Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vilja að ríkið greiði hluta af launum sjómanna

Útgerð­ar­fyr­ir­tæki vilja að íslenska ríkið taki þátt í launa­kostn­aði sjó­manna. Eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hefur auk­ist um 300 millj­arða á örfáum árum og þau eru örlát á styrki til valdra stjórn­mála­flokka.

Mikill þrýst­ingur er frá útgerð­ar­fyr­ir­tækjum um að ríkið beiti sér í kjara­deilu milli þeirra og sjó­manna. Þau vilja að ríkið stígi inn í annað hvort með laga­setn­ingu á deil­una eða með því að taka með ein­hverjum hætti þátt í þeim við­bót­ar­kostn­aði sem samn­ingar við sjó­menn munu kosta. Sjómenn áætla að við­bót­ar­kostn­að­ur­inn sé um þrír millj­arðar króna á ári en útgerðin telur að hann sé nærri fjórum millj­örðum króna. Helst birt­ist sú krafa í því að sjó­manna­af­sláttur, eða sam­bæri­legt fyr­ir­komu­lag, verði tek­inn aftur upp og að rík­is­sjóður taki þannig þátt í með beinum hætti að greiða laun sjó­manna.

Þessi skoðun kom til að mynda fram í við­tali við Guðmund Krist­jáns­son, for­stjóra Brims, á Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun. Þar sagði Guð­mundur, sem stýrir einu stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins, að hann vilji að sjó­menn njóti dag­pen­inga­greiðslna en skatta­frá­dráttur er heim­ill á móti slíkum greiðslum.

Ríkisstjórnin útilokar sértækar aðgerðir

Afstaða rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart kjara­deilu sjó­manna hefur verið skýr. Sértækar aðgerðir af hálfu hins opin­bera koma ekki til greina. Það þýðir að hvorki stendur til að setja lög á verk­fall sjó­manna né að láta rík­is­sjóð borga hluta af þeim kostn­aði sem sam­þykkt krafna sjó­manna myndi þýða.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra kom því skýrt á fram­færi í Silfrinu á RÚV á sunnu­dag að það væri ekki til umræðu að taka upp sjó­manna­af­slátt­inn á ný.

En hvað er þessi sjó­manna­af­sláttur? Hann var skatta­af­sláttur sem sjó­menn fengu í 60 ár. Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur ákvað árið 2009 að afnema afslátt­inn í skrefum og var hann að fullu afnum­inn í byrjun árs 2014. Árið 2008 var sjó­manna­af­slátt­ur­inn um 1,1 millj­arður króna á þávirði og dreifð­ist á um sex þús­und sjó­menn. Síðan þá hafa ýmsir stjórn­mála­menn kallað eftir því að afslátt­ur­inn verði end­ur­vak­inn.

Ótrúleg staða íslensks sjávarútvegs

Ástæða þess að sjó­manna­af­slátt­ur­inn var afnum­inn á sínum tíma var sá að ekki þótti rétt­læt­an­legt að íslenska ríkið væri að nið­ur­greiða laun í einka­reknum atvinnu­geira sem stæði ákaf­lega vel.

Það er erfitt að sjá á tölum að sú rök­semd­ar­færsla eigi ekki enn við. Íslenskur sjáv­ar­út­vegur hefur aldrei verið jafn vel stæður. Hreinn hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja var 45 millj­arðar króna árið 2015 og eigið fé hans í lok þess árs rúmir 220 millj­arðar króna. Eigið féð hafði verið nei­kvætt um 80 millj­arða króna í lok árs 2008 og því hefur það auk­ist um rúm­lega 300 millj­arða króna frá lokum hrunsárs­ins og til loka árs 2015. Þá á eftir að taka til­lit til þeirra 54,3 millj­arða króna sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja greiddu sér í arð frá byrjun árs 2010 og til loka árs 2015. Þeir pen­ingar hafa verið teknir út úr rekstr­inum og eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna notað þá til ann­arra fjár­fest­inga. Mestur voru arð­greiðsl­urnar á þriggja ára tíma­bili, 2013-2015, þegar þær voru sam­tals 38,2 millj­arðar króna.

Þegar arð­greiðsl­urnar eru lagðar saman við eigið féð hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins vænkast um rúm­lega 354 millj­arða króna á örfáum árum. Inn í þessar tölur vantar árið 2016 en Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) gera ráð fyrir að fram­legð hafi verið 61,5 millj­arðar króna (var 70 millj­arðar króna árið 2015) og að hún verði 43 millj­arðar króna árið 2017. Ástæður þess að hún dregst saman eru fyrst og fremst vegna ytri aðstæðna (hækkun olíu­verðs og Brexit) og hins vegar vegna styrk­ingar krón­unnar. Þrátt fyrir versn­andi skil­yrði mun geir­inn samt sem áður skila mjög mik­illi fram­legð og hagur, að minnsta kosti stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna, halda áfram að vænkast hratt.

Veiðigjöld dregist mikið saman

Samhliða þessu for­dæma­lausa hagn­að­ar­skeiði sjáv­ar­út­vegs á Íslandi hafa veiði­gjöld sem atvinnu­greinin greiðir í rík­is­sjóð lækkað mikið. Veiði­gjald útgerð­ar­innar fór úr 9,2 millj­örðum fisk­veiði­árið 2013/2014 í 7,7 millj­arða fisk­veiði­árið 2014/2015. Í reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna er veiði­gjaldið talið með öðrum rekstr­ar­kostn­aði og því er búið að taka til­lit til þess þegar hreinn hagn­aður er reikn­aður út.

Á fisk­veiði­ár­inu 2015/2016 voru þau áætluð 7,4 millj­arðar króna og á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári eru gjöldin áætluð 4,8 millj­arðar króna. Það er um átta millj­örðum króna minna en þau voru fisk­veiði­árið 2012/2013, þegar þau voru 12,8 millj­arðar króna. Til við­bótar við veiði­gjöld greiða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins einnig umtals­vert í tekju­skatt og trygg­ing­ar­gjald. Samtals námu bein opin­ber útgjöld sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna – veiði­gjöld, tekju­skattur og trygg­ing­ar­gjald – 22,6 millj­örðum króna árið 2015, sem er nákvæm­lega sama upp­hæð og greidd var af þeim árið 2014 en um tveimur millj­örðum minna en greitt var á árinu 2013.

Vilja inngrip ríkisins

Þrátt fyrir þetta er uppi mjög hávær krafa um að ríkið stígi inn í deil­una með ein­hverjum hætti. Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi og for­maður atvinnu­vega­nefndar, sagði í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að hann vildi „ekki úti­loka það að ríkið kunni að þurfa að grípa inn í þetta með ein­hverjum hætti og það er hægt með öðrum hætti en með laga­setn­ingu. Stjórn­völd geta ekki látið þessa auð­lind þjóð­ar­innar liggja óbætta hjá garði. Það er bara óraun­sæi og ég veit svo sem ekki hvern menn eru að blekkja með því ef þeir eru að halda því fram að það sé hægt eða að stað­hæfa það að það verði ekki undir neinum kring­um­stæðum gripið inn í þessa kjara­deilu.“ Páll bætti við að hann væri ekki tals­maður þess að sjó­manna­af­slátt­ur­inn yrði tek­inn upp á ný í þeirri mynd sem hann var en að honum fynd­ist koma til greina að „skoða þann hluta af fæð­is­pen­ingum sjó­manna sem má líta á eins og dag­pen­inga ann­arra stétta, þ.e.a.s. kostn­aður sjó­manna sem hlýst af því að þeir geta ekki borðað heima hjá sér og þurfa að borga fyrir fæðið ann­ars staðar. Aðrar stéttir, þ.m.t. opin­berir starfs­menn, hafa dag­pen­inga sem eru skatt­lausir að þessu leyti.“

Mikill þrýstingur er á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að grípa inn í kjaradeilu sjómanna með einhverjum hætti. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Mikill þrýst­ingur er á Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, að grípa inn í kjara­deilu sjó­manna með ein­hverjum hætti. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók undir með Páli og sagði að það væri hægt að stíga inn í deil­una með því að nota skatt­kerfið til að „liðka fyrir“. Þegar Gunnar Bragi var spurður hvort hann væri að tala um sjó­manna­af­slátt eða eitt­hvað slíkt, svar­aði hann:

„Já til dæmis eitt­hvað slíkt.“

87 prósent styrkja úr sjávarútvegi til Sjálfstæðisflokks og Framsóknar

Fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi hafa lengi verið mjög áber­andi á meðal þeirra sem styrkja stjórn­mála­starf­semi á Íslandi. Enginn einn atvinnu­vegur styður meira við starf­semi íslenskra stjórn­mála­flokka en útveg­ur­inn. En það er mjög mis­mun­andi hversu vel hann styður við flokka, og helg­ast það af mjög ólíkri afstöðu íslenskra stjórn­mála­flokka til þess hvernig kerfi er utan um íslenskan sjáv­ar­út­veg og hvað hann eigi að greiða hátt gjald til sam­neysl­unnar fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Og það eru fyrst og síð­ast þing­menn þeirra flokka sem fá hæstu fram­lögin frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum sem eru að kalla eftir að ríkið beiti sér í kjara­deilu útgerð­ar­fyr­ir­tækja og sjó­manna.

Rík­is­end­ur­skoðun heldur utan um upp­lýs­ingar um fjár­mál stjórn­mála­flokka og próf­kjörs­þátt­tak­enda. Í útdrætti úr árs­reikn­ingi Sjálf­stæð­is­flokks vegna árs­ins 2015 sem er að finna á vef stofn­un­ar­innar kemur til að mynda í ljós að fyr­ir­tæki tengd sjáv­ar­út­vegi styrktu flokk­inn um tæp­lega 7,6 millj­ónir króna á því ári. Um er að ræða 40 pró­sent af öllum styrkjum sem flokk­ur­inn fékk frá lög­að­ilum á því ári.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur einnig notið góðs af styrkjum frá sjáv­ar­út­vegnum. Á árinu 2015 kom um helm­ingur allra styrkja lög­að­ila til flokks­ins, alls um 5,2 millj­ónir króna, frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum.

Sam­fylk­ingin fékk einnig sinn skerf af sjáv­ar­út­vegs­styrkjum. Samtals sjö lög­að­ilar tengdir sjáv­ar­út­vegi gáfu flokknum tæpar tvær millj­ónir króna á árinu 2015. Það er um 40 pró­sent af öllum styrkjum sem flokk­ur­inn fékk á því ári. Píratar, Vinstri græn og Björt fram­tíð þáðu ekki styrki frá lög­að­ilum á árinu 2015, og fengu þar af leið­andi enga slíka frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi.

Samkvæmt þessum tölum fengu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sam­tals um 87 pró­sent af öllum styrkjum sem fyr­ir­tæki tengd sjáv­ar­út­vegi gáfu stjórn­mála­flokkum á árinu 2015.

Mikið af styrkjum í Suðurkjördæmi

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki styrkja líka ein­stak­linga í bar­áttu þeirra um að ná sem hæst á fram­boðs­listum flokka sinna. Í próf­kjörs­bar­áttu fyrir síð­ustu kosn­ingar þurftu allir fram­bjóð­endur sem eyddu yfir 400 þús­und krónum að skila inn upp­gjöri. Þeir sem eyddu undir þeirri fjár­hæð þurftu ein­ungis að skila yfir­lýs­ingu þess efnis til Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Níu þátt­tak­endur í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar hafa þegar skilað inn yfir­lýs­ingum um að þeir hafi eytt minna en 400 þús­und krónum í sína bar­áttu. Enginn fram­bjóð­andi flokks­ins hefur skilað útdrætti úr upp­gjöri og enn vantar upp­lýs­ingar um marga fram­bjóð­endur flokks­ins. Allir fram­bjóð­endur í próf­kjöri Pírata hafa skilað inn yfir­lýs­ingu um að hafa ekki eytt meira en 400 þús­und krónum. Fjórir þing­menn Fram­sóknar hafa gert slíkt hið sama en enn vantar upp­lýs­ingar um kostnað ann­arra fram­bjóð­enda flokks­ins. Vinstri græn, Viðreisn og Björt fram­tíð röð­uðu á lista og fram­bjóð­endur lögðu því ekki út í próf­kjörs­kostnað.

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vill að ríkið grípi inn í kjaradeilu sjómanna.
Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, vill að ríkið grípi inn í kjara­deilu sjó­manna.

Alls eyddu 15 fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins meira en 400 þús­und krónum í próf­kjörs­bar­áttu sína. Þar af vörðu níu fram­bjóð­endur meira en milljón krónum í bar­áttu sína fyrir sæti á lista. Mestu eyddi Páll Magn­ús­son, sem var í fyrsta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi. Próf­kjörs­bar­átta hans kost­aði ríf­lega 3,4 millj­ónir króna. Þar af komu rúmar 2,2 millj­ónir króna frá lög­að­ilum og ein milljón króna af þeim styrkjum kom frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi. Nokkrir fram­bjóð­endur flokks­ins fengu áber­andi hærri styrki frá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum en aðrir.

Ásmundur Frið­riks­son, sem sat í öðru sæti á lista Sjálf­stæð­is­manna í sama kjör­dæmi, fékk fjórðu hæstu fram­lögin af fram­bjóð­endum flokks­ins. Hann fékk tæp­lega 2,7 millj­ónir króna. Þar af komu 2,4 millj­ónir króna frá lög­að­ilum og 1,1 milljón króna af þeirri upp­hæð frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi.

Vil­hjálmur Árnason, lenti í þriðja sæti í Suð­ur­kjör­dæmi og eyddi alls 850 þús­und krónum í próf­kjörs­bar­áttu sína. Þar af komu 620 þús­und krónur frá lög­að­ilum og af þeirri tölu komu næstum tvær af hverjum þremur krónum, sam­tals 400 þús­und krónur, frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi.

Jón Gunn­ars­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, eyddi sam­tals tæp­lega 1,4 millj­ónum króna í próf­kjörs­bar­áttu sína. Þar af kom 1,3 millj­ónir króna frá lög­að­ilum og 700 þús­und krónur af þeirri upp­hæð kom frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi, eða rúm­lega helm­ingur hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár