Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar ásamt hinum formönnum stjórnarflokkanna í dag.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar ásamt hinum for­mönnum stjórn­ar­flokk­anna í dag. Mynd: Stjórnarráðið

Stjórnvöld smyrja kjarasamninga með nýjum íbúðum, hærri húsnæðisbótum og nýju barnabótakerfi

Kjara­samn­ingar voru und­ir­rit­aðir í dag við stóran hóp á almennum vinnu­mark­aði, og þar með er búið að semja út jan­úar 2024 við um 80 pró­sent hans. Laun hækka um 6,75 pró­sent í 9,3 pró­sent verð­bólgu en þó aldrei meira en um 66 þús­und krónur.

Samn­ing­arnir sem Samtök atvinnu­lífs­ins und­ir­rit­uðu við VR, LÍV og sam­flot iðn­að­ar­manna í dag gilda frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðnum og til 31. jan­úar 2024. Í þeim fel­ast að almennar launa­hækk­anir verða 6,75 pró­sent og þær taka gildi frá 1. nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Hækkunin getur þó að hámarki orðið 66 þús­und krónur, sem þýðir að þak hennar er rétt undir einni milljón króna mán­að­ar­launum. Þá var samið um að des­em­ber­upp­bót fyrir næsta ár verði 103 þús­und krónur og orlofs­upp­bót 56 þús­und krónur.

Hag­vaxt­ar­auk­inn svo­kall­aði, sem átti að taka gildi 1. apríl næst­kom­andi, fellur sam­hliða niður. Það þýðir að hag­vaxt­ar­auk­inn fellur inn í launa­hækk­un­ina. Auk þess taka nýjar launa­töflur gildi hjá fólki sem vinnur sam­kvæmt taxta sem leiða til ein­hverra hækk­ana umfram almennu hækk­un­ina.

Þetta kemur fram í kynn­ingu Samtaka atvinnu­lífs­ins á samn­ing­unum. Með þeim er búið að ljúka skamm­tíma­samn­ingum við meiri­hluta almenns vinnu­mark­aðar, en áður hafði verið samið við Starfs­greina­sam­bandið. Um er að ræða 80 þús­und manna hóp. Enn á eftir að semja við um 20 pró­sent af almenna vinnu­mark­að­inum og er stærsti bit­inn þar Efling, næst stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins. Til við­bótar við þann hóp starfa um 61 þús­und manns á opin­bera mark­að­inum og hjá öðrum aðilum.

Gerðir eru skamm­tíma­samn­ingar vegna við­sjár­verðra aðstæðna í efna­hags­líf­inu sem birt­ast í mik­illi þenslu og hárri við­var­andi verð­bólgu, sem mælist nú 9,3 pró­sent. Mikil alþjóð­leg óvissa vegna stríðs­á­taka og ann­arrar svipt­inga vigta þar líka inn í.

Samn­ing­arnir eru fram­leng­ing á lífs­kjara­samn­ingnum sem gerður var í apríl 2014 og með því er við­ræðum um öll önnur atriði en launa­lið­inn frestað fram í næstu lotu við­ræðna, sem stefnt er að því að ljúka seint á næsta ári. Þá er von­ast til að verð­bólga verði farin að hjaðna veru­lega og því betri for­sendur til að semja til lengri tíma.

Ríkið hækkar húsnæðisbætur

Til að liðka fyrir gerð samn­inga lögð stjórn­völd til ýmsar aðgerðir sem auka eiga ráð­stöf­un­arfé lág- og milli­tekju­hópa á Íslandi.

Þessar aðgerðir snúa að hús­næð­is­málum, hús­næð­is­stuðn­ingi og auknum barna­bótum. Sumar þeirra hafa verið kynntar áður, en aðrar eru nýjar af nál­inni þótt þeirra hafi verið getið í stjórn­ar­sátt­mála.

Á meðal end­ur­nýttra aðgerða eru upp­bygg­ing 35 þús­und íbúða á næsta ára­tug, en nýja bragð­efnið í þeim pakka er að 30 pró­sent þeirra verði hag­kvæmar og á við­ráð­an­legu verði og fimm pró­sent þeirra félags­legar. Þá verður áfram unnið að stækkun almenna íbúða­kerf­is­ins, sem rekið er af óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum, og stofn­fram­lög til þeirra verða fjórir millj­arðar króna á næsta ári.

Hús­næð­is­bætur til leigj­enda verða hækk­aðar um 13,8 pró­sent í byrjun næsta árs og tekju­skerð­ing­ar­mörk hús­næð­is­bóta verða hækkuð um 7,4 pró­sent. Þetta kostar 1,1 millj­arð króna og eftir hækk­un­ina verða hús­næð­is­bætur alls 9,6 millj­arðar á næsta ári. Áætlanir gera ráð fyrir að 16.800 heim­ili fái hús­næð­is­bætur á árinu 2023.

Eigna­skerð­ing­ar­mörk í vaxta­bóta­kerf­inu hækka um 50 pró­sent í upp­hafi árs 2023 og almenn heim­ild til nýt­ingar á sér­eign­ar­sparn­aði til kaupa á íbúð­ar­hús­næði til eigin nota eða ráð­stöf­unar inn á höf­uð­stól verður fram­lengd til árs­loka 2024

Þá á að taka fyr­ir­komu­lag sér­staks hús­næð­is­stuðn­ings og hús­næð­is­bóta til leigj­enda til skoð­unar á samn­ings­tím­anum með það að mark­miði að tryggja jafn­ræði og ein­falda kerfið fyrir leigj­endur.

Nýtt barnabótakerfi

Stóra nýja kerf­is­breyt­ingin sem kynnt er til leiks snýr að barna­bóta. Það er gert með því að ein­falda kerfið þar sem dregið er úr skerð­ingum og jað­ar­skattar af völdum barna­bóta verða lækk­aðir. Þá verða teknar upp sam­tíma­greiðslur barna­bóta sem þýða að þær fara að greið­ast í síð­asta lagi fjórum mán­uðum eftir að barn fæð­ist í stað þess að bíða þurfi fram að næstu ára­mótum til að fá barna­bætur. Þessi breyt­ing á að skila því að fjöl­skyldum sem fá barna­bætur fjölgað um 2.900.

Heild­ar­fjár­hæð barna­bóta verður fimm millj­örðum krónum hærri en í óbreyttu kerfi á næstu tveimur árum eftir að breyt­ingin tekur gildi.

Á meðal ann­arra mála sem stjórn­völd ætla að vinna að á samn­ings­tím­anum eru stuðn­ingur til að auka aðhald á neyt­enda­mark­aði, með því að veita tíu nýjum millj­ónum króna í það verk­efni. Þá á að skoða leiðir til að auð­velda líf­eyr­is­sjóðum að fjár­festa í íbúð­ar­hús­næði til útleigu og leggja mat á greiðslur og hámarks­fjár­hæðir í fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði og ábyrgð­ar­sjóði launa með það að mark­miði að þær verði end­ur­skoð­aðar 2024.

Heild­ar­end­ur­skoðun atvinnu­leys­is­trygg­inga á svo að ljúka eigi síðar en í lok apríl 2023 og á að leiða tii inn­leið­ingar á umbótum.

Þá verða mál­efni og fjár­mögnun vinnu­staða­náms­sjóðs end­ur­skoðuð í tengslum við fjár­mála­á­ætlun til að styðja við mark­mið um aukið vægi starfs­náms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár