Er eftirsóknarvert að sitja í næstu ríkisstjórn?

Fram undan eru stór verk­efni til að takast á við, lít­ill tími til að marka stefnu í mörgum þeirra og erfitt verður að finna jafn­vægið á milli þess að mæta upp­safn­aðri fjár­fest­ing­ar­þörf og að standa á brems­unni í eyðslu til að ofhita ekki hag­kerfið.

Allir stjórn­mála­flokkar sem náðu inn full­trúa á Alþingi í lok októ­ber reyna nú að kom­ast að í rík­is­stjórn. Fyrir liggur að myndun slíkrar verður afar flókin og sam­setn­ing hennar verður alltaf óvenju­leg í sögu­legum sam­an­burði. Hún gæti líka þurft að und­ir­búa sig fyrir það að standa fljót­lega frammi fyrir ansi krefj­andi verk­efnum, sem krefj­ast úrlausna sem munu ekki falla í kramið hjá öllum.

Efna­hags­að­stæður á Íslandi eru um margt mjög góðar og hafa verið það um nokk­urt skeið. Þar spila inn í auknar útflutn­ings­tekjur, fyrst vegna mak­ríl­veiða, og síðar vegna ofur­vaxtar í ferða­þjón­ustu. Veik króna og fjár­magns­höft hjálp­uðu mjög til að flýta efna­hags­legu end­ur­reisn­inni. Þegar kostn­aður, t.d. laun, er í ódýrum krónum en síauknar tekjur í mun verð­meiri gjald­eyri verður allur rekstur íslenska hag­kerf­is­ins mun auð­veld­ari.

Sam­komu­lag við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að þeir gæfu eftir þorra inn­lendra eigna sinna gegn því að fá að losa um erlendar eignir sínar gerði stöð­una enn betri. Loks var hægt að fara að losa um fjár­magns­höft og stöð­ug­leika­eign­irnar munu gera það að verkum að afgangur rík­is­sjóðs á þessu ári verður hátt í 400 millj­arðar króna. Þótt að enn eigi eftir að koma tölu­verðu af þeim eignum í verð liggur fyrir að það eru tæki­færi til að ráð­ast í umfangs­miklar fjár­fest­ingar í innviðum sam­fé­lags­ins á næstu miss­erum.

Það skortir ekki á verk­efni sem þarf að ráð­ast í og flest eiga þau það sam­eig­in­legt að kosta mikla pen­inga. Í ljósi þess að íslenska hag­kerfið er lík­lega á hápunkti efna­hags­upp­sveifl­unnar, og mun standa frammi fyrir áskor­unum á þeim vett­vangi í náinni fram­tíð, verður af nógu að taka hjá þeirri rík­is­stjórn sem tekur við að loknum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Og nær ómögu­legt verður að halda öllum ánægðum í þeirri jafn­væg­is­list sem þarf að stunda milli þess að mæta kröfum um úrbætur í sam­fé­lag­inu og því að reka ábyrga efna­hags­stefnu.

Innviðafjárfestingar

Þótt að nóg sé til að pen­ingum í rík­is­kass­anum er ekki auð­velt að for­gangs­raða í hvað þeir eiga að fara. Kreppa og féleysi und­an­far­innar ára hafa gert það að verkum að upp­söfnuð fjár­fest­ing­ar­þörf í innviðum á Íslandi er gíf­ur­leg. Fjár­mála­fyr­ir­tækið Gamma mat hana á 230 millj­arða krónaí nýlegri skýrslu.

Þar er átt við upp­safn­aða þörf í fjár­fest­ingu bæði efna­hags- og sam­fé­lags­inn­viða. Efna­hagsinn­viðir eru til dæmis sam­göngu­mann­virki, flutn­ingar, fram­leiðsla og flutn­ingur á orku og vatns og fjar­skipta­inn­viðir.

Arion banki hélt því fram í nýlegri úttekt að upp­söfnuð fjár­fest­ing í vega­kerf­inu einu saman, miðað við fjölgun bif­reiða sem nota það vegna ofur­vaxtar í ferða­þjón­ustu, sé yfir 23 millj­arðar króna á árunum 2011-2015. Þessi upp­safn­aða fjár­fest­inga­þörf er til komin vegna þess að nið­ur­skurður til vega­mála hefur verið 90 pró­sent ef miðað er við með­al­tal áranna 2002 til 2007. Árið 2015 var fjár­fest­ing í vegum og brúm helm­ingi minni en hún var árið 1995.

Sam­fé­lags­inn­viðir eru síðan menntun, heil­brigð­is­kerfið, rétt­ar­kerfið, menn­ing og afþrey­ing. Nokkuð almenn sátt er um það hjá öllum stjórn­mála­flokkum, og hjá almenn­ingi, að gríð­ar­lega fjár­muni vanti inn í heil­brigð­is­kerfið til að það stand­ist þau við­mið sem íslenskt sam­fé­lag krefst.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, heldur nú á stjórnarmyndunarumboðinu.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, heldur nú á stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu.

Byggja þarf nýjan spít­ala, fjölga heilsu­gæslu­stöðvum, fjár­festa í tækja­bún­aði og byggja hjúkr­un­ar­heim­ili til að mæta því að öldruðum Íslend­ingum mun fjölga hratt á næstu ára­tugum. Hag­stofan spáir því að Íslend­ingum á aldr­inum 67 ára og eldri muni fjölga úr 39 þús­und árið 2016 í 86 þús­und árið 2050 eða um 121 pró­sent. Á sama tíma er reiknað með að heild­ar­fjöldi íbúa vaxi úr 332 þús­und í 422 þús­und eða um 27 pró­sent. Hlutfall 67 ára af mann­fjölda mun því hækka úr 12 pró­sentum í 20 pró­sent.

Þá hefur Ísland dreg­ist hratt aftur úr í fjár­fest­ingum í mennta­málum. Með­al­fram­lag íslenskra rík­is­ins á hvern nema í háskóla er tæp­lega 1,3 millj­ónir króna á meðan að með­al­talið á hinum Norð­ur­lönd­unum er rúm­lega 2,2 millj­ónir króna. Þriðjung vantar til að Ísland nái með­al­tali OECD-ríkj­anna.

Þá verður líka að fara var­lega í fjár­fest­ingu hins opin­bera. Það er mikil þensla í íslenska hag­kerf­inu og stjórn­völd ættu að vera með fót­inn á brems­unni í aukn­ingu útgjalda við slíkar aðstæður, undir venju­legum kring­um­stæður. En hin mikla upp­safn­aða fjár­fest­ing­ar­þörf gerir það mjög erfitt, og óvin­sælt, að sýna til­hlýði­lega ráð­deild og nota t.d. aukna umfram­fjár­muni rík­is­ins til að greiða niður skuldir þess.

Ytri aðstæður

Ísland er ákaf­lega við­kvæmt fyrir efna­hags­legum ytri áhrifum sem íslensk stjórn­völd geta ekki haft nein áhrif á. Þar skiptir t.d. heims­mark­aðs­verð á olíu miklu máli. Mikil lækkun á því, ásamt hraðri styrk­ingu krón­unnar, hafa verið þeir helstu kraftar sem togað hafa á móti inn­lendri þenslu und­an­farin ár og komið í veg fyrir háa verð­bólgu. Líkur eru á því að heims­mark­aðs­verðið geti hækkað skarpt á næstu miss­erum. OPEC-ríkin, með Sádi-­Ar­abíu sem stærsta ein­staka olíu­fram­leiðslu­ríkið í broddi fylk­ing­ar, komust að óform­legu sam­komu­lagi um að draga úr olíu­fram­leiðslu til að stuðla að meira jafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar á mark­aði í lok sept­em­ber. Það leiddi strax til skarprar hækk­unar á olíu.

Lyk­ilá­kvörðun OPEC ríkja, á form­legum vett­vangi sam­tak­anna, verður tekin á fundi þeirra 30. nóv­em­ber og má gera ráð fyrir að sú ákvörðun hafi dýpri áhrif á mark­að­inn.

Seðla­bank­inn bendir enn fremur á í nýj­ustu Pen­inga­málum sínum að horfur séu á að vöxtur heims­fram­leiðsl­unnar minnki í ár frá fyrra ári og verði hinn minnsti síðan árið 2009. Hag­vaxt­ar­horfur í helstu við­skipta­löndum Íslands hafa heldur versnað og „munar þar mest um lak­ari horfur í Bret­landi í kjöl­far þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um úrsögn úr Evr­ópu­sam­band­inu. Líkt og áður er talin meiri hætta á að mat á alþjóða­horfum reyn­ist of bjart­sýnt.“

Þá eru fram undan skref í átt að losun fjár­magns­hafta. Þau munu auka frelsi íslenskra fyr­ir­tækja til að starfa alþjóð­lega og liðka fyrir inn­flæði á erlendri fjár­fest­ingu. En að sama skapi mun losun hafta auka á við­kvæmni íslenska hag­kerf­is­ins. Það hefur sýnt sig í gegnum tíð­ina að hið alþjóð­lega fjár­mála­kerfi hefur oftar en einu sinni fundið leiðir til að spila á örríkið með örmynt­ina til að græða sví­virði­legt magn af pen­ingum, en skilja okkur Íslend­inga eftir með afleið­ing­arnar.

Órói á vinnumarkaði

Staðan á íslenskum vinnu­mark­aði er við­kvæm, svo vægt sé til orða tekið. Mjög háar launa­hækk­anir ákveð­inna stétta á und­an­förnum árum, nú síð­ast þing­manna, ráð­herra og for­seta, hafa ekki hjálpað til að róa óánægj­una sem þar ríkir. Laun þing­manna voru til að mynda hækkuð um 44 pró­sent. Lagt hefur verið upp með að hætta hinu svo­kall­aða höfr­unga­hlaupi í launa­þróun, þar sem hver hóp­ur­inn eltir annan með kröfur um tug­pró­senta launa­hækk­anir. Hið svo­kall­aða Salek-sam­komu­lag, um hóf­legar launa­hækk­anir í takti við aðra hag­vísa, snýst fyrst og síð­ast um þetta. Hækkun á launum ráða­manna, sem ákveðin var af Kjara­ráði, setti það sam­komu­lag í upp­nám.

Már Guðmundsson og hans fólk í Seðlabankanum benda á í nýjustu Peningamálum að þótt hagvöxtur verði áfram hár á næsta ári, sé einkaneysla að keyra hann áfram frekar en viðskiptaafgangur.
Már Guð­munds­son og hans fólk í Seðla­bank­anum benda á í nýj­ustu Pen­inga­málum að þótt hag­vöxtur verði áfram hár á næsta ári, sé einka­neysla að keyra hann áfram frekar en við­skipta­af­gangur.

Það stefnir því í miklar deilur á vinnu­mark­aði í nán­ustu fram­tíð, sem ný rík­is­stjórn verður að takast á við. Á meðal þeirra stétta sem eru án samn­inga eru grunn­skóla­kenn­arar. Þeir hafa nú verið án samn­ings frá því í júní og hafa í tvígang fellt kjara­samn­inga. Hljóðið í þeim er þungt og veru­legar líkur verða að telj­ast á því að kenn­arar fari í verk­fall nema semj­ist um miklar kjara­bætur.

Þá á enn eftir að nást sátt um frum­varp sem kynnt var í sept­em­ber og á að stuðla að því að eitt sam­ræmt líf­eyr­is­kerfi verði fyrir allt launa­fólk á Íslandi óháð því hvort það vinni fyrir hið opin­bera eða á hinum almenna mark­aði og að launa­kjör milli mark­að­anna tveggja verði jöfn­uð. Helst þarf að klára það mál fyrir ára­mót, þótt óraun­hæft sé að svo verði í ljósi þess að ekki er enn komin ný rík­is­stjórn, um sjö vikur eru eftir af árinu og enn á eftir að fara í gegnum fjár­laga­af­greiðslu.

Til við­bótar er skýr krafa um að bæta kjör öryrkja og aldr­aðra sem felur í sér millj­arða króna við­bót­ar­kostnað við rekstur almanna­trygg­inga­kerf­is­ins. Þá er ótalin krafa um frek­ari hækkun hámarks­greiðslu fæð­ing­ar­or­lofs í 600 þús­und krónur á mán­uði, leng­ingu þess í 12 mán­uði og að leik­skóla­dvöl verði tryggð að loknu orlofi.

Samkeppnishæfni

Auknar gjald­eyr­is­tekur Íslands, vegna ofur­vaxtar í ferða­þjón­ustu og mak­ríl­veiða, hafa umbreytt íslensku efna­hags­á­standi á skömmum tíma. Hag­vöxtur hér er gríð­ar­legur og mun meiri en í sam­an­burð­ar­ríkjum. í nýjum Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands, sem birt voru í gær, er því spáð að hann verði áfram hár á næsta ári, eða 4,5 pró­sent.

Þessi þróun hefur gert það að verkum að íslenska krónan hefur styrkst geysi­lega mikið, geysi­lega hratt. Frá byrjun árs 2015 hefur hún styrkst um 25 pró­sent gagn­vart evru, 16,5 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal og um 43 pró­sent gagn­vart breska pund­inu, en þar á Brexit líka hlut að máli. Þessi þróun hefur nei­kvæð áhrif á hag­vöxt sem er því mun frekar drifin áfram af einka­neyslu en við­skipta­af­gangi.

Sem sagt, miklar launa­hækk­anir, og eyðsla þeirra, er orðin rík­ari ástæða fyrir hag­vexti en áður og styrk­ing krónu dregur úr mik­il­vægi tekna gjald­eyr­is­skap­andi greina í þeim málum. Saman stuðla þær launa­hækk­anir og mikil styrk­ing krónu að minnk­andi sam­keppn­is­hæfni íslensks gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­lífs. Launin hækka en tekj­urnar, í krónum talið, lækka.

Við­skipta­ráð fjall­aði um helstu verk­efni næsta kjör­tíma­bils í úttekt sem það birti í gær. Þar er mik­il­væg­asta verk­efni kom­andi rík­is­stjórnar sagt vera að móta lang­tíma­stefnu um auka alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni. Þar standi tveir þættir okkur aðal­lega fyrir þrifum: Fram­leiðni vinnu­afls er umtals­vert lægri hér en hjá nágranna­þjóðum og helstu útflutn­ings­greinar okkar standa frammi fyrir vaxta­skorðum vegna tak­mark­aðs eðlis nátt­úru­auð­linda.

Inn með ódýrt erlent vinnuafl, út með menntaða Íslendinga

Þótt atvinnu­á­standið hafa batnað ótrú­lega hratt hér­lendis, og atvinnu­leysi sé nán­ast horfið, þá er sá mikli vöxtur eft­ir­spurnar sem hér er far­inn að reyna á þan­þol þjóð­ar­bús­ins. Seðla­bank­inn segir að farið sé að bera á skorti á vinnu­afli og inn­flutn­ingur þess mun aukast umtals­vert á næstu miss­erum.

Sífellt fleiri Íslendingar flytja erlendis. Á undanförnum árum hefur það gerst í fyrsta sinn að fleiri flytja burt en koma til baka án þess að kreppa sé.
Sífellt fleiri Íslend­ingar flytja erlendis. Á und­an­förnum árum hefur það gerst í fyrsta sinn að fleiri flytja burt en koma til baka án þess að kreppa sé.

Frá banka­hruni og fram að síð­ustu ára­mótum urðu til rúm­lega 16 þús­und ný störf hér­lendis. Bróð­ur­partur þeirra er til­kom­inn vegna ferða­þjón­ustu og tengda greina, eins og bygg­inga­iðn­aðar. Þessi störf krefj­ast flest ekki mik­illar sér­hæf­ingar eða mennt­unar og virð­ast því ekki mæta nema að hluta til vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­kjör. Með öðrum orðum þá eru flest nýju störfin sem orðið hafa til lágt launuð þjón­ustu­störf. Þau tólf þús­und störf sem hurfu í hrun­inu voru hins vegar að stórum hluta sér­fræð­inga­störf, t.d. í fjár­mála­geir­anum.

Þessi þróun hefur skilað því að fyrstu og ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­endur hafa aldrei verið hætta hlut­fall af mann­fjöld­anum sem hér býr, eða 10,8 pró­sent. Samkvæmt mann­fjölda­spá Hagstofu Íslands verða inn­flytj­endur og afkom­endur þeirra fjórð­ungur lands­manna árið 2065.

Á sama tíma flytja sífellt fleiri Íslend­ingar erlendis. Það sem af er þessu ári hafa 250 fleiri Íslend­ingar flutt burt en hafa flutt aftur heim. Í fyrra fluttu 1.265 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar úr landi en fluttu til lands­ins. Árið var eitt mesta brott­­flutn­ingsár frá því að mæl­ingar á þessu hófust, og aðeins fimm sinnum frá árinu 1961 höfðu mark­tækt fleiri brott­­fluttir verið umfram aðflutta, sam­­kvæmt gagna­grunni Hag­­stof­unn­­ar. Það var alltaf í kjöl­far kreppu­ára. Árin 2014 og 2015 eru fyrstu árin þar sem fleiri Íslend­ingar hafa flutt burt en hafa komið til baka á meðan að ekki ríkir kreppa. Og allt bendir til þess að það séu sér­fræð­ingar sem skila sér síður til baka eða ákveða að leita tæki­færa ann­ars staðar. Íslenskt atvinnu­líf er ein­fald­lega ekki sam­keppn­is­hæft um það fólk.

Það er því nóg af verk­efnum fyrir kom­andi rík­is­stjórn að takast á við, lít­ill tími til að marka stefnu í mörgum þeirra og afar erfitt verður að mæta óskum allra í þeim málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár