Mynd: Bára Huld Beck

Karlar halda þéttingsfast um veskið í íslensku efnahagslífi

Sjötta árið í röð fram­kvæmdi Kjarninn úttekt á því hver kynja­hlut­föll séu á meðal þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi.

Í des­em­ber 2018 var greint frá því að Íslandi tróni á toppnum á lista Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins yfir ríki þar sem kynja­jafn­frétti er mest. Næst á eftir okkur á list­anum eru önnur Norð­ur­lönd: Noregur, Svíþjóð og Finnland, en alls nær úttektin yfir 149 lönd. Hún leggur mat á jafn­rétti kynj­anna í stjórn­málum, menntun, atvinnu og heil­brigði.

Samkvæmt nið­ur­stöðu úttekt­ar­innar mun það taka heim­inn 108 ár að ná fullu jafn­rétti karla og kvenna í heim­inum. Ísland er, líkt og áður sagði, komið lengst á þeirri veg­ferð. 85,8 pró­sent af kynja­ó­jafn­rétt­is­bil­inu er þegar brúað sam­kvæmt mæli­kvörð­unum sem miðað er við. Þrátt fyrir for­ystu­hlut­verk Íslands þá hefur líka átt sér stað nei­kvæð þróun hér­lendis.

Þannig hafi konum á þingi fækkað í kosn­ing­unum 2017. Fjöldi þeirra fór úr met­töl­unni 30 í 24 og hlut­fallið á meðal þing­manna allra úr 47,6 pró­sent í 38 pró­sent. Hlutfall kvenna á Alþingi hefur ekki verið lægra eftir hrun. Sig­ur­veg­arar þeirra kosn­inga voru mið­aldra karlar, sem juku umfang sitt á meðal þjóð­kjör­inna full­trúa umtals­vert.

Í úttekt Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins segir enn fremur að konum í æðstu emb­ætt­is­manna­stöðum hafi einnig fækkað sem og hlut­fall kvenna á meðal stjórn­enda í fyr­ir­tækjum.

Þá hafi þátt­taka og tæki­færi kvenna í efna­hags­líf­inu líka dreg­ist saman.

Stór skref stigin á ýmsum sviðum

Ísland hefur stigið stór skref í að búa til umgjörð sem á að ýta land­inu í átt að meira kynja­jafn­rétti. Lög hafa verið sett til að tryggja ákveðið jafn­fræði milli kynja í stjórnum stærri fyr­ir­tækja lands­ins og jafn­launa­vottun hefur annað hvort verið inn­leidd eða er í inn­leið­ing­ar­ferli mjög víða. Unnið hefur verið út frá kynj­aðri fjár­laga­gerð frá árinu 2009 og frá og með nýliðnum ára­mótum heyra jan­frétt­is­mál nú undir for­sæt­is­ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur, ann­ars kvenn­for­sæt­is­ráð­herr­ans í sögu þjóð­ar­innar, sem gefur ágætis vís­bend­ingu um það hversu mik­il­vægan for­sæt­is­ráð­herra telur mála­flokk­inn vera. Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur og þunga­vigt­ar­mann­eskja í stjórn­málum um ára­bil, var skipuð yfir skrif­stofu jafn­rétt­is­mála fyrr í mán­uð­inum.

Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, tekur við viðurkenningu vegna HeForShe-átaksins. Mynd: Úr safni
Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, tekur við við­ur­kenn­ingu vegna HeForShe-átaks­ins. Mynd: Úr safni

Þá hafa íslenskir ráða­menn farið víða um heim­inn til að berja sér á brjóst fyrir bar­áttu sína fyrir kynja­jafn­rétti, ofbeldi gagn­vart konum og þess leið­ang­urs að karl­menn axli ábyrgð á því að vera hluti af lausn­inni frekar en kjarn­inn í vanda­mál­inu. Þetta var meðal gert í gegnum Bar­bers­hop- verk­færakist­una og HeForShe-átakið, en Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, fékk verð­laun fyrir þátt­töku sína í því árið 2015 og hélt í kjöl­farið ræðu á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna, meðal ann­ars um málið. Ljóst má vera að orð­ræða Gunnars Braga um sam­þing­konur sínar á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber 2018 hefur varpað skugga á þessa stöðu. Sú orð­ræða átti lítið sam­eig­in­legt með mark­miðum HeForShe. Þvert á móti.

11,1 prósent eru konur

Alþjóða­efna­hags­ráðið bendir á að tæki­færi kvenna í efna­hagstengdum málum séu frekar að versna en hitt. Í til­kynn­ingu sem rík­is­stjórnin sendi frá sér vegna úttekt­ar­innar var haft eftir Katrínu Jak­obs­dóttur að það væri enn væri verk að vinna í mála­flokknum. „Lyk­il­at­riðið er að skilja að jafn­rétti kynj­anna er ekki náð og að það kemur ekki af sjálfu sér,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Einn flötur sam­fé­lags­ins þar sem þetta er sann­ar­lega rétt er stýr­ing pen­inga, og sér­stak­lega fjár­mála­geir­inn. Þar ráða karlar nær öllu sem þeir vilja ráða og hafa gert það alla tíð. Þar með halda þeir um taumanna á flestum buddum sem geta látið hug­myndir verða að tæki­færum og tæki­færi að stönd­ugum rekstri.

Kjarninn hefur fram­kvæmt úttekt á því hvers kyns þeir sem stýra fjár­magni á Íslandi eru árlega frá 2014. Úttektin nú er því sú sjötta sem fram­kvæmd hefur verið.

Í ár nær hún, líkt og í fyrra, til 90 æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða. Nið­ur­staðan nú er sú að 80 þeirra eru karlar en tíu eru konur. Konum fjölgar um eina á milli ára en hlut­fall þeirra á meðal helstu stjórn­enda fjár­magns á Íslandi fer með því úr tíu pró­sentum í 11,1 pró­sent milli áranna 2018 og 2019.

Þessi hópur sem fellur undir úttekt­ar­skil­yrðin stýrir þús­undum millj­arða króna og velur í hvaða fjár­fest­ingar þeir pen­ingar rata hverju sinni.

Sjötta árið en nánast sama niðurstaðan

Þegar úttekt Kjarnans var fram­kvæmd fyrst, í febr­úar 2014, voru störfin sem hún náði yfir 88 tals­ins. Þá sátu 82 karlar í þeim störfum en sex kon­ur. Árið 2015 voru störfin 87, karl­arnir 80 og kon­urnar sjö. 2016 voru störfin 92, karl­arnir 85 og kon­urnar sjö. Árið 2017 var nið­ur­staðan 80 karlar og átta konur. Í fyrra var hún 81 karl og níu konur. Og í ár fjölg­aði kon­unum um eina en körlunum fækk­aði um jafn­marga.

Nið­ur­staðan er sú að lítið sem ekk­ert hefur breyst á þessum árum sem þó eiga að telj­ast ein­hver þau fram­sækn­ustu í jafn­rétt­is­málum.

Fjöldi karla og kvenna sem stýra pen­ingum á Íslandi:
2014: 82 karlar 6 konur
2015: 80 karlar 7 konur
2016: 85 karlar 7 konur
2017: 80 karlar 8 konur
2018: 81 karlar 9 konur
2019: 80 karlar 10 konur

Það vekur athygli að breyt­ing­arnar hafa ekki verið meiri þótt að lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja hafi verið í gildi allan þennan tíma. Þau tóku gildi hér á landi að fullu leyti í sept­em­ber 2013. Samkvæmt þeim ber fyr­ir­tækjum með 50 eða fleiri starfs­­menn að tryggja að hlut­­fall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 pró­­sent­­um.

Árið eftir það náði hlut­­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja af þess­­ari stærð hámarki, fór upp í 33,2 pró­­sent. Það var mikil og þörf breyt­ing frá árum eins og 1999, þegar hlut­fallið var 9,5 pró­sent, og 2007, þegar það var 12,7 pró­sent. En síðan hefur hlut­fallið nán­ast staðið í stað, og heldur farið lækk­andi. Í árs­lok 2017 var það til að mynda 32,6 pró­sent.

Staðan einna skást innan viðskiptabankanna

Það er því ljóst að fjölgun kvenna í stjórnum hefur ekki orðið jafn mikil og vonir stóðu til um. Og það er kýr­skýrt að sú fjölgun sem hefur átt sér stað hefur ekki skilað mik­illi aukn­ingu á kvenn­stjórn­endum í fjár­mála- og við­skipta­heim­inum.

Í úttekt Kjarnans eru talin til öll þau fyr­ir­tæki og fjár­festar sem eru eft­ir­lits­skyld hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Í bönkum lands­ins er staðan skap­leg­ust. Þar eru tvær konur, Birna Ein­ars­dóttir og Lilja Björk Ein­ars­dóttir, við stýrið á rík­is­bönk­unum tveimur, Íslands­banka og Lands­banka. Hjá hinum tveimur bönk­unum sem eru í eigu einka­að­ila, Arion banka og Kviku banka, eru banka­stjór­arnir hins vegar karl­arnir Hösk­uldur Ólafsson og Ármann Þor­valds­son. Þá er Íbúð­ar­lána­sjóði, sem er stór lán­veit­andi á Íslandi, stýrt af karl­inum Hermanni Jónassyni.

Á Íslandi eru fjórir spari­sjóðir enn starf­andi. Þremur þeirra er stýrt af körlum en einum af konu. Það er Spari­sjóður Suður-Þing­ey­inga sem er stýrt af spari­sjóðs­stjór­anum Gerði Sig­tryggs­dóttur.

Þá lúta alls fimm lána­fyr­ir­tæki eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Einu þeirra, Lykli, er styrt af konu, Lilju Dóru Hall­dórs­dóttur, en að öðru leyti halda karl­menn um þræð­ina innan þeirra. Um að ræða stór fyr­ir­tæki og stofn­anir. Hin fjögur eru Borgun, Valitor, Lána­sjóður sveit­ar­fé­laga og Byggða­stofnun.

Fram­tíðin lána­sjóður er skráður eft­ir­lit­skyldur lán­veit­andi. Í byrjun mars 2018 var kona, Vala Hall­dórs­dóttir, ráð­inn sem fram­kvæmda­stjóri hans í stað karls. Þá eru tvö hagn­að­ar­drif­inn leigu­fé­lög í land­inu, Almenna leigu­fé­lagið og Heima­vellir. Öðru er stýrt af konu en hinu karli.

Verðbréfafyrirtækin öllum stýrt af körlum

Að venju er kynja­staðan verst hjá verð­bréfa­fyr­ir­tækjum og rekstr­ar­fé­lögum verð­bréfa­sjóða, þeirra sem hagn­ast af því að flytja pen­inga frá þeim sem eiga þá og í þau við­skipta­tæki­færi sem skap­ast, og þiggja þókn­ana­tekjur fyrir. Stærstu við­skipta­vinir flestra þeirra eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Samkvæmt yfir­lits­lista Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eru níu verð­bréfa­fyr­ir­tæki starf­andi á Íslandi. Þau eru ALM Verðbréf, Arctica Finance, Arev verð­bréfa­fyr­ir­tæki, Centra Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf, Fossar mark­aðir, Íslensk verð­bréf, Íslenskir fjár­festar, Jöklar-Verbréf og T Plús. Öllum er stýrt af körlum.

Rekstr­ar­fé­lög verð­bréfa­sjóða eru líka níu tals­ins. Þau heita Akta sjóðir, GAMMA, Íslands­sjóðir, ÍV sjóðir, Júpíter rekstr­ar­fé­lag, Lands­bréf, Rekstr­ar­fé­lag Virð­ingar, Stefnir og Summa rekstr­ar­fé­lag. Þeim er líka öllum stýrt af körlum.

Þá er til ein inn­láns­deild sam­vinnu­fé­laga á Íslandi, hjá Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga sem stýrt ef af karl­inum Þórólfi Gísla­syni. Þeirri deild verður reyndar lokað á þessu ári.

Hjá inn­heimtu­að­ilum (Aur app, Fjár­vakur, Inkasso, Momentum, Motus og Premium) er staðan þannig að stjórn­end­urnir eru fimm karlar og ein kona, Ásta Rós Reyn­is­dóttir. Einn skipti­mark­aður með sýnd­arfé er eft­ir­lits­skyldur á Íslandi, fyr­ir­tækið Skipti­mynt ehf. Því er stýrt af karli. Þá er ein skráð greiðslu­stofnun, Korta­þjón­ustan. Í byrjun árs 2018 var Björgvin Skúli Sig­urðs­son ráð­inn for­stjóri hennar en hann ent­ist ein­ungis tæpt ár í starfi. Í des­em­ber síð­ast­liðnum var Jakob Ásmunds­son ráð­inn í hans stað.

Öll skráðu félögin með karla í forstjórastólnum

Ástandið á hluta­bréfa­mark­aði er síðan nán­ast kostu­legt. Mark­aðsvirði þeirra 18 félaga sem skráð eru á aðal­markað og þeirra fimm sem skráð eru á First North mark­að­inn, var 960 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Um er að ræða stærstu þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins á flestum sviðum, tvo banka, stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins, þrjú af fjórum stærstu trygg­inga­fé­lög­unum, stærstu fast­eigna­fé­lögin og tvo banka af fjórum. Öllum þessum 23 félögum er stýrt af körlum.

Þær eru ekki margar konurnar sem hafa fengið að hringja kauphallarbjöllunni.
Þær eru ekki margar kon­urnar sem hafa fengið að hringja kaup­hall­ar­bjöll­unni.

Frá því að íslenskur hluta­bréfa­mark­aður var end­ur­reistur eftir hrun, að mestu sem vett­vangur til að koma fyr­ir­tækjum sem bankar sátu með í fang­inu vegna þess í nýtt eign­ar­hald, þá hefur ein­ungis ein kona stýrt skráðu félagi á Íslandi. Það var Sigrún Ragna Ólafs­dóttir, sem var for­stjóri VÍS frá 2011 til 2016, meðan ann­ars í gegnum skrán­ing­ar­ferli þess félags. Henni var sagt upp störfum síðla sum­ars 2016. Ekkert skráð félag hefur ráðið konu sem for­stjóra eftir skrán­ingu. Ekki eitt ein­asta.

Þá ber þess að geta að for­stjóri Kaup­hallar Íslands er áfram sem áður karl­inn Páll Harð­ar­son.

Vert er að taka fram að þau eft­ir­lits­skyldu fyr­ir­tæki sem eru líka skráð á markað eru ekki tví­talin í þess­ari úttekt.

Lifeyrissjóðirnir haldast áfram karllægir

Stærstu fag­fjár­festar á Íslandi eru ann­ars vegar líf­eyr­is­sjóðir og hins vegar trygg­inga­fé­lög, sem þurfa að ávaxta þau iðgjöld sem skjól­stæð­ingar og við­skipta­vinir þeirra greiða til þeirra.

Til að setja umfang þeirra í sam­hengi þá áttu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eignir sem metnar voru á 4.239 millj­arða króna í lok des­em­ber síð­ast­lið­ins. Þeir eiga nú þegar um þriðj­ung af heild­ar­fjár­munum á Íslandi og það hlut­fall mun bara hækka á næstu árum og ára­tugum. Spár gera ráð fyrir að árið 2060 muni þeir eiga um 40 pró­sent af þeirri köku. Þeir hafa stækkað mjög hrátt á árunum eftir hrun og fjár­magns­höftin sem sett voru á í nóv­em­ber 2008 gerðu það að verkum að þeir þurftu að uppi­stöðu að fjár­festa inn­an­lands. Umfang þeirra á Íslandi hefur því auk­ist mjög hrátt. Sem dæmi má nefna að árið 2006 áttu þeir um sex pró­sent allra skráðra hluta­bréfa í íslensku kaup­höll­inni. Tíu árum síðar áttu þeir 41 pró­sent þeirra. Árið 2006 áttu líf­eyr­is­sjóð­irnir 41 pró­sent allra mark­aðs­skulda­bréfa og víxla á Íslandi. Áratug síðar hafði hlut­fallið hækkað í tæp 70 pró­sent.

Alls eru 22 líf­eyr­is­sjóðir starf­andi á land­inu. Sumum er stýrt af sömu ein­stak­lingum og því eru stjórn­endur þeirra 16 tals­ins. Af þeim eru 14 karlar og tvær konur. Þrír sjóðir: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi líf­eyr­is­sjóður, eru langstærstu sjóðir lands­ins og stýra um helm­ingi af fjár­magn­inu sem líf­eyr­is­sjóða­kerfið hefur yfir að ráða.

Trygg­inga­fé­lög lands­ins eru miklu mun minni en sam­an­lagðar eignir þeirra námu samt sem áður 195,6 millj­örðum króna í lok síð­asta árs. Öllum fjórum trygg­inga­fé­lög­unum, VÍS, Sjóvá, TM og Verði er stýrt af körlum.

Fram­taks­sjóður Íslands, sem var umsvifa­mik­ill umbreyt­ing­ar­fjár­festir á Íslandi á und­an­förnum árum, og þá í eigu líf­eyr­is­sjóða og um tíma rík­is­banka, hætti störfum snemma á árinu 2018. Honum var stýrt af konu, Herdísi Fjelsted, og með nið­ur­lagn­ing­unni fækk­aði því kvenn­kyns stjórn­endum áhrifa­mik­illa fjár­festa í íslensku við­skipta­lífi um einn.

Þá eru átta orku­fyr­ir­tæki í land­inu. Lengi vel var þeim öllum stýrt af körlum en fyrr á þessu ári var Berglin Rán Ólafs­dóttir ráðin fram­kvæmda­stjóri Orku Nátt­úr­unnar í kjöl­far mik­illa átaka innan þess fyr­ir­tækis vegna meintrar kyn­ferð­is­legrar áreitni.

Samtals gera þetta 90 stöður. Í þeim sitja, líkt og áður sagði, 80 karlar og tíu konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjamunur

Mest lesið undanfarið ár