„Við finnum hér fyrir bræðralagi mannanna“

Þúsundir sjálf­boða­liða í Póllandi hafa und­an­far­inn mánuð lyft grettistaki við mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu. Blaða­maður Kjarnans er í Varsjá og hitti þar fyrir Abdul, flótta­mann frá Afganistan sem er sjálf­boða­liði á einni lest­ar­stöð borg­ar­innar.

Abdul er sjálfboðaliði og flóttamaður í Varsjá.
Abdul er sjálf­boða­liði og flótta­maður í Varsjá. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Abdul er afganskur flótta­maður í Póllandi og sjálf­boða­liði við mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu í Varsjá. Hann er rúm­lega þrí­tugur og starf­aði eitt sinn sem túlkur fyrir sér­sveit pólska hers­ins, sem var hluti af liði NATÓ í Afganistan. Eftir ítrek­aðar hót­anir og árásir talí­bana komst Abdul til Póllands fyrir um tveimur mán­uðum síðan, þar sem hann er nú að aðlag­ast nýju lífi í Varsjá, með dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum.

Fjöl­skylda hans varð eftir við ótryggar aðstæður og eig­in­kona hans, sem fæddi þeim dóttur í upp­hafi vik­unnar, tjáði honum að hún væri mögu­lega í lífs­hættu eftir barns­burð­inn. Hann á þannig auð­velt með að setja sig í spor fólks­ins sem hann starfar nú að því að hjálpa, dag­ana langa, við aðal­lest­ar­stöð­ina í mið­borg Varsjár.

„Ég er búinn að vera hér á gisti­heim­ili um hríð en mér hefur verið sagt að ég þurfi að fara. Ég veit ekki hvar ég mun geta komið mér fyrir og ég er atvinnu­laus. Ég horf­ist í augu við allskyns vanda­mál en ég er samt stoltur og glaður af því að geta hjálpað fólk­inu frá Úkraínu. Því við erum að takast á við það sama,“ segir Abdul í sam­tali við Kjarnann.

„Þegar ég hugs­aði til ástands­ins í Afganistan og svo til þess sem er að ger­ast í Úkraínu leið mér eins og ég yrði að gera eitt­hvað. Ég vakna fyrr á morgn­ana og er hérna 12, 14 og stundum 16 tíma á dag,“ segir Abdul, sem var falið að tala við íslenska blaða­mann­inn sem fal­að­ist eftir við­tali um um skipu­lag og stoðir sjálf­boða­starfs­ins sem fer fram á lest­ar­stöð­inni í Varsjá þessa dag­ana.

Lest­ar­stöðin er ein meg­in­mið­stöð mann­úð­ar­starfs í borg­inni, sem hefur tekið á móti senni­lega yfir 400 þús­und flótta­mönnum frá því að inn­rás Rússa hófst fyrir rúmum mán­uði síðan.

„Við erum að fæða úkra­ínska flótta­menn og yfir dag­inn er stans­laus straumur. Hér á lest­ar­stöð­inni erum við með þjón­ustu, pólska fólkið er að leggja svo mikið á sig til þess að hjálpa Úkra­ínu­mönnum. Þau eru að veita mat, lyf, hjálpa þeim með gist­ingu. Við höfum þús­undir sjálf­boða­liða sem eru að taka þátt í þessu átaki, að hjálpa úkra­ínsku flótta­mönn­unum,“ segir Abdul.

Aðspurður segir hann að senni­lega njóti yfir tíu þús­und manns þeirrar aðstoðar sem er veitt af honum og kol­legum hans á lest­ar­stöð­inni, sem ein mistöð mann­úð­ar­starfs­ins í borg­inni, á hverjum degi. Boðið er upp á mat, aðstoð við skipu­lagn­ingu ferða­laga áfram til ann­arra Evr­ópu­landa eða innan Póllands og aðstoð við að finna gist­ingu.

„Það eru margir að leggja sitt af mörkum. En þetta er ekki nóg. Við erum að von­ast til þess að ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, Bretland og Banda­ríkin komi til með að taka meiri þátt í að takast á við vanda úkra­ínsku flótta­mann­anna. Því núna er þetta í okkar höndum, aðstoð við meira en tvær millj­ónir flótta­manna,“ segir Abdul.

„Það er gríð­ar­lega mikið af fólki sem eru hér sem flótta­menn. Og það er pólska fólkið sem er að hjálpa þeim. Alþjóða­sam­fé­lagið, góð­gerða­stofn­anir og aðrir þurfa að sam­ein­ast um að hjálpa þessu fólki,“ bætir hann við.

Abdul starfaði sem túlkur fyrir pólska herinn í Afganistan.
Abdul starf­aði sem túlkur fyrir pólska her­inn í Afganistan.

Abdul segir að úkra­ínskt flótta­fólk sem er með gist­ingu hjá ein­hverjum í Varsjá, jafn­vel til lengri tíma, sé á meðal þeirra sem leiti til sjálf­boða­liða á lest­ar­stöð­inni þessa dag­ana, því þrátt fyrir að margir íbúar borg­ar­innar hafi skotið skjóls­húsi yfir Úkra­ínu­menn hafi þeir ekki endi­lega mikið meira að gefa. „Þau hafa aðgang að mat, við tökum vel á móti þeim og veitum mat, drykki, lyf og fleira,“ segir Abdul.

„Við erum með um þrjú­þús­und sjálf­boða­liða og þau eru að vinna á vöktum. En flest hafa þau vinnu líka og eru svo að reyna að koma hingað til að hjálpa fólki. Það sem mér finnst merki­leg­ast er að sjálf­boða­lið­arnir koma hvaðanæva að. Það eru sjálf­boða­liðar frá Asíu, Suður-Afríku, Afríku, Banda­ríkj­unum, Kanada að koma hingað til starfa og það veitir okkur enn meiri orku. Takk fyrir að koma til Póllands og hjálpa okkur að takast á við að taka á móti öllu þessu fólki. Við finnum hér fyrir bræðra­lagi mann­anna.“

Óttast um eiginkonuna í Afganistan en getur ekkert gert

Abdul rekur að hann hafi um nokk­urra ára skeið starfað sem þýð­andi fyrir sér­sveit á vegum pólsku rík­is­stjórn­ar­innar sem var hluti af her­liði Atl­ants­hafs­banda­lags­ins í Afganistan. „Ég fékk nýlega dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér, en því miður er fjöl­skyldan mín enn föst í óör­uggu umhverfi, enn sem komið er. En ég er þakk­látur fyrir hjálp­ina sem ég hef fengið frá pólskum stjórn­völdum.“

„En ástandið í Afganistan er hræði­legt, eins og þú veist eru hryðju­verka­menn við völd,“ segir Abdul en hann og fleiri sem störf­uðu fyrir pólska her­inn komust þó frá land­inu. „Við von­umst til að fjöl­skyldur okkar kom­ist líka þaðan og ég óska eftir því að yfir­völd hér og önnur beiti sér fyrir því að svo verði. Ég á bræður, systur og eig­in­konu og börn.“

Adbul hér t.v. að túlka orð pólsks hermanns fyrir hóp afganskra hermanna.
Adbul hér t.v. að túlka orð pólsks her­manns fyrir hóp afganskra her­manna.

Abdul segir að eftir að talí­banar náðu völdum í Afganistan síð­asta sumar hafi honum og fjöl­skyldu hans borist hót­anir. Sjálfur hafði hann þá starf sem fjár­mála­stjóri en eftir að talí­banar komust til valda og alþjóð­aliðið hvarf frá Kabúl bár­ust honum og vinnu­veit­anda hans hót­anir, sem leiddu til þess að hann missti starfið. Í kjöl­farið skráði hann sig í nám í Ameríska háskól­anum í Kabúl en þurfti einnig að hverfa þaðan eftir hót­anir talí­bana. Svo var skotið á bif­reið fjöl­skyldu hans af víga­mönnum talí­bana er þau voru á ferð­inni – og í kjöl­farið sá hann að það væri engin leið fyrir hann að reyna að vera áfram í land­inu.

En hann skildi mikið eftir í Afganistan. „Konan mín var ólétt og var að eign­ast barn í gær [á mánu­dag]. Það er ynd­is­legt og ég elska dóttur mína, en konan mín missti mikið blóð í fæð­ing­unni og eins og þú kannski veist eru ekki miklar bjargir í afganska heil­brigð­is­kerf­inu. Hún hringdi í mig og sagð­ist kannski vera dauð­vona. Það er engin aðstaða fyrir þá þjón­ustu sem konur þurfa eftir barns­burð. Hún hringdi í mig og sagð­ist vera í vanda. Ég sagði henni að vera sterk, en ég er svo langt í burtu og get ekk­ert gert. Ég er leiður og ég bara vona það besta. En ég get ekk­ert gert til að hjálpa,“ segir Abdul.

Kjarninn hitti Abdul á lest­ar­stöð­inni á þriðju­dags­kvöld. Í gær var ástand eig­in­konu hans enn tví­sýnt, að hans sögn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið undanfarið ár