Útlendingastofnun afgreiðir mál Venesúelabúa hægar en áður og rýnir í stöðu mála

Útlend­inga­stofnun er búin að hægja á afgreiðslum umsókna um alþjóð­lega vernd frá rík­is­borg­urum Venes­ú­ela. Á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins sóttu 764 ein­stak­lingar frá Venes­ú­ela um vernd á Íslandi og ljóst er að stjórn­völd vilja minnka þann fjölda.

Útlend­inga­stofnun hefur hægt á afgreiðslu umsókna rík­is­borg­ara Venes­ú­ela um alþjóð­lega vernd á Íslandi síð­ustu vikur, og vinnur nú að því að „rýna heim­ildir og afla frek­ari upp­lýs­inga varð­andi ástandið í land­inu“. Afgreiðsla umsókna frá Venes­ú­ela­búum er þó ekki alveg á ís, áfram eru tekin við­töl við umsækj­endur og síð­asta veit­ing dval­ar­leyfis til handa umsækj­anda um vernd frá Venes­ú­ela var afgreidd í síð­ustu viku.

Þetta kemur fram í svörum sem Kjarninn fékk frá Útlend­inga­stofnun við fyr­ir­spurn varð­andi það hvort ein­hverjar breyt­ingar hefðu verið gerðar á verk­lagi stofn­un­ar­innar varð­andi umsóknir fólks frá Venes­ú­ela að und­an­förnu, en mið­ill­inn hafði heyrt af því að svo væri. Umsókn­irnar „hafa ekki verið afgreiddar jafn hratt síð­ustu vikur eins og vik­urnar þar á undan,“ segir stofn­unin.

Hundruð ein­stak­linga frá Venes­ú­ela hafa fengið vernd hér­lendis á und­an­förnum mán­uðum í kjöl­far þess að kæru­nefnd útlend­inga­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu í sumar að ekki hefði verið sýnt fram á að ástandið í Venes­ú­ela hefði lag­­ast frá því að íslenskt stjórn­völd tóku ákvörðun um að veita rík­is­borg­urum Venes­ú­ela við­bót­ar­vernd hér­lendis á grund­velli stöð­unnar í heima­ríki þeirra.

Samkvæmt Útlend­inga­stofnun hefur dóms­mála­ráðu­neytið ekki veitt stofn­un­inni nein til­mæli um að afgreiða umsókn­irnar hægar og skoða ástandið í Venes­ú­ela nánar. „Það hvílir rann­sókn­ar­skylda á Útlend­inga­stofnun við afgreiðslu umsókna um vernd. Í henni felst að ákvarð­anir byggi á nýj­ustu mögu­legu upp­lýs­ingum og heim­ildum. Í augna­blik­inu er stofn­unin að rýna heim­ildir og afla frek­ari upp­lýs­inga varð­andi ástandið í land­inu. Stofn­unin hefur ekki fengið til­mæli frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu,“ segir í svari stofn­un­ar­innar til Kjarnans.

Pólitískt samkomulag í landinu gæti haft áhrif

Undir lok nóv­em­ber­mán­aðar komust stjórn og stjórn­ar­and­staða í Venes­ú­ela að sam­komu­lagi, í samn­inga­við­ræðum sem staðið höfðu yfir í Mexík­ó­borg, með milli­göngu norskra sátta­semj­ara.. Það felur í sér að sam­eig­in­leg bón verði lögð fram um að millj­arðar banda­ríkja­dala af eignum rík­is­ins erlendis, sem hafa verið frystar í refsi­að­gerðum sem beint hefur verið að stjórn­völdum lands­ins á und­an­förnum árum, verði á ný aðgengi­legar stjórn­völdum.

Nicolas Maduro forseti Venesúela á blaðamannafundi á dögunum.
Nicolas Maduro for­seti Venes­ú­ela á blaða­manna­fundi á dög­unum.

Sjóður á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna á að hafa umsjón með því að útdeila fénu í sam­fé­lags­leg verk­efni; heilsu­gæslu, menntun og mat­ar­að­stoð. Á sama tíma er útlit fyrir að auk­inn gangur kom­ist senn í olíu­fram­leiðslu í rík­inu, en eftir und­ir­ritun samn­ings­ins gaf Banda­ríkja­stjórn það út að olíu­fé­lag­inu Chevron yrði heim­ilt að hefja olíu­vinnslu í Venes­ú­ela að nýju næstu sex mán­uði og flytja olíu til Banda­ríkj­anna að auki.

Í svari frá Útlend­inga­stofnun segir að sam­komu­lagið sé „ekki eitt og sér til­efni þess að nú er verið að afla frek­ari upp­lýs­inga um ástandið í Venes­ú­ela“. „Það þarf að gera það reglu­lega varð­andi öll lönd, því ástand breyt­ist með tím­anum, ýmist til hins verra eða til hins betra. Sam­komu­lagið er þó vissu­lega eitt af því sem verður skoðað enda getur það haft áhrif á ástandið,“ segir í svari stofn­un­ar­innar.

Langstærsti hópur umsækjenda um vernd á Íslandi fyrir utan Úkraínumenn

Póli­tískt og efna­hags­legt krísu­á­stand hefur verið í Venes­ú­ela und­an­farin ár og talið er að yfir 6 millj­ónir íbúa lands­ins hafi ákveðið að yfir­gefa landið á innan við ára­tug af þeim sökum. Eftir umdeildar for­seta­kosn­ingar árið 2018 sem tryggðu Nicolas Maduro áfram­hald­andi völd skán­aði staðan lítt og refsi­að­gerðir ann­arra ríkja hafa ekki bætt úr skák.

Ísland og yfir 50 önnur ríki, með Banda­ríkin í broddi fylk­ingar, við­ur­kenndu ekki úrslit for­seta­kjörs­ins í land­inu og lýstu því yfir að þau styddu stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­ann Juan Guaídó, sem hafði lýst sjálfan sig rétt­kjör­inn for­seta lands­ins.

Á svip­uðum tíma ákváðu íslensk stjórn­völd að byrja að veita umsækj­endum um alþjóð­lega vernd frá Venes­ú­ela við­bót­ar­vernd hér á landi, með vísan til almennra aðstæðna í rík­inu en óháð ein­stak­lings­bundnum aðstæðum hvers umsækj­anda.

Engar umsóknir um vernd höfðu borist frá rík­is­borg­urum Venes­ú­ela á árunum 2015-2017 en árið 2018 voru þær 14 tals­ins, árið 2019 voru þær 180, árið 2020 104 og árið 2021 voru þær 361 tals­ins. Á fyrstu tíu mán­uðum þessa árs sóttu svo 764 ein­stak­lingar frá Venes­ú­ela um vernd á Íslandi og eru rík­is­borg­arar Venes­ú­ela, að Úkra­ínu­mönnum frá­töldum, stærsti hópur umsækj­enda um alþjóð­lega vernd á Íslandi.

Undir lok síð­asta árs til­kynnti Útlend­inga­stofnun að breyta ætti fram­kvæmd­inni hvað þennan hóp varð­aði og hefja að leggja ein­stak­lings­bundið mat á umsóknir fólks­ins um vernd á Íslandi. Í kjöl­farið var mörg­hund­ruð manns frá Venes­ú­ela synjað um vernd á Íslandi með ákvörð­unum Útlend­inga­stofn­un­ar, en í sumar komst kæru­nefnd útlend­inga­mála að ekki hefði verið sýnt fram á að ástandið í Venes­ú­ela hefði lag­­ast frá því að íslenskt stjórn­völd tóku ákvörðun um að veita rík­is­borg­urum Venes­ú­ela við­bót­ar­vernd hér­lendis á grund­velli stöð­unnar í heima­ríki þeirra.

Fram kom í úrskurð­inum að ástandið í land­inu hefði raunar farið versn­andi „og að umfang og alvar­­leiki glæpa gegn mann­kyni hafi auk­ist.“ Bætt ástand í Venes­ú­ela gæti því ekki verið rök­­stuðn­­ingur fyrir því að synja umsækj­endum um við­­bót­­ar­vernd hér á land­i.

Stjórnvöld vilja hætta að veita öllum frá Venesúela vernd

Nokkuð ljóst er að vilji stjórn­valda er sá að færri ein­stak­lingum frá Venes­ú­ela verði veitt vernd á Íslandi. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði á þingi nýleg að unnið væri að því að breyta þeim við­miðum sem væru til staðar um veit­ingu verndar til íbúa Venes­ú­ela. Orð­rétt sagði ráð­herra að Ísland væri „að glíma við óvenju­hátt hlut­fall fólks frá Venes­ú­ela á grund­velli nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála“ og að verið væri að „bregð­ast við því með að reyna að breyta okkar við­mið­unum um það á hvaða grund­velli við veitum þeim vernd“.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á dóms­mála­ráðu­neytið vegna þess­ara orða og spurði hvort ráðu­neytið teldi mögu­legt að breyta fram­kvæmd­inni í vernd­ar­málum Venes­ú­ela­búa á annan hátt en með laga­breyt­ingum. Ráðu­neytið sagði svo vera, ýmist væri hægt að gera það með reglu­gerð­ar­breyt­ingum eða til­mælum til Útlend­inga­stofn­unar.

Útlend­inga­stofnun seg­ist þó ekki vera, sem áður segir, að hægja á afgreiðslu umsókna frá rík­is­borg­urum Venes­ú­ela á grund­velli til­mæla ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið undanfarið ár