreyfingarleysi. Ég held að við þurfum öll að reyna að finna taktinn, taka svolítið utan um hvert annað og reyna að passa að fólk verði ekki útundan á neinum sviðum í samfélaginu okkar.

Ráð til fólks sem líður illa

Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri sjálfsvígsforvarna hjá Landlæknisembættinu. Hér koma ráð frá henni um hvert fólk sem á við andlega vanlíðan að stríða getur leitað. Guðrún Jóna, það eru margir þarna úti, því miður, sem líður illa. Hvað viltu segja við þetta fólk? Hvað getur það gert til þess að bæta líðan sína?

Sko, það er oft þannig að við erum að bögglast með eitthvað sem lætur okkur líða illa og við festum ekki endilega reiður á því hvað það er. Það er oft fyrsta skrefið bara að ræða málin við einhvern, bara segja einhverjum sem þú treystir hvernig þér líður. Oft er það bara nóg að fá einhverja speglun á þessa líðan.

Við mælum alltaf með að deila líðan sinni með einhverjum sem þú treystir, vini eða fjölskyldumeðlim, kennara eða einhverjum sem er í kringum þig. Eða muna eftir að við eigum hjálparsíma sem hægt er að leita til.

Ég er búin að taka fjölmargar vaktir niður á bráðamóttöku. Ég held að ég hafi verið, ef ég tel alla tímana samtals, 470 klukkutíma á vaktinni. Og vandamál við komu, andleg vanlíðan, er mjög algengt. Heldurðu að þetta sé algengara en við áttum okkur á?

Sko, það er þannig að mörg okkar upplifa þungar hugsanir einhvern tímann á lífsleiðinni, en það er svo gott fyrir okkur að vita að yfirleitt eru þessar hugsanir og þessi líðan tímabundnar.

Þannig að það að vera bara opin um það hvernig manni líður, ræða málin og fá staðfestingu á því að bæði það sem maður er að glíma við sé ekki eitthvað óyfirstíganlegt og líka að vita að það er hjálp að fá, það er ótrúlega mikilvægt.

Þegar ég fer að klippa þetta viðtal inn í þáttinn ætla ég að telja upp þá staði sem hægt er að leita til. Er það ekki rétt að gera það?

Jú.

Það er mjög mikilvægt. Og fyrir, þú veist, ef manni líður illa, þá er líka mjög gott að vita sjálfur hvað það er sem gerir manni gott. Er erfitt að hringja í vin, þú veist, eða fara út að ganga eða hvað?

Það er, og vera svona meðvitaður þegar maður finnur kannski að manni fer að líða einhvern veginn þannig að maður vill ekki fara þangað, að reyna að snúa því við og grípa inn í og grípa til þess úrræðis sem hjálpar manni og hefur virkað. En ef það virkar ekki, að vita að maður geti talað við aðra, vita því að þær hjálpa. Hvað getum við sem samfélag gert?

Ég þarf að finna réttu stundina, en spyrja bara: „Þú hefur ekki verið líkur þér eða lík þér undanfarið. Er eitthvað hjá þér eða viltu tala um þetta?“ Og svo, þegar svarið kemur, að vera viðbúinn, vera tilbúinn.

Og hlusta, bara með opnum hug og án þess að dæma. Ef viðkomandi segir eitthvað sem hann ætti að komast í gegnum, að vera samt ekki dæmandi með það, segja bara: „Já, já, þér líður svona“, þú veist.

Hlustunin er mjög mikilvæg. Svo, ef viðkomandi segir: „Ég sé bara ekki fram úr þessu. Þetta er ótrúlega erfitt fyrir mig. Ég veit ekki hvernig ég á að halda áfram“, þá er í lagi að spyrja hreinlega bara: „Hvað heldurðu að sé fyrsta skrefið til að komast út úr þessari líðan? Hvað hefur hjálpað hingað til?“

Og ef manneskjan segir bara: „Ég hef aldrei lent í þessu, veit ekkert hvað ég á að gera“, þá er líka í lagi að spyrja: „Ókei.“

Ef hann gefur það með einhverju leyti í skyn að hann langi ekki að lifa eða treysti sér ekki til að lifa, að spyrja bara: „Ertu með sjálfsvígshugsanir? Hefurðu hugsað um að skaða þig?“ Og vera þá viðbúinn og tilbúinn til að fá svarið. Ef svarið er játandi, þá á að staðfesta: „Þú ert ekki á kominn á réttan stað og ég er bara fimm til með þér, og við skulum reyna í sameiningu að finna leið. Eigum við að hringja í Píeta-símann, til dæmis, sem er okkar eina úrræði?“

Það er sérhæft fólk í að kljást við fólk með sjálfsvígshugsanir og hjálpa viðkomandi að finna úrræði. Ekki segja bara: „Heyrðu, hringdu í einhvern eða gerðu eitthvað“, heldur: „Á ég að hjálpa þér við það?“ Bara taka aðstoðina.

Svo þegar viðkomandi er kominn í eitthvað úrræði sem ætti að hjálpa, ekki láta viðkomandi hverfa. Láttu heyra í þér, fylgstu með hvernig gengur og sýndu áhuga. Haltu áfram að hlusta, vertu bara vinur og vertu til staðar.

Það er hægt að leita til Bergsins, Heilsuspjalls eða Sorgarmiðstöðvar. Einnig er hægt að leita til bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og á bráðamóttöku geðsviðs við Hringbraut og á Akureyri. Í neyðartilvikum skaltu ávallt hringja í neyðarnúmerið 112.

Lagið um mömmu

Við höfum staðið hérna í stúdíóinu og við erum með gest með okkur. Hvað erum við að gera? Við erum hérna með Hallgrím, átt sinn vin þinn, að taka flagg.

Halli, við höfum verið vinir í ansi mörg ár, í áratugi, og þú þekkir hana mömmu. Segðu mér, hvernig er mamma? Hún er stórkostleg manneskja.

Hún náttúrlega var endalaust að hjálpa okkur, sérstaklega eftir partí, næst þegar þér datt í hug að bjóða í samsæti og rústaðir öllu. Hún hafði svo mikla mildi.

Hún var alltaf tilbúin til þess að taka við gallagripnum honum Jóhannesi. Mér þykir gífurlega vænt um hana. Henni þykir líka mjög vænt um þig og talar um þig, þrátt fyrir að hún sé farin aðeins að gleyma. En Halli, ég bað þig, af því að þú ert tónlistarmaður og þú ert óboðlega fær að semja tónlist og gera texta. Ég spurði þig: „Er möguleiki að þú getir kannski gert eitt lag fyrir…“

Þáttinn um hana mömmu. Og þú gerir það, jú. Já, undarlega. Þú sagðir mér frá því að hún væri á Hæla- eða draum og svona. Á þetta fékk hún eitthvað á mann og ég held ég hafi bara gert eitthvað á mjög skömmum tíma,

þegar það bara kom til mín. Og einmitt, mamma þín er ekki bara mamma þín, hún er mamma okkar allra. Og hérna, hún gekk okkur líka pínulítið í móðurstað, þannig séð, þegar við vorum með þér. Svo á maður sína mömmu og maður, maður, maður, maður, maður, maður, maður, maður, maður, maður, maður, maður.

Maður, maður, maður, maður, maður, maður. Þetta kom mjög auðveldlega. Síðast þegar við heyrðum í mömmu var hún mjög veik á hjúkrunarheimilinu þar sem hún býr. Læknir mat ástand hennar það alvarlegt að hún myndi deyja innan skamms. En nú, fjórum mánuðum eftir fundinn

með lækninum, er mamma orðin hress. Og hér heyrum við brot úr viðtali sem ég tók við hana fyrir nokkrum dögum. Og ertu hamingjusöm og líður þér vel?

Já, ég get ekki kvartað við þig. Finnst þér gott að vera hérna á hjúkrunarheimilinu?

Já, mér finnst gott að vera hérna, því að ég veit að þú kemur í heimsókn til mín. Þú varst hérna fyrir nokkrum mánuðum, þá varstu dálítið veik. Manstu eitthvað eftir því? Jú, ég man eiginlega ekki mikið eftir

því. Við héldum bara að þú myndir bara hverfa, en þú snerir til baka. Þú ert svo hörð af þér. Já, ég hef fengið orð

fyrir það. Þú ert bara orðin 91 árs. Já, ég hef bara orðið það. Ég verð alltaf til staðar fyrir þig, eins og þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig. Ég get það nú ekki. Nei, nú er komið að mér að vera

til staðar fyrir þig. Þú varst til staðar fyrir mig þegar ég átti mjög erfitt og stóðst með mér, og nú er ég að standa með þér. Erum við ekki bara sátt við það bæði? Jú, jú.

Jú, jú, jú, jú, jú, jú. Við erum hérna sátt við hvað þú hefur gert. Ég er líka mjög sáttur við það sem þú gerðir fyrir mig, en mér finnst voða gott að geta komið og kíkt á þig reglulega. Mér

finnst það líka.

Of gott. Við erum komin aftur í stúdíó hans Halldórs Gunnars, þar sem ég var að ræða við Hallgeir í mótsókn, vin minn, um lagið fyrir hana mömmu. Mér fannst svo fallegt þegar þú sagðir við

mig þegar þú varst búinn að semja lagið og ég var búinn að heyra þetta fyrsta demó, og þú sagðir: „Þetta er lag fyrir mömmur okkar allra.“ Og við, þessir æskuvinir að vestan, það eru tveir af okkur búnir að missa mömmu sína og við erum tveir semja mömmunum, þá mömmuna okkar, og þetta

lag er fyrir mömmur okkar allra. Já, þetta er bara, þetta er sko mikilvægasta hlutverk veraldar, mömmur. Og einnig það líklega vanmetnasta, að hérna maður kann ekkert að meta þetta fyrr en ef

maður fær aðeins yfirsýn og verður kannski foreldri sjálfur og skilur hvað liggur á bak við þetta. Saman, Dóri, þú átt nú stórkostlega mömmu, sem er frænka mín líka. Já, ég á stórkostlega móður sem er til, Magnea, og mamma þín

eina frænka mín. Hún er systir ömmu minnar, Unna frænka. Og ég man eftir mér alltaf bara sem barni, þegar maður var að koma fyrst í Reykjavík, þá gisti maður alltaf hjá Unnu frænku uppi í Breiðholti. Þegar ég fór í fyrstu bíóferðirnar mínar í Reykjavík var

þarna hjá okkur. Þannig að mér þótti alltaf agalega vænt um mömmu þína. Og hérna, ég var alltaf nýbúinn að missa hana ömmu mína. Og hérna, já, þær eru líkar, systurnar. Já, þessi stóra ætt, Brekkuættin.

Langalangafi þinn eignaðist 21 barn. Mamma er núna elsti núlifandi afkomandi Brekkufjölskyldunnar. Hugsaðu þér, Brekkaættin. Við erum að tala um Guðmund Einarsson refaskyttu hérna.

Er hún elst? Hún er elsti núlifandi afkomandi.

Jæja, það er alveg stórmerkilegt. Þetta er alveg risastór ætt. Einhvern tíma heyrði ég sögur af því að hafa verið haldin ættarmót, eitthvað níutíu og eitthvað mættir, fáir, og mættum fimm hundruð. En hvað, hérna, Dóri, hvað

finnst þér um þetta? Er þetta ekki í fyrsta lagi sem þú vinnur með honum Hallgrí? Nei, þetta er ekki fyrsta lagið sem við vinnum með honum Hallgrí. Við vorum að telja það sama um daginn, eftir lag númer 51, og við Hallgrímur erum búnir að fylgjast

Mjög lengi. Ég man að við byrjuðum, mig til að ná að gera eitthvað bara í tónlistarskóla og flatri fyrir Rögnan, fimmtán, tuttugu árum síðan. Er hún búin að gera, er þetta fjórar plötur?

Af öllu því fólki sem ég hef unnið með hef ég gert flest lög með Hallgrími Oddssyni. Hallgrímur er svona tímalestur, Hallgrímur gerir að því leyti til að það er orðin búðust að hann er svo mikið skáld, Hallgrímur.

Og Hallgrímur var svo mikið að ég gæti talað endalaust um góðar setningar hjá Hallgrími. Og hérna, ég spurði: „Ég get þetta betur. Hvernig lærði ég að semja lög í einhverju?“

Það var bara klárt að hlusta á lagið, hugsaði mömmu og…

Hún terir.

Vökuð barnið, grautarskál og skeið, jú.

Hún hlustar á hvert vanda.

Langt umfram árin sín, hennar orð og tekst á loft og þú sigrar allan.

Sturfast í kjól, því í hennar faðmi finnurðu þitt skjól.

Pálstjarna og sól.

Ráðaðinna, mamma, er allt rennur milli fingra minna. Mamma, þá þarf ég þig að finna.

Fjögur þúsund gramma, og það þarf jú kraftaverk að breyta vatni.

Er stóðst.

Við þína hlið.

Þú það vinna.

Milli fingra minna, þá…

Þarf ég þig að finna, mamma mín, og…

Það þarf jú…

Kraftaverk. Hún…

Er jörðin.

Íslenskra hjúkrunarfræðinga styrkti gerð þessa þáttar. Það er…

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar