Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Þegar einhver elskar einhvern í sex ár heitir það sykurbrúðkaup. Ég veit þessa hluti. Ánægðustu viðskiptavinirnir sjötta árið í röð eru hjá Hringdu.
Þau horfa til vinstri og sjá bara mann sem er ekki á lífi.
Þú ert að hnoða á honum milli geirvartanna, með brjóstkassann, og hnoða fimm til sex sentímetra niður. Verða beinar hendur og beygjað í mjöðmunum, ekki nota hendurnar.
Og það að gera hjartahnoð á meðan beðið er eftir sjúkrabíl skiptir mjög miklu máli, vegna þess að það eykur blóðflæði til hjartans og þetta skiptir sköpum upp á hvað er svo hægt að gera þegar sérhæfð aðstoð kemur á staðinn.
Í fyrsta skipti er þetta náttúrlega bara sjokk. Þú ert að hnoða mann. Þau horfa til vinstri og sjá bara mann sem er ekki á lífi og þú ert að hnoða honum. Það gerir grein á hverju gangi.
Og nú þegar takið sérðu stöðuna, öryggi, þá hækkað að hliðra sig upp.
Langflestir lenda í því einhvern tímann á ævinni að þetta gerist einhvers staðar þar sem þeir eru staddir. Það er þá mikið öryggi fyrir þann sem fer í hjartastopp að einhver geti brugðist við, en það hefur líka jákvæð áhrif á þig að vita
hvað þú átt að gera.
Ég heiti Jóhannes Kr. Kristjánsson og þetta er þátturinn Á vettvangi, sem er unninn í samstarfi við Heimildina.
Síðar í þessum þætti fjöllum við um endurlífgun á vettvangi og mikilvægi þess að veita hjartahnoð á meðan beðið er eftir sjúkrabíl. En fyrst höldum við ferðalaginu áfram um ganga bráðamóttökunnar og förum með Árlíu Oddbjörnsdóttur
inn í herbergi móttökuritaranna, sem taka á móti sjúklingum sem koma í gegnum biðstofuna. Og hérna eru móttökuritararnir okkar og það er pláss fyrir þrjár ritarar. Við sitjum hérna og svo er alltaf einn móttökubílaritari inni sem tekur á móti
öllum sjúkrabílum líka. Og svo getur verið einn ritari uppi ef munurinn er þannig. Hvað eru svona að því að nú horfir maður hérna, við sjáum vel inn á biðstofuna og stundum eru mjög margir
á biðstofunni. Hvernig er ástandið þegar það er verst? Hvað gerist hérna þá inni hjá ykkur, hérna í móttökunni? Það getur verið dálítið mikið að gera þar sem við erum með fulla biðstofu og þannig að kemur alls kyns fólk hérna inn í alls kyns ástandi.
Kannski versta stundin er ef við erum með fulla biðstofu og það kemur einhver í mjög annarlegu ástandi og við erum með fulla biðstofu, kannski með börn á biðstofunni. Við gætum þurft að tæma biðstofuna á alveg núll einni ef einhver er ógnandi eða hótandi eða svoleiðis.
Fólk fer í hjartastopp frammi og fólk fær krampa frammi. Það getur bara allt gerst í rauninni, sko. Þú ert búinn að vinna hérna lengi. Ertu búinn að sjá margt hérna frammi? Já, ég er búinn að sjá mjög margt, en ég held ég sé hættur að segja þessa setningu að ég sé búinn að sjá allt, því
það kemur alltaf eitthvað nýtt. Hver eru verstu atvikin sem gerast? Þú getur fengið vopnaðan mann, en við höfum fengið vopnaðan mann og við höfum líka fengið manneskju sem segist vera með vopn í töskunni sinni og ætla að skjóta okkur eða eitthvað svoleiðis. En það hefur verið
ráðist á glerið hjá okkur og brotið glerið mörgum sinnum. Er einhver hótað? Já, okkur hefur verið hótað, en það er kannski ekki eitthvað svakalega algengt hérna. En við fáum dálítinn skell á okkur, og þá rosalega mikið frá kannski aðstandendum.
Það er erfitt að díla við aðstandendur sem mega jafnvel ekki fara inn. Við reynum svo sem að skilja það líka, að fólk sé hrætt um sitt fólk. En nú erum við að tala um allt þetta neikvæða, en er ekki þetta jákvæða miklu
fleira heldur en þetta neikvæða? Jú, auðvitað. Þetta er auðvitað ótrúlega skemmtilegt, að vera að taka á móti alls konar fólki og heyra svo margar mismunandi sögur, af því að þú veist, við fáum svo margt týpufólk. Einn og margir
langar að segja okkur söguna sína og við hlustum bara ef við getum, og það er mjög gefandi líka. Í síðustu þáttum höfum við ferðast um ganga bráðamóttökunnar í fylgd Hjördísar deildarstjóra og Hjaltamásar yfirlæknis, og nú erum við komin með Hjördísi á C-svæðið.
Því munið að A-svæðið er fyrir veikustu sjúklingana, B-svæðið fyrir þá minna veiku. Og hér útskýrir Hjördís fyrir hvaða sjúklinga C-svæðið er. Þá ætlum við að ganga núna inn á skammareininguna, C-svæðið. Það er svona upphaflega
Skammurinn var opnaður þar sem átti að vera svona obs-svæði fyrir bráðasjúklinga. Þetta er hugsað sem svæði fyrir þá sjúklinga sem við á bráðahlutunum erum að hugsa um og viljum fá að fylgjast með í 23 tíma. Svo getum við líklegast útskrifað þá heim til að koma í veg fyrir að þurfi að leggja þá inn.
Núna er þetta náttúrlega bara hluti af því að við þurfum að koma fólki fyrir alls staðar. Við erum bæði með opna sjúklinga og innlagða sjúklinga. Þetta er fyrir átta sjúklinga, en eins og þú sérð þá er búið að bæta hinum tveimur rúmunum við svona til þess að koma fleiri og fleirum fyrir. Þannig að það eru tíu að meðaltali alltaf hérna inni hjá okkur. Sumir kalla þetta að vinna hér, að vera í skammakróknum. Já, það er svo gott að kalla skammann skammakrókinn, en það er ótrúlega flókin sjúklingaflóra sem getur verið í einu. Þú getur verið að gefa blóð og þú getur verið með einhvern sykurferil í gangi og þú getur verið með alls konar. Sumum finnst líka mjög gott eftir erfiða vakt að koma hingað, kannski ná sér niður. Það er alltaf annar taktur í starfinu.
Við erum komin hérna aftur út á skammann og hér eru líka leysisbásstólar hérna bara fyrir utan skammann. Já, hjá ruslagjafslum okkar erum við með þrjá leikpóstóla og búið að búa til stokk hér. Þannig að við erum með einstaklinga sem við treystum til þess að sitja. Við erum oft að gefa vökva, bíða eftir niðurstöðum, þurfa að bíða eftir ómun eða einhverri rannsókn. En þetta er líka bara staður fyrir alla þá sem þurfa ekki að liggja.
Og það hljómar mjög hart, en það er líka bara hluti af því að fólk átti sig á því að þetta herbergi hér… Hér eru óskilamunir.
Það er vel haldið utan um þá óskilamuni sem við finnum og við erum með akkúrat manneskju sem er mjög dugleg að hafa upp á þeim sem við finnum. En það er næstum því líka sorglegt að það gleymist margt. Og svo er það líka að hlutir eiga til að týnast hérna, því að fólk liggur á mörgum stöðum. Við finnum þau, fyrr en þau fara frá okkur yfir á rannsókn, eina röntgendeild, koma til baka, síðan ferð upp á deild eða fer upp á speglun eða eitthvert annað. Það getur svona hitt og þetta týnst, sem okkur þykir mjög miður.
Það týndist hringurinn með mömmu, sem ég held að hún hafi borið í 70 ár. Hann týndist hérna í síðustu viku, af því að hún var að flakka á milli deilda. Við finnum bara ekki hringinn. Hann er annaðhvort í sjúkrabílunum eða þá að hún hefur gleymt honum einhvers staðar eða hvað það er. Enn þá er búið að leita í óskilamunum hérna og á að fara að leita? Nei, það er svo alveg glatað. Og þeir leita virkilega að þessu. Þegar það er einhver óskilamunur, þá spyrjum við hvort það sé eitthvað sem vantar og reynum að leita eins og við getum, alveg í lengri tíma. Það er ekki bara eitt skipti sem við tékkum á og svo búið.
Við erum eiginlega komin hringinn og hérna í horn. Já, ég sé hérna merkið með kapellu. Hérna í horninu erum við með kapelluna og aðstandendaherbergi. Það er mjög dýrmætt fyrir okkur að hafa þetta afdrep þegar það verða andlát hjá okkur, til að gefa aðstandendum tækifæri til að geta kvatt sitt fólk.
Kapellan er ótrúlega falleg hjá okkur. Það er bara fallegt listaverk hérna í glugganum og þetta er rólegt og fallegt. Þetta er yfirbragðið sem er hérna hjá okkur. Hún er ekkert gríðarlega stór, enda er þetta bara hugsað til þess að kveðja þegar verða óvænt andlát. Það eru svona sæti fyrir tíu, tólf manns hérna og bekkur hérna í miðjunni, þannig að fólk getur setið hérna og átt rólega stund.
Já, það er út af því að þegar fólk kemur kannski inn í endurlífgun og svona fleira, þá er þetta óvænt andlát fyrir þessa aðstandendur. Það skiptir ekkert máli hvort það sé barn eða fullorðinn einstaklingur. Þetta er einhver sem dó og það er sorg í kringum það, og það þarf að gefa fólki svigrúm til þess að vinna með það.
En aðstandendaherbergið, nú er erfitt að ímynda sér atburðina sem þið hafið upplifað hérna og hvað þá með aðstandendur kannski hérna inni.
Já.
Að vera með svona herbergi, maður hefur það víst hér. Hér hafa verið fluttar mjög leiðinlegar fréttir og það er ekkert hægt að segja annað en að þær séu sorglegar og ósanngjarnar, hvort sem við erum að láta vita af ungu fólki sem hefur látist, eins og ég sagði áðan, eða…
Hvort sem um er að ræða eldri einstakling, þá er sorgin alveg jafn sár og þetta getur verið mjög ósanngjarnt, hvað sem gerist. En við reynum þá að hlúa að aðstandendum, að þeir séu svona í stakk búnir. Við gefum þeim tækifæri til að sitja í herberginu.
Þeir geta kallað á fleiri til þess að koma og reyna að nálgast þau svolítið á þeim stað sem þau eru. Við erum líka í frábæru samstarfi við presta spítalans og sálgæsluna, sem koma þá til okkar og hjálpa okkur. En annars eru það læknir og hjúkrunarfræðingur sem færa þessar fréttir ef það eru erfiðar fréttir að færa.
Við eigum alls konar mismunandi minningar um þetta herbergi. Jón Ragnar, sérfræðingur í bráðalækningum, hefur í starfi sínu þurft að færa aðstandendum sorgarfréttir í þessu herbergi og á erfiðar minningar frá þeim stundum.
Það hafa oft verið mjög erfið samtöl hennar og þetta er trúlega það erfiðasta við þessa vinnu, það er að færa slæmar fréttir. Þetta er mjög mismunandi eftir fólki og við, þegar það eru erfið tilfelli, erfiðar endurlífgunartilraunir, sérstaklega þegar um ungt fólk eða börn er að ræða, þá eru teknir svona viðrunarfundir.
Ég tek eftir því að sumir eiga auðvelt með allt blóðið og öll brotnu beinin og líflausa líkama og allt svona. Einhverjum finnst þetta mjög auðvelt. Ég næ einhvern veginn að kúpla fram hjá því að þetta sé manneskja, heldur bara líkami. Ég næ að fókusera á líffæri og líffærakerfi og blóðrás og lyf.
Ég næ alveg að fókusera bara á það. En svo, til dæmis, endurlífgun sem tekst ekki og ég hitti svo ættingja, þá hellist yfir mann að þetta var manneskja. Það tekur mjög á oft.
Ég man til dæmis þegar ég var ungur deildarlæknir. Það var strákur sem dó í bílslysi. Hann átti í raun og veru ekki séns miðað við áverkana sem hann lenti í. Það var búið að tilkynna foreldrum og þeir voru að bíða eftir besta vini hans. Einhvern daginn tafðist hann; það var ekki búið að segja honum af hverju hann ætti að koma.
Ég verð ennþá klökkur við tilhugsunina. Ég skoðaði þetta hérna og heyri bara öskrin fram á gangi. Það var eins og sært dýr, þannig að hann öskraði þegar hann fékk fréttirnar og lamdi veggina hérna.
Þetta var svolítið sláandi, vegna þess að ég var búinn að afgreiða þetta mál hjá mér, skilurðu? Ég var búinn að sjá þennan unga mann, sem við gerðum allt sem við gátum fyrir, en hann átti ekki séns. Ég var bara að sinna öðru, þá var ég deildarlæknir og annar sérfræðingur flutti tíðindin til foreldranna. En þá fékk ég þetta sjokk.
Það er engan veginn hægt að setja sig í spor ykkar, að vera boðberi þessara tíðinda til aðstandenda, sérstaklega þegar börn eru í spilinu. Jæja, mér finnst að þetta verði…
Reynslan hjálpar manni. Maður lærir samskiptafræði í læknadeildinni og ákveðna tækni við þetta, sem er mjög hjálpleg. En maður venst þessu aldrei, skilurðu?
Það er gott að þú hafir tilfinningar, en það er líka gott að þú sért við vélina þegar á þarf að halda. Já, ég held að það sé betra að maður sé ekki mikið að velta sér upp úr mannlega hlutanum þegar það er í raun og veru enginn tími til þess að gefa því pláss.
Við erum ennþá með Hjördisi í aðstandendaherberginu. Eru það erfiðustu minningarnar í starfinu, þá kannski minningarnar í kringum aðstandendur og sorgina?
Það tekur á, algjörlega, og snertir við manni þegar maður sér sorgina, af því hún er svo einlæg þegar hún birtist. Hvort sem fyrstu viðbrögðin eru að þetta sé eitthvað betra, þetta getur ekki verið að gerast, eða þá að einstaklingurinn viti hvað er í gangi og trúi því bara ekki að hlutirnir hafi ekki gengið upp.
En það er svolítið misjafnt og líka hvernig það situr í manni; það spilast kannski líka inn í kringum aðstæðurnar sem maður hefur tekið þátt í. En hvað með gleði?
Það er bara svo margt frábært og ég er líka bara geggjað stolt af starfsfólkinu hérna hjá okkur sem er tiltölulega nýtt í störfum sínum. Maður er búinn að fylgjast með því hvernig það er að vaxa í starfi og svo sér maður það sem leiðtoga í einhverjum verkefnum.
Og það er bilaður sigur. Það er svo flott að maður sé svona framtíðarleiðtogi, því það er hluti af því sem við erum líka að skapa: sterka einstaklinga til að verða framtíðarleiðtogar þegar þetta unga fólk á eftir að …
En ég er líka bara að fara að velta fyrir mér: það liggur við að maður vilji fara að læra í hjúkrunarfræði af því að maður sér hvað þetta er hrikalega fjölbreytt starf og skemmtilegt, þrátt fyrir allt. Bara: „Vertu velkominn,“ eða „Vantar leiðbeinanda? Skal ég vera með?“
Ég er bara gríðarlega stolt af því að það eru svo margir af þeim sem eru starfsmenn hjá okkur, hvort sem þau eru hérna í umönnun eða sem sérhæfðir aðstoðarmenn, margir af þeim fara í hjúkrun. Og það er bara ótrúlega flott út úr því að það hlýtur …
… að vera gott að sjá einhverjar fyrirmyndir af framtíðarsýn í þessu starfi, að vera hjúkrunarfræðingur. Fjölmargir hjúkrunarfræðingar sem starfa á bráðamóttökunni byrjuðu sem sérhæfðir starfsmenn, en leiðin þaðan liggur ekki bara í hjúkrunarfræðina. Sumir fara í læknisfræði, sjúkraliðanám og enn aðrir í nám í félagsráðgjöf. Hér heyrum við í tveimur sérhæfðum starfsmönnum, fyrst Heklu og svo Vilborgu.
Ég tala oft um að þetta sé ávanabindandi, og ég held að það sé sko klárlega …
… starfsfólkið er stór hluti af því. Það er ótrúlega góður mórall, nú veist, ég hef ekki tekið eftir neinni stéttaskiptingu. Við erum öll að vinna saman og samvinna spilar svo mikið í þessu. En besta er líka bara að geta klárað málin eða fylgt einhverjum til fulls, að geta hjálpað einhverjum, jafnvel þó ég sé að gera eitthvað smá. Eins og var um daginn, kona sem var svo köld á fótunum og það var enginn búinn að geta náð að hjálpa henni í sokka. Ég settist niður hjá henni, hjálpaði henni í sokka, spjallaði við hana í nokkrar mínútur og …
… henni leið svo vel. Hún fékk svo mikið út úr því að fá þessa örvun, fá þetta spjall, aðeins einhver að spyrja bara: „Hvað segirðu?“ og þetta, og geta verið þessari manneskju aðeins, geta hjálpað fólki að líða betur. Það er ótrúlega gefandi.
Sko, ætlarðu að verða hjúkrunarfræðingur? Ég séri hvað fyrir þér, að þið langdýrisa menntaði eitthvað í þá áttina? Já, ég held að það séu flestir sem koma hingað inn, sérstaklega ástæðumannastéttina, sem smitast af þessu. Ég er núna …
… hérna á öðru ári í félagsráðgjöf og kynntist því bara hér. Ég vissi ekki að þetta væri háskólanám fyrr en ég byrjaði hérna og kynntist frábærri félagsráðgjafa hérna á bráðamóttökunni. Og ég held að það hafi bara svona, já, starfið hérna kveikt neista og …
… ég bara: „Vá, mig langar að geta verið svona líka. Mig langar að geta hjálpað og geta tekið þátt.“ Nú ertu hérna sem sérhæfður starfsmaður. Hefurðu eitthvað hugsað um framtíðina, hvað þig langar til að gera?
Það eru ekki bara einstaklingar sem verða ástfangnir af starfinu á bráðamóttökunni, það eru líka heilu fjölskyldurnar. Elín Tryggvadóttir, hjúkrunarfræðingur og aðstoðardeildarstjóri á bráðamóttökunni, hefur starfað á deildinni í 25 ár og á þeim tíma verið ólétt af tveimur börnum í vinnunni á göngum bráðamóttökunnar. Börnin eru löngu fædd og eru nú bæði með …
Já, einhver þarf að manna þessa deild, þannig að ég er búin að búa til hérna tvo krakka og tvö tengdabörn.
Kynntu þig nú fyrir okkur. Heyrðu, þetta er sem sagt hann Grímur. Hann er elsti strákurinn minn. Ég var í fæðingarorlofi bara rétt eftir að ég byrjaði hérna og hann er núna búinn að vinna hérna í nokkur ár. Svo er hún Eva, hún er í hjúkrunarfræðinni, hún er á öðru ári í hjúkrun. Svo er hún Lovísa, hún er að klára hjúkrunarfræðina, og hún er kærasta Gríms. Svo er Róbert, hann var að byrja sem sérhæfður aðstoðarmaður hjá okkur. Grímur, ég byrja á þér: hvernig er að vinna með mömmu þinni á vakt …
… og systur og mági og kærustunni? Það er bara fínt sko, svo sem ekkert, gaman mikið að segja sko. Eruð þið oft saman á vaktinni? Já, við erum stundum saman á vaktinni, en mér finnst oft svona þegar við erum í vinnunni saman þá erum við aðallega meira bara svona starfsfélagar heldur en eitthvað svona ákveðin fjölskylda sko. Hvernig er það, Lovísa, hvernig er að vera komin inn í þessa bráðafjölskyldu? Það er bara fjörugt sko, alltaf eitthvað að gerast og ótrúlega gaman að …
Geta tengt við fjölskyldulífið og, þú veist, vinnuna á…
Allir skilja hvað maður er að tala um. Svona heima á vinnunni er bara talað um hjúkrunarfræði og svona, það sem gerist þá eða getur gerst eða gerist hérna á bráðamóttökunni, mjög mikið, en líka annað, svo sem.
Róbert, þú ert nýr. Þau segja að þú sért nýbyrjaður. Hvenær byrjaðirðu? Ég byrjaði núna bara fyrir, eða ekki mánuði síðan, held ég. Ég er búinn samt með tíu vaktir núna. Ég er nýbúinn með aðlögunina mína og mér líst bara mjög vel á þetta.
Þú hlýtur að hafa verið búinn að hafa einhverja smáhugmynd um hvað þú værir að ganga inn í? Jú, jú. Ég er náttúrlega bara mikið fyrir svona skrýtna vinnu, sko. Ég hef verið að vinna á sjónum og spila, og svoleiðis, þannig að mér finnst bara gaman að prófa nýtt og bara að kynnast umhverfinu.
Hérna, og bara líst mjög vel á þetta. Elín, ertu ekki stolt af þessum hópi hérna? Þannig að þetta eru svona skrýtnar týpur sem vinna hérna og það kannski smitast svolítið heim. Þú hefur búið að vinna þetta í 25 ár og mér skilst að þeir sem hafa unnið hérna og prófa svo eitthvað annað komi alltaf aftur. Heldurðu að þitt fólk hérna, sem situr við hliðina á þér, verði hérna lengi?
Já, ég ætla að trúa því. Ég held að Eva sé með bráðabakteríuna. Lovísa er með bráðabakteríuna líka. Grímur ætlar að fara í sjúkraflutningana.
Svo, Róbert, við höfum bara eftir að skoða. Ég er með alla glugga opna.
Sko, annað er bara að sjá til hvernig manni líst á þetta allt og kynna sér alla möguleikana.
Við höfum fylgst með mörgum stórum og lífsbjargandi aðgerðum hér á bráðamóttökunni í þessum þáttum, en hér eru líka gerðar fjölmargar minni aðgerðir sem eru þó lífsnauðsynlegar fyrir sjúklingana. Hér erum við með Hilmari Kjartanssyni, sérfræðingi í bráðalækningum og fyrrum yfirlækni bráðamóttökunnar, á bráðastæði B, með Alexander, sérnámslækni, og Rakel, hjúkrunarfræðingi. Í sjúkrarúminu er sjúklingur sem hefur farið úr mjaðmalið og er búinn að fá slævandi lyf svo hægt sé að kippa honum í liðinn. Á læknamáli kallast það að reponera.
Hér útskýrir Hilmar aðgerðina: Tilgangurinn er að nota lyf svo að hann sé nógu slævður án þess að við tökum út öndunarveginn eða að hann falli í þrýstingi, þannig að hann geti bara andað í gegnum þetta. Þau hafa þó frekar stuttan tíma til þess að kippa þessu í liðinn, en þá er það líka bara stutt slæfing og minni hætta á einhverjum komplikasjónum, því að ef hann er nógu slakur til þá á hann aldrei eftir að muna neitt út af þessari meðvitundarskerðingu.
Ég varð alveg slakur núna, en þú ýtir á mig þegar…
…ég tek þig í mig.
Hvernig er að hreyfa um neðri mína? Þú sem liggur frá mjaðmabrotinu finnur oft best.
Þetta var fyrir 10 árum alltaf gert þá af svæfingarlæknum á skurðstofu. Þetta tekur náttúrlega miklu styttri tíma. Maður gerir þetta strax á bráðamóttökunni og fólk fer heim héðan. Þetta er bara, maður sér bara hvað er hérna á næsta neyðarstaði.
Það er maður sem kemur inn í kampi og svona, eins og þið voruð að lýsa, þá lítur út fyrir að hann sé mögulega með æxli í heila og svo þarf að gera mjaðma. Þetta er svo fjölbreytt starf. Já, já, það er kannski það sem…
Að drögum hann að þessu. Ég var lengi, sko, líka læknir. Hérna, áttaði mig samt fljótt á því að allir mínir valmánuðir voru annaðhvort á neyðarbílnum svokallaða, sem sagt úti í felltinu með sjúkraflutningamönnum, eða hérna niður á bráðamóttöku. Að skipulagður dagur fyrir mig hentaði mér ekki, en að koma í vinnuna og vita ekkert hvað gerist, það hentaði mér miklu betur.
En hvað heldurðu að sé í starfinu núna? Það er að skúra hérna líka, þarna, mikið um að vera. Hvað heldurðu að sé mikið álag hérna og mikið um að vera? Hvað er svona besta og skemmtilegasta við það? Það er innilega alveg einstakt starfsfólk hérna og hvergi, held ég, skemmtilegra að vinna. Ég ólst svo sem upp í fiskvinnslu og náði í lokin á síldarævintýrum og svona, og þetta minnir mig stundum bara á það að vera hérna að taka síðasta síldarfarminn og salta í tunnurnar og svona. Það er bara svo mikið að gera, væri eins og við séum alltaf á stöðvarvertíðinni hérna.
En það er starfsfólkið, það eru tengslin við sjúklingana. Þú veist, það er ekki endilega það sem dró mann fyrst í þetta. Það var kannski meira þetta bráða inngrip og þess háttar, en svo er þetta núna bara miklu meira tengingar við fólk, starfsfólk, sjúklinga, aðstandendur. Hvað er erfiðast við þetta starf hérna á framhaldinu? Veit það ekki. Það er alltaf erfitt að færa slæmar fréttir. Það er sorglegt, en á sama tíma sér maður oft fegurðina í stuðningnum sem fólk fær frá aðstandendum og svona. Þannig að það er alltaf líka, þegar eitthvað sorglegt er að gerast, þá sérðu líka oft eitthvað fallegt í því. Ég held ... gangandi og frá kulnun.
Ég get alveg ímyndað mér það. En við erum hérna inn á þessu neyðarstæði B-kút, eins og þú kallar. Jæja, ég spyr hérna bara: þú veist, ef þú hugsar bara hvað hefur gerst hérna akkúrat á þessu neyðarstæði sem þú hefur tekið þátt í, eru einhverjar minningar sem koma upp í hugann? Auðvitað án þess að þú viljir hérna nefna ... En hvað kemur upp í hugann? Það er svo margt sem hefur komið hérna í gegn, bæði bráðveik börn eða alvarlegir brunar eða endurlífgun. Það er bara svo margt um tryllta sjúklinga í geðrofi sem þarf að sprauta niður. Það er allt saman, en þú veist, þetta er svo sem bara þar sem maður hefur sérmenntað sig að fást við, svona fyrstu viðbrögð við alls konar alvarlegum eða minna alvarlegum veikindum.
Ungt fólk sem er kannski að velta fyrir sér hvað það langar til að leggja fyrir sig í lífinu: hvernig karakter myndirðu segja að væri bestur hérna fyrir deildina, ef þú ættir að segja fólki sem er að hlusta? Hvaða karakter heldurðu að ætti heima hér? Þessar svona steríótýpísku bráðalæknarnir eru í hjólafötum á götuhjólinu sínu og með svona nettan athyglisbrest með ofvirkni. Það er svona soldið steríótýpan. Það er alltaf eitthvað á bak við steríótýpuna, en maður hefur unnið með alveg rosalega fjölbreyttum og mismunandi karakterum á bráðamóttöku, bæði á Nýja-Sjálandi, Ástralíu og annars staðar.
Hér er annað verkefni sem kemur upp á vaktinni þegar melding berst frá sjúkrabíl.
Birna hjúkrunarfræðingur tekur á móti sjúklingnum. Sko, maður er að koma með blóðtappa í fæti og þegar þeir koma með hann þá er hún búin að rofna og búin að blæða hálfan lítra allavega á gólfið. Bara, húðin rifnar, bara ansi stórt sár að sjá. Erum að spá í að setja hann hér og svissa hingað. Nú er þetta orðið svolítið púsluspil. Við höfum bara ný bráðastæði. Við erum komin með fimmta sjúklinginn á bráðastæði.
Ragnheiður deildarlæknir sinnir sjúklingnum og Tryggvi Ófeigsson, sérnámslæknir á skurðsviði, er kominn til ráðgjafar og stendur með Þorhák. Við þurfum að fara í átján og fjórar einingar. Hvað heldurðu, þurfi sex? Ef þú pantar sex, já. Þú pantar sex einingar í hann með hraði. Hvernig geturðu metið eitthvað um hálfum lítra? Ég er með mínu að þessu.
Sá sem er á blóðþynningu getur upplifað ýmiss konar blæðingar eftir minni slys kannski heldur en ella. Er þetta ekki fjölbreytt að starfa á skurðsviði?
Jú, þetta er það, og kannski sérstaklega á vöktunum. Þá erum við sem sagt fyrir framan þær deildir sem eru hér í húsinu og erum ráðgefandi fyrir þau sérsvið sem eru staðsett á Hringbraut.
Þannig að við rekumst á vandamál frá æðaskurði, vandamál, kviðarholsskurði, vandamál, lýtaskurði, vandamál. Þetta eru ýmsar sérgreinar sem geta verið involveraðar.
Staðan er bara orðin nokkuð góð núna. Það sem við vorum að gera var að ná hérna stöðugleika. Hann byrjaði að blæða þegar hann kom hérna inn á bráðamóttökuna, sem ekki var utan spítalans.
Og missti töluvert af blóði, þannig að hann varð lágþrýstur, sem við köllum óstabíll. Þannig að okkur tókst að stabilísera hann þannig að við gætum framkvæmt frekari rannsóknir til að komast að því hvað væri í gangi.
Okkur núna er hún fremur líðað miklu betur og nú erum við bara að bíða eftir að fá aðra sérgrein á hús til þess að leggja mat á það nákvæmlega hvað verður gert og hvert hann leggst inn í framhaldið. Það eru nokkrir borð- og veggsímar í fjarskiptaherberginu á deildinni þegar þyrlan er væntanleg.
Með sjúkling hljómar þessi hringing.
Rakel er vaktstjóri á vaktinni og undirbýr komu þyrlunnar. Hún fer í öndunarstopp, sko, í sjúkrabílnum sem er áfram flytjandi suður. Já, hún er á síma, ég ætla bara að—
—rýma aðkomustæði fyrir hana. Hún er bara í það slæmu ástandi að þær óska eftir þyrlu til að mæta sjúkrabílnum, til að koma henni sem fyrst hingað til okkar, og hún er bara verulega óstöðug á leiðinni.
Ef sjúklingar sem eru fluttir með þyrlunni eru alvarlega veikir er lent á þyrlupallinum við bráðamóttökuna í Fossvogi. Það glymur í deildinni þegar þyrlan nálgast og lendir fyrir utan. Áður en þyrlan lendir er kallað á lögreglu.
Hún kemur og stöðvar alla umferð í kringum þyrlupallinn. Sjúkraflutningamenn bíða með sjúkrabörur á planinu fyrir framan þyrlupallinn og þegar flugstjórinn gefur þeim merki hlaupa þeir með börurnar að þyrlunni og fara með sjúklinginn inn á deildina.
Sjúklingurinn úr þessu flugi er fluttur beint inn á bráðamóttöku. Það sem viðar svæfingarlæknir, sem er á þyrluvaktinni, gefur upplýsingar um ástand sjúklingsins: Hún er þá vakandi og með það góða meðvitund að ég vildi ekki fara að slá hana út.
Hún er með atvikatrýsting. Hún er núna 120/66 og hún er með púls sem er óreglulegur, líklegast atviklusonur með glitangelsakúress, en hérna mettum við um bara að fá 80 til—
—85 prósentíóni. Ég veit ekki hvort það sé af því að við höfum kalda fyrirferð eða hvað sem aðeins sjákurnar eru á eyra og metana bara áður en síðan tilti manni síð.
María er í raun og veru annars vegar að berjast við læknisfræðivandann en ekkert síður lógistíkisvandann. Þannig að það að koma sjúklingi frá einum stað á annan á sama tíma og María reynir að leysa úr því sem er í gangi læknisfræðilega, það er oft svolítið snúið. Mér finnst oft flutningshlutinn eða lógistíkin—
—verða snúnari heldur en endilega læknisfræðin. En saman getur þetta orðið alveg heljarinnar vandamál og þetta þekkja sjúkraflutningamenn um land allt og eru flestir hverjir bara mjög flinkir við að vinna með það þegar þetta er það sem þeir gera stanslaust, sko. Það er lokaspurning: Er ekki gott að skila af sér sjúklingnum lifandi hingað?
Það er líka gott að komast inn í þurrt umhverfi, hlýtt, með ljósum og svona sérþarfir sem er að gera. Og heyrir þegar enginn finnst hávær við borðið. Þyrluna þannig að maður veit oft maður nær ekkert sambandi við sjúkraflutningamenn, getur ekki talað og fær fátt á hreint. Þannig að jú, að geta skilað fólki af sér í góðu ástandi þar sem tekur við honum, það gefur manni eitthvað.
Mikael Mikaelsson, annar af tveimur yfirlæknum bráðamóttökunnar, er líka þyrlulæknir og það er Rósa, eiginkona hans, einnig. Rósa er líka bráðalæknir. Þið munið bæði hérna, þið eruð bæði þyrlulæknar, bara hjón sem þyrlulæknar. Ég veit ekki hvort það sé mjög algengt, en hvernig er heimilislífið hjá okkur?
Við vinnum bæði 100 prósent og þetta er vaktavinna og miklar kröfur gerðar til okkar. Við þekkjum bara ekki annað. Við höfum alla tíð verið nátengd. Við kynntumst þegar hún var í
Nýja-Sjálandi. Hún hélt áfram námi og svo höfum við unnið saman, bara á sömu deildum síðan þá. Ég myndi segja að það reyni stundum á að taka vinnuna með sér heim, því miður, en sem allra, allra, allra minnst.
Og reynum að hafa skýr mörk þar á milli. Það er skilningur ef það er þyrluútkall á heimilinu. Jú, jú, það kom fyrir bara núna á sunnudaginn að kona var kölluð út eitthvað seinna.
Þetta kvölds og þurfti aðra þyrlu og þá auðvitað gat ég ekki farið, en ég var nú ekki á vaktinni þarna, þannig að það var kannski ekki stærra mál. En jú, jú, hún var burtu í 10–12 klukkutíma og þá sé ég þó á börnunum, út af því við erum saman í þessu hjónin.
Í blábyrjun þáttarins heyrðum við stutta klippu um endurlífgun á vettvangi og mikilvægi þess að við getum brugðist við þegar einstaklingur fer í hjartastopp fyrir utan spítala. Jón Magnús Kristjánsson er sérfræðingur á bráðamóttökunni.
Og fyrrum yfirlæknir bráðamóttökunnar. Þegar þetta viðtal var tekið var hann starfandi sérfræðingur á bráðamóttökunni, en er núna aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. Þið hérna sem starfið á bráðamóttökunni, fyrir utan vinnu, bara þegar þið eruð að sinna ykkar.
Hugðarefnum, hafið þið lent í því að þurfa að hefja endurlífgun á einhverjum sem er bráðkvaddur á sama stað og þið á sama tíma? Já, við höfum lent í því nokkrum sinnum, þrisvar, fjórum sinnum og kannski.
Mest áberandi var einhvern tímann þegar ég var að keyra á eftir öðrum bíl og hann fer allt í einu að keyra sérkennilega og fer svo hægt og rólega út fyrir veginn og lendir rólega á ljósastaur. Og þegar ég fer út þá er viðkomandi í hjartastoppi.
Undir stýri á bílnum fyrir framan mig, þannig að hérna, þetta hefur komið fyrir nokkrum sinnum.
Þú færð alveg nóg skammt í vinnunni. Hvað hugsaðir þú þegar þetta gerist? Þú dettur náttúrlega svolítið til baka á það sem þú kannt úr vinnunni og hérna, þannig að það er kannski minna annars vegar.
Minna panikk og þú veist hvað þú átt að gera: hringja á neyðarlínuna, hefja hjartahnoð og síðan að bakka út úr því þegar sjúkrabíllinn kemur. Þá ertu ekki læknirinn, þú ert vegfarandinn.
Þegar sjúkraflutningamennirnir koma, auðvitað ekki stjórnandi aðgerða þegar þú ert í fríi. En hins vegar finnur maður líka hvað það hefur meiri áhrif á mann að.
Koma að slysi eða hjartastoppi eða látnum einstaklingi utan vinnunnar heldur en í vinnunni, þegar þú setur þig í ákveðinn gír og ferð í ákveðna brynju þegar þú mætir í vinnuna, sem er.
Ekki til staðar þegar þú ert svo heima eða bara að.
Sinna þínum málum eða einhvers staðar annars staðar. Þá á ég ekki von á því og þá er ég ekki í þeim gír, og þá finn ég að þetta hefur meiri áhrif á mann. Finnst þér almenningur og þeir sem eru að hlusta á.
Þetta, finnst þér að fólk ætti að kynna sér og læra hjartahnoð og endurlífgun? Mér finnst það alveg tímalaus lausn að allir ættu að læra hjartahnoð, endurlífgun og skyndihjálp, vegna þess að.
Langflestir lenda í því einhvern tíma á ævinni að þetta gerist einhvers staðar þar sem við erum stödd, og það er mikið öryggi fyrir þann sem fer í hjartastopp að einhver geti brugðist við. En það hefur líka jákvæð áhrif.
Á þig að vita hvað þú átt að gera, að vita og geta treyst því að þú sýndir rétt viðbrögð og efast ekki um að þú hefðir getað gert eitthvað öðruvísi. Þannig hvet ég alla til þess að læra skyndihjálp og hjartahnoð.
Og munið alltaf eftir símanúmerinu 112. Már Björnsson, annar af tveimur yfirlæknum bráðamóttökunnar, ítrekar mikilvægi þess að við lærum öll skyndihjálp. Það eiga allir að kunna hjartahnoð, það eiga allir að kunna að bregðast við og fara á.
Skyndihjálparnámskeið og rifja þessa þekkingu upp reglulega, því hún svo sannarlega bjargar mannslífum. En það er ágætt að hugsa til þess líka að þegar þú hefur séð fólkið koma með sjúkrabílum hingað inn í endurlífgun, þá er margt búið að gerast áður.
En það kemur hingað. Það þarf að segja í fyrsta lagi: þá þurfti einhver nærstaddur að greina rétt hvað var í gangi og hringja á aðstoð. Það eru neyðarverðirnir á neyðarlínunni sem þurfa aftur að greina rétt hvað er í gangi og senda sjúkrabílinn á staðinn þar sem sjúkraflutningamenn…
Og síðan, ef að þetta skilar árangri, þá lifir fólk oft. Það gekk, og það einhvern veginn, það er stórkostlegt að upplifa það. Já, þá fær fólk lengri tíma á þessu.
Brynjar Þór Friðriksson er deildarstjóri á aðgerðasviði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og hefur starfað í slökkviliðinu í rúm 34 ár. Binni, eins og hann er alltaf kallaður, þekkir vel til endurlífgana.
Stundum gerist það að einstaklingur sem hringir í 112 og tilkynnir um hjartastopp treystir sér ekki til að veita sjúklingnum hjartahnoð. Stundum, fyrir komuleytið, er þá enginn að sinna sjúklingnum eða veita endurlífgun, en stundum er einhver að gera það. Neyðarlínan er mjög dugleg við að veita leiðbeiningar og aðstoða fólk við að framkvæma endurlífgunina. Það er um að gera að hlíta þeim leiðbeiningum sem þau gefa, af því að öll endurlífgun, sko, hún raunverulega bara eykur lífslíkur.
Og bætir leik sjúklingum, sko. En hverjar eru svona þínar leiðbeiningar til fólks sem veit ekki neitt og kannski fer aldrei á námskeið? Hvað á það að gera? Ég ætla í fyrsta lagi bara að segja: hringja í 112, hvað er í gangi, og fá leiðbeiningar frá þeim. Við höfum duglega leiðbeinendur við fólk um hvað á að gera og hætta að gera.
En þú ætlar alltaf bara að reyna endurlífgun, sko. Í dag er bara viðurkennt að hnoða. Það þarf ekki að blása í munn fólki og veita öndunaraðstoð, en það er nóg að hnoða. Það þarf umfram allt að gera það. Fá fólk þá á harðan flöt. Ef einhver er í rúmi, setja hann á gólfið, hnoða þar og finna réttan stað. Þetta er svona bara miðja innan brjóstkassans og hnoða það niður nokkra sentímetra.
Og þarna bara hnoða þá. Þá vill að aðrir bergi koma við sjúklinginn. Lögregla og þá kemur fólk með þekkingu og tekur þá við. En ekki hætta að hnoða fyrr en viðbragðsaðilar koma. Þegar þeir vilja, þá fá þeir tíma til þess að gera sig klára, en þess í stað þá bara meta þeir sjúklinginn. Ef hann er ekki með púls eða finnur ekki að hann sé að anda, þá er hann ekki með púls og þá hnoðar maður.
Og þá máttu bara treysta þeim fyrir skoðun. Allt er betra en ekkert, nóg, sko, það er bara þannig. Ég tók eftir því að ég hef nú verið viðstaddur endurlífgun sem því miður hefur ekki tekist niður á bráðamóttöku og séð sérhæfða starfsmenn ná í fullt af öðru starfsfólki, fara í hnoðröðina og beita hjartahnoði. Mér finnst ég vera miklu öruggari bara af því að hafa séð þetta.
Ingvar er sérhæfður starfsmaður á bráðamóttökunni og hann er nýkominn á kaffistofuna eftir endurlífgun á neyðarstæði, þar sem hann var í hnoðröð og beitti hjartahnoði mörgum sinnum. Ég hitnaði. Tók eftir því að þú tókst nokkra hringi þarna í hnoðröðinni. Ég sé það á þér að þú ert þreyttur.
Já, ég er búinn með tvær æfingar í dag og ég var að hnoða mann. Það gekk svo vel að hjúkrunarfræðingur bara fór aftur í fyrsta skipti. Þetta er náttúrlega bara sjokk. Þú ert að hnoða mann, horfir til vinstri og sérð bara mann sem er ekki á lífi og þú ert að hnoða. En síðan, með reynslunni, þá verður þetta meira bara starf mitt.
Leitt að þessi sjúklingur, hann lifði ekki. Þú ert þreyttur, en hvernig ertu svona núna? Spyr ég bara eins og þú veist, þið alveg hreint út: Hvernig ertu andlega eftir svona? Það er alltaf sárt að sjá mann sem maður endurlífgar ekki ná að lifa af. En eins og ég segi þá er ég á bráðamóttökunni og er ekki viðbúinn þessu, við að veita í kvitt.
Hefurðu tekið þátt í endurlífgun sem virkaði, þar sem sjúklingurinn lifir? Já, það gerðist í gær og hann fékk púls. Áttum ekki von á því og síðan fór hún á Hringbraut og hún var bara að besta fram.
Er það ekki þar sem þú færð líka góða tilfinningu fyrir því að akkúrat þegar endurlífgunin tekst, það er geggjað, sko. Sérstaklega þegar þú ert að hnoða á fyrirgang. Það er mjög góð upplifun. Davíð Ottó Arnar er yfirlæknir hjartalækninga og landsbyggðatölunnar og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.
Davíð, við hittumst síðast niður á bráðamóttöku þar sem þú einmitt varst staddur þar og varst viðstaddur endurlífgun á sjúklingi sem var komið inn með, sem var í LUCAS-hjartahnoðtæki.
Sem því miður tókst ekki. Er það algengt á Íslandi að svona aðgerðir takist ekki? Já, það er allur gangur á því. Sem betur fer gengur þetta mjög vel og með frábærum árangri.
En horfur einstaklinga sem fara í hjartastopp utan sjúkrahúsa byggjast töluvert á því hvað er gert fyrstu mínúturnar. Við höfum lagt mjög mikla áherslu á að ef einhver verður vitni að því að manneskja hnígi niður sé strax byrjað að gera eitthvað.
Hringja á hjálp, hringja í 112 og fá sjúkrabíl á staðinn. Á meðan beðið er er allavega gert hjartahnoð.
Að gera hjartahnoð á meðan beðið er eftir sjúkrabíl skiptir mjög miklu máli, vegna þess að það eykur blóðflæði til hjartans. Þetta skiptir sköpum fyrir það hvað er svo hægt að gera þegar sérhæfð aðstoð kemur á staðinn.
Ef það líður langur tími og ekkert er gert, þá er stundum erfitt að bjarga hlutunum. Þá er yfirleitt reynt á vettvangi og sjúklingurinn fluttur á bráðamóttöku, en þá er oft litlu að bjarga ef langur tími hefur liðið frá því að hjartastoppið átti sér stað eða ekkert verið gert á meðan beðið var.
Nú segir slökkviliðið að stundum þori þeir sem hringja, sem verða vitni að þessu, ekki að gera neitt á vettvangi áður en sjúkrabíllinn kemur. En hvað er það versta sem getur gerst fyrir þann sem reynir, en kann ekki? Það er kannski skiljanlegt að fólk sé smeykt við að gera eitthvað vegna svona uppákomu, valdi oft hræðilegri geðshræringu, ekki síst hjá þeim sem verða vitni að henni.
Við höfum reynt að einfalda viðbrögðin eins og við mögulega getum. Fyrir nokkrum árum var Endurlífgunarráð Landlæknisembættisins með herferð undir kjörorðunum „Hringja og hnoða“, sem hætt var auðvelt að muna: Það var hringt í 112 og svo byrjað að hnoða.
Jafnvel fyrir þá sem kunna ekki hjartahnoð og hnoðið er ekkert sérstaklega gott, þá getur það samt hjálpað. Það versta sem getur gerst er að nokkur rifbein brotni. Það er auðvitað ekki gott, en það er öllu skárra en allt annað.
Hér koma einfaldar leiðbeiningar frá Davíð. Það er náttúrlega dálítið annað fyrir leikmann að framkvæma hjartahnoð en þann sem er vel þjálfaður í því, en það sem kannski skiptir máli er að hnoða á mitt bringubeinið tiltölulega hratt, svona um það bil 100 sinnum á mínútu.
En það er erfitt, og það er betra að hnoða í einhvern tíma, hvíla í augnablik og halda svo áfram að hnoða heldur en að gera ekki neitt. Það skiptir sköpum að láta til sín taka með einhverjum hætti við þessar kringumstæður.
Hefðirðu fleiri á staðnum, skiptið þá á að hnoða. En þetta getur verið munurinn á lífi og dauða. Þessi sjálfvirku hjartastuðtæki, sem eru mjög víða, fleiri þúsund tæki út um allt land: Skiptir það máli að fólk komist í svona tæki á svona stundum?
Já, það getur skipt mjög miklu máli, sérstaklega ef bið er eftir sjúkrabíl. Þessi tæki eru komin víða, þau eru mjög gagnleg og hafa klárlega bjargað allmörgum mannslífum.
Það sem mælt er með að gera með þessi tæki, sem eru nú kannski í íþróttamiðstöðvum og sundstöðum og víða þar sem margir koma saman, er að ef einhver hnígur niður úr sér stað, þá er hringt í 112, byrjað að hnoða og óskað eftir því að kannað verði hvort hjartastuðtæki sé á svæðinu.
Ef svo er, þá er það tengt eins fljótt og hægt er og farið eftir leiðbeiningunum sem tækið gefur, bæði í máli og myndum.
Við erum komin til að spjalla á slökkvistöðinni og hann er með hálfsjálfvirkt hjartastuðtæki sem hann ætlar að kveikja á og leyfa okkur að heyra hvernig það virkar.
Þetta er hálfsjálfvirkt hjartastuðtæki og við erum með svona í dælubílunum, en í sjúkrabílunum eru dýrari tæki. Þetta er svona týpískt tæki eins og er kannski á flestum fyrirtækjum eða stofnunum á svæðinu. Þetta er mjög víða og þeim fer alltaf fjölgandi.
Það er búið að setja upp einhvers konar forrit sem heldur utan um hvar tækin eru. Nú er verið að vinna í því að setja öll tækin inn, en þetta nálgast. Í sumum löndum er komið forrit sem hægt er að fara inn í og sjá hvar næsta tæki er, og það þjálfar fólk á ákveðnum svæðum svo það getur brugðist við með tæki til að stuða áður en sjúkrabílarnir koma.
En nú erum við hérna á vettvangi og þessi sjúklingur hérna, og þú ert að fara að tengja. Þú ert búinn að tengja við tækið. Nú hleypur hann að tækinu og opnar það, og þá eru svona límplötur.
Í því, og límir plöturnar á sjúkling, eins og myndin sýnir á pakkanum. Tengir svo snúruna sem kemur að plötunum í tækið og kveikir á tækinu. Nú kveikir tækið á sér.
Það gerir grein fyrir því á hverjum gangi. Og nú, þegar takturinn er greindur og hann hefur stöðvast, þá hækkar hann að hliðra sér upp. Og nú leiðir hann okkur að því að stuða. Það má segja: „Það má stuða takt.“ Og segja mér að hita tækið? Ég ætla að hita tækið.
Það stuðar. Þá er spurningin: Greinir það að takturinn sé ekki að fara í sko, þá takt sem dælir í hjartanu? Þá segir hann okkur að hnoða og telur niður í tvær mínútur á meðan við höldum áfram að hnoða. Þá greinir tækið aftur.
Það leyfir okkur þá stöðuglega takt. Ef það er ekki stöðuglega takt, þá segir það okkur að halda áfram að hnoða. Tækið hleypir niður í raunveru hvað átti að vera að gera. Tóninn sem við heyrðum áðan, það er sem spyrjar eða greinatækin tengja það, og svo ef það fær greinilega takt...
...þá kemur þessi hækkandi tónn. Það er meðan tækið hleður sig upp til þess að ná spennunni til stuðstöðu. Og þarna, svo þegar tilboðastöðvar, þá segir það þér að gera þetta. Þetta er svo hálfsjálfvirkt tæki, þannig að þú værir að ýta á takkann til að stöðva. Munurinn á þessu og allsrákurtæki er að allsrákurtæki myndu segja þér: „Farið frá, farið frá,“ og svo stuða.
Ég er kominn á slökkvistöðina í Mosfellsbæ og hitti þar Bjarna Boga Gunnarsson, sjúkraflutningamann. Til að gefa ykkur hugmynd um það hvernig símtal til Neyðarlínunnar hljóðar þegar tilkynnt er um einstakling í hjartastoppi fengum við leyfi til að hringja í borðsímann hjá Kristófer, neyðarverði á Neyðarlínunni, sem ætlar að leiðbeina Bjarna Boga að beita hjartahnoði.
Það hlýtur að hjálpa fólki. Geturðu heyrt hvernig þetta virkar þegar hringt er í Neyðarlínuna? Þekkið það nú sjálfur? Ég fæ bara skilaboð frá þeim, þannig að það verður forvöld að heyra. En hvernig er það, til dæmis, hefur maður heyrt af því þegar þið eruð að mæta á vettvang þar sem manneskja er mögulega í hjartastoppi, og þeir sem hringja eða fólk sem er nálægt, að það...
...hreinlega bara þorir ekki að veita fyrstu hjálp eða treystir sér ekki til þess? Já, það er mjög algengt að fólk þori því ekki, þannig að það er bara um að gera. Það skiptir mjög miklu máli að hefja endurlífgun, þó að það sé bara hnoð.
Við erum að labba við vinnuna og ég hníg bara niður. Ég er bara grænn á bak við eyrun og ætla að fá hjálp hjá Neyðarlínunni, og hringi þá.
Já, góðan daginn. Ég er hérna uppi í Heiðmörk og vinur minn féll niður og ég held að hann sé hættur að anda. Þetta er uppi í Heiðmörk, rétt hjá Rauðhólum.
Þetta er nær öllu að vatni. Ég þarf að...
...finna hvar þú ert.
Nei, við erum bara hérna á göngustígnum, ekkert langt frá bílnum.
Ég er búinn að reyna að tala við hann og ýta við honum og svara. Eitthvað datt bara niður.
Við hann labba, það er eitthvað rosalega lítið. Ég geri mér ekki grein fyrir því, bara ég heyri eitthvað lítið.
Hefurðu lagt skyndihjálp? Við ætlum að byrja að hnoða þá. Leggðu eina hendina ofan á miðjan brjóstkassann saman og hina ofan á miðjan brjóstkassann og...
...hnoða fimm til sex sentímetra niður. Vertu með beinar hendur og beygðuð í mjöðmunum, ekki nota hendurnar. Já, ég er að reyna að telja upp á þrjátíu.
Það er svolítið erfitt. Það er mjög erfitt. Teldu með mér upp í þrjátíu: tveir, sex, sjö, átta, níu, tíu, ellefu, tólf, þrettán, fjórtán, fimmtán, sextán, átján, nítján.
Tuttugu og tveir, tveir, tveir, tveir, tveir, fjórir, tveir, fimm, sextíu og sjö, tveir, áttatíu, þrjátíu. Það er of erfitt.
Eitthvað skrýtið. Hvað leggst þér? Þetta.
Í hendurnar. Ég veit það ekki. Manstu? Svo er erfitt bara, aldrei gestardag.
Ég ræddi við Kristófer neyðarvörð eftir símtalið. Það sem við heyrum þarna er þessi taktur, þetta er takturinn sem þið gefið fólkinu til þess að halda takti í endurlífguninni.
En þetta var nú sem betur fer bara svona leikið símtal. En í hvernig ástandi er fólkið sem hringir í ykkur, og þú veist, hvernig gengur að leiðbeina, eins og þú gerðir þarna?
Flækist ég í þessu? Síðan að vera að reyna staðsetningu var samt erfitt og það hefði tekið smá tíma að finna hana. Ég hefði alltaf þurft að finna hana áður en ég myndi senda af stað, en hann væri svolítið fastur í því þangað. En annars er...
Þetta er bara mjög mismunandi. Stundum eru þetta erfið símtöl, stundum eru þetta þægilegir undirbúningar, já. En þetta skiptir alltaf mjög miklu máli, að veita þessa aðstoð, að beita þessu hjartahnoði þangað til að bráðaliðar koma.
Já, það skiptir bara gríðarlega máli að byrja frekar hratt og örugglega. Og þetta gekk nú bara ágætlega, þú bjargaðir mér. Já, þú ert bara heppinn í þetta skipti, því að þú þorðir að hnoða. Það skiptir...
...öllu máli. En hvernig er þetta svona í alvörunni þegar þið eruð að mæta og kannski að taka við hjartahnoði af einhverjum sem hefur verið að hnoða, akkúrat við þessar aðstæður, að bíða eftir ykkur? Það er náttúrulega bara mismunandi.
Yfirleitt er fólk að hnoða og þá getur vinnan aftur lagst á sjúklinginn. Það er raunar orðinn annar sjúklingur líka, að hafa vanlíðan og vesen fyrr en þú kemur. Þá snýr sér jafnvel einn af þeim í bílnum til að sinna viðkomandi ættingja, nánum aðila, til að tala við hann. Það þarf bara að taka utan um það fólk líka.
En maður, Emil, tók eftir því hvernig þú varst að gera þetta bara...
...til þess að fólk myndi læra. Þá varstu að spyrja: „Hvar á ég að staðsetja hendurnar?“ Og hann sagði það. En hvað á að ýta fast? Þetta er náttúrlega bara misjafnt eftir því hvað skrokkurinn er stór og hversu gamall einstaklingurinn er.
Það þarf að ýta mjög fast til að ná, sérstaklega á hristum karlmönnum og svona. Á minni líkömum þarf minna, og það er alveg hætta á að bein brotni. Það gerist sérstaklega hjá eldra fólki, sem er með bein sem eru stökk og svona. En það getur bjargað...
...skiptir máli að gera eitthvað. Heyrum aðeins í Hjördísi Garðarsdóttur, mannauðs- og fræðslufulltrúa Neyðarlínunnar. Þessar aðstæður skapast á vettvangi, þar sem fólk hefur kannski ekki lært skyndihjálp og hefur aldrei beitt hjartahnoði.
Veit ekkert hvað það á að gera. Hvað skiptir máli fyrir þetta fólk að gera?
Númer eitt, tvö, þrjú myndi ég segja: hlusta á neyðarverðina. Neyðarverðirnir eru nokkuð sérþjálfaðir í að leiðbeina fólki til þess að við fáum sem besta útkomu á staðnum. Svara spurningum og fylgja leiðbeiningum. En það skiptir máli fyrir fólk að fara á námskeið.
Er það ekki í rauninni? Jú, það er náttúrlega grundvallarforsenda. Það ættu allir að fara á skyndihjálparnámskeið og læra endurlífgun. Tvenns konar fólk er annars vegar viljugt til þess að hefja, en við...
Vitum við.
Það munu aldrei allir fara á námskeið, en það fólk á líka eftir að lenda í því að vera viðstatt þegar einhver hnígur niður og mögulegt hjartastopp verður. Getur þetta fólk einhvers staðar leitað sér upplýsinga til þess að verða betur undir það búið hvað á að gera?
Já, það er til ótrúlega mikið efni á netinu, hjá Rauða krossinum, hjá Landsbjörg, hjá Skyndihjálparskólanum og bara erlendis frá. Þannig að það er alltaf hægt að fræða sjálfan sig. Við mælum með að nota svona traustar heimildir.
Endurlífgun í bíómyndum er ekki endilega það besta. Svo er bara að fylgja leiðbeiningum neyðarvarðar; þeir gefa ótrúlega góðar leiðbeiningar, skref fyrir skref, um hvað á að gera þegar á endurlífgun stendur. Ég ætla sjálfur að skella mér á skyndihjálparnámskeið og ég fann nokkur þegar ég fór á netið og leitaði. Það getur nefnilega gerst hvar og hvenær sem er að við lendum í þeirri aðstöðu að vera nálægt þegar einstaklingur fer í hjartastopp. Hér heyrum við aftur í Davíð, yfirlækni hjartalækninga á Landspítalanum.
Ef við værum að veiða saman úti í stál og ég myndi nú bara hníga niður á bakkanum, hvað myndirðu gera?
Ég myndi hringja í 112 og athuga fyrst hversu langt við værum frá næsta sjúkrabíl. Ef það væri mjög langt í hann, þá kæmi til greina að kalla á þyrlu. Ég myndi reyna að fá einhverja aðstoð til þess að athuga hvort það væri til hjartastuðtæki í veiðihúsi þarna rétt hjá, og svo myndi ég hnoða.
Ef þú hefur áhyggjur af heilsu þinni er bent á vefinn heilsuvera.is eða að hringja í símanúmerið 1700. Í neyðartilvikum er mikilvægt að hringja í neyðarnúmerið 112.
Halldór Gunnar Pálsson hannaði hljóð og stef þáttarins. Ef einhverjir vilja koma til mín ábendingum þá er netfang þáttarins avettvangi@heimildin.is.
Það er hægt að gerast áskrifandi að Heimildinni, því svona þáttagerð er dýr og hver áskrifandi skiptir máli.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga styrkti gerð þessa þáttar.
Athugasemdir