Á vettvangi

Hver mín­úta mik­il­væg

Í neyðartilvikum getur hver mínúta skilið á milli lífs og dauða - sérstaklega þegar um hjartastopp er að ræða. Þegar hjartahnoð hefst strax aukast lífslíkur sjúklingsins verulega. Þrátt fyrir þetta treysta sumir sér ekki til að veita aðstoð á vettvangi á meðan sjúkrabíll er á leiðinni á vettvang. Í seinni hluta þáttarins ræðum við mikilvægi þess að kunna fyrstu hjálp og hvernig rétt viðbrögð allra á vettvangi geta bjargað mannslífum. Við höldum áfram ferð okkar um bráðamóttökuna og kynnumst fjölbreyttum verkefnum starfsfólksins.Við heyrum sögu fjölskyldu sem starfar saman á bráðamóttökunni og hjónum sem starfa bæði sem þyrlulæknar. Við fylgjumst með þyrlunni lenda með fárveikan sjúkling við bráðamóttökuna og þegar sjúklingur með blóðtappa þarf tafarlausa aðstoð. Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir.
· Umsjón: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Óttast stefnubreytingu hjá DR
    Eitt og annað · 09:15

    Óttast stefnu­breyt­ingu hjá DR

    Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna
    Sif · 04:33

    Lík­inda­reikn­ingur laus­gyrtra dóms­dags­spá­manna

    Comté eða ekki Comté
    Eitt og annað · 05:06

    Comté eða ekki Comté

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1