Mynd: Aðsend mynd

Óvissa um jafnræði fjárfesta vegna kaupa á WOW air

Hver veit hvað um kaup Icelandair á WOW air? Af hverju sendi Fjár­mála­eft­ir­litið út dreifi­bréf til þess að brýna fyrir ráðu­neytum og stofn­unum að fylgja lögum um inn­herj­a­upp­lýs­ingar?

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) fór fram á það við Kauphöll Íslands í gær­morgun að við­skipti með bréf í Icelandair Group yrðu stöðvuð. Engar upp­lýs­ingar feng­ust um af hverju þetta var gert framan af degi. Það eina sem til­kynnt hafði verið um sem tengd­ist Icelandair í aðdrag­and­anum voru kaup félag­ins á hlut í rík­is­flug­fé­lagi Græn­höfða­eyja, sem voru ekki af þeirri þeirri stærð­argráðu að mark­aðir ættu að fara á hvolf vegna þeirra. Því töldu fæstir við­mæl­endur Kjarnans að þau við­skipti væru ástæðan fyrir beiðni FME.

Það kom síðan í ljós um hádeg­is­bil að ástæðan var önnur. Icelandair sendi frá sér aðra frétta­til­kynn­ingu vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa félags­ins á WOW air, sem til­kynnt var um í byrjun nóv­em­ber. Í til­kynn­ingu Icelandair kom fram að ólík­legt væri að allir þeir fyr­ir­varar sem settir hefðu verið í kaup­samn­ing­inn yrðu upp­fylltir áður en hlut­hafa­fundur Icelandair verður hald­inn næst­kom­andi föstu­dag. Á þeim fundi stóð til að stjórnin myndi kjósa um hvort að af kaup­unum verði eða ekki. Í til­kynn­ing­unni sagði enn fremur að unnið yrði áfram „í mál­inu og við­ræður standa yfir milli samn­ings­að­ila um fram­gang máls­ins.“

Óljósir fyrirvarar sem geta skipt miklu máli

En hvað þýðir þetta allt saman? Um hvaða fyr­ir­vara er verið að ræða? Og hvaða máli skipta þeir?

Tilkynnt var um kaup Icelandair á WOW air í byrjun nóv­em­ber. Uppgefið kaup­verð á WOW air , sem átti að greiða með hlutum í Icelandair, var um tveir millj­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­kynnt var um kaupin.

Kaup­verðið var hins vegar bundið allskyns fyr­ir­vörum. Í til­kynn­ingu vegna kaupanna kom fram að Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, ætti að 1,8 pró­sent hlut í Icelandair fyrir þau víkj­andi lán sem hann breytti í hlutafé fyrr á þessu ári. Þau voru upp á tvo millj­arða króna en virði hlut­ar­ins sem hann átti að geta fengið var 684 millj­ónir króna þegar til­kynnt var um kaupin. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans fer hluti þess­arar greiðslu í að gera upp við aðra kröfu­hafa Skúla.

Þá var gengið út frá því að aðrir hlut­hafar, sem er félagið Títan fjár­fest­ingar í eigu Skúla Mogensen, muni fá um 3,5 pró­sent hlut í Icelandair. Það gagn­gjald er þó bundið nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar. Sýni slík könnun að staða WOW air sé betri en reiknað er með getur hlutur stofn­and­ans farið upp í 4,8 pró­sent. Sýni hún mun verri stöðu getur Skúli setið uppi með að fá ekk­ert til við­bótar fyrir WOW air.

Til við­bótar þarf Sam­keppn­is­eft­ir­litið að sam­þykkja kaupin. Engar upp­lýs­ingar fást þaðan um hvar sú vinna stendur né á hvaða for­sendum hún fer fram. Það skiptir til að mynda miklu máli um hver ákvörðun eft­ir­lits­ins verður á þeim grund­velli að þar séu tveir rekstr­ar­hæfir sam­keppn­is­að­ilar, með yfir 70 pró­sent sam­an­lagða mark­aðs­hlut­deild, að renna saman í eina sæng eða hvort óskað sé eftir því að sam­run­inn sé heim­il­aður vegna reglna sam­keppn­is­rétt­ar­ins um fyr­ir­tæki á fallanda fæti.

Viðskiptin í vikunni á undan

Hluta­bréf í Icelandair hækk­uðu um tugi pró­senta í virði strax og til­kynnt var um kaupin og um tíma voru við­skipti með bréfin stöðvuð.

Miklar vanga­veltur spruttu strax upp um það á mark­aði hvort að inn­herj­a­upp­lýs­ingar um að kaupin væru fyr­ir­huguð hefðu lekið út áður en að til­kynnt var um þau. Auk þess þóttu upp­lýs­ingar sem veittar voru um við­skiptin í til­kynn­ingu til Kaup­hallar að mörgu leyti tak­mark­aðar og erfitt að átta sig á þeim fyr­ir­vörum sem settir voru fyrir kaup­unum.

Mikil við­skipti höfðu verið með bréf í Icelandair í aðdrag­anda til­kynn­ing­ar­innar, en þó var hægt að skýra þau, að minnsta kosti að hluta, með því að benda á að mikið hafði verið að ger­ast hjá félag­inu dag­anna á undan. Í vik­unni áður en til­kynnt var um vænt kaup á WOW air þá birti Icelandair níu mán­aða upp­gjör, sendi út til­kynn­ingu um sölu­ferli hót­ela í eigu félags­ins og nýjar flutn­ings­tölur voru birtar. Það voru því aðrar ástæður fyr­ir­liggj­andi sem gátu skýrt hin auknu við­skipti.

Það breytti því þó ekki að tor­tryggni var enn til staðar. Og mikið var pískrað um að ein­hverjir hefðu mögu­lega vitað meira en aðrir.

Dreifibréf um meðferð innherjaupplýsinga

Ekki minnk­aði sú tor­tryggni þegar FME sendi frá sér dreifi­bréf til ráðu­neyta og til­tek­ina stofn­ana þar sem sér­stök athygli var vakin á gild­andi lögum og reglum sem gilda um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga hjá stjórn­völdum. Samkvæmt þeim ber stjórn­völdum og öðrum aðilum sem fá reglu­lega inn­herj­a­upp­lýs­ingar í starf­semi sinni að fylgja reglum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipti inn­herja eftir því sem við getur átt.

Þetta dreifi­bréf var sent út viku eftir að fyr­ir­huguð kaup Icelandair á WOW air voru gerð opin­ber og því velkt­ist eng­inn í vafa um að áhyggjur eft­ir­lits­ins voru vegna upp­lýs­inga tengdum þeim við­skiptum. Engin önnur stór við­skipti, sem köll­uðu á mögu­lega aðkomu stjórn­valda, höfðu verið í deigl­unni.

Fyrir liggur að starfs­menn og stjórn­endur ákveð­inna rík­is­fyr­ir­tækja og stofn­ana, sér­stak­lega Sam­göngu­stofu og Isavia, hafa haft ítar­legri upp­lýs­ingar um raun­veru­lega stöðu WOW air en flestir aðrir um nokkuð langt skeið. Sam­göngu­stofa hefur enda eft­ir­lit með þeim félögum sem starfa sem flug­fé­lög og Isavia átti í umtals­verðum við­skiptum við WOW air, meðal ann­ars vegna lend­ing­ar­gjalda. Heim­ildir Kjarnans herma að WOW air hafi verið í van­skilum með slík gjöld í tölu­vert langan tíma og Morg­un­blaðið hefur sagt að sú upp­hæð hafi verið um tveir millj­arðar króna snemma í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Isavia hefur hins vegar ekki viljað veita upp­lýs­ingar um van­skil flug­fé­laga.

Aðkoma stjórnvalda

Þá hefur verið und­ir­liggj­andi spenna vegna aðkomu stjórn­valda að stöðu mála í íslenska flug­geir­anum og opin­berra ummæla ráða­mann um þá aðkomu. Þar hafa líka vaknað upp spurn­ingar um hvort að jafn­ræði ríkti í upp­lýs­inga­gjöf.

Undir lok árs­ins 2017 hófu stjórn­völd þrátt fyrir það vinnu við að und­ir­búa við­bragðs­á­ætlun vegna flug­fé­lag­anna, en þó þannig að lítið bar á. Fjögur ráðu­neyti (sam­göngu-, fjár­mála- og efna­hags­mála-, for­sætis- og iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti) komu að verk­efn­inu.

Fyrir liggur að stjórn­völd skip­uðu starfs­hóp í vor sem átti að meta mögu­leg áhrif áfalla í rekstri íslenskra flug­fé­laga. Sá hópur vann sviðs­mynda­grein­ingu sem lá fyrir í lok sum­ars. Á meðal þess sem þar kom fram var að gjald­þrot WOW air hefði getað leitt til þess að lands­fram­leiðsla drægist saman um tvö til þrjú pró­sent og gengi krón­unnar veikt­ist um allt að 13 pró­sent á næsta ári. Þessar upp­lýs­ingar láku út og voru birtar í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði opin­ber­lega að ekki hefði komið til tals að ríkið myndi grípa inn í stöðu íslensku flug­fé­lag­anna.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­fé­laga­mála­ráð­herra, sagði um sama mál í við­tali í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að rík­is­stjórnin hefði „talið að það væri miklu eðli­legra að fyr­ir­tæki björg­uðu sér á mark­aði og að við myndum leita allra leiða til að hafa inn­sýn inn í atburða­rás­ina og grípa inn í með eðli­legum hætti.“

Skúli setur kaupin í uppnám

Opinberu upp­lýs­ing­arnar sem gefnar voru um fyr­ir­huguð kaup Icelandair á WOW air voru að mörgu leyti tak­mark­aðar. Erfitt var að átta sig á þeim fyr­ir­vörum sem settir voru fyrir kaup­unum auk þess sem upp­lýs­ingar um raun­veru­lega fjár­hags­stöðu WOW air, sem hefur verið rekið sem nokk­urs konar „black box“ árum saman, hafa verið mis­vísandi.

Ekki skán­aði sú staða í gær þegar við­skipti með bréf í Icelandair voru stöðvuð að beiðni FME, sem sagði að það hafi verið gert til að vernda jafn­ræði fjár­festa.

Síðar um dag­inn upp­lýsti Icelandair með til­kynn­ingu til Kaup­hallar að ólík­legt væri að fyr­ir­varar í kaup­samn­ingi á WOW air yrðu upp­fylltir fyrir hlut­hafa­fund sem fara á fram á föstu­dag, 30. nóv­em­ber. Þar stóð til að sam­þykkja eða hafna kaup­unum. Ekki var greint frá því hvaða fyr­ir­varar það voru sem um ræddi.

Til að auka enn á upp­lýs­inga­óreið­una sendi Skúli Mogensen tölvu­póst til starfs­manna þar sem hann full­yrti að WOW air ætti í við­ræðum við aðra fjár­festa en Icelandair um mögu­lega aðkomu að félag­inu. Það er í beinni and­stöðu við þær upp­lýs­ingar sem settar voru fram í til­kynn­ingu Icelandair til Kaup­hallar Íslands 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Fyr­ir­sögn hennar var: „Icelandair Group kaupir WOW air“. Fyrsta máls­grein hennar var: „Stjórn Icelandair Group hefur gert kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air. Kaupin eru m.a. gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar.“

Ekki er minnst einu orði á þann mögu­leika að eig­andi WOW air geti sam­hliða átt í við­ræðum við aðra mögu­lega kaup­endur. Því telja sumir við­mæl­endur Kjarnans að til­kynn­ingin hafi gefið vill­andi upp­lýs­ingar um stöðu mála, ef það reyn­ist rétt að Skúli sé í við­ræðum við fleiri aðila.

Keypti sjálfur í útboðinu

Nýjustu vend­ing­arnar urðu svo í dag þegar Skúli sendi til­kynn­ingu á þá fjár­festa sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­boði WOW air, sem lauk í sept­em­ber síð­ast­liðnum og átti að tryggja lang­tíma­fjár­mögnun félags­ins.

Samkvæmt frétt Bloomberg um málið hefur staðan á rekstri WOW air versnað umtals­vert síðan að skulda­bréfin voru gefin út. Kröfu­hafar og stjórn­völd hafi fylgst náið með stöðu mála og kraf­ist strang­ari greiðslu­skil­mála en áður auk þess sem olíu­verð hafi náð nýjum hæðum eftir skulda­bréfa­út­boð­ið.

Þá upp­lýsti Skúli í til­kynn­ing­unni að hann hefði sjálfur keypt skulda­bréf í útgáf­unni fyrir 5,5 millj­ónir evra, um 770 millj­ónir króna. Það gefur til kynna að áhug­inn á þátt­töku á meðal ann­arra fjár­festa hafi verið enn minni en áður hafði verið upp­lýst um.

Afar illa gekk nefni­lega að fá fjár­festa til að taka þátt í skulda­bréfa­út­boði WOW og ljóst var að stórir fag­fjár­festar á Íslandi, sér­stak­lega líf­eyr­is­sjóðir, myndu ekki kaupa bréf. Þetta var þrátt fyrir að vaxta­kjörin sem voru í boði níu pró­sent ofan á þriggja mán­aða Euribor vexti, voru hærri en vextir voru í útboðum hjá Air Berlin, Finnair, Norwegian Air, Air France, British Airways og Luft­hansa sem ráð­ist hefur verið í á tíma­bil­inu 2013 til 2018.

Það kom enda í ljós að skulda­bréfa­út­boðið var langt frá því að duga til að koma WOW air fyrir vind. Og þess vegna leit­aði Skúli Mogensen til Icelandair í byrjun nóv­em­ber og óskaði eftir því að helsti sam­keppn­is­að­il­inn myndi kaupa WOW air. Nú virð­ast þau kaup í upp­námi og vend­ingar síð­ustu daga hafa haft afar nei­kvæð áhrif á gengi bréfa í Icelandair, sem hefur lækkað um sex pró­sent það sem af er degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár