Sprengja við Stjórnarráðið, skotgöt á bíl borgarstjóra og menn sem vildu ráðast gegn Alþingi

Lög­reglan hefur um hríð haft miklar áhyggjur af auknu ofbeldi í garð stjórn­mála­manna á Íslandi. Íslensk þjóð vakn­aði upp við þann veru­leika í gær að hópur manna hafði verið hand­tek­inn vegna gruns um að þeir ætl­uðu að fremja fjöldamorð, hryðju­verk.

31. janúar 2012

Í jan­úar 2012 ákvað þá rúm­lega sjö­tugur mað­ur, S. Val­ent­ínus Vagns­son, að koma fyrir sprengju við heim­ili Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Hann fann hins vegar ekki út hvar hún ætti heima og ákvað þess í stað að koma sprengj­unni fyrir við stjórn­ar­ráð­ið. Þennan sama morgun hafði rík­is­stjórn Íslands fundað í Stjórn­ar­ráð­inu.

Til­raun Val­ent­ínusar var klaufa­leg, hin heima­gerða sprengja var kassi með kók­flösku sem hafði verið fyllt af etanóli og og sprakk ekki eins og sprengju­mað­ur­inn ætl­aði. Stóru svæði í kringum Stjórn­ar­ráðið var hins vegar lokað eftir að hún sprakk og gerð var sprengju­leit í ýmsum rík­is­stofn­unum. Sprengju­sveit Land­helg­is­gæsl­unnar var auk þess kölluð til. Rík­is­stjórn­ar­fundur sem fyr­ir­hug­aður var þennan morgun í Stjórn­ar­ráð­inu fór þó fram eins og ekk­ert hefði í skorist.

Þau skila­boð sem sprengju­mað­ur­inn Val­ent­ínus vildi senda, sam­kvæmt umfjöllun um málið í Reykja­vík Viku­blaði í febr­úar 2015, voru eft­ir­far­andi: Ísland dragi til baka Evr­ópu­sam­bandsum­sókn­ina, hætti þátt­töku í Schengen, kvóta­kerf­inu verði breytt og EES-­samn­ing­ur­inn end­ur­skoð­að­ur.

Það tók nokkrar vikur að hafa upp á Val­ent­ínusi. Lýst var eftir hinum klaufa­lega sprengju­manni, sem þá var orð­inn þjóð­þekktur eftir að til­burð­irnir náð­ust á mynd­band og dreifð­ust á sam­fé­lags­miðl­um, með röngum upp­lýs­ingum um ald­ur, hæð og þyngd (hann var sagður á fimm­tugs­aldri, feit­lag­inn og lág­vax­inn). Á Val­ent­ínus­ar­dag­inn 2012 var Val­ent­ínus loks færður til yfir­heyrslu, svaf eina nótt í fanga­klefa og ját­aði síðan á sig verkn­að­inn.

Málið hafði hins vegar enga eft­ir­mála fyrir Val­ent­ín­us. Hann var ekki ákærður og hlaut engan dóm.

22.-23. janúar 2021

Þann 28. jan­úar 2021 greindi Kjarninn frá því að byssu­kúlur hefðu fund­ist í bíl í eigu fjöl­skyldu Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjóra Reykja­víkur, vik­una á undan.

Dagur sagði í við­tali við RÚV í kjöl­farið að það væri „höggvið ansi nærri manni þegar heim­ilið er ann­­ars veg­­ar, því þar býr ekki bara ég heldur fjöl­­skylda mín og krakk­­arn­ir.“

­Borg­­ar­­stjór­inn sagð­ist í við­tal­inu hafa tekið eftir skot­­götum á fjöl­­skyld­u­bif­­reið­inni laug­­ar­dag­inn 23. jan­úar, er hann var að ganga inn í bíl­inn. Lög­­regla hafi síðan fengið bíl­inn í hend­­ur, tekið hann til rann­­sóknar og fundið kúlur inni í hurð­inn­i. Á svip­uðum tíma, aðfara­nótt 22. jan­úar, var einnig skotið á skrif­stofu Sam­fylk­ing­ar­innar með þeim afleið­ingum að rúður brotn­uðu.

Dagur sagði enn fremur í við­tal­inu að ekki lægi nákvæm­­lega ljóst fyrir hvenær skotið var á bíl­inn eða hvort bíll­inn hefði þá staðið fyrir utan heim­ili hans. Þessir hlutir væru á meðal þess sem lög­­regla væri að rann­saka.

Árás­irnar voru í kjöl­farið for­dæmdar þverpóli­tískt. Svona næstum því. Ólafur Guð­­munds­­son, þá vara­­borg­­ar­­full­­trúi Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, lét þau orð falla í athuga­­semda­­kerfi Vísis eftir að málið kom upp að borg­­ar­­stjóri ætti að byrja á sjálfum sér, bylt­ingin væri „komin heim“ og því ætti borg­­ar­­stjór­inn bara að taka. Hann var lát­inn gjalda orða sinna og gert að víkja úr þremur ráðum borg­ar­innar.

Þann 30. jan­úar var maður um sex­tugt úrskurð­aður í gæslu­varð­hald í tvo daga, til 1. febr­úar, á grund­velli rann­sókn­ar­hags­muna að kröfu Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u vegna máls­ins. Gæslu­varð­haldið var síðar fram­lengt.

Frétta­blaðið greindi skömmu síðar frá því að mað­ur­inn sem grun­aður var um að hafa skotið á bíl Dags heiti Hallur Gunnar Erlings­son. Hann er fyrr­ver­andi lög­reglu­maður sem var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn þremur ungum stúlkum árið 2003.

Málið gegn Halli Gunnari var fellt niður þegar leið á árið 2021. Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins var það gert þar sem ekki þótt grund­völlur til að halda rann­sókn­inni áfram. Hallur Gunnar hafði verið hand­tek­inn eftir að myndum úr eft­ir­lits­mynda­vélum í nær­liggj­andi götum við heim­ili borg­ar­stjóra var aflað. Hvorki þær né önnur sönn­un­ar­gögn voru þó talin duga til sak­fellis og mað­ur­inn neit­aði ávallt sök.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík.

Frétta­blaðið sagði að nið­ur­fell­ingin tæki ein­göngu til meintra hegn­ing­ar­laga­brota, „það er rann­sókn á ofbeldi eða hót­unum gegn opin­berum starfs­manni, hættu­broti og eigna­spjöllum, en ekki til meintra brota manns­ins á vopna­lögum, þar á meðal um með­ferð og inn­flutn­ing vopna og skot­vopna­burð á almanna­færi.“

21. september 2022

21. sept­em­ber 2022 hand­tók sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra fjóra menn í umfangs­miklum aðgerðum, ann­ars vegar í Holta­smára í Kópavogi og hins vegar í iðn­að­ar­hús­næði í Mos­fellsbæ. Um tíma tóku um 50 lög­reglu­menn þátt í þeim. Menn­irnir fjórir eru grun­aðir um að hafa staðið að und­ir­bún­ingi hryðju­verka. Tveir þeirra, báðir 28 ára gamlir, hafa verið úrskurð­aðir í gæslu­hald. Annar þeirra í eina viku en hinn í tvær vikur. Hinum tveimur var sleppt skömmu eftir hand­töku. Rannsókn lög­reglu snýst meðal ann­ars um að kanna hvort menn­irnir teng­ist nor­rænum öfga­sam­tökum.

Fjór­menn­ing­arnir höfðu verið til rann­sóknar vikum saman. Þeir eru grun­aðir um að hafa fram­leitt skot­vopn með þrí­vídd­ar­prentum og safnað að sér umtals­verðu magni af hefð­bundn­ari skot­vopnum. Á meðal þeirra vopna sem fund­ust á þeim stöðum sem leitað var voru skamm­byssur og hríð­skota­byssur, en skot­vopnin skiptu tugum og skot­færin sem menn­irnir höfðu undir höndum þús­undum. Sum vopnin voru hálf­sjálf­virk.

Alþingishúsið.
Alþing­is­húsið.

Á upp­lýs­inga­fundi lög­regl­unnar á fimmtu­dag kom fram að árás­irnar hefðu átt að bein­ast að Alþingi og lög­reglu. Morg­un­blaðið hefur eftir heim­ild­ar­mönnum sínum að menn­irnir hafi sýnt árs­há­tíð lög­reglu­manna, sem halda á í næstu viku, sér­stakan áhuga. Í blað­inu kom einnig fram að á meðal þess sem hafi fund­ist við hús­leit lög­reglu hafi verið þjóð­ern­is­of­stæk­is­á­róður. Á meðal ætl­aðra fyr­ir­mynda mann­anna hafi verið Anders Behring Breivik, sem myrti 77 ein­stak­linga í Osló og Útey árið 2011.

Í hádeg­is­fréttum RÚV í dag var greint frá því að menn­irnir tveir sem eru í gæslu­varð­haldi hafi rætt sín á milli um að fremja fjöldamorð og nefnt lög­reglu­menn, Alþingi og fleira í því sam­hengi. Þetta hafi komið fram í síma- og tölvu­gögnum sem fund­ist hafi. Annar mann­anna losn­aði úr gæslu­varð­haldi degi áður en hann var hand­tek­inn. Ástæða þess var grunur um vopna­laga­brot fyrr á þessu ári.

Samkvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum á að refsa fyrir hryðju­verk með allt að ævi­löngu fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár