Í þessari bók eru tvær konur, ég er önnur þeirra og er í sorg vegna skilnaðar og veikinda móður minnar. Hin konan er mamma. Hún er með Alzheimer. Mín sorg dvínar og mér batnar en sjúkdómurinn ágerist hjá mömmu og hún deyr að lokum,“ segir Ragnheiður Lárusdóttir, ljóðskáld og kennari, um ljóðabókina Glerflísakliður sem kom út nýverið. Þetta er önnur bók Ragnheiðar en fyrir sína fyrstu bók, 1900 og eitthvað, sem kom út í fyrra, hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og var tilnefnd til Maístjörnunnar sem eru ljóðabókaverðlaun. „Ég var skáldkona í felum. Skúffurnar mínar voru og eru fullar af ljóðum og sögum enda byrjaði ég að skrifa ljóð þegar ég lærði að draga til stafs. En ég var alla tíð hikandi við að senda þau frá mér og svo þegar ég loks gerði það, þegar ég var að nálgast sextugt, fékk ég verðlaun og tilnefningu. Það var …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir (1)