PwC greiddi samanlagt vel á annan milljarð króna til að sleppa undan málsókn vegna hrunsins

Í nýlegum dómi Lands­réttar kemur fram að end­ur­skoð­endur Lands­banka Íslands fyrir hrun borg­uðu yfir millj­arð króna til að sleppa við mál­sókn fyrir að hafa skrifað upp á rangan árs­reikn­ing.

Í nið­ur­stöðu­hluta rann­sókn­ar­nefndar Alþingis í skýrslu hennar, sem kom út í apríl 2010, var fjallað um þátt end­ur­skoð­enda í banka­hrun­inu. Þar sagði að skort hefði á að end­ur­skoð­endur stóru íslensku bank­anna sinntu nægi­lega skyldum sínum við end­ur­skoðun reikn­ings­skila þeirra, sér­stak­lega þegar kom að rann­sókn þeirra og mati á virði útlána til stærstu við­skipta­vina þeirra, með­ferð á hluta­bréfa­eign starfs­manna og fyr­ir­greiðslu banka til ýmissa til að kaupa hluta­bréf í sjálfum sér. Nefndin fór fram á að end­ur­skoð­endur bank­anna yrðu rann­sak­aðir sér­stak­lega.

Það var gert en ákveðið var að höfða ekki saka­mál á grunni þeirra rann­sókna. Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari og áður sér­stakur sak­sókn­ari, sagði í við­tali í októ­ber 2018 við sjón­varps­þátt Kjarnans á Hring­braut að ástæðan væri sú að erfitt væri að koma þessum málum fyrir dóm. „Það helg­að­ist af mjög mörgum atriðum. Það voru fyrst og fremst alþjóð­legir reikn­ings­skil­málar sem vöfð­ust fyrir okkur og inn­leið­ing þeirra, vegna þess að sumir þeirra eru ekki inn­leiddir í íslenskan rétt fyrr en eftir hrunið í raun og veru. Þannig að menn mátu það sem svo að við myndum lenda í vand­ræðum með að fá sak­fell­ingu í þannig málum.“

Borgaði vel að endurskoða

Það voru gjöful við­skipti að sinna end­ur­skoðun fyrir íslensku bank­ana fyrir banka­hrun. PricewaterhouseCoopers (PwC), sem end­ur­skoð­aði bæði Glitni og Lands­bank­ann, fékk alls greitt 1.435 millj­ónir króna fyrir þá vinnu á árunum 2007 og 2008. KPMG, sem end­ur­skoð­aði Kaupþing, fékk 933 millj­ónir króna greitt fyrir á árunum 2007 og 2008.

Eftir hrunið ákváðu tvö af þremur þrota­búum stóru bank­anna sem féllu í októ­ber 2008 að stefna end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu PwC á Íslandi og í Bret­landi fyrir það að hafa skrifað upp á ranga árs­reikn­inga fyrir bank­ana tvo.

Málið sem Glitnir höfð­aði gegn PwC var ekk­ert smá­mál. Í stefnu þess, sem birt var í mars 2012 voru sér­stak­lega til­greind fimm atriði þar sem PwC átti að hafa brotið gegn lög- og samn­ings­bundnum skyldum sínum. Í fyrsta lagi hefði PwC ekki upp­lýst um að stjórn­endur Glitnis hefðu veitt útlán til inn­byrðis tengdra aðila langt umfram leyfi­leg hámörk, í öðru lagi leynt útlána­á­hættu bank­ans til aðila sem töld­ust tengdir, í þriðja lagi veitt stór­felld útlán til fjár­vána eign­ar­halds­fé­laga, í fjórða lagi van­rækt afskrift­ar­skyldu sína og í fimmta lagi van­rækt að upp­lýsa um þá gríð­ar­lega miklu fjár­hags­legu hags­muni sem bank­inn var með í eigin bréfum með þeim afleið­ingum að eigið fé hans var veru­lega of hátt skráð.

Landsbankinn var endurreistur á rústum Landsbanka Íslands eftir bankahrunið.
Lands­bank­inn var end­ur­reistur á rústum Lands­banka Íslands eftir banka­hrunið.

Lögmaður Glitnis í mál­inu vitn­aði mikið til þess í stefn­unni að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði gert athuga­semdir við PwC á árunum 2007 og 2008 vegna þess að ekki hafi verið gerð „full­nægj­andi grein fyrir við­skiptum vensl­aðra aðila við bank­ann. Til þess flokks féllu „félög sem Jón Ásgeir Jóhann­es­son stjórn­aði“, en hann var einn stærsti eig­andi bank­ans fyrir hrun. Var þar vísað til Baugs, FL Group og aðila sem tengd­ust þeim sam­steypum.

Samið um að borga en viðurkenna ekkert

Sáttir náð­ust milli Glitnis og PwC í nóv­em­ber 2013. Trúnaður ríkti um upp­hæð­ina sem PwC greiddi en í umfjöllun Kjarnans um hana frá þessum tíma kom fram að PwC hefði greitt hund­ruð millj­óna króna til að kom­ast hjá máls­höfðun sem hinn fallni banki hafði höfðað á hendur PwC á Íslandi og í Bret­landi. Sam­komu­lagið var gert „án við­ur­kenn­ingar sakar“. Það sner­ist því um að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið greiddi bætur án þess að hafa við­ur­kennt að hafa gert nokkuð rangt.

Í mars 2017 var greint frá sam­komu­lagi sem náðst hafði milli þrota­bús Lands­banka Íslands og PwC. Málið tengd­ist störfum PwC fyrir Lands­bank­ann fyrir hrun­ið. Dóms­mál var höfðað í árs­lok 2012 og var farið fram á 100 millj­arða króna skaða­bætur vegna meints tjóns sem fyr­ir­tækið átti að hafa valdið með rangri ráð­gjöf og óvand­aðri vinnu, sem bitn­aði á fyr­ir­tæk­inu og kröfu­höfum þess. Þá hafi PwC ekki getið sér­stak­lega um háar lán­veit­ingar Lands­bank­ans til helstu eig­enda hans og félaga í þeirra eigu, þ.e. feðganna Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar og Björg­ólfs Guðmunds­son­ar.

Í til­kynn­ingu frá þrota­búi Lands­bank­ans vegna þessa sagði að það sé væri mat þrota­bús­ins og PwC að sáttin væri ásætt­an­leg fyrir báða aðila.

Engin upp­hæð var nefnd í til­kynn­ing­unni en í kynn­ingu sem haldin var fyrir kröfu­hafa bank­ans síðar var greint frá því að um væri að ræða „ótil­greinda upp­hæð“ sem PwC hafði greitt.

Sú upp­hæð var hins vegar opin­beruð í dómi sem féll nýverið í Lands­rétti.

Upphæðin loks opinberuð

Í máli þrota­bús Lands­banka Íslands gegn Sig­ur­jóni Þ. Árnasyni, fyrr­ver­andi banka­stjóra hans, og fleirum er greint frá inni­haldi sam­komu­lags­ins sem skrifað var undir 22. febr­úar 2017. Þar kom fram að PwC hefði greitt yfir 1,1 millj­arð króna á núvirði til að fallið yrði frá máls­höfð­un­inni.

Í dómnum segir að í sam­komu­lag­inu milli PwC á Íslandi og í Bret­landi ann­ars vegar og þrota­bús Lands­bank­ans hins vegar hafi PwC „fall­ist á lyktir þess gegn til­tek­inni ein­greiðslu án þess að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækin við­ur­kenndu nokkra ábyrgð og án þess að aðal­á­frýj­andi [þrotabú Lands­banka Íslands] við­ur­kenndi að höfðun máls­ins hefði verið til­hæfu­laus. Nam greiðslan níu og hálfri milljón banda­ríkja­doll­ara.“

Vignir Rafn Gíslason, stjórn­ar­for­maður PwC og einn eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins hér­lendis, gaf skýrslu í mál­inu fyrir Lands­rétti, en hann var end­ur­skoð­andi Lands­banka Íslands fyrir hrun. Í þeirri skýrslu stað­festi hann lyktir máls­ins.

Því liggur fyrir að PwC borg­aði vel á annan millj­arð króna til að losna undan mál­sóknum sem fólu í sér ásak­anir um að reikn­ingar Glitnis og Lands­banka Íslands hefðu verið rangt fram settir fyrir hrun.

Kaupþing ekki sótt bætur

Nánast ekk­ert hafði heyrst af því hvort að Kaupþing hafi farið í aðgerðir gegn KPMG, sem end­ur­skoð­aði reikn­inga þess fallna banka, þangað til að Kjarninn spurð­ist fyrir um það síðla árs 2019. Samkvæmt svari Kaup­þings ehf., félags utan um eft­ir­stand­andi eignir bank­ans, við fyr­ir­spurn Kjarnans þá hefur ekk­ert sam­komu­lag verið gert.

Í bók­inni Kaupt­hink­ing – Bankinn sem átti sig sjálfur, sem kom út haustið 2018, var haft eftir Sæmundi Valdi­mars­syni, ann­ars þeirra end­ur­skoð­enda sem skrif­aði undir árs­reikn­ing Kaup­þings 2007 og meið­eig­anda hjá KPMG, að frá því að Kaupþing féll hefði árs­reikn­ingur hans verið rann­sak­aður af ýmsum aðilum. Þar á meðal væri slita­stjórn og skila­nefnd bank­ans, Fjár­mála­eft­ir­litið og sér­stakur sak­sókn­ari með aðstoð sér­fræð­inga. „Nú 10 árum síðar, eftir allar þær skoð­anir sem reikn­ing­ur­inn hefur fengið, hefur ekki verið sótt að okkur vegna hans. Að okkar mati segir það tals­verða sögu og vart er hægt að fá betri stað­fest­ingu á því að árs­reikn­ing­ur­inn gefi glögga mynd og sé án veru­legra ann­marka, eins og fram kemur í áritun okkar á árs­reikn­ing­inn.“

Því virð­ist sem að Kaupþing hafi ekki sótt bætur vegna end­ur­skoð­unar KPMG á reikn­ingi bank­ans. Bætur sem hin þrotabú föllnu stóru íslensku bank­anna sóttu á sína end­ur­skoð­endur, og fengu.

Bankinn var gjaldþrota löngu áður en hann fór í þrot

Það vekur athygli þar sem rann­sóknir á end­ur­skoðun Kaup­þings, sem fram­kvæmd var fyrir emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og unnin af sér­fræð­ingum á sviði reikn­ings­skila, sýndu þá nið­ur­stöðu að bank­inn hafi verið gjald­þrota í lok árs 2007 hið síð­asta.

Nið­ur­staða sér­fræð­ing­anna sem fram­kvæmdu rann­sókn­ina var sú að hvorki stjórn, fram­kvæmda­stjórn né end­ur­skoð­endur Kaup­þings gátu staðið við yfir­lýs­ingar sem fram­settar voru í árs­reikn­ingi fyrir árið 2007 þess efnis að hann gæfi glögga mynd af rekstri og efna­hag bank­ans né að hann væri sam­inn í sam­ræmi við lög og staðla um gerð reikn­ings­skila fyrir fyr­ir­tæki sem skráð væri á markað.

Þvert á móti komust þeir að þeirri nið­ur­stöðu að árs­reikn­ing­ur­inn væri bein­línis rang­færður að veru­legum hluta. Það þýddi að þeir sem lásu árs­reikn­ing­inn fengu ekki upp­lýs­ingar um rekstur og efna­hag Kaup­þings sem gátu talist áreið­an­legar. Því lægi fyrir að þeir sem báru ábyrgð á árs­reikn­ingnum hefðu sam­eig­in­lega villt um fyrir hlut­höfum og kröfu­höfum Kaup­þings og sam­fé­lag­inu öllu.

Í þeim sagði að alvar­legir ágallar hafi verið voru á reikn­ings­skilum bank­ans fyrir það ár. Svo alvar­legir að í stað þess að eigið fé bank­ans væri jákvætt um mörg hund­ruð millj­arða króna átti það að vera nei­kvætt. Og upp­fyllti þar af leið­andi ekki sett skil­yrði fyrir því að starfa. Kaupþing hefði átt að skila inn starfs­leyfi sínu sam­kvæmt gögn­unum.

Það gerði bank­inn ekki heldur hélt áfram að starfa fram í októ­ber 2008, og ýkti um leið gríð­ar­lega það tjón sem starf­semi bank­ans olli á end­anum hlut­höfum og kröfu­höfum. Á þessum mán­uðum sem bank­inn starf­aði ólög­lega voru líka framin fjöl­mörg og alvar­leg efna­hags­brot sem búið er að dæma helstu stjórn­endur Kaup­þings til fang­els­is­vistar fyrir.

Þessi frétta­skýr­ing byggir að stóru leyti á frétta­skýr­ingu sem birt­ist í Kjarn­anum í nóv­em­ber 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið undanfarið ár