Hvernig bankakerfi þarf Ísland?

Íslenska ríkið er með það í hendi sér að móta banka­kerfið eftir þörfum sam­fé­lags­ins. Eina fast­mót­aða stefnan um hvernig kerfið eigi að vera virð­ist sú að aðrir en ríkið eigi að eiga banka. Banka­kerfið er við­fang nýjasta þáttar Kjarnans á Hring­braut.

Íslenska banka­kerfið, sem var orðið allt að tólf sinnum stærra en árleg þjóð­ar­fram­leiðsla Íslands, hrundi í októ­ber 2008 og sett voru neyð­ar­lög. Þau gerðu eignir allra hlut­hafa í bönk­unum þremur sem Fjár­mála­eft­ir­litið tók yfir að engu. Þau breyttu líka kröfu­röð til að tryggja að allar íslenskar inni­stæður nytu for­gangs og loks voru tekn­ar, með rík­is­handafli, eignir úr þrota­búum þess­ara banka og færðar inn í nýja banka með inni­stæð­un­um. Nýju stóru bank­arnir þrír fengu á end­anum nöfnin Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki.

Þeir sem höfðu lánað íslensku bönk­unum pen­ing töp­uðu nokkur þús­und millj­örðum króna en áttu að geta fengið brot af þeirri upp­hæð til baka þegar þrota­búin yrðu gerð upp.

Haustið 2008 var ómögu­legt að átta sig á hvert virði þeirra eigna (að­al­lega lána til íslenskra fyr­ir­tækja og heim­ila) sem færðar voru yfir til nýju bank­anna var. Um 70 pró­sent af íslensku atvinnu­lífi var þá í miklum fjár­hags­vanda og þurfti á end­ur­skipu­lagn­ingu að halda.

Í neyð­ar­lög­unum var sér­stak­lega tekið fram að Fjár­mála­eft­ir­lit­inu væri heim­ilt „að taka í sínar vörslur þær eignir sem mæta eiga skuld­bind­ingum fjár­mála­fyr­ir­tækis og láta meta verð­mæti eigna og ráð­stafa þeim til greiðslu áfall­inna krafna eftir því sem þörf kref­ur“. Það var því ljóst frá byrjun að þær eignir sem teknar voru úr þrota­bú­unum yrðu metnar og síðan yrði greitt fyrir þær.

Í mjög stuttu máli gerð­ist síðan eft­ir­far­andi: óháðir aðilar voru ráðnir til að meta eign­irn­ar, á grunni þess mats var farið í að semja við kröfu­haf­anna um að taka við eign­ar­hlutum í nýju bönk­unum (enda átti ríkið hvorki pen­ing til að leggja þeim til eigið fé né borga fyrir mis­mun á virði þeirra eigna sem færðar voru með handafli yfir í nýju bank­ana) svo þeir gætu farið að end­ur­skipu­leggja íslenskt atvinnu­líf. Í þeirri end­ur­skipu­lagn­ingu fengu íslensk fyr­ir­tæki og heim­ili mörg hund­ruð millj­arða króna afskriftir af skuldum sem þau gátu ekki borg­að. Til við­bótar var sett upp kerfi sem virk­aði þannig að kröfu­haf­arnir höfðu aldrei bein áhrif yfir þeim tveimur bönkum sem þeir eign­uð­ust, Íslands­banka og Arion banka. Ríkið átti hins vegar áfram Lands­bank­ann og lít­inn hlut í hinum tveimur.

Síðar var svo­kallað sól­ar­lags­á­kvæði afnumið, en í því fólst að hleypa átti kröfu­höfum bank­anna út með fé sitt innan ákveð­ins tímara­mma, var afnumið í tíð vinstri stjórn­ar­innar. Það gerði það að verkum að kröfu­haf­arnir áttu í reynd ekki lengur Íslands­banka og Arion banka. Þ.e. þeir gátu ekki losað um virði þeirra án þess að semja við stjórn­völd um að gefa hluta eigna sinna eftir.

Það var svo gert á síð­asta kjör­tíma­bili og við það eign­að­ist íslenska ríkið Íslands­banka að fullu og tryggði sér sölu­and­virði Arion banka, að minnsta kosti að hluta.

Hvað gerðist svo?

Nú var búið að „þvo“ atvinnu­lífið, heim­ilin og efna­hags­reikn­ingur bank­anna end­ur­speglar í dag raun­veru­leika, í stað ósk­hyggju um end­ur­heimtir. Und­ir­liggj­andi rekstur þeirra er reyndar frekar slakur og þeir græða mest á þókn­ana­tekjum sem verða til í hinu dæmi­gerða sjálf­bæra íslenska banka­kerfi. En efna­hags­reikn­ingur þeirra er nokkuð end­an­legur og lítið um lán í van­skilum á þeim.

Það hefur lengi verið stefna rík­is­ins að selja bank­anna. Á fjár­lögum er heim­ild til að selja stóran hlut í Lands­bank­anum og allan hlut rík­is­ins bæði í Íslands­banka og 13 pró­sent hlut­inn sem ríkið á enn í Arion banka. Það var til að mynda gert ráð fyrir því í fjár­lögum árs­ins 2016 að sala á allt að 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum myndi skila rík­is­sjóði allt að 71 millj­arði króna.

Ekkert hefur hins vegar orðið af sölu rík­is­bank­anna tveggja. Norskir bankar hafa um nokk­urra ára skeið þefað af Íslands­banka en kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það sé ekki eftir miklu að sækj­ast inn á íslenskan banka­markað. Erlendir bankar hafa enda getað valið sér þá bita sem þeir vilja hér, t.d. Össur og Marel og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin, og ein­fald­lega boðið þeim skap­legri við­skipta­kjör en þeir íslensku geta. Þannig eru flestir stóru bit­arnir í íslensku atvinnu­lífi sem eru með tekjur í erlendum myntum, þegar búnir að færa við­skipti sín út úr íslensku banka­kerfi.

Hvernig er staðan núna?

Íslensk stjórn­völd eru í aðstöðu til að móta það banka­kerfi sem mun rísa hér­lendis algjör­lega eftir sínu höfði. Þorri þess er í eigu hins opin­bera og sá hluti sem er það ekki er fyrst og fremst með starf­semi hér inn­an­lands og er bund­inn öllum þeim reglum sem ríkið ákveður að setja þeim.

Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, er viðmælandi Þórðar Snæs og Þórunnar í nýjasta þætti Kjarnans.
Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja, er við­mæl­andi Þórðar Snæs og Þórunnar í nýjasta þætti Kjarnans.

Það hefur hins vegar ekki átt sé stað almenni­leg póli­tísk umræða um hvernig banka­kerfi íslenskur almenn­ingur og fyr­ir­tæki þurfa og vilja. Samt sem áður er nú hafið ferli sem mun móta íslenska fjár­mála­kerfið um ókomna tíð. Það ferli snýst um breytt eign­ar­hald á bönkum og til­heyr­andi kerf­is­breyt­ingar sem fylgja munu í kjöl­far­ið. Færa á eign­ar­haldið á bönkum og mót­un­ar­val yfir þeim til einka­að­ila.

Þrír vog­un­ar­sjóðir og Goldman Sachs keyptu í mars 29,18 pró­sent hlut í Arion banka, og ætla sér að verða meiri­hluta­eig­endur með því að nýta þegar umsam­inn kaup­rétt síðar á þessu ári. Ekkert liggur fyrir um hverjir eru end­an­legir eig­endur þeirra og einn sjóð­anna er nýbú­inn að greiða tug millj­arða króna sekt fyrir mútu­boð. Þessir aðilar hafa sagt að þeir „séu að taka stöðu með Íslandi“ með fjár­fest­ingu sinni og undir orð­ræðu þeirra hefur verið tekið í íslenskum stjórn­málum.

Ráða­menn hafa fagnað aðkomu þeirra og banka­menn kitlar í fing­urna að fara að leika sér aftur á alvöru­sviði. Þeir sem setja rétt­mætan fyr­ir­vara um að þetta sé besta leiðin fyrir Ísland eru jað­ar­settir sem annað hvort vit­leys­ingar sem sjái ekki veisl­una, skilji hana ekki eða sem komm­ún­istar sem hati einka­fram­tak­ið.

Það er rétt að minna á hvað gerð­ist síð­ast þegar við leyfðum banka­kerfið að skil­greina hlut­verk sitt sjálft. Þá komst þjóð sem er rík­ari en flestar af auð­lind­um, er vel menntuð og hafði byggt upp þol­an­legt vel­ferð­ar­kerfi mjög nálægt því að fara í greiðslu­þrot. Út af banka­mönnum og and­vara­leysi stjórn­valda gagn­vart þeim.

Það þarf á ákveða fyrir hvern bankakerfið er

Bankar á Íslandi eru svo kerf­is­lega mik­il­vægir að það er í raun ótrú­legt að láta sér detta það í hug að end­ur­skipu­lagn­ing kerf­is­ins eigi að fara fram á for­sendum vog­un­ar­sjóða og alþjóð­legra fjár­fest­inga­banka – sem hafa það eitt mark­mið að hámarka arð­semi sína – en ekki sam­fé­lags­ins sem umræddir bankar eiga að þjóna.

Hér að neðan er hægt að sjá síð­asta þátt Kjarnans á Hring­braut í heilu lagi, en það er fram­tíð banka­kerf­is­ins til umfjöll­unar.

Nútíma­banka­kerfi er að stórum hluta til fyrst og síð­ast svo að eig­endur fjár­magns geti ávaxtað það fjár­magn sem mest. Hin hefð­bundna við­skipta­banka­starf­semi, og sá hluti banka­starf­semi sem þjón­ustar atvinnu­lífið með eðli­legum lán­tökum til upp­bygg­ingu rekst­urs, er ekki í for­grunni. Það er enda bara hægt að skuld­setja almenn­ing upp að vissu marki. Lána honum fyrir húsi, bíl og veita hæfi­legan yfir­drátt.

Vaxta­tæki­fær­in, þókn­ana­tekj­urnar og spennan er öll í einka­banka­þjón­ustu fyrir ríkt fólk og í skuld­settum fjár­mála­gjörn­ing­um. Það er stutt með hag­töl­um. Í lok árs 2015 áttu þau tíu pró­sent lands­manna sem voru rík­ust 64 pró­sent allra hreinna eigna. Hlut­fallið er reyndar hærra, þar sem í þessum tölum er gert ráð fyrir að verð­bréf séu metin á nafn­virði, ekki mark­aðsvirði. Sami hópur á nær öll verð­bréf, þ.e. skulda­bréf og hluta­bréf í eigu ein­stak­linga, á Íslandi. Á árinu 2015 fór 43 pró­sent af allri nýrri hreinni eign sem varð til hér­lend­is, til þessa hóps. Eign hans er því sífellt að aukast og það dregur í sundur með þeim rík­ustu og þeim sem minna eiga. Ástæðan er meðal ann­ars sú að þeir rík­ustu hafa allt öðru­vísi aðgengi að fjár­mála­þjón­ustu en t.d. venju­legt launa­fólk.

Til hvers eru bankar?

Það er eðli­legt að stjórn­mála­menn nýti þá stöðu sem upp er kom­in, og felur í sér að stjórn­völd eru með nán­ast allt banka­kerfið í fang­inu, til að spyrja sig til hvers bankar séu og fyrir hvern þeir eru.

Það er um tvennt að velja. Það er hægt að halda áfram á þeirri leið sem verið er að feta og leyfa fjár­mála­mark­aðnum að móta kerf­ið.

Hin leiðin er sú að það sé hægt að líta svo á að það sé ekki óum­flýj­an­legt að fjár­mála­kerfið sé eins og það er. Að það sé hægt, með umræðu, und­ir­bún­ingi og skýrri stefnu­mótum að byggju upp kerfi sem þjón­ustar sam­fé­lag­ið. Það kerfi þarf ekk­ert endi­lega að vera að öllu leyti í eigu hins opin­bera. Það þarf hins vegar að vera með skýran til­gang og skil­greindan ramma. Að fjár­mála­kerfið þjón­usti almenn­ing og fyr­ir­tæki, ekki að almenn­ingur og fyr­ir­tæki þjón­usti það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár