„Þetta er í öllu falli liðin tíð og ég dvel ekki frekar við hana“

Fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra seg­ist ekki trúa öðru en að blaða­mennskan telji lands­rétt­ar­málið orðið „old news“ eða gamlar fréttir. Kjarninn rifjar upp aðdrag­anda þessa afdrifa­ríka máls.

Svo­kallað lands­rétt­ar­mál heldur áfram að draga dilk á eftir sér, núna þremur og hálfu ári eftir að umfjöllun hófst um skipan dóm­ara við nýtt milli­dóm­stig. Kjarninn óskaði eftir sam­tali við Sigríði Á. Andersen um málið og þá sér­stak­lega um aðdrag­anda afsagnar hennar í mars í fyrra.

Í svari Sigríðar til Kjarnans segir hún að nú hafi hún rætt þetta mál í þaula og skrifað um það fjölda greina sem hægt sé að nálg­ast á sigri­dur.is.

„Trúi ekki öðru en að blaða­mennskan telji þetta mál orðið „old news“. Þetta er í öllu falli liðin tíð og ég dvel ekki frekar við hana,“ segir hún í skrif­legur svari til Kjarnans.

Samstarfsfólk hennar í ríkisstjórn látið málið hlaupa með sig í gönur

Sigríður ræddi aftur á móti aðdrag­anda afsagnar sinnar í Víg­lín­unni um síð­ast­liðna helgi.

„Ég get sagt það heið­ar­lega að þeir fundir sem ég átti með til­teknu fólki, þeir komu mér á óvart að því leyti að mér fund­ust bara allir sem ég tal­aði við vera bara hálf haus­lausir. Hafa misst ein­hvern veg­inn fót­inn og koðnað ein­hvern veg­inn niður og menn voru ein­hvern veg­inn algjör­lega óund­ir­búnir fyrir þetta,“ sagði Sigríður.

Það væri furðu­legt.

Hún sagði jafn­framt að sam­starfs­fólk hennar í rík­is­stjórn sem hún ræddi við hefði látið málið hlaupa með sig í gönur. „Ein­stakir menn ætl­uðu sér síðan að láta þetta snú­ast um mína per­sónu og því ætl­aði ég nú ekki að sitja undir, svo sann­ar­lega ekki.“

Stofnun millidómstigs

Byrjum á byrj­un­inni. Lengi hafði verið rætt um nauð­syn þess að setja á fót milli­dóm­stig á Íslandi og að dóms­kerfið yrði þar með á þremur stigum í stað tveggja. Á vef Stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að árið 1972 hafi þáver­andi dóms­mála­ráð­herra skipað sér­staka rétt­ar­fars­nefnd og á grund­velli til­lagna hennar hafi verið lagt fram á árunum 1975 til 1976 frum­varp um milli­dóm­stig sem síðan hefur gengið undir nafn­inu Lög­réttu­frum­varpið. Meg­in­mark­mið frum­varps­ins voru hrað­ari með­ferð dóms­mála og auk­inn aðskiln­aður dóms­valds og fram­kvæmd­ar­valds. Þetta frum­varp var lagt fram á Alþingi með ýmsum breyt­ingum alls fimm sinnum á árunum þar á eftir en náði ekki fram að ganga. Hug­myndin um milli­dóm­stig lá eftir það í dvala og var ekki hluti af þeim breyt­ingum á dóm­stóla­skipan og rétt­ar­farsum­bótum sem inn­leiddar voru hér á landi á árinu 1992

Í des­em­ber árið 2006 rit­aði dóm­stóla­ráð bréf til dóms­mála­ráð­herra í til­efni þess að til með­ferðar var frum­varp til nýrra laga um með­ferð saka­mála. Þar var lagt til að komið yrði á fót milli­dóm­stigi í saka­málum til að koma til móts við sjón­ar­mið um rétt­láta máls­með­ferð þannig að full­nægt yrði kröfum mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um áfrýjun dóma í saka­málum. Síðar skip­aði dóms­mála­ráð­herra nefnd til að fjalla um hvernig best mætti tryggja milli­liða­lausa sönn­un­ar­færslu í með­ferð saka­mála og skil­aði hún skýrslu um málið 1. októ­ber 2008.

Taldi nefndin margt benda til þess að gild­andi fyr­ir­komu­lag um sönn­un­ar­færslu fyrir Hæsta­rétti Íslands bryti gegn meg­in­regl­unni um milli­liða­lausa sönn­un­ar­færslu og gengi í ber­högg við mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Ekki hefði tíðkast í fram­kvæmd að rétt­ur­inn end­ur­mæti nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms um sönn­un­ar­gildi fram­burðar með því að taka skýrslur af ákærða eða vitnum þar fyrir dómi. Þess í stað hefði rétt­ur­inn oft­ast gripið til þess ráðs að ómerkja dóm og vísa málum aftur heim í hérað. Beiting úrræð­is­ins ylli oft töfum á með­ferð máls, auk þess sem ekki væri unnt að beita því nema einu sinni í hverju máli. Lagði nefndin til að stofn­aður yrði dóm­stóll á milli­dóm­stigi.

Frumvörp um stofnun millidómstigs samþykkt 2016

Þann 8. októ­ber 2010 héldu Ákærenda­fé­lag Íslands, Dóm­ara­fé­lag Íslands, Lög­fræð­inga­fé­lag Íslands og Lög­manna­fé­lag Íslands mál­þing um stofnun milli­dóm­stigs hér á landi. Þar kom fram mik­ill ein­hugur um stofnun milli­dóm­stigs í einka­málum og saka­málum. Þessi félög sendu í kjöl­farið erindi til dóms­mála- og mann­réttinda­ráðu­neyt­is­ins þar sem skorað var á dóms­mála­ráð­herra að beita sér fyrir stofnun milli­dóm­stigs í einka­málum og saka­málum. Ráðu­neytið ákvað þann 13. des­em­ber 2010 að skipa vinnu­hóp til að fylgja þessu erindi eftir. Fékk vinnu­hóp­ur­inn þau fyr­ir­mæli „að taka til skoð­unar þörf­ina á að setja á fót hér á landi milli­dóm­stig sem taki bæði til saka­mála og einka­mála, kosti þess og galla og hvernig slíku milli­dóm­stigi væri best fyrir komið auk þess að leggja mat á þann kostnað sem slíku væri sam­fara.“ Þá skyldi hóp­ur­inn hafa sam­ráð við full­trúa fram­an­greindra félaga við vinnu sína. Vinnu­hóp­ur­inn skil­aði inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu skýrslu í júní 2011 þar sem fjallað var ítar­lega um stofnun milli­dóm­stigs og kostir og gallar hinna ýmsu leiða raktir.

Árið 2013 skip­aði inn­an­rík­is­ráð­herra nefnd til að vinna frum­varp til að setja á fót milli­dóm­stig. Skilaði nefndin frum­varpi sínu í mars 2015. Í fram­haldi af því var að til­stuðlan þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Ólafar Nordal, unnið að frek­ari útfærslu frum­varps­ins auk þess sem til­högun stjórn­sýslu dóm­stóla var tekin til nán­ari athug­unar. Í kjöl­farið, eða í mars 2016, lagði inn­an­rík­is­ráð­herra fram tvö laga­frum­vörp á Alþingi um stofnun milli­dóm­stigs hér á landi, ann­ars vegar frum­varp til nýrra laga um dóm­stóla og hins vegar frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um með­ferð einka­mála og lögum um með­ferð saka­mála. Bæði frum­vörpin voru sam­þykkt á Alþingi þann 26. maí 2016.

Sigríður Á. Andersen varð dómsmálaráðherra í janúar 2017.
Sigríður Á. Andersen varð dóms­mála­ráð­herra í jan­úar 2017.

Listi dómsmálaráðherra ólíkur þeim lista sem dómnefnd lagði fram

Sig­ríður Á. And­er­sen þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tók við sem dóms­mála­ráð­herra í kjöl­far þess að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar var kynnt til leiks í jan­úar 2017.

Hún birti þann 30. maí 2017 til­lögu sína yfir þá 15 umsækj­endur sem hún vildi skipa í Lands­rétt – þetta nýja milli­dóms­stig sem átti að taka til starfa í byrjun jan­úar árið eftir. Þá myndu öll saka­mál sem áfrýjað hefði verið til Hæsta­réttar fyrir þann tíma fær­ast til Lands­réttar sem myndi ljúka með­ferð þeirra.

Listi Sig­ríðar var aftur á móti frá­brugð­inn þeim lista sem dóm­nefnd um hæfi umsækj­enda hafði lagt fram tæpum tveimur vikum áður. Fjórir af þeim 15 sem dóm­nefndin hafði mælt með voru ekki lengur til­nefndir og fjórir aðrir komnir í þeirra stað. Kynja­hlut­föll höfðu verið löguð umtals­vert. Í stað tíu karla og fimm kvenna vildi ráð­herr­ann skipa átta karla og sjö kon­ur. Kynja­sjón­ar­mið réðu þó ekki för við breyt­ing­una að sögn ráð­herra. Þau eru ekki hluti af rök­stuðn­ingi hennar fyrir breyttri röð­un, heldur ein­ungis dóm­ara­reynsla, sem Sig­ríður taldi að gera ætti hærra undir höfði við val á dóm­ur­um.

Málið tók hins vegar aðra stefnu þegar Kjarn­inn birti lista dóm­nefndar um hæfi 33 umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara í Lands­rétt í sömu viku í lok maí. Þar var umsækj­endum raðað í röð eftir hæfi, að mati dóm­nefnd­ar. Í ljós kom að þeir sem dóm­nefnd hafði sett í sjö­unda, ell­efta, tólfta og fjórt­ánda sæti yfir hæf­ustu umsækj­endur voru ekki á lista dóms­mála­ráð­herra. Í þeirra stað voru komnir umsækj­endur sem dóm­nefnd hafði sett í sæti 17, 18, 23 og 30.

Í skýrslu dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda komu fram upp­lýs­ingar þar sem reynsla af dóms­störfum umsækj­enda var borin saman. Þar var Eiríkur Jónsson, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands, settur í 18. sæti. Fyrir neðan hann, og þar af leið­andi með minni dóm­ara­reynslu, voru nokkrir umsækj­endur sem dóms­mála­ráð­herra vildi skipa í Lands­rétt. Þeirra á meðal voru Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir, Jóhannes Sig­urðs­son og Krist­björg Steph­en­sen, sem hafði enga dóm­ara­reynslu. Öll þrjú lentu einnig neðar í heild­ar­mati dóm­nefndar á umsækj­endum. Þar var Eiríkur í sjö­unda sæti, Krist­björg í því átt­unda, Jóhannes í því níunda og Oddný Mjöll í þrett­ánda sæti. Samt ákvað ráð­herra að skipa þau öll þrjú eftir að dóms­mála­ráð­herra ákvað að gefa dóm­ara­reynslu aukið vægi við skipan dóm­ara, og víkja þar með frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar.

Ákvað að skipa ekki 4 af þeim 15 sem dómnefnd hafði talið hæfasta

Með ákvörðun sinni ákvað Sigríður að skipa ekki fjóra af þeim 15 sem dóm­nefnd hafði talið hæf­asta til að sitja í Lands­rétti. Einn þeirra var Eiríkur, sem lenti líkt og áður segir, í sjö­unda sæti á lista dóm­nefndar yfir þá sem hún taldi hæf­asta til að sitja í rétt­inum. Jón Hösk­ulds­son, sem hefur ára­langa reynslu sem dóm­ari, lenti í 11. sæti á lista dóm­nefndar, en hlaut heldur ekki náð fyrir augum Sigríðar. Það gerðu heldur ekki Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem var í 12. sæti, eða Ástráður Har­alds­son, sem var í 14. sæti.

Þess í stað bætti Sigríður fjórum inn á list­ann. Þar ber fyrst að nefna Ásmund Helgason, sem var númer 17 á lista dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda og í 13. sæti þegar sam­an­burður var gerður á umsækj­endum á grund­velli reynslu af dóms­störfum. Arn­fríður Ein­ars­dóttir var í 18. sæti á lista dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda en Sigríður gerði samt sem áður til­lögu um hana í eitt af emb­ætt­unum 15. Arn­fríður er eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, sam­flokks­manns Sigríðar og for­manns stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á þeim tíma.

Ragn­heiður Braga­dóttir var líka valin af Sigríði þrátt fyrir að hafa lent í 23. sæti á hæf­is­lista dóm­nefndar. Bæði Ragn­heiður og Arn­fríður voru reynslu­miklir dóm­arar.

Sá síð­asti sem hlaut ekki náð fyrir augum dóm­nefndar en Sigríður ákvað að gera til­lögu um í Lands­rétt var Jón Finn­björns­son. Hann lenti í 30. sæti af 33 á hæf­is­lista dóm­nefndar. Hann hafði enga reynslu af lög­manns­störfum né stjórn­sýslu­störfum en hafði gegnt dóm­ara­störfum um ára­bil.

Alþingi samþykkti tillöguna

Alþingi sam­þykkti síðan til­lögu dóms­mála­ráð­herra um 15 dóm­ara við Lands­rétt þann 1. júní 2017. Stjórn­ar­þing­menn úr Sjálf­stæð­is­flokknum, Viðreisn og Bjartri fram­tíð greiddu atkvæði með til­lög­unni og stjórn­ar­and­staðan, að Fram­sókn­ar­flokknum und­an­skildum, greiddi atkvæði á móti. Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una​. Tillagan var sam­þykkt með 31 atkvæði gegn 22. Átta greiddu ekki atkvæði.

Landsréttur tók til starfa 1. janúar 2018.
Lands­réttur tók til starfa 1. jan­úar 2018.

Ást­ráður Har­alds­son stefndi íslenska rík­inu vegna skip­un­ar­inn­ar og það gerði Jóhannes Rúnar Jóhanns­son einnig. Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu 15. sept­em­ber 2017, sama dag og rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sprakk, að dóms­mála­ráð­herra hefði brotið lög við skipun Land­rétt­ar­dóm­ara. Dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður hefði átt að óska eftir nýju áliti dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­stöðu, ef hún teldi ann­marka á áliti dóm­nefnd­ar­inn­ar. Í nið­ur­stöðukafla dóms­ins var tekið fram að stjórn­sýslu­með­ferð ráð­herra hefði „ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um rann­sókn máls, mat á hæfni umsækj­enda og inn­byrðis sam­an­burð þeirra“.

Ríkið var sýknað af bóta­kröfum Ást­ráðs og Jóhann­esar Rúnars. Þeim þætti máls­ins var áfrýjað til Hæsta­réttar.

Dómsmálaráðherra braut stjórnsýslulög

Í des­em­ber sama ár komst Hæsti­réttur Íslands að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður hefði brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún vék frá hæfn­is­mati dóm­nefndar um skipun 15 dóm­ara í Lands­rétt.

Í dómi hans sagði að Sigríður hefði að lág­marki átt að gera sam­an­burð á hæfni ann­ars vegar fjög­urra umsækj­enda sem dóm­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­ustu en Sigríður ákvað að gera ekki til­lögu um að yrðu skip­aðir, og þeirra fjög­urra sem hún ákvað frekar að skipa. Það hefði hún ekki gert og gögn máls­ins bentu ekki til þess að nein slík rann­sókn hefði farið fram af hálfu Sigríðar.

Í dómnum sagði: „Samkvæmt því hefði máls­með­ferð hans verið and­stæð 10. gr. stjórn­sýslu­laga og af því leiddi að það sama ætti við um með­ferð Alþingis á til­lögu ráð­herra þar sem ekki hefði verið bætt úr þeim ann­mörkum sem máls­með­ferð ráð­herra var haldin.“

Í dómnum var fall­ist á miska­bóta­kröfur Ástráðs og Jóhann­esar Rúnars. Hæsti­réttur sýkn­aði hins vegar ríkið af skaða­bóta­kröfu og hafði áður vísað frá ógild­ing­ar­kröfur Ástráðs og Jóhann­esar Rúnars, sem laut að ógild­ingu þeirrar ákvörð­unar dóms­mála­ráð­herra að leggja ekki til við Alþingi að þeir yrðu skip­aðir í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.

Hæsti­réttur tók hins vegar afdrátt­ar­lausa efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Ef dóms­mála­ráð­herra ætl­aði að víkja frá áliti dóm­nefndar um veit­ingu dóm­ara­emb­ættis yrði slík ákvörðun að vera reist á frek­ari rann­sókn ráð­herra, líkt og kveðið er á um í stjórn­sýslu­lögum.

Íslenska ríkið dæmt til að greiða skaða- og miskabætur

Jón Höskulds­son og Ei­ríkur Jóns­son leit­uðu í kjöl­farið réttar síns og var ís­lenska ríkið dæmt til að greiða þeim skaða- og miska­bætur þar sem þeir hlutu ekki skipun, þvert á mat nefnd­ar­innar. Í októ­ber 2018 komst Héraðs­dómur Reykja­víkur að því að Jóni skyldu greiddar fjórar millj­ónir í skaða­bætur og 1,1 milljón í miska­bætur vegna lands­réttar­máls­ins. Þá var skaða­bóta­skylda Ei­ríks viður­kennd en hann átti eftir að sækja bætur sínar.

Í mars á þessu lækk­aði Lands­réttur bætur sem Jóni voru dæmdar og komst jafn­framt að þeirri nið­ur­stöðu að Eiríkur Jónsson, sem þá var orð­inn dóm­ari við Lands­rétt, ætti ekki rétt á neinum bótum. Sami dóm­ari skil­aði sér­at­kvæði í báðum mál­unum.

Eiríkur var skip­aður dóm­ari við Lands­rétt í ágúst á síð­asta ári þegar Vil­hjálmur Vil­hjálms­son hætti vegna ald­urs.

Hæstirétt­ur féllst í maí á þessu ári á mál­skots­beiðni Ei­ríks og Jóns og mun hann því taka mál þeirra fyrir. Í ákvörð­unum Hæsta­rétt­ar um að veita áfrýj­un­ar­leyfi kom fram að líta yrði svo á að úr­slit þess­ara mála gæti haft for­dæm­is­gildi um þau atriði sem þeir Ei­rík­ur og Jón vísa til í mál­skots­beiðnum sín­um. Því var fall­ist á að veita leyfið – en enn liggur ekki fyrir nið­ur­staða hjá Hæsta­rétti. 

Vantrauststillaga felld

Sam­fylk­ingin og Píratar lögðu fram van­traust­s­til­lögu á dóms­mála­ráð­herra í byrjun mars 2018 vegna fram­göngu hennar í lands­rétt­ar­mál­inu en til­lagan var felld. 33 þing­menn stjórn­ar­flokk­anna greiddu atkvæði gegn van­traust­s­til­lög­unni en 27 þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar og tveir þing­menn Vinstri grænna greiddu atkvæði með til­lög­unni. Einn þing­maður Mið­flokks­ins greiddi ekki atkvæði.

Atkvæði féllu að mestu eftir flokkslínum. Allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins greiddu atkvæði gegn van­trausti á dóms­mála­ráð­herra. Það gerðu líka níu af ell­efu þing­mönnum Vinstri grænna.

Ísland tapaði

Málinu var þó alls ekki lokið en í mars í fyrra – eða ári eftir van­traust­s­til­lög­una – var síðan greint frá því að Ísland hefði brotið gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir dómi í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti. Ástæðan var sú að mað­ur­inn fékk ekki rétt­láta máls­með­ferð fyrir Lands­rétti vegna þess að Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, sem er dóm­ari við rétt­inn, hefði ekki verið skipuð í hann með lög­mætum hætt­i.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­­­son, verj­andi manns­ins, lagði fram kröfu í Lands­rétti þann 2. febr­­úar árið 2018 um að Arn­­­fríð­ur, sem átti að dæma í mál­inu, væri van­hæf í ljósi þess að hún hefði ekki verið skipuð með réttum hætti í emb­ætti. Lands­réttur hafn­aði kröfu Vil­hjálms og sagði að skipun Arn­fríðar yrði ekki hagg­að.

Vil­hjálmur kærði þá nið­ur­stöðu til Hæsta­réttar sem komst að sömu nið­ur­stöðu og Lands­rétt­ur. Þann 24. maí 2018 stað­festi Hæsti­réttur svo dóm Lands­réttar í mál­inu og skjól­stæð­ingur Vil­hjálms var dæmdur í 17 mán­aða fang­elsi.

Vil­hjálmur kærði í kjöl­farið þá nið­ur­stöðu að seta Arn­fríðar í Lands­rétti væri í sam­ræmi við lög til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu (MDE). Hann ákvað að taka málið fyrir í lok júní 2018 og veita því flýti­með­ferð sem end­aði með þess­ari nið­ur­stöðu.

Þótti ekki ástæða til að stíga til hliðar

Sig­ríður taldi á þessum tíma dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu ekki vera til­efni til þess að segja af sér. Hún sagð­ist ­áfram njóta trausts hjá rík­is­stjórn­inni allri og hafði því ekki í hyggju að segja af sér­. Hún sagði dóm­inn bæði ver­a ó­væntan og for­dæma­lausan og þá kæmi líka á óvart að dóm­ur­inn hefði klofnað í afstöðu sinni til máls­ins.

Sig­ríður sagði það ekki koma sér á óvart að fólk væri að krefj­ast afsagnar hennar en hún taldi að þessi dómur gæfi ekki til­efni til þess. „­Menn hafa haldið því á lofti eins og þeir mögu­lega geta. En nei, ég tel nú ekki að þessi dómur gefi til­efni til þess og ég minni á og bendi á og árétta að afstaða íslenskra dóm­stóla til lög­mætis skip­unar dóm­ar­anna í Lands­rétti liggur alveg skýr fyr­ir. Það voru nú allar þrjár greinar rík­is­valds­ins sem einmitt komu að þeirri skipun og end­aði núna síð­ast með Hæsta­rétti sem dæmdi þessa skipun lög­mæta,“ sagði hún.

Dómsmálaráðherra á blaðamannafundinum í mars 2019 þar sem hún steig til hliðar.
Dóms­mála­ráð­herra á blaða­manna­fund­inum í mars 2019 þar sem hún steig til hliðar.

Degi síðar, eða þann 13. mars 2019, til­kynnti Sigríður á blaða­manna­fundi í dóms­mála­ráðu­neyt­inu að hún myndi stíga til hliðar sem dóms­mála­ráð­herra. Á þeim fundi lýsti Sig­ríður afstöðu sinni til lands­rétt­ar­máls­ins í löngu máli, sagði að nið­ur­staðan hefði komið henni „veru­lega á óvart“ og að hún ætl­aði að stíga til hliðar sem ráð­herra á meðan að verið væri að fjalla meira um ­málið og vinna úr þeirri stöðu sem upp var kom­in. Hún hefði skynjað að hennar per­sóna kynni að hafa trufl­andi áhrif á frek­ari með­ferð máls­ins.

Það er hins vegar ekki hægt að stíga til hliðar tíma­bundið sem ráð­herra. Stjórn­skipun lands­ins gerir ein­fald­lega ekki ráð fyrir því. Sig­ríður var að segja af sér emb­ætti. Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir tók tíma­bundið við sem dóms­mála­ráð­herra en sinnti áfram fyrri ráð­herra­störfum líka. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir tók við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra í sept­em­ber sama ár.

Yfirdeild MDE staðfesti niðurstöðuna

Þann 9. apríl 2019 ákvað íslenska ríkið að óska eftir end­ur­skoðun yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu á dómnum sem féll 12. mars. Yfir­deildin stað­festi síðan þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn dóm rétt­ar­ins í lands­rétt­ar­mál­inu.

Nið­ur­staðan var sú að Guð­mundur Andri Ást­ráðs­son, maður sem dæmdur var fyrir umferð­ar­laga­brot í Lands­rétti skömmu eftir að milli­dóms­stigið tók til starfa, hefði ekki notið þess að fá úrlausn máls síns fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stól.

Yfir­deild dóm­stóls­ins, sem skipuð var 17 dóm­ur­um, var ein­róma um að brotið hefði verið gegn rétti hans til rétt­látrar máls­með­ferð­ar, þar sem Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir hefði ekki verið skipuð með lög­mætum hætti. Íslenska rík­inu var gert að greiða Guð­mundi Andra 20 þús­und evrur í máls­kostn­að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið undanfarið ár