Mynd: Birgir Þór Harðarson

Laun ráðherra og aðstoðarmanna samtals 636 milljónir á næsta ári

Hækka þarf fram­lag rík­is­sjóðs til rekstrar rík­is­stjórnar Íslands um 153 millj­ónir króna vegna fjölg­unar aðstoð­ar­manna hennar. Þeir mega vera 25 alls og er sú heim­ild nú nán­ast full­nýtt.

Rekstur rík­is­stjórnar Íslands, sem í fel­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra, er áætl­aður 636 millj­ónir króna á næsta ári, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í morgun. Það er 38 pró­sent aukn­ing á milli ára en sam­kvæmt fjár­lögum árs­ins 2018 var áætlað að kostn­aður við rekstur hennar næmi 461 milljón króna á árinu 2018. Þar munar mestu um 153 millj­óna króna hækkun vegna launa aðstoð­ar­manna ráð­herra, sem hefur fjölgað mikið.

Alls má rík­is­stjórnin ráða 25 aðstoð­ar­menn og eru heim­ildir laga til slíkra ráðn­inga nú nán­ast full­nýttar. Allir ráð­herrar eru til að mynda með tvo aðstoð­ar­menn en auk þeirra hefur rík­is­stjórnin ráðið tvo af þeim þremur aðstoð­ar­mönnum sem hún má ráða sam­kvæmt lögum. Annar þeirra er Lára Björg Björns­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, sem hefur starfs­að­stöðu í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Hinn er Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, sem var ráð­inn í stöðu aðstoð­ar­manns til að sinna starfi sem verk­efn­is­stjóri við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Unnur starfar í umboði Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Heimild til að fjölga

Lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­ar­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­is­stjórn­ina að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar ef þörf krefur. Í lög­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra.“ Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­ar­manna­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­ast um að ræða nán­ustu sam­starfs­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­is­stjórn­inni og í dag eru þeir ell­efu. Það þýðir að fjöldi leyfi­legra aðstoð­ar­manna hefur líka auk­ist.

xxxxxxxxx

Laun og starfs­kjör aðstoð­ar­manna ráð­herra mið­ast við kjör skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum sam­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Aðstoð­ar­menn­irnir hafa fengið dug­lega launa­hækkun á und­an­förnum árum. Sumarið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­ar­manna um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Ráð­herrar hafa líka fengið umtals­verða launa­hækkun á und­an­förnum árum. Í nóv­em­ber 2015 hækk­aði Kjara­ráð til að mynda laun ráð­herra um 9,3 pró­sent. Árið síð­ar, á kjör­dag 2016, voru laun þeirra síðan hækkuð um 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun for­sæt­is­ráð­herra 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra 1.826.273 krónur á mán­uði.

Kostnaðurinn aldrei hærri

Kostn­aður við rekstur rík­is­stjórn­ar­innar hefur aldrei verið hærri en í ár, og hann á að hækka umtals­vert á næsta ári líka.

Samkvæmt sam­þykktum fjár­lögum fyrir árið 2018 átti kostn­aður við rekstur rík­is­stjórn­ar­innar að vera 461 milljón króna. Ljóst er að sú upp­hæð hefur ekki dugað til að greiða laun allra ráð­herra og aðstoð­ar­manna og því má búast við að það bil verði brúað á kom­andi fjár­auka­lögum.

Á næsta ári mun kostn­að­ur­inn svo enn aukast og verða 636 millj­ónir króna. Í krónum talið hefur aukn­ingin numið 383 millj­ónum króna frá árinu 2011 og út næsta ár, en þá á eftir að gera ráð fyrir verð­bólgu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár