Mynd: Kjarninn

Hrunið: Þegar bankarnir endurskipulögðu atvinnulífið

Þótt búið væri að end­ur­skipu­leggja bank­ana eftir hrun var fjöldi ann­arra vanda­mála óleystur. Hvaða við­mið átti að hafa við end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja?

Sumarið 2011 birti Sam­keppn­is­eft­ir­litið nið­ur­stöður rann­sóknar sem það gerði á stöðu 120 stórra fyr­ir­tækja á völdum sam­keppn­is­mörk­uðum. Um var að ræða stærstu fyr­ir­tækin á hverjum mark­aði fyrir sig. Þar sagði að 68 pró­sent þess­ara fyr­ir­tækja hefðu verið undir beinum eða óbeinum yfir­ráðum banka eftir hrunið. Þá eru með­talin fyr­ir­tæki sem voru í svo slæmri fjár­hags­legri stöðu að þau réðu ekki örlögum sínum sjálf. Hlutfall fyr­ir­tækja sem voru í eigu ein­stak­linga hafði þá farið úr því að vera 66 pró­sent í að vera 23 pró­sent frá árinu 2007.

Á því hámarks­ári góð­ær­is­ins voru tvö pró­sent allra fyr­ir­tækja undir beinum yfir­ráðum banka. Til við­bótar voru 22 pró­sent þeirra skil­greind sem undir óbeinni stjórn banka vegna skulda­stöðu sinnar. Það er auð­vitað einnig mjög hátt hlut­fall en sýnir kannski best hversu óeðli­leg skuld­setn­ing íslenskra fyr­ir­tækja var á góð­ær­is­ár­unum. Þegar krónan féll árið 2008 fjölg­aði þeim síðan mjög hratt.

Sú stefna var mótuð snemma að end­ur­skipu­leggja þyrfti eins mörg fyr­ir­tæki og mögu­legt væri. Það var ekki í boði að fara harða gjald­þrota­leið sem myndi þýða að mögu­lega myndu tug­þús­undir starfa tap­ast. Þeirri stefnu hefðu hins vegar fylgt miklar afskriftir af skuldum, sem alltaf yrðu umdeildar. Leiðin var því afar vanda­söm út frá rétt­læt­is­sjón­ar­miðum. Innan fjár­mála­ráðu­neytis Stein­gríms J. Sig­fús­sonar voru menn með­vit­aðir um þessa stöðu.

Þrátt fyrir að öllum væri ljóst að grípa þyrfti til skjótra aðgerða gerð­ist nán­ast ekk­ert í end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja framan af árinu 2009 annað en að bank­arnir stofn­uðu eigna­um­sýslu­fé­lög til að taka við þeim eignum sem þeir yrðu að leysa til sín. Fyrsta til­kynn­ingin um yfir­töku félags í eigu banka á fyr­ir­tæki í óskyldum rekstri barst ekki fyrr en um haustið 2009 þegar til­kynnt var að fyr­ir­tækið Teymi rynni inn í dótt­ur­fé­lag Lands­bank­ans. Upp­haf­lega taldi Sam­keppn­is­eft­ir­litið sig ekki geta beitt sam­runa­reglum sam­keppn­islaga á slíka yfir­töku og því aðhafð­ist eft­ir­litið í raun ekk­ert vegna hennar. Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála tók hins vegar annan pól í hæð­ina og bjó til nýja túlkun á sam­runa­regl­unum. Á ein­földu máli varð nið­ur­staða hennar sú að í hefð­bundnum skiln­ingi væri sam­runi Teymis við dótt­ur­fé­lag banka ekki sam­keppn­is­hindr­andi, enda væri þarna um að ræða tvö fyr­ir­tæki hvort á sínum mark­aðnum, en vegna þeirrar for­dæma­lausu stöðu sem komin var upp í íslensku atvinnu­lífi og hætt­unni sem sam­keppni var skapað til lengri tíma var ákveðið að beita sam­runa­regl­unum. Það þýddi að Sam­keppn­is­eft­ir­litið gat sett yfir­töku banka á fyr­ir­tækjum skil­yrði.

Þau skil­yrði voru síðan birt í mars 2010. Á meðal þeirra voru eft­ir­far­andi skil­yrði: Bank­arnir þurftu að selja hvert atvinnu­fyr­ir­tæki sem þeir tóku yfir innan til­tek­ins tíma sem þó var ekki greint frá opin­ber­lega, tryggja að yfir­teknu fyr­ir­tækin störf­uðu sem sjálf­stæðir keppi­nautar á mark­aði, setja átti þeim eðli­legar arð­sem­is­kröfur, bönk­unum var bannað að láta yfir­tekin fyr­ir­tæki eiga við­skipti við önnur fyr­ir­tæki í þeirra eigu að eigin und­ir­lagi, birta átti upp­gjör yfir­tek­inna fyr­ir­tækja opin­ber­lega og tryggja þurfti ítar­legt og við­var­andi eft­ir­lit innan bank­anna með fram­kvæmd skil­yrð­anna, ásamt reglu­legri skýrslu­gerð til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Samkeppniseftirlitið tók afstöðu með því að lífvænlegum fyrirtækjum yrði skilað aftur út í atvinnulífið í stað þess að fara í þrot. Páll Gunnar Pálsson var og er forstjóri þess.
Sam­keppn­is­eft­ir­litið tók afstöðu með því að líf­væn­legum fyr­ir­tækjum yrði skilað aftur út í atvinnu­lífið í stað þess að fara í þrot. Páll Gunnar Pálsson var og er for­stjóri þess.

Samhliða þessu tók Sam­keppn­is­eft­ir­litið mjög ein­dregna afstöðu með því að tala fyrir mik­illi hrein­gern­ingu í atvinnu­líf­inu sem myndi skila líf­væn­legum fyr­ir­tækjum aftur út í atvinnu­lífið í stað þess að setja þau í þrot. Þessi afstaða var sam­bæri­leg þeirri sem rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna hafði tekið og þýddi, vita­skuld, stór­kost­legar afskriftir skulda.

Mikill þrýst­ingur hafði mynd­ast um að nýta sam­keppn­is­lög til að jafna aðstæður. Það hefði þýtt að eft­ir­litið ætti að beita sér fyrir því að afskriftir yrðu minnk­aðar til að vernda hags­muni þeirra fyr­ir­tækja sem lifðu efna­hags­hrunið af. Því var hafnað og sú afstaða rök­studd með því að þannig myndu lang­tíma­hags­munir um virka sam­keppni á sem flestum mörk­uðum verða settir í for­grunn. Þeir sem höfðu rekið fyr­ir­tæki sín vel og ekki skuld­sett þau óhóf­lega í aðdrag­anda hruns­ins þurftu ein­fald­lega að bíta í það súra epli að una því að sam­keppn­is­að­ilum þeirra yrði haldið á lífi, skuldir þeirra afskrif­aðar og sam­keppn­is­hæfni þeirra þar með aukin. Hin risa­stóra til­tekt í íslensku atvinnu­lífi átti ekki að markast af tilits­semi við keppi­nauta tækni­lega gjald­þrota fyr­ir­tækja, heldur átti að setja lang­tíma­hags­muni neyt­enda í fyrsta sæti.

Helmingur enn í „þvottavélinni“ 2011

Árið 2011 hafði tek­ist að minnka þann stabba fyr­ir­tækja sem voru undir yfir­ráðum banka, en samt var tæp­lega helm­ingur allra stærstu fyr­ir­tækja lands­ins enn inni í „þvotta­vél­inni“. Í júní það ár gaf Sam­keppn­is­eft­ir­litið út skýrsl­una „Sam­keppnin eftir hrun“. Hún byggði á rann­sókn á fjár­hags­stöðu og end­ur­skipu­lagn­ingu 120 stórra fyr­ir­tækja á völdum sam­keppn­is­mörk­uðum. Í nið­ur­stöðu hennar segir meðal ann­ars að sterk staða við­skipta­bank­anna þriggja gerði það að verkum að þeir hefðu „ægi­vald yfir atvinnu­líf­inu í dag og séu að því leyt­inu til ígildi við­skipta­blokkar, hver í sínu lagi.“

Til við­bótar við bank­ana fóru slita­stjórnir föllnu bank­anna og líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hvort með sinn sjö pró­senta hlut í þessum stóru fyr­ir­tækjum. Sam­an­lagt réðu því bankar, slita­stjórnir og líf­eyr­is­sjóðir beint eða óbeint yfir 60 pró­sent af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins um mitt ár 2011, tæpum þremur árum eftir hrunið.

Í grein­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á þessum aðstæðum voru til­greindur ýmis konar vandi sem orsak­aði þær. Einn slíkur var umsýslu­vandi. Í honum felst að þeir sem starfa við að leysa úr vanda­málum hafa af því miklar tekjur og byggja lifi­brauð sitt á því. Þess vegna myndu hags­munir þeirra af tekju­öflun og og atvinnu­ör­yggi vega þyngra en hags­munir sam­fé­lags­ins af hraðri úrlausn mála. Orðrétt sagði: „Til er orðin ný tíma­bundin atvinnu­grein, end­ur­skipu­lagn­ing og sala eigna. Hags­munir starfs­manna hennar af tekju­öflun og atvinnu­ör­yggi vinna gegn hags­munum sam­fé­lags­ins af hraðri úrlausn. Hræðslan við að taka ákvörðun og gera mis­tök heldur aftur af mörgum við núver­andi aðstæður. Kerfið umb­unar ekki þeim sem tekur af skarið“.

Annar vandi sem var sér­stak­lega til­greindur sem und­ir­liggj­andi var svo­kall­aður eig­enda­vandi. Í honum fólst að kröfu­hafar gömlu bank­anna hafi haft af því mikla fjár­hags­lega hags­muni að fá eins mikið og mögu­legt væri út úr kröfum sem stóðu á fyr­ir­tækj­unum. Þess vegna hafi þeir látið lang­tíma­við­skipta­hags­muni nýju bank­anna, s.s. þá að hafa í við­skiptum líf­væn­leg fyr­ir­tæki sem gætu staðið undir skuldum sínum, víkja fyrir skamm­tíma­gróða­sjón­ar­miði.

Í grein­ar­flokki um málið sem birt­ist í Frétta­blað­inu haustið 2011 voru þessar aðstæður ræddar við Pál Gunnar Pálsson, for­stjóra Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Þar sagði hann: „Álykt­unin sem við drógum af rann­sókn á þessum 120 fyr­ir­tækjum er sú að það væri ekki verið að reka nægi­lega mörg þeirra með arð­sem­is­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi. Við höfum líka áhyggjur af því að bank­arnir hafi yfir­ráð yfir fleiri fyr­ir­tækjum en þeir hafa til­kynnt til okkar og erum að skoða það hvort svo sé. Þegar við fórum að rann­saka þetta þá sló það okkur hversu stór hluti fyr­ir­tækja hefur ekki farið í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu þótt þau hafi greini­lega þurft á því að halda. Það er ekki búið að taka yfir fyr­ir­tækin heldur eru þau rekin áfram á óljósum grund­velli. Í þeim til­vikum er ekki búið að taka nægi­lega til né taka þær ákvarð­anir sem gera fyr­ir­tækj­unum kleift að starfa sjálf­stætt á sam­keppn­is­mark­aði. Við erum því með umhverfi þar sem hætta er á að fyr­ir­tæki séu rekin lif­andi dauð. Það er engum til góðs og skapar afleitar sam­keppn­is­að­stæður“.

Beina brautin

Rann­sóknir Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins beindust aðal­lega að stórum fyr­ir­tækjum sem skuld­uðu marga millj­arða króna. End­ur­skipu­lagn­ing þeirra yrði alltaf sér­tæk. Það var ekki hægt að búa til eina leið sem ætti að duga fyrir alla. Það var hins vegar gert með fyr­ir­tæki sem skuld­uðu minna en einn millj­arð króna. Leiðinni, sem hlaut nafnið „Beina brautin“, var ætlað að flýta fyrir end­ur­skipu­lagn­ingu og úrvinnslu skulda­mála lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja með því að laga skuldir þeirra að greiðslu­getu og eignum. Með öðrum orðum átti að setja upp risa­stóra iðn­að­ar­þvotta­vél fyrir öll fyr­ir­tæki sem skuld­uðu undir millj­arði króna og stilla á sömu still­ingu fyrir þau öll.

Mynd: Íslandsbanki gerði 250 fyrirtækjumtilboð um endurskipulagningu fyrir mitt ár 2011.
Mynd: Íslands­banki gerði 250 fyr­ir­tækj­umtil­boð um end­ur­skipu­lagn­ingu fyrir mitt ár 2011.

Um miðjan des­em­ber 2010 var und­ir­ritað sam­komu­lag um „Beinu braut­ina“. Að því stóðu efna­hags- og við­skipta­ráðu­neytið, Við­skipta­ráð Íslands, Félag atvinnu­rek­enda, fjár­mála­ráðu­neytið, Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja. Samkvæmt því var gert ráð fyrir að ljúka til­lögu­gerð að end­ur­skipu­lagn­ingu allra fyr­ir­tækja sem myndu falla undir sam­komu­lagið fyrir 1. júní 2011. Auk þess fengu bank­arnir und­an­þágu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu til að sam­ræma úrlausnir sínar fyrir þessi fyr­ir­tæki fram að miðju ári 2012.

Fyr­ir­tækin þurftu að upp­fylla nokkur skil­yrði. Þau þurftu að vera líf­væn­leg, áfram­hald­andi rekstur þeirra átti að tryggja best hags­muni kröfu­hafa þeirra, áfram­hald­andi þátt­taka núver­andi eig­enda og/eða lyk­il­stjórn­enda var mik­il­væg fyrir verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins, traust og trún­aður þurfti að ríkja milli hags­muna­að­ila, árs­reikn­ingar síð­ustu tveggja ára þurftu að liggja fyrir, ítar­legar sjóð­streym­is­á­ætl­anir einnig og skatt­fram­töl ef eig­endur fyr­ir­tækj­anna voru í sjálf­skuld­ar­á­byrgðum. Upp­runa­lega var talað um að sex þús­und fyr­ir­tækjum ætti að standa til boða að hljóta þvott í „Beinu braut­inni“. Þau urðu þó mun færri þegar til kast­anna kom.

Við­skipta­bank­arnir þrír gerðu öllum þeim fyr­ir­tækjum sem féllu undir sam­komu­lagið til­boð um end­ur­skipu­lagn­ingu fyrir mitt ár 2011, eins og sam­komu­lagið hafði gert ráð fyrir. Hjá Arion banka féllu 470 fyr­ir­tæki undir sam­komu­lagið, hjá Lands­bank­anum var talið að 355 fyr­ir­tæki gætu nýtt sér til­boðið og hjá Íslands­banka fengu 250 fyr­ir­tæki til­boð. Til við­bótar bætt­ust um 110 fyr­ir­tæki við þegar SpKef var rennt inn í Lands­bank­ann.

Uppvakningaskýrslan

Í lok mars 2012 gaf Sam­keppn­is­eft­ir­litið út nýja skýrslu um end­ur­reisn fyr­ir­tækja, sem bar nafnið „Aflaklær eða upp­vakn­ingar?“ Hún var fram­hald af rann­sókn­inni á end­ur­skipu­lagn­ingu 120 stórra fyr­ir­tækja í land­inu. Þar var farið yfir það hvernig bönk­unum hefði tek­ist að losa sig við fyr­ir­tæki, lagt mat á hvort þeir hefðu beitt réttri aðferð­ar­fræði og áhyggjur af fram­tíð­inni viðr­aðar.

Fjár­mála­eft­ir­litið birti frétt á heima­síðu sinni 17. nóv­em­ber 2011 með fyr­ir­sögn­inni „Tíma­bundin starf­semi lána­stofn­ana“. Þar kom fram að 132 fyr­ir­tæki í óskyldum rekstri væru í beinni eigu lána­stofn­ana. Samkvæmt lögum máttu bankar og aðrar lána­stofn­anir ein­ungis eiga slík fyr­ir­tæki í tólf mán­uði hið mesta án þess að leita eftir und­an­þágu vegna eign­ar­halds­ins. Samkvæmt frétt Fjár­mála­eft­ir­lits­ins höfðu 74 fyr­ir­tæki verið lengur í eigu banka en lögin heim­il­uðu. Bank­arnir höfðu sótt um fresti og Fjár­mála­eft­ir­litið und­an­tekn­ing­ar­laust veitt þá. Af þeim fyr­ir­tækjum sem úttekt Fjár­mála­eft­ir­lits­ins tók til áttu bank­arnir 40-100 pró­senta hlut í 2/3 þeirra. Ástæður þess að fyr­ir­tækin voru í höndum banka voru mis­mun­andi. Sum voru í slita­ferli, önnur voru í sölu­með­ferð og enn önnur voru í end­ur­skipu­lagn­ingu vegna þess að þau voru í ekki í sölu­hæfu ástandi. Fjár­mála­eft­ir­litið var ekki til­búið til að upp­lýsa hversu langir frestir voru veittir fyrir hvert félag né hvað félögin hétu sem fengu auk­inn frest vegna þess að „slíkar upp­lýs­ingar eru til þess fallnar að skaða þann markað sem fyr­ir­tækin starfa á“.

Á milli skýrslna Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hafði því mynd­ast mik­ill þrýst­ingur á bank­anna að losa um fyr­ir­tæki sem þeir höfðu, beint eða óbeint, tang­ar­hald á. Sá þrýst­ingur birt­ist ekki síst í fjöl­miðlum. Á síð­ari hluta árs­ins 2011 voru bank­arnir komnir með bakið upp að vegg og þurftu nauð­syn­lega að fara að losa um eignir. Umræðan, eft­ir­lits­að­ilar og stjórn­völd kröfð­ust þess.

Sögðu bankana vilja hafa fyrirtækin eins skuldsett og mögulegt væri

Í Upp­vakn­inga­skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins kom fram að sá þrýst­ingur sem settur hafði verið á bank­ana um að losa um eign­ar­hald á fyr­ir­tækjum hefði skilað sér. Rannsókn eft­ir­lits­ins sýndi að bankar væru ráð­andi í 27 pró­sent af 120 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins í byrjun árs 2012. Á einu ári hafði þeim fækkað um 20.

Í skýrsl­unni var hins vegar lýst yfir þungum áhyggjum af því að fyr­ir­tæki væru að koma of skuld­sett út úr þvotta­vél bank­anna. Skuldir þeirra væru meira að segja enn mjög miklar í alþjóð­legum sam­an­burði. Um þriðj­ungur stjórn­enda þeirra fyr­ir­tækja sem höfðu verið seld eða gengið í gegnum end­ur­skipu­lagn­ingu taldi að þau gætu ekki staðið undir þeirri skulda­byrði sem bank­arnir höfðu skammtað þeim. Marg­vís­leg hætta getur skap­ast af of mik­illi skuld­setn­ingu. Fyr­ir­tæki í þannig aðstöðu geta til að mynda ekki veitt keppi­nautum sínum aðhald né starfað með skil­virkum hætti á mark­aði, að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Bank­arnir vildu hafa fyr­ir­tækin eins skuld­sett og þeir treystu sér til þegar þeir hengdu þau til þerris. Hinar miklu skuldir, auk bið­lána sem sett voru á herðar sumra fyr­ir­tækj­anna, voru með þeim hætti að bank­arnir voru að veðja á að hér­lendis yrði tölu­verður hag­vöxtur á næstu árum. Ef það gengi ekki eftir, sem tölu­verðar líkur eru á, þarf að ráð­ast í aðra alls­herjar­end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­hag fjölda fyr­ir­tækja. Biðlánin voru veitt til þriggja ára og voru að öllu jöfnu innan við 30 pró­sent af heild­ar­skuldum. Þau báru afar hag­stæða vexti og inni­falið í þeim var auk­inn afsláttur ef lánin yrðu greidd upp á fyrsta árinu eftir að end­ur­skipu­lagn­ingu væri lokið.

Í loka­skýrslu eft­ir­lits­nefndar um sér­tæka skulda­að­lögun, sem skilað var inn í maí 2013, kom fram að vís­bend­ingar væru um að eig­endur end­ur­skipu­lagðra fyr­ir­tækja ættu hvorki fé né hefðu aðgang að láns­fjár­magni. Því væri erfitt fyrir þá að end­ur­fjár­magna umrædd lán og halda rekstri fyr­ir­tækj­anna áfram.

Samtals fóru 69 félög og fyr­ir­tæki sem voru með skuldir yfir millj­arð króna í gegnum end­ur­skipu­lagn­ingu hjá bönk­unum. Heild­ar­skuldir þeirra námu 661,3 millj­örðum króna þegar ferlið hófst en 415 millj­arðar af þeim voru afskrif­aðir í ferl­inu, eða sem nemur 63 pró­sentum af heild­inni.

Nefndin skil­aði sinni síð­ustu skýrslu til ráð­herra, Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, sama dag og hann hætti störfum, þann 22. maí 2013. Í henni var sér­stak­lega vikið að því hvernig til hefði tek­ist við að end­ur­skipu­leggja fjár­hag fyr­ir­tækja með skuldir yfir millj­arð. Nefndin taldi að í stórum dráttum hefði vel tek­ist til en ýmis­legt reynst erfitt. Til dæmis hefði eft­ir­fylgni bank­anna, þegar kom að sjálf­skulda­á­byrgðum, verið mis­jöfn. Í skýrslu nefnd­ar­innar sagði orð­rétt: „Greiðslu­getu sjálf­skuld­ar­á­byrgð­ar­að­ila skal meta með sama hætti og greiðslu­getu vegna greiðslu lána, það er með hlið­sjón af tekju­flæði og eigna­stöðu ábyrgð­ar­að­il­ans. Við yfir­ferð á málum þar sem skuldir og/eða nið­ur­færslur skulda voru umfram einn millj­arð króna komu upp all­nokkur til­vik þar sem nefndin taldi ein­sýnt að fjár­mála­fyr­ir­tæki gengju ekki að sjálf­skuld­ar­á­byrgðum með sama hætti og almennt er áskilið, það er að segja með því að fella aðeins niður þann hluta sjálf­skuld­ar­á­byrgðar sem væri umfram greiðslu­getu ábyrgð­ar­að­ila. Frá­vikstil­vikin fólust í að greiðslu­mat var ekki gert eða fram­kvæmd þess byggð á ein­hliða upp­lýs­inga­gjöf ábyrgð­ar­að­ila án þess að fjár­mála­fyr­ir­tæki stað­reyndi upp­lýs­ing­arnar með form­legum hætti eða að sjálf­skuld­ar­á­byrgðum var sleppt að fullu án skýr­inga.“

Sér­stak­lega var nefnt í skýrsl­unni að tvö til­vik hefðu komið fram við skoðun þar sem sjálf­skulda­á­byrgðir ein­stak­linga sem stóðu í fyr­ir­tækja­rekstri hefðu verið felldar niður án skoð­unar á eigna­stöðu þeirra eða greiðslu­getu. Líkt og með aðrar upp­lýs­ingar í skýrslum nefnd­ar­innar voru engin nöfn nefnd en bæði til­vikin áttu sér stað í málum þar sem Íslands­banki kom að end­ur­skipu­lagn­ing­unni. Eitt til­vik kom í ljós þar sem not­ast var við lægsta mat á eigna­virði án full­nægj­andi skýr­inga, þótt hærra verð­mat á tveimur eignum hefði legið fyrir. Þetta þýddi að eig­in­fjárinn­spýt­ing í fyr­ir­tækið var minni en hún hefði ann­ars verið og til hags­bóta fyrir eig­end­ann. Þá kom nefndin auga á eitt til­vik þar sem mat á verð­mæti fyr­ir­tækis mið­að­ist við til­tekið eig­in­fjár­hlut­fall, en sama við­miðun var ekki notuð í skulda­upp­gjöri, þrátt fyrir að breytt eig­in­fjár­hlut­fall hefði áhrif til breyt­ingar á verð­mati fyr­ir­tæk­is­ins. Í síð­ustu skýrslu sinni rakti nefndin einnig að tölu­vert væri enn í það að end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­hag fyr­ir­tækja væri lokið. Meðal ann­ars væru álita­mál varð­andi lög­mæti fjöl­margra lána­samn­inga, einkum þeirra sem voru með geng­is­trygg­ingu eða í erlendri mynt, enn óleyst og því óvissa fyrir hendi.

Frétta­skýr­ingin byggir að hluta til á efni sem birt­ist áður í bók­inni Ísland ehf - Auðmenn og áhrif eftir hrun eftir Magnús Hall­dórs­son og Þórð Snæ Júl­í­us­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið undanfarið ár