„Þú ert hér,“ segir á þessu upplýsingaskilti í aðalsal lestarstöðvar í Varsjá.
„Þú ert hér,“ segir á þessu upp­lýs­inga­skilti í aðal­sal lest­ar­stöðvar í Varsjá. Mynd: Arnar Þór

Hundruð þúsunda hyggjast bíða stríðið af sér í Varsjá

Að minnsta kosti 300 þús­und flótta­menn frá Úkraínu eru taldir dvelj­ast í Varsjá, höf­uð­borg Póllands, um þessar mundir, þar af um 100 þús­und börn. Blaða­maður Kjarnans heim­sótti eina helstu mið­stöð mann­úð­ar­starfs­ins í borg­inni í gær.

Í afgreiðslu Novotel-hót­els­ins í mið­borg Varsjár hangir uppi stórt plag­gat skreytt úkra­ínska og sænska fán­anum. Rúta til Sví­þjóðar, stendur þar stórum stöfum.

Í gær birt­ist tíu manna hópur Svía í and­dyr­inu. Þau voru öll klædd gulum vestum, fólk á öllum aldri, ungir menn og eldri konur. Hópurinn er kom­inn á þremur rútum til Varsjár og í dag ætla þau að landa­mærum Úkraínu, sagði einn úr hópnum við blaða­mann Kjarnans í stuttu spjalli í gær.

Með í för eru birgðir af lækn­inga­vörum sem skildar verða eftir við landa­mærin. Ráðgert er að aka aftur til Sví­þjóðar með alls um 175 flótta­menn, sem er þó ekki nema lítið brota­brot af þeim þús­undum sem koma yfir landa­mærin til Póllands dag hvern.

Alls er áætlað að rúm­lega 2,1 milljón flótta­fólks hið minnsta hafi komið til Póllands af alls 3,5 millj­ónum sem yfir­gefið hafa Úkraínu og haldið til nágranna­ríkja í leit að skjóli undan árás­ar­stríði Rússa.

Sænsk hjálparsamtök standa að baki rútuferðunum.
Sænsk hjálp­ar­sam­tök standa að baki rútu­ferð­unum.

Í Varsjá eru margir að leggja sitt af mörkum. Lest­ar­stöðin í mið­borg­inni er ein margra mið­stöðva þess mann­úð­ar­starfs sem fer fram hér í pólsku höf­uð­borg­inni, sem hefur tekið við hund­ruðum þús­unda úkra­ínskra flótta­manna á örfáum vikum.

Mat yfir­valda er að meira en 300 þús­und flótta­menn séu í borg­inni um þessar mundir, sem sam­svarar hart­nær tutt­ugu pró­senta aukn­ingu við þann fjölda fólks sem hér býr alla jafna.

Enn fleiri hafa svo dvalið hér um skemmri tíma á leið sinni á aðra áfanga­staði. Borg­ar­yf­ir­völd hér í Varsjá gera ráð fyrir því að það þurfi að koma allt að hund­rað þús­und úkra­ínskum börnum og ung­mennum fyrir í skóla­kerf­inu, um ein­hvern tíma hið minnsta.

Stanslaus straumur

Í og við lest­ar­stöð­ina í mið­borg­inni eru tugir sjálf­boða­liða við störf dag hvern við að taka á móti og útdeila nauð­syn­legum varn­ingi fyrir fólkið sem þurft hefur að skilja nán­ast allt eftir handan landamær­anna.

Sjálf­boða­lið­arnir standa vakt­ina og send­ingar koma með reglu­legu milli­bili. Stundum á stórum sendi­ferða­bílum, en einnig ber­ast fram­lög frá fólki í smærri skömmtum, fullir halda­pokar af hrein­læt­is­vörum og öðrum nauð­synjum sem þörf er fyrir.

Ætla má að mörgum þeirra sem lögðu á flótta vanti einnig létt­ari yfir­hafnir en þær sem teknar voru með skömmu eftir að inn­rásin hófst, þegar frostið sló í um tutt­ugu gráður á átaka­svæð­unum aust­ast í Úkraínu.

Hitinn í Varsjá náði sautján gráðum í gær, vorið er svo gott sem komið.

Forðast óvissu ef hjá því verður komist

Ungur sjálf­boða­liði sem blaða­maður ræddi við inni á lest­ar­stöð­inni sagði að gær­dag­ur­inn hefði verið hans fyrsti við sjálf­boða­störfin, en hann talar rúss­nesku og getur því hjálpað til við þýð­ingar og aðstoðað rúss­nesku­mæl­andi flótta­fólk varð­andi skipu­lagn­ingu áfram­hald­andi ferða­lags, við að finna tíma­bundna gist­ingu í Varsjá eða jafn­vel dval­ar­stað til lengri tíma í borg­inni eða nágrenni hennar.

Tugir sjálfboðaliða eru á lestarstöðinni í miðborg Varsjár frá morgni til kvölds.
Tugir sjálf­boða­liða eru á lest­ar­stöð­inni í mið­borg Varsjár frá morgni til kvölds.

Hann sagði aðal­lega þá sem eiga ein­hver tengsl til landa vestar í álf­unni leit­ast eftir því að fara þangað. Fólk vilji síður fara út í algjöra óvissu og vera upp á yfir­völd komin ef það kemst hjá því.

Af þessum sökum ætli sér margir sem komnir eru til Póllands ekki að fara lengra – hér eiga margir Úkra­ínu­menn skyld­menni og vina­fólk, rétt eins og þennan unga sjálf­boða­liða, sem sjálfur á fjöl­skyldu í Úkraínu.

Flestir flótta­menn hafa svo auð­vitað ekki farið frá Úkraínu til þessa, en af þeim alls tíu millj­ónum sem þurft hafa að yfir­gefa heim­ili sín eru um 6,5 millj­ónir manna á ver­gangi í vest­ur­hluta lands­ins, sem er að mestu ósnert af átökum til þessa.

Sjálfur segir sjálf­boða­lið­inn ungi að hann eigi frænd­fólk í Kænu­garði, sem vilji ekki yfir­gefa borg­ina og allt sem þau þekkja þar, þrátt fyrir sprengjuregn og her­gný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið undanfarið ár