Aðild Svíþjóðar og Finnlands „breytir auðvitað stemningunni“ innan NATO

Samstarf Norð­ur­landa­ríkj­anna í örygg­is­málum mun efl­ast og aðild Finn­lands og Sví­þjóðar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu mun breyta stemn­ing­unni innan banda­lags­ins að mati Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í vikunni.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Sanna Marin, for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, á þingi Norð­ur­landa­ráðs í Helsinki í vik­unni. Mynd: Norðurlandaráð

Það er satt sem þau segja að það er eins og að hitta fjöl­skyldu og vini þegar Norð­ur­löndin koma saman,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á leið­toga­fundi for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna á þingi Norð­ur­landa­ráðs sem fór fram í Helsinki í vik­unni. Blaða­kona Kjarnans var við­stödd þingið og sett­ist niður með Katrínu í finnska þing­hús­inu milli þing­funda.

Stemn­ingin á Norð­ur­landa­ráðs­þingi var vissu­lega huggu­leg og heim­il­is­leg. Vel fór á með for­sæt­is­ráð­herr­unum, þing­menn skelltu í sjálfur í einum af ótal marm­ara­tröppum finnska þing­húss­ins milli funda eða fóru saman í hring­ferð í lyft­unni sem aldrei stöðvar.

En und­ir­tónn Norð­ur­landa­þings­ins var alvar­legri en oft áður. Póli­tískt lands­lag er gjör­breytt frá því að þingið kom síð­ast saman í Kaup­manna­höfn fyrir ári síðan. Stríðið í Úkraínu hefur staðið yfir 255 daga og áhrifa þess gætir víða um heim.

Öryggis- og varnarmál skyndilega orðin áberandi í samskiptum Norðurlanda

„Þetta er nátt­úru­lega rosa­lega sér­stakt. Þetta er fyrsta Norð­ur­landa­ráðs­þingið eftir að Rússar réð­ust inn í Úkraínu. Það má segja að stríðið sé yfir og allt umlykj­andi. Öryggis- og varn­ar­málin sem almennt hafa ekki verið mikið rædd í Norð­ur­landa­ráði, svona sögu­lega, eru skyndi­lega orðin mið­læg,“ segir Katrín í sam­tali við Kjarnann.

Það sást einna helst á blaða­manna­fundi for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna þar sem fátt annað en aðild Finna og Svía að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) komst að. Þar greindi Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóð­ar, frá því að hann mun fara til fundar við Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seta á næst­unni til að ræða full­gild­ingu aðildar Sví­þjóðar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.

Svíþjóð og Finnland sóttu um aðild að NATO í maí og sögðu þannig skilið við hlut­leys­is­stefnu sína til margra ára­tuga. Ástæðan var skýr: Breytt örygg­is­um­hverfi í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu.

Öll 30 aðild­ar­ríki NATO verða að sam­þykkja aðild áður en ný ríki geta bæst við öryggis- og varn­ar­banda­lagið. Aðeins Tyrkland og Ung­verja­land eiga eftir að full­gilda aðild Sví­þjóðar og Finn­lands. Ísland var með fyrstu ríkj­unum sem sam­þykkti aðild 5. júlí eftir að Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, náði sam­komu­lagi við Erdogan á leið­toga­fundi NATO-ríkj­anna í Madríd.

Skilyrði Tyrklandsforseta um málefni Kúrda ekki viðeigandi

Gergely Gulyás, ráð­herra í for­sæt­is­ráðu­neyti Ung­verja­lands, lagði í síð­asta mán­uði til­lögu fyrir ung­verska þingið um stað­fest­ingu aðild­ar­samn­ings Sví­þjóðar og Finn­lands. Búist er við að Ung­verja­land full­gildi aðild­ina í des­em­ber.

Þá standa Tyrkir einir eftir. Erdogan hefur farið fram á að sænsk og finnsk stjórn­völd fram­selji kúrdíska hryðju­verka­menn, eins og hann kemst sjálfur að orði, sem hann segir Svía og Finna veita skjól. Sænska rík­is­stjórnin greindi frá því í gær að hún muni slíta öll tengsl við varn­ar­sveitir Kúrda YPG og lýð­ræð­is­banda­lagið PYD, stjórn­mála­fylk­ingu Kúrda í Sýrlandi.

Ákvörð­unin er tekin í aðdrag­anda Tyrk­lands­heim­sóknar Kristers­son. Tobias Bill­ström, utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar, segir í sam­tali við sænska rík­is­út­varpið að tengsl sveit­anna tveggja séu of sterk við PKK, vopn­aðar sveitir kúrdíska verka­manna­flokks­ins, sem eru á lista Evr­ópu­sam­bands­ins yfir hryðju­verka­sam­tök. Varn­ar­sveit­irnar hafa barist sam­hliða her NATO gegn sveitum Íslamska rík­is­ins í Sýrlandi.

Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, og Ulf Kristersson, forsætisráðhera Svíþjóðar.
Sanna Marin, for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, og Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­hera Sví­þjóðar.

„Sjálf hef ég nú sagt að mér finn­ist það ekki við­eig­andi af hálfu Tyrkja að setja þetta sem skil­yrði. En það er gert þetta sam­komu­lag sem hefur ekki verið túlkað með nákvæm­lega sama hætti af hálfu Tyrkja og Svía og vænt­an­lega er nýr for­sæt­is­ráð­herra Svía að reyna að fá fram sam­eig­in­lega túlkun,“ segir Katrín.

Skynjar áhuga norrænna stjórnmálamanna um aukið samstarf

Aðild Finn­lands og Sví­þjóðar að NATO mun gera sam­starf Norð­ur­land­anna nán­ara á sviði örygg­is­mála, það er óhjá­kvæmi­legt að mati Katrínar. „Auðvitað breytir það stemn­ing­unni innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins að það séu komnar fimm Norð­ur­landa­þjóðir og auð­vitað eru þetta þær þjóðir sem kannski standa næst því að vera í raun og veru með svip­aða sam­fé­lags­gerð og svipuð gildi. Þannig að auð­vitað hefur það áhrif á mál­flutn­ing­inn þar inn­an­húss þó að það séu engar form­legar blokkir.“

Forsætisráðherrar og leiðtogar Norðurlandanna á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki.
For­sæt­is­ráð­herrar og leið­togar Norð­ur­land­anna á þingi Norð­ur­landa­ráðs í Helsinki.

Katrín seg­ist hafa fundið fyrir áhuga meðal nor­rænna stjórn­mála­manna að efla sam­skiptin á sviði öryggis- og varn­ar­mála. „Mér finnst lík­legt að þetta verði mið­læg­ara í umræð­unni á kom­andi miss­erum og árum, aukið sam­starf, og þar erum við áfram með sér­stöðu, ver­andi her­laus þjóð sem tekur þátt í öllu slíku sam­starfi.“

Stendur við að ekki hafi verið um stefnubreytingu að ræða

Utan­rík­is­mála­nefnd, undir for­ystu Vinstri grænna, lagði til að til­laga um aðild Finn­lands og Sví­þjóðar að NATO yrði sam­þykkt í júní. Það var í fyrsta sinn sem Vinstri græn studdu við stækkun NATO. Afstaða flokks­ins hefur hingað til verið skýr hvað NATO varðar. Í stefnu Vinstri grænna segir að flokk­ur­inn leggi áherslu á að Ísland segi sig úr banda­lag­inu.

Katrín sagði í sam­tali við Kjarnann í vor að ekki væri um stefnu­breyt­ingu að ræða hjá flokknum og stendur hún við það.

„Í fyrsta lagi þá ákváðum við, löngu áður en þetta ger­ist, þegar við fórum inn í rík­is­stjórn­ina að við munum fylgja þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unni sem var sam­þykkt með yfir­gnæf­andi meiri­hluta á Alþingi 2016 sem felur meðal ann­ars í sér aðild að NATO þannig að við höfum auð­vitað ekki sett fram kröfur um úrsögn heldur fylgjum við henni.“

Eftir að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst í febr­úar segir Katrín að það hafi aldrei annað komið til greina en að styðja nor­rænu ríkin í umsókn­ar­ferl­inu. „Það var nið­ur­staða mín sem nor­ræns for­sæt­is­ráð­herra í mjög þéttu sam­starfi við mína kollega á Norð­ur­lönd­unum að ég myndi styðja lýð­ræð­is­lega nið­ur­stöðu þjóð­þinga þess­ara ríkja,“ segir Katrín, sem bendir þó á að nokkrir þing­menn Vinstri grænna kusu að sitja hjá vegna stefnu flokks­ins. Alls sátu þrír af átta þing­mönnum flokks­ins hjá við atkvæða­greiðslu til­lög­unnar; Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, Orri Páll Jóhanns­son og Steinunn Þóra Árna­dóttir. „En þetta eru nán­ustu sam­starfs­þjóðir okkar og þær kom­ast að þess­ari nið­ur­stöðu,“ segir Katrín.

Normaliseruð kjarnorkuvá óhugnanleg þróun

Ísland tekur við for­mennsku í nor­ræna ráð­herra­ráð­inu á næsta ári og Katrín kynnti for­mennsku­á­ætlun Íslands á þingi Norð­ur­landa­ráðs þar sem friðar- og afvopn­un­ar­mál verða í for­grunni. Alþjóð­leg ráð­stefna um frið­ar­mál er meðal ann­ars á dag­skrá þar sem afvopn­un­ar­málin verða undir.

„Stefnan okkar snýst fyrst og fremst um frið­ar­mál­efni. Ég gerði kjarn­orku­vána sér­stak­lega að umtals­efni í umræðum á Norð­ur­landa­ráðs­þingi, sem er allt í einu orðin á nýjan leik mjög yfir­þyrm­andi og um leið svo­lítið normaliseruð, sem er mjög óhugn­an­leg þróun,“ segir Katrín.

Hún segir mik­il­vægt að Ísland beiti sér fyrir afvopnun kjarn­orku­vopna á vett­vangi sínum í öryggis- og varn­ar­málum. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að Ísland tali þess­ari röddu, sem ég held að við sem þjóð séum mjög ein­huga um, og ekki síður ef Norð­ur­löndin geti náð saman um ein­hverja slíka afstöðu. Ég held að það skipti gríð­ar­legu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið undanfarið ár