Mynd: EPA

Black Lives Matter: Frá myllumerki til mótmælaöldu

Alicia Garza fann nístandi sorg læs­ast um sig þegar morð­ingi Trayvon Martin var sýkn­aður. Hún sett­ist við tölv­una og skrif­aði að það kæmi sér alltaf jafn mikið á óvart „hversu litlu máli líf svartra skipta“. Hún skrif­aði: Black lives matter.

Í júlí árið 2013 fór Alicia Garza út með vinum sínum. Þau voru að bíða. Bíða eftir nið­ur­stöðu í dóms­máli sem var að vænta á hverri mín­útu. Þau höfðu ekki sér­stakar áhyggjur. Áttu ekki von á öðru en að sá sem án alls vafa skaut unga mann­inn til bana yrði fund­inn sekur og tæki í kjöl­farið út sína refs­ingu.

En svo var hann sýkn­aður af öllum ákæru­liðum. George Zimmerman, sem hafði verið ákærður fyrir morðið á hinum sautján ára gamla Trayvon Martin, var laus allra mála.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem svartur maður var skot­inn til bana í Banda­ríkj­unum án þess að það hefði nokkrar afleið­ingar fyrir ger­and­ann. Og þetta var heldur ekki í síð­asta skiptið.

Sýknu­dóm­ur­inn varð Garza mikið áfall. Um nótt­ina vakn­aði hún hágrát­andi. Hún hafði séð þetta ger­ast of oft. Hún sett­ist því við tölv­una og hóf að skrifa færslu á Facebook um líðan sína og sárar til­finn­ingar. Hún skrif­aði að það kæmi henni alltaf á óvart „hversu litlu máli líf svartra virð­ast skipta“. Þarna hafði hún hitt naglann á höfð­uðið: „Black lives matter“.

Þessi þrjú orð hreyfðu við mörgum, m.a. Patrissu Collors, vin­konu Garza, sem bjó til myllu­merkið #BlackLivesMatter. Það fór sam­stundis á mikið flug um netheima. Var marg­sinnis notað næstu árin þegar upp komst um ofbeldi gegn svörtum, jafn­vel morð, sem yfir­völd sinntu ekki að rann­saka vel – eða rann­saka yfir höfuð.

Í upp­hafi árs­ins 2020 var það ítrekað notað vegna dauða þriggja svartra Banda­ríkja­manna: Ahmaud Arbery, Breonnu Taylor og George Floyd.

Dauði þess síð­ast­nefnda í lok maí var drop­inn sem fyllti mæl­inn. Eldfimi drop­inn sem kveikti neista og gerði millj­ónir manna bál­reiðar. Og vik­urnar og mán­uð­ina á eftir log­uðu Banda­ríkin stranda á milli.

Floyd bjó í Minn­ea­polis, einni þeirra borga þar sem ójöfn­uður milli svartra og hvítra íbúa er mik­ill. Þann 25. maí gekk hann inn í verslun og borg­aði fyrir sígar­ettu­pakka með pen­inga­seðli sem afgreiðslu­mann­inn grun­aði að væri fals­aður. Hann hringdi því í lög­regl­una sem kom skömmu síðar á vett­vang. Floyd var hand­tek­inn og einn lög­reglu­mann­anna setti hné sitt að hálsi hans. Floyd, liggj­andi á jörð­inni í hand­járnum, sagð­ist ekki ná and­anum en það breytti engu, áfram var hnénu haldið að hálsi hans. Í átta mín­útur og 46 sek­úndur.

Þar til Floyd hætti að anda.

Mótmælendur standa við veggmynd af George Floyd.
Mót­mæl­endur standa við vegg­mynd af George Floyd.

Reiðin sem hefur ólgað í Minn­ea­polis og víðar í Banda­ríkj­unum í kjöl­farið er ekki til­komin vegna morðs á einum svörtum manni. Hún er heldur ekki vegna níð­ings­háttar eins lög­reglu­manns. Hún blossar upp vegna þess að George Floyd var enn einn svartur maður sem lætur lífið vegna hátt­ar­lags enn eins lög­reglu­manns­ins. Kerf­is­bundin mis­munun gegn svörtum er enn að eiga sér stað. Rætur reið­innar má rekja til þján­inga sem kyn­slóð eftir kyn­slóð hefur búið við.

Þó að orðin „Black Lives Matter“ hafi á síð­ustu árum hlotið hljóm­grunn, verið notuð sem myllu­merki og slag­orð, voru þau ekki á allra vörum fyrr en eftir morðið á George Floyd. Formleg sam­tök höfðu verið stofnuð undir nafn­inu Black Lives Matter fyrir nokkrum árum. Þau höfðu mann­rétt­indi svartra á stefnu­skrá sinni og bentu á hið rót­gróna og kerfi­bundna ofbeldi sem lög­reglan hefur beitt svarta í ára­tugi. Eitt stefnu­málið hefur verið að umbylta lög­regl­unni og draga úr fjár­fram­lögum til hennar. Þó að það bar­áttu­mál hafi ekki hlotið víð­tækan hljóm­grunn hafa sam­tökin notið vax­andi stuðn­ings. Annað og nýrra stefnu­mál, að banna lög­reglu­mönnum að beita því fanta­bragði sem Floyd var beittur og dró hann til dauða, hefur hins vegar fengið byr undir báða vængi. Árið 2017 fengu sam­tökin nafnið Black Lives Matter Global Network Foundation, Inc., og starfið varð í kjöl­farið form­legra og skipu­lagð­ara.

Lögreglumenn umkringja mótmælanda í Washington-borg.
Lög­reglu­menn umkringja mót­mæl­anda í Washington-borg.

Bar­áttu­hreyf­ingin sem mynd­ast hefur með slag­orðið að vopni er þó ekki skipu­lögð nema að litlu leyti. Í henni taka fjöl­margir þátt sem vita vart að sam­tökin eru til en nota myllu­merkið á sam­fé­lags­miðlum og hrópa orðin þrjú í mót­mæla­göngum.

Því mis­munun svartra og hvítra í Banda­ríkj­unum er ekki aðeins ein­hver til­finn­ing fólks. Hún er raun­veru­leg og hefur verið marg­sönnuð í rann­sóknum og sést greini­lega í allri töl­fræði. Rann­sóknir hafa sýnt að aðskiln­aður milli svartra og hvítra er ekki eitt­hvað sem til­heyrir for­tíð­inni. Hann er raun­veru­leiki sem margir svartir þurfa að búa við enn þann dag í dag í mörgum borgum Banda­ríkj­anna. Lög­reglu­menn eru fjórum sinnum lík­legri til að beita valdi í sam­skiptum sínum við svarta en hvíta borg­ara. Svartir eru í miklum meiri­hluta þeirra sem dæmdir eru til fang­els­is­vistar. Svartir hafa ekki jafn góðan aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu og hvítir nágrannar þeirra og þegar kemur að aðgengi að góðri menntun hallar veru­lega á svört börn og ung­menni.

Á sama tíma og hreyf­ing fólks undir slag­orð­unum Black Lives Matter hefur orðið meira áber­andi hefur gagn­rýn­is­rödd­unum fjölgað. Þó að stuðn­ingur við bar­átt­una sé mun víð­tæk­ari meðal hvítra í dag en hann var fyrir nokkrum árum, þykir sumum nóg um og telja aðferð­irnar rangar. Væri ekki nær að hrópa „Öll manns­líf skipta máli“ frekar en „líf svartra skipta máli“ – hafa sumir spurt.

Einn þeirra er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands og nú for­maður Mið­flokks­ins. Í grein sem hann birti í Morg­un­blað­inu í lok júlí, þegar mót­mæla­aldan í Banda­ríkj­unum stóð enn sem hæst, skrif­aði hann að þótt allt „viti­borið fólk“ hljóti að vera sam­mála full­yrð­ing­unni um að líf svartra skipti máli sé það „óneit­an­lega sér­kenni­legt að lit­greina líf sem svört, hvít eða eitt­hvað annað“. Sagði hann að þessi „nýja menn­ing­ar­bylt­ing“ fæli í sér end­ur­vakn­ingu kyn­þátta­hyggju, þess að flokka fólk eftir hút­lit. „Menn­ing­ar­bylt­ing Vest­ur­landa er byggð á því sem kallað hefur verið fórn­ar­lamba­menn­ing. Til­hneig­ingu til að skipa fólki í hópa sem njóta mis­mik­illa rétt­inda eftir því hversu hátt þeir skora á óform­legum fórn­ar­lamba­skala.“

Í nið­ur­lagi grein­ar­innar skrif­aði Sig­mundur Davíð: „Nú þarf að standa vörð um grunn­gildi vest­rænnar sið­menn­ingar. Þau gildi sem skilað hafa sam­fé­lögum meiri árangri en nokkuð annað í mann­kyns­sög­unni. Þar ber hæst hug­sjón­ina um að allir skuli telj­ast jafn­rétt­háir óháð lík­am­legum ein­kennum.“

Samstöðumótmæli á Austurvelli í byrjun júní.
Sam­stöðu­mót­mæli á Aust­ur­velli í byrjun júní.

Hug­sjónin sem Sig­mundur nefnir er langt frá þeim veru­leika sem margar svartar mann­eskjur búa við í Banda­ríkj­unum. „Þegar Sig­mundur ræðst gegn Black Lives Matter er hann [...] ekki að verja jafnan rétt fólks,“ skrif­aði stór hópur fólks í aðsendri grein sem birt var á Vísi í kjöl­far skrifa for­manns Mið­flokks­ins. „Þvert á móti er hann að gera mann­rétt­inda­bar­áttu tor­tryggi­lega og boða rasíska, fóbíska og kven­fjand­sam­lega hug­mynda­fræði. Slík hug­mynda­fræði mun ein­göngu geta af sér meiri sundr­ungu og djúp­stæð­ara órétt­læti.

Sig­mundur er að verja valda­kerfi undir for­merkjum „vest­rænnar sið­menn­ingar“, sem hyglir körlum eins og honum á kostnað jað­ar­setts fólks. Hann er að verja harð­línu­kap­ít­al­isma sem bein­línis hvetur til arð­ráns ríks fólks á fátæku fólki.“

Donald Trump tap­aði í for­seta­kosn­ing­unum í byrjun nóv­em­ber fyrir Joe Biden. Trump hafði litla eða enga samúð sem mál­stað þeirra sem mót­mæltu kyn­þátta­mis­rétt­inu í sumar. Þrátt fyrir að hann fari senn frá völdum stendur mis­réttið rót­gróna enn eftir. Og hann lét það verða eitt sitt síð­asta verk að náða lög­reglu­mann sem hafði verið sak­felldur fyrir að siga hundi á hand­járn­aðan, heim­il­is­lausan, svartan mann.

En hvað ætlar Joe Biden er að gera í mál­inu?

Í fyrstu ræð­unni sem hann hélt eftir að úrslit kosn­ing­anna voru ljós sagði hann að ein stærsta áskor­unin sem taka þyrfti á væri „kerf­is­bund­inn ras­ismi“. Hann sagði einnig að þegar á bratt­ann var að sækja í kosn­inga­bar­átt­unni hafi það verið svartir Banda­ríkja­menn sem stóðu með honum. „Þeir hafa alltaf staðið við bakið á mér og ég mun standa við bakið á ykkur.“

Biden hefur við­ur­kennt að þetta var sá hópur sem átti stóran þátt í því að koma honum til valda. For­svars­menn Black Lives Matter hreyf­ing­ar­innar vilja aðgerðir strax. Þeir vilja að Biden taki þegar í stað til hend­inni í hús­næðis-, heil­brigðis- og mennta­kerf­inu. Eitt helsta bar­áttu­málið, að umbylta lög­regl­unni, er svo enn efst á baugi.

Veru­leik­inn sem margir af öðrum lit­ar­hætti en hvítum búa við í Banda­ríkj­unum er ekki alltaf jafn sýni­legur og á mynd­band­inu af lög­reglu­þjón­inum að murka lífið úr George Floyd.

„Kyn­þátta­hatur í Banda­ríkj­unum er eins og ryk í loft­inu,“ skrifar Kareem Abdul-Jabbar, fyrr­ver­andi körfu­bolta­maður í NBA-deild­inni, í Los Angeles Times. „Það virð­ist ósýni­legt – jafn­vel þó að þú sért að kafna – þar til þú hleypir sól­inni inn. Þá sést það greini­lega um allt. Á meðan við látum ljósið skína á það þá höfum við mögu­leika á því að hreinsa það hvar sem það lendir. En við verðum að halda árvekni því það er áfram í loft­inu.“

Svart fólk hefur ekki áhyggjur af því að halda of lít­illi fjar­lægð sín á milli þótt kór­ónu­veiran sé enn á sveimi, heldur Abdul-Jabbar áfram. Svart fólk hefur ein­fald­lega of miklar áhyggjur af því að synir þeirra, eig­in­menn, feður og bræður verði myrtir af lög­regl­unni.

„Það sem þú ættir að sjá þegar þú sérð svarta mót­mæl­endur á tímum Trump og kór­ónu­veirunnar er fólk sem hefur verið ýtt út á ystu nöf, ekki vegna þess að það vill að barir og hár­greiðslu­stofur verði opn­aðar heldur af því að það vill lifa. Og anda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

georgefloyd

Mest lesið undanfarið ár